Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 59. tbl. 67. árg. __________ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sættir Nkomos og Mugabes í Salisbury í dag og hafa sættir tekist með skæruliðaforingjun- um tveimur. Nkomo hafnaði í síðustu viku boði Mugabes um forsetaembættið honum til handa en að sögn Zvobogos hefur Nkomo samþykkt að taka að sér embætti innanríkisráðherra. Að sögn Zvobogos fá hvítir menn tvö ráðherraembætti en hann vildi ekki segja hvaða emb- ætti það yrði nema hvað þau væru „mikilvæg". Frá því Mugabe var falin stjórnarmyndun eftir stór- sigur flokks hans í kosningunum hafa sjö manns beðið bana í skærum í landinu. New York, 10. marz. AP. SAMKVÆMT skoðanakönnun ABC sjónvarpsfréttastofunnar og Louis- Harrisstofnunarinnar bæri Gerald Ford. fyrrum forseti, sigur af Jimmy Carter, forseta Bandarikjanna, í for- setakosningum. Ford hlyti 54% at- kvæða en Carter 44%. Konnunin var gerð í síðustu viku. Samkvæmt sömu könnun myndi Carter bera sigur af Ronald Reagan með 58% atkvæða gegn 40%. I Gallupkönnun sem var gerð um mánaðamótin og kynnt í dag þá bæri Jimmy Carter sigur af Ronald Reagan í forsetakosningum. Carter hlyti 57% atkvæða en Reagan 34%. Þessi úrslit eru heldur hagstæðari Reagan en í fyrri skoðanakönnunum. í skoðana- könnun snemma í febrúar hlaut Carter 60% atkvæða gegn 31% Reagans. Sjá frétt af prófkjörum i Bandarikj- unum á bls. 46. Fundabann eftir átök í Belgíu Brussols. 10. marz. AI*. STJÓRNVÖLD í Belgiu settu í dag bann við fundunt fleiri en fimm manna i fimm þorpum i austurhluta Belgiu. Til mikilla átaka kom i gær milli flæmskumælandi Belga og frönskumælandi landa þeirra. Nitján lögreglumenn siösuðust ug að minnsta kosti jafnmargir óróaseggir. Rússar nota taugagas Peking, 10. marz. AP. „SOVÉTMENN nota taugagas til að drepa uppreisnarmenn og myrða íbúa í Kunarhéraði," sagði kínverska dagblaðið „Blað fólksins“ í Peking í dag í forsíðufrétt. „Með notkun taugagass hafa Sovétmenn sýnt enn meiri hörku i út- þensiu- og árásarstefnu sinni en nokkru sinni fyrr,“ sagði í blaðinu. Blaðið sagði að Sovét- menn hefðu brotið i bága við Genfarsáttmálann. Salisbury. 10. marz. AP. ROBERT Mugabe mun afhenda Soames lvarði, landstjóra Breta í Zimbabwe, ráðherralista sinn á morgun, þriðjudag, að því er talsmaður hans, Eddison Zvob- ogo, skýrði frá í dag. Mugabe átti í dag viðræður við Joshua Nkomo Skoðanakannanir | Bandaríkjunum: Ford myndi sigra Carter Wilfred Martens, forsætisráð- herra Belgíu, hvatti alla stjórn- málaflokka til að stuðla að því, að ekki kæmi til frekari átaka. Hann sagði að átökin gætu komið í veg fyrir þá áætlun stjórnar hans, að koma á sjálfstjórn til handa flæmskumælandi íbúum landsins annars vegar og frönskumælandi íbúum hins vegar. Um tvö þúsund flæmskumæl- andi Belgar lentu í átökum við 200 frönskumælandi landa sína í þorp- inu de Voeren, skammt frá Liege. Tólfhundruð lögreglumenn reyndu að skilja á milli. Miklar skemmdir urðu á mörgum húsum og fjöldi bíla stórskemmdist. Á undanförn- um árum hefur iðulega komið til átaka í de Voeren. Ghotbzadeh, fremst á myndinni. kemur af fundi með formanni rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Hassah Habibi til hægri. simamynd ap. Hörð barátta um völd sögð í Iran Washíngton. Teheran. 10. marz. AP. JIMMY Carter, forseti Bandarikjanna, kaiiaði á sinn fund þingleið- toga demókrata og repúblikana til að ræða nýjustu atburði i Iran, sem Jody Powell, blaðafulltrúi forsetans, kailaði „mjög alvarlega“. Jody Poweli tilkynnti um fundinn aðeins 15 minútum áður en hann hófst. Powell sagði, að Carter hefði rætt við Cyrus Vance utanríkisráðherra til að ræða ástandið i tran. Bandariskir embættismenn sögðu, að vaidabarátta færi nú fram i íran og hún torveidaði iausn gislanna úr prísundinni. Ástæða fundarhaldanna í Washington í kvöld er yfirlýsing Ayatojlah Khomeinis, trúarleið- toga írana, um að rannsóknar- nefnd Sameinuðu þjóðanna fái ekki að yfirheyra gíslanna nema niðurstöður um meinta glæpi fyrr- um íranskeisara verði birtar opin- berlega. Embættismenn í Wash- ington sögðu í einkaviðræðum, að samkvæmt samkomulagi sem gert var, þá verði niðurstöður nefndar- innar ekki birtar opinberlega nema nefndarmenn hafi rætt við atla gíslana í sendiráðinu. Hodd- ing Carter, blaðafulltrúi utan- ríkisráðuneytisins, sagði í kvöld, að Bandaríkin myndu ekki sætta sig við neinar yfirheyrslur yfir bandarísku gíslunum. Orðrómur var í Washington um, að forsetinn hygðist móta nýja stefnu gagnvart íran. Yfirlýsing Khomeinis gengur gegn yfirlýsingum Bani-Sadr, for- seta landsins, og Sadegh Ghotbza- deh utanríkisráðherra. Þeir kröfð- ust þess, að sendinefndin fengi að ræða við alla gíslana eða að þeir yrðu afhentir stjórnvöldum. Ghotbzadeh bar á móti þessu, og sagði að byltingarráðið hefði ákveðið að fara ekki fram á, að fá gíslana í sína vörzlu eins og sakir stæðu. Hann sagðist vonast til þess, að nefndarmenn yrðu áfram í landinu næstu tvo til þrjá daga. Bani-Sadr gagnrýndi náms- mennina i sendiráðinu harðlega og sakaði þá um að valda óróa. Hann sagði að námsmennirnir „svertu íslömsku byltinguna bæði innan- lands og utan“. Teheranútvarpið skýrði frá því í kvöld, að líklega myndu nefndarmenn ekki ræða við gíslana og að þeir færu frá íran á morgun (þriðjudag). Sovétmenn hafa gert samning við írönsk stjórnvöld um byggingu raforkuvers í Isfahan og lögðu sérfræðingar af stað frá Moskvu áleiðis tií borgarinnar í dag. Talsmaður íranska utanríkisráðu- neytisins skýrði frá því í dag, að írönsk stjórnvöld hefðu krafist þess, að írak kallaði heim um 92 sendiráðsstafsmenn frá Teheran. * Utiloka sam- starf við að- skilnaðarsinna .. enginn var á lífi til að grafa líkin 66 Khar. Pakistan. 10. mars. AP. „SKÖMMU fyrir sólarupprás birtust skyndilega hundruð sovéskra skriðdreka umhverfis þorpið og hófu skothríð á það. Orustuþotur þutu yfir og vörpuðu sprengjum og þegar þorpið hafði að mestu verið lagt í rúst vörpuðu þeir fallhiífarmönnum niður og þyrlur lentu með hermenn,“ sagði Abdel Wahid, bóndi frá Chigall í Kunarhéraði í Pakistan en hann komst í dag til Pakistans eftir fimm daga ferð yfir fjöllin frá Afganistan, ásamt hundruðum flóttamanna frá Kunarhéraði. „Uppreisnarmenn voru að- þrengdir en þeim tókst að fella marga Rússa. Þá kölluðu Rússar á orustuþotur og þær vörpuðu sprengjum og napalmi. Sumir þeirra brunnu til bana. Þegar ég leit síðast til baka brann allt sem brunnið gat og enginn var á lífi til að grafa líkin,“ sagði Wahid. Hann sagði að Sovét- menn hefðu sett vörð við vegi frá þorpinu. „Við gátum aðeins ferð- ast að nóttu til,“ sagði Wahid. Sovétmenn hófu vorsókn sína í héraðinu í síðustu viku og að sögn flóttamanna, hafa þeir beitt orustuþotum, þyrlum, skriðdrekum og fallhlífar- mönnum auk stórskotaliðs. Ástand þeirra hundraða flótta- manna, sem daglega flýja yfir landamærin til Pakistans er sagt ákaflega bágborið, eftir hina erfiðu ferð yfir fjöllin. Að sögn Attaullah Khan, yfir- manns flóttamannabúða í Khar komu 2 þúsund flóttamenn til búðanna í síðustu viku og þar eru nú alls 35 þúsund manns. „Margir þeirra eru frá Kerala, þorpinu þar sem afganskir her- mann, ásamt sovéskum hernað- arráðgjöfum, frömdu fjölda- morðin. í Kerala myrtu þeir skipulega alla karlmenn. í Kun- arhéraði myrtu sovéskir her- menn fjölda fólks, án tillits hvort um var að ræða uppreisn- armenn eða bændur," sagði Khan í samtali við fréttamann AP. Bilbao. 10. marz. AP. ÞJÓÐERNISSINNAR unnu um- talsverðan sigur í héraðskosning- unum í Baskahéruðunum á Spáni en úrslit lágu fyrir í dag. Þjóð- ernissinnaflokkur Baska vann 25 þingsæti af 60. Ýmsir leiðtogar þjóðernissinna útilokuðu stjórn- armyndun við aðskilnaðarsinna, Þjóðarbandalagið sem hlaut 11 þingsæti og Euskadiko Eskerra, sem hlaut 6 þingsæti. Miðflokkasamband Adolfo Suar- ezar forsætisráðherra Spánar hlaut aðeins 6 þingsæti og sósíal- istar níu. Hinn hægri sinnaði flokkur Alianza hlaut 2 þingsæti og kommúnistar eitt þingsæti. Kjörsókn var tæplega 60% , heldur meiri en þegar Baskar gengu að kjörborðinu í þjóðaratkvæða- greiðslunni um sjálfstjórn. Carlos Garaicocehea, leiðtogi þjóðernis- sinna, sagði í dag að helsta verk- efni nýrrar stjórnar væri að koma á friði i Baskahéruðunum og vinna bug á atvinnuleysi, en yfir 10% vinnufærra Baska eru atvinnu- lausir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.