Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 16
/ 16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980 SÍKurvexari Rcykjavíkurskákmót.sins, Viktor Kupreitschik, ásamt Insvari Gíslasyni menntamálaráðherra ok Einari S. Einarssyni forseta Skáksambandsins. Ljósm. Ol.K.M. Walter Browne Bandarikjunum, sem varð í öðru sæti, tekur hér í hönd Einars S. Einarssonar, er Einar hafði afhent honum verðlaunin. „Þið eigið marga góða ^kákmenn á Islandi“ Sagði sigurvegari Reykjavíkurskákmóts- ins í lok verðlaunaafhendinga í gær „ÞETTA var ágætt mót, þið eigið marga góða skákmertn hér á íslandi,“ sagði sigurvegarinn á níunda Reykja- víkurskákmótinu, Victor Kupreitschik írá Sovétríkjun- um m.a„ er Mbl. ræddi við hann í lok verðlaunaafhend- inga í gær. Kupreitschik náði einnig árangri til stórmeistaratitils á mótinu og er það í fyrsta sinn, sem skákmaður vinnur til slíks titils á Reykjavíkurskák- móti. Gennadi Sosonko Hollandi, t.v., og Anthony Miles Englandi skiptu með sér þriðja og fjórða sætinu. 10. umferð Jón L. — Margeir 0—1 SchíissJer — Helgi V2—V2 Sosonko — Torre V2—V2 Browne — Haukur Vt—'k Kupreitschik — Vasjukov 'k—Vi í þessari umferð virtist helst sem að skákmennirnir væru að undirbúa sig fyrir stórátök helg- arinnar, en fjórar síðustu umferð- irnar voru tefldar án frídags. Sovétmennirnir tóku sér þannig frí eftir aðeins tíu mínútur og skák sem hafði greinilega verið ákveðin uppi á hótelherbergjum þeirra. Næstir til að semja voru þeir Guðmundur og Miles. Enski stórmeistarinn tók það reyndar fram eftir á að hann hefði viljað kanna álit Guðmundar á stöðunni og því boðið honum jafntefli. Flestir bjuggust við því að skák þeirra Schússlers og Helga myndi ekki standa lengi yfir eftir að það kom í ljós að Helgi valdi hina jafnteflislegu Drottningarind- versku vörn. Schússler tefldi hins vegar óvenju hvasst afbrigði af jafntefliskóngi að vera, og lengdi það lífdaga skákarinnar nokkuð. Hvítt: Schussler Svart: Helgi Ólafsson Drottningarindversk vörn 1. Rf3 - b6, 2. g3 - Bb7, 3. Bg2 - e6, 4. 0-0 - Be7, 5. c4 - Rf6, 6. d4 — 0-0 (Nú bjuggust flestir við framhaldi á borð við 7. Rc3 — Re4, 8. Rxe4 — Bxe4, 9. Rh4 — Bxg2,10. Rxg2 — d5, 11. Da4 — De8, en Schússler gróf hins vegar upp gamalt afbrigði líklega í þeirri von um að Helgi væri ekki með á nótunum) 7. d5!? (Þessi leikur vakti nokkra at- hygli eftir að það kom í ljós að hann er mögulegur, en almenn hrifning yfir honum varð aldrei mikil, einmitt vegna þess fram- halds sem Helgi velur) exd5, 8. Rd4 — Rc6 (Svartur gæti reynt að halda í peðið með ... Bc6, en tæplega ... c6 vegna 9. cxd5 — Rxd5,10. Bxd5 — cxd5, 11. Rc3 og hin herfræðilega hugmynd með peðsfórninni er komin í.ljós) 9. cxd5 — Rxd4, 10. Dxd4 — c5, 11. Dd3 - d6, 12. Rc3 - a6, 13. a4 — b5!? (Nýr leikur í stöðunni, sem nægir þó fullkom: lega til þess að jafna taflið. í skákinni Pomar-Rossolimo, New Orleans 1954 stóð svartur hins vegar betur eftir 13.... Rd7,14. f4 — Dc7, 15. e4 — c4 og b5 fylgdi í kjölfarið. 14. axb5 — axb5, 15. Hxa8 — Dxa8, 16. Dxb5 (ekki 16. Rxb5 — Ba6) Rxd5. 17. Bxd5 - Bxd5, 18. Rxd5 - Dxd5, 19. b4 - De6, 20. bxc5 — dxc5, 21. Ba3 — Hc8, 22. Hcl - h6, 23. Dc4 - Df5, 24. Dd3 - Dxd.3,25. exd3 - Hd8,26. Hc3 - Bf6, 27. Hxc5 - Hxd3 og nú var ekki seinna vænna að semja jafntefli. Haukur Angantýsson átti nú ágætan dag með svörtu gegn Browne. Haukur þáði peðið sem Browne bauð upp á með Drottn- ingarbragði sínu, en skilaði því fljótlega aftur eins og lög gera ráð fyrir. Staðan sem þá kom upp þykir vandtefld á svart, en Hauki tókst að leysa öll vandamál sín á næsta auðveldan hátt að því er virtist. Hvítt: Browne Svart. Haukur Angantýsson Móttekið Drottningarbragð 1. d4 - d5,2. c4 - dxc4,3. Rf3 — Rf6, 4. e3 — e6 (Benóný Benediktsson, margfaldur Reykja- víkurmeistari, leikur hér jafnan 4. ... b5, enda tíðkaðist það ekki að láta lið af hendi átakalaust norður í Húnavatnssýslu þar sem hann lærði að tefla.) 5. Bxc4 — c5,6.0-0 — a6, 7. a4 — cxd4, 8. exd4 — Rc6, 9. Rc3 — Be7,10. Hel (í byrjunarbókum er mælt með 10. Be3 — 0-0, 11. De2, sem betri uppbyggingu) 0-0, 11. Bg5 — Rb4! (Sígild hugmynd í stöðum af þessu tagi. Svartur hyggst leika b6 og síðan Bb7 og Rbd5) 12. Db3 - Rc6, 13. Ddl (Hvítur vildi auðvitað ekki leyfa Ra5) Rb4, 14. Re5 — Rc6 (Eftir bæði 14. ... b6 og 14. ... Bd7 hefði 15. Db3 verið öflugur leikur) 15. Rxc6 (Athugið að eftir 15. Rf3 — Rb4 hefði sama staðan verið komin upp þrisvar) bxc6, 16. Re4 — Rxe4, 17. Bxe7 — Dxe7, 18. Hxe4. (Staðan er nú í jafnvægi, því að veikleikarnir á c6 og d4 vega hvor annan upp) Bb7, 19. He5 - Hfd8, 20. Dd3 - Hd6, 21. h3 - Had8, 22. Bxa6 (Nú nær svartur nokkru frum- kvæði, en hvítur átti ekki annarra kosta völ) Hxd4, 23. Dfl - Df6, 24. Heel - Bxa6, 25. Dxa6 - Hd2, 26. Hfl - Dxb2, 27. Habl (Browne, sem var kominn í mikið tímahrak féll þó ekki í gildruna 27. Dxc6 — Hxf2! hvorki nú né í næsta leik) Da2, 28. Hbcl - h6, 29. Dxc6 - Dd5 (Haukur ætlar sér að fara út í hróksendatafl með fjórum peð- um gegn þremur á sama væng, þó að harla lítil von sé til þess að vinna slík töfl.) 30. Dc3 — Dd4, 31. Dc6 - Ha2, 32. Hc4 - Da7, 33. Dc7 (Loksins fellst Browne á fyrirætlanir Hauks) Dxc7, 34. Hxc7 — Hd4 (Öflugara en 34.... Hxa4, 35. Hbl og eftir að hvítur nær að tvöfalda hrókana á sjöundu línunni er jafnteflið gulltryggt) 35. Ha7 (en ekki 35. Hbl? - Hdd2! 36. Hfl - Hxa4 og svartur hefur mjög góða sigur- möguleika) Hdxa4, 36. Hxa4 — Hxa4. Nú er komin upp hin sígilda staða í hróksendatafli, þar sem svartur hefur peði yfir, en öll peðin eru á sama væng og vinn- ingsmöguleikar því harla tak- markaðir. Capablanca tókst að vísu tvisvar að vinna töfl þar sem hann hafði þrjú peð gegn tveimur, en þá voru peð varnaraðilans slitin í sundur, voru á h og f línunni, en kúbanski snillingurinn hafði hins vegar sín peð á e,f og g línunni. Slíkar aðstæður eru ekki fyrir hendi hér, en til þess ná upp slíkri stöðu hefði Haukur orðið að skipta upp á h peði sínu fyrir g peð Browne. Ameríski stórmeistarinn gaf vitanlega engan slíkan högg- stað á sér og þrátt fyrir ítrekaðar vinningstilraunir Hauks lauk skákinni um síðir með jafntefli. Þá víkur sögunni að þeirri skák tíundu umferðarinnar sem var langmest spennandi, þ.e. viðureign þeirra Jóns L. Arnasonar og Margeirs Péturssonar: Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Margeir Pétursson Spænski leikurinn 1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6,5.0-0 - Rxe4 (Opna afbrigðið, sem nú hefur aftur öðlast sínar fyrri vinsældir) 6. d4 - b5, 7. Bb3 - d5, 8. dxe5 — Be6, 9. c3 — Bc5, 10. Rbd2 - 0-0,11. Bc2 - Rxf2!? (Upphafsmaðurinn að þessum leik mun vera enskur skákmaður að nafni Dilworth, en hann rann- sakaði afleiðingar leiksins á fjórða áratug aldarinnar) 12. Hxf2 - Í6, 13. exf6 - Bxf2+ (Botvinnik sem tók síðar Dilworth afbrigðið upp á arma sína lék hér strax 13. ... Dxf6 í skák með Smyslov árið 1943, en varð að lúta í lægra haldi) 14. Kxf2 — Dxf6, 15. Rfl (Nákvæmara er talið að leika hér 15. Kgl) Re5, 16. Be3 — Hae8, 17. Kgl! (Ágætur leikur. Eftir 17. Bd4 - Dh4+, 18. Kgl - Rxf3+, 19. gxf3 — Bf5 stendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.