Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980 • Hilmar Björnsson tolleraður af liðsmönnum sínum. Hilmar slakaði á fyrir leikinn með því að fara út ok skokka í 20 mínútur. En hann segist vera mjöK tauKaspenntur fyrir kappleiki. „Það er stórt mál að vera f úrslitum. en það má deila endalaust um hvað sé stærst og mest“ sagði Hilmar. Ljósm. Emilia. „A erfitt með að trúa því að við séum í úrslitum keppninnar" Sá sem á hvað stærstan þátt í hinum góða árangri Vals í Evr- ópumeistarakeppninni í hand- knattleik í ár er þjálfari liðsins, Hilmar Björnsson. Ililmar hefur undirbúið liðið mjög markvisst undir leikina og svo sannarlega uppskorið eins ok sáð var. Mbl. ræddi við Hilmar eftir leikinn og bað hann um að segja álit sitt á honum. — Ég var búinn að leggja alla áherslu á að fyrstu 15 minúturn- ar yrðu leiknar af gífurlegum krafti og ákveðni. Markmið mitt var að ná forystu áður en Spán- verjarnir væru búnir að ná jafn- vægi í leik sinn. Þá hafði það allt að segja fyrir okkur að áhorfend- ur létu ekki sinn hlut eftir liggja við hrópin og lúðrablásturinn. Blésu af krafti þegar Spánverjar voru í sókn, en hvöttu okkur svo ákaft til dáða í okkar aðgerðum. Þetta var sannkallaður heima- völlur. Við erum með leikreynda menn, sem leika árangursríkan handknattleik, og það er það sem gildir í svona leikjum. Þá var heppnin með okkur að vissu marki og það er líka nauðsyn- legt. Ég var einna hræddastur við að við næðum of góðu forskoti og færum að hanga á boltanum of snemma. Ég var tilbúinn með alls kyns aðgerðir ef við hefðum orðið undir í leiknum. Það kom mér nokkuð á óvart hversu aðgerða- litlir Spánverjarnir voru, en þeir leika undir gífurlegri pressu eins og við gerðum á Spáni: Fyrri hluta vikunnar æfðum við vel og þá aðallega snerpuæf- ingar. Það skilaði sér vel. Ég er búinn að standa lengi i þessu og hafði ekki trú á að við kæmumst áfram. Það er eins og að eitthvað komi alltaf upp sem setur strik í reikninginn. Eg átti allt eins von á því að svo yrði nú. Ég á erfitt með að trúa því að við séum komnir i úrslitin. -þr. Hringdi í Ask eftir úrslitum! ÁHUGINN á Evrópuleik Vals og Atletico var gifurlegur eins og vænta mátti. Strax að leik lokn- um var nánast ófært að ná sambandi við Laugardalshöll, þar sem hundruð manna, einkum fólk úti á landi, gátu með engu móti beðið eftir fréttatimum fjöl- miðlanna og hringdu til Hallar- innar. Frétti Mbl., að fólk hefði í vandræðum sínum með að ná sambandi við Laugardalshöll, hringt í veitingahúsið Ask, sem er skammt frá Laugardalshöllinni, í þeirri von að einhver þar innan dyra gæti sagt frá úrslitum leiks- ins. Frekar langsóttur möguleiki, en viti menn, starfsstúlkan sem svaraði í símann var með úrslitin á reiðum höndum og voru þó varla nema um tíu mínútur liðnar frá leikslokum! „Veróum ao sætta okkur við tapið“ ÞAÐ voru niðurbrotnir Spánverj- ar sem yfirgáfu leikvöllinn eftir að hafa tapað fyrir Val og misst af þeim möguleika að leika i úrslitum Evrópukeppninnar. Margir leikmenn Atletico grétu. Þeir tóku þó tapinu karlmann- lega þegar Mbl. spjallaði við þá um leikinn. Fyrirliði Atletico sagði: Þetta var erfiður leikur, við lékum ekki eins og við getum gert best. Valsmenn voru harðir og baráttu- glaðir og léku nú mun betur en á Spáni. Nú og svo þessir áhorfend- ur, þeir voru stórkostlegir og settu okkur að vissu leyti úr jafnvægi. Roman, þjálfari Atletico, var mjög óhress með tapið, en var samt fús til að ræða við frétta- mann Mbl. Roman sagði: Við ætluðum að byrja rólega og reyna svo að auka hraðann en okkur tókst það ekki. Valur lék góðan leik, miklu betri en á Spáni. Við vissum að í vændum var erfiður leikur, en okkar tap var að skora ekki fleiri mörk á Spáni. Stuðningsmenn Vals gerðu máske útslagið, það er ekki svo lítið að eiga svona leynivopn í pokahorninu. Þeir settu okkur hvað eftir annað úr takti í spilinu. Við lögðum mikið kapp á að stoppa Þorbjörn Guðmundsson og það tókst, en þá kom nafni hans Jensson. Besti maður Vals að mínum dómi var fyrirliðinn Stef- án Gunnarsson. Þá kom mark- vörðurinn Ólafur okkur á óvart. Við verðum að sætta okkur við tapið, bæði liðin gátu ekki komist áfram. Ferðin til íslands hefur verið skemmtileg og allar móttök- ur hjá Val frábærar. - þ.r. Hópferð á úrslitin? ÚRSLITALEIKURINN í Evrópu- keppni mcistaraliða í hand- knattleik, viðureign Vals og vest- ur þýsku meistaranna Gross- waldstadt fer fram í Dortmund annað hvort 22. eða 29. mars næst komandi. Höllin í Dortmund er heima- völlur Gummersbach og tekur hún 13.000 manns. Valsmenn hafa einu sinni leikið í þessari höll, Evrópuleik gegn Gummers- bach, sem tapaðist. Stefna Vals- menn nú að því að koma á fót hópferð fyrir áhangendur liðsins. Þess má að lokum geta, að Valsmenn hafa fengið video-spólu af leik Grosswaldstadt og Dukla Prag. Verður að öllum líkindum farið vel yfir þá spólu áður en í slaginn er haldið. HandKnattieikur ....... .... ... .A Stórkostlegir áhorfendur — Ég er búinn að starfa hér í Laugardalshöllinni síðan hún var opnuð og hef aidrei orðið vitni að annarri eins stemmningu og var i kvöid, sagði Steindór Guð- mundsson starfsmaður í Laugar- dalshöllinni eftir leik Vals og Atletico. Það munu hafa verið um 3400 manns í húsinu og stóðu áhorfendur sig frábærlega. Hlut- ur þeirra í sigri Vals var mikill, enda áttu leikmenn Vals og stjórnarmenn handknattleiks- deildarinnar varla orð til þess að lýsa hrifningu sinni. íslensku áhorfendurnir slógu þá spænsku út, og svo góðir voru þeir að Valur þyrfti að taka þá alla með til Dortmund í úrslita- leikinn. Á myndinni hér til hliðar má sjá hluta af þeim mikla f jölda, sem var í höllinni, fagna leik- mönnum í leikslok. — þr. Aftur skellur hjá Heim CALPISA Alicante frá Spáni sigraði Heim i síðari leik liðanna í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa i handknattleik, en leikið var í Svíðþjóð. Lokatölurn- ar urðu 28—25 fyrir Calpisa. Varla þarf að minna á, að spænska liðið vann ótrúlegan sigur í fyrri leik liðanna, 40 — 25, vann því samanlagt 68— 50. Það þarf varla heldur að minna á, að það var Heim sem sló Viking út úr keppninni i 2. umferð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.