Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
3
Strætisvagnakaup SVR:
Verður íslenzkur
iðnaður útilokaður?
„Pólitísk lykt af afgreiðslu
málsins“ segir Sigríður
Ásgeirsdóttir í stjórn SVR
„SÍÐASTLIÐINN laug-
ardag fór ég fram á það
að fá fund í dag, mánu-
dag, í stjórn Strætis-
vagna Reykjavíkur til
þess að ræða strætis-
vagnakaupin fyrirhug-
uðu, en stjórn SVR var
ekki gefinn kostur á að
senda fulltrúa með borg-
arstjóra til Ungverja-
lands til þess að kanna
þarlendu vagnana. Tveir
tæknimenn fóru í sendi-
nefndinni, en beiðni SVR
um að fá að senda full-
trúa var hafnað,“ sagði
Sigríður Ásgeirsdóttir í
samtali við Mbl. í gær en
Sigríður á sæti í stjórn
SVR.
„Fulltrúi Kópavogs slóst
hins vegar í för með
Reykvíkingunum og hann
mun hann hafa gefið
skýrslu í Kópavogi um gang
mála strax í síðustu viku og
einnig voru með í förinni
tveir fulltrúar frá Samafli,
en Samafl er umboðsaðili
fyrir ungversku Ikarus-
vagnana og var annar full-
trúinn Sigurður Magnússon
varaþingmaður Alþýðu-
bandalagsins. í stjórn Sam-
afls á sæti Ingi R. Helgason
og gefur það einnig glöggt
til kynna þá pólitísku lykt
sem er af afgreiðslu þessa
máls hjá meirihlutamönn-
um sem virðast ætla að
pressa þessi austantjalds-
viðskipti í gegn hvað sem
það kostar. Þó veit ég að
einhugur er ekki um þetta
mál hjá meirihlutanum í
stjórn SVR, en hann og
meirihluti borgarráðs hafa
haldið fund um málið þar
sem ekki mun hafa orðið
einhugur um afstöðu til
ungversku vagnanna.
SVR eiga nú tvær teg-
undir vagna, Volvo og Benz
og varahlutir eru til fyrir
250 millj. kr. í þessar teg-
undir.
Verðtilboðið á ungversku
vögnunum er lægst, en það
Sigríður Ásgeirsdóttir
segir ekki alla söguna. Það
er ljóst að Ungverjarnir
nota mjög úreltar aðferðir
við byggingu þessara bif-
reiða og mun það eiga sinn
þátt í þessu verði. Verðið á
vagni er boðið 46 millj. kr.,
hin tilboðin 9 eru á bilinu
64—87 millj. kr. Um er að
ræða 20 vagna, eða þriðj-
ung af bílaflota SVR. Eitt
af mörgum atriðum sem
þarf að vega og meta í
þessu verði er t.d. það að
ungversku vagnarnir eru
einum metra styttri en t.d.
Sigurður Magnússon
sænsku og það þýðir að tvo
vagna vantar miðað við
Volvotilboðið. Þá má nefna
til dæmis að ungversku
vagnarnir eru með einu
þrepi meira en þeir sem eru
notaðir hér og slíkt bætir
ekki stöðuna hjá öldruðum
og öryrkjum, þá vitum við
ekkert um undirvagninn á
þeim ungversku og einnig
má geta þess að ungverska
tilboðið miðast eingöngu
við allan vagninn. Hins
vegar mátti bjóða í vagn-
ana í þrennu lagi, undir-
vagn, yfirbyggingu eða all-
an vagninn. Innlendir aðil-
ar buðu í yfirbyggingar og
voru þeir með mjög sam-
bærileg tilboð og erlendir
aðilar. Þetta skiptir því
einnig máli í dæminu. Var
reyndar m.a. beðið með
útboð í 9 mánuði til þess að
innlendir aðilar gætu boðið
í verkefnið.
Nú hefur verið boðaður
fundur í stjórn SVR n.k.
fimmtudag, þar sem fund-
arefnið er kynning á Ikar-
us-strætisvögnum. Er
furðulegt að fá slíkt fund-
arboð um kynningu á einni
tegund af 10 í þessu máli.
Mál þetta hefur allt- hlotið
mjög óvenjulega afgreiðslu.
Það er kynlegt að véra í
stjórn þessa fyrirtækis og
fá ekki nema mjög tak-
markað að fylgjast með
framvindu mála og aðal-
lega í gegnum fjölmiðla. Ég
hef það á tilfinningunni að
borgarráð muni ákveða á
morgun, þriðjudag, hvað
gera eigi í málinu áður en
stjórn SVR fjallar um það,
allavega fær stjórn SVR
ekki skýrsluna fyrr en
borgarráð er búið að fjalla
um hana. Samkvæmt upp-
lýsingum sem ég hef aflað
mér telja tæknimenn sem
þekkja málið að ef ung-
versku vagnarnir verði
fyrir valinu þá sé það að
fara 10—15 ár aftur í
tímann varðandi útbúnað
og öryggi og þá má geta
þess að vagnstjórar sjálfir
sem eiga að vinna á tækj-
unum hafa ekki verið
spurðir álits.
Margeir
hlaut fegurð-
arverðlaunin
MARGEIR Pétursson hlaut íeg-
urðarverðlaunin á Reykjavíkur-
skákmótinu, sem slitið var i
samsæti, sem menntamálaráð-
herra, Ingvar Gíslason og kona
hans héidu i eftirmiðdag í gær á
Hótel Sögu.
Margeir hlaut verðlaunin fyrir
skák sína við Hauk Angantýsson í
þriðju umferð mótsins. Nánar er
sagt frá slitum Reykjavíkurskák-
mótsins á bls. 16 og 17 í dag.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI ( SlMAR: 17152- 17353
BorðstofuborÖ og stólar
Borðið er með massífum viðarkanti úr Stólarnir eru ,,klappstólar“ úr massífum
aski. Hægterað losaborðplötunauppog aski með fléttuðum klofnum reyr í setu.
snúa henni við, tveir litir eru á hverri Sérlegavandaðurogfallegaunninn viður.
plötu. Stærð borðs 120 cm. í þvermál.
*&*&«**
■ AUGLVSINGASTOFAN H.F
GISLI B BJQWNSSON