Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980 47 Jafnt í byrjun einvígis Korchnois og Petrosians Velden. Austurríki. 8. marz. AP. VIKTOR Korchnoi, sem leikur íyrir Sviss, og Rússinn Tigran Petrosjan sömdu jafntefli í ann- arri skákinni í öðru einvigi sínu um réttinn til að skora á heims- meistarann. Petrosjan lék hvítt og bauð jafntefli eftir 16. leik. Þá hafði skákin staðið í þrjá tíma. Fyrri skákin fór í bið á laugardag þegar Petrosjan, sem lék svart, átti að leika 41. leik. í dag sömdu stórmeistararnir um jafntefli í þeirri skák líka. Einvígi Korchnois og Petrosj- ans er mesti skákatburður sem farið hefur fram í Austurríki. Korchnoi og Petrosjan voru góðir vinir þar til á heimsmeistaramót- inu í Odessa 1974 þegar Petrosjan gafst upp fyrir Korchnoi, í orði kveðnu af heilsufarsástæðum. Daginn áður en einvígið hófst fengu dómararnir, Harry Golom- bek og Gertrude Wagner, breyt- ingar á mótsreglunum frá Al- þjóðaskáksambandinu, FIDE. Samkvæmt nýju reglunum verða tefldar tíu skákir. Ef úrslit verða ekki knúin fram að 10 skákum loknum eiga skákmennirnir að taka þátt í tveggja leika lotum þar til annar hvor þeirra vinnur tvisv- ar í röð. Skipuleggjendur mótsins ætl- uðu að nota hinar gömlu mótsregl- ur FIDE og munu mótmæla nýju reglunum sem þeir segjast ekki hafa heyrt um fyrr en síðdegis á laugardag. Einvígið í Velden hefur vakið heimsathygli og þangað eru komnir skáksérfræðingar frá mörgum löndum. Þar sem Bobby Fischer hefur dregið sig í hlé telja margir sérfræðingar að Korchnoi sé eini maðurinn sem geti ógnað heimsmeistaranum Karpov. Thatcher á undanhaldi l.undúnum — 10. marz — AP. BREZKA blaðið The London Evening Standard birtir í dag niðurstöður nýrrar skoðana- könnunar þar sem fram kemur að 60% kjósenda séu nú óánægð með stjórn íhaldsflokksins. Vinsældir Thatchers forsætis- ráðherra hafa farið dvínandi, þannig að aðeins 37% þátttak- enda í könnuninni segjast ánægð með hana en í október lýstu 44% yfir ánægju sinni með leiðtogann. 70% þátttakenda í hinni nýju könnun eru þeirrar skoðunar að efnahagsástandið í Bretlandi muni enn versna á næstu 12 mánuðum. Korchnoi Pctrosjan Robert Húbner er einnig talinn koma til greina, en hann mætir Ungverjanum Andras Adorjan í Bad Lauterberg, Vestur-Þýzka- landi, 22. marz. Sovézku stór- meistararnir Tal og Polugajevski taka einnig þátt í baráttunni og keppa í Alma Ata, Sovétríkjunum. Síðasta einvígið verður milli Lajos Portisch frá Ungverjalandi og Rússans Boris Spasskys í Mex- íkóborg seint í þessum mánuði. Sigurvegarinn í Velden mun síðan mæta sigurvegaranum frá Alma Ata. Sigurvegarinn frá Bad Lauterberg mun keppa við sigur- vegarann frtMexíkóborg. Sjálft lokaeinvígið um réttinn til að skora á heimsmeistarann sumarið 1981 verður að fara fram fyrir desember. Korchnoi hefur ekki yrt einu orði á keppinaut sinn, Petrosjan, síðan þeir hittust fyrst í síðustu viku. Georges Marchais. Dularf ull dvöl Marchais í Þýzkalandi í striðinu Aunsburn. Vcstur Þýzkalandi. 10. marz.AP. SKÝRSLUR gefa til kynna. að franski kommúnistaleið- toginn Georges Marchais hafi dvalizt lensur í Þýzka- landi á stríðsárunum en hann hefur viðurkennt opinberlega að sögn forstöðumanns skjalasafnsins í Augsburg, Wolfram Baer, en skjöl leiða ekki í ljós hvort Marchais hafi farið af fúsum vilja til Þýzkalands eða hvort hann var sendur þaðan í nauðungarvinnu. Baer segir, að á lögregluskírt- flúið 1943 og farið aftur á laun til neitaði ásökununum og kallaði skjalið í L’Express „grófa fölsun“. En Baer heldur því ákveðið fram, að skráningarskírteinið sé ófalsað, þótt hann segi að það gefi ekki til kynna hvort Marchais hafi farið nauðugur eða af fúsum vilja til Þýzkalands til að stunda verka- mannavinnu. Baer segir skjöl sýna, að 19. desember 1942 hafi Marehais búið í byggingu við Stephanplatz í Augsburg. I marz 1943 hafi hann flutzt til útborgar- innar Haunstetten þar sem Mess- erschmitt-flugvélaverksmiðjurnar voru. eini Marchais standi „10.5.1943“ og „10.5.1944“ og að þessar dag- setningar geti táknað að hann hafi fengið útgefna skömmtunarseðla á þessum dögum. Baer segir, að draga megi þá ályktun með líkum og allt að því vissu, að Marchais hafi verið í Þýzkalandi á þessum dögum — „því ef hann hefði ekki verið hérna hefði sennilega ekkert verið skrifað. Hins vegar er engin óhrekjandi vissa fyrir þessu“. Marchais hefur opinberlega haldið því fram, að hann hafi verið fluttur nauðugur til Þýzka- lands til að vinna í flugvélaverk- smiðju í Augsburg en kveðst hafa Frakklands. Franska tímaritið L’Express heldur því hins vegar fram í síðasta tölublaði, að Mar- chais hafi breitt yfir starfsemi sína í Þýzkalandi á stríðsárunum. ’Express birti mynd af skrán- ingarskírteininu og sagði, að það bæri með sér að Marchais hefði verið í Þýzkalandi ári eftir að hann hélt fram að hann hefði farið aftur til Frakklands. Tíma- ritið sagði ennfremur, að Mar- chais hefði búið í húsi þar sem íbúðirnar voru ætlaðar sjálfvilj- ugum verkamönnum, þýzkum og erlendum. Marchais, sem kemur til greina í forsetaframboð á næsta ári, Tengdasonur Brezhnevs á uppleið Moskvu. 10. marz. AP. YURI M. Churbanov, sem að sögn diplómata er tengdasonur Leonid Brezhnevs forseta, hefur verið hækkaður í tign og skipaður fyrsti aðstoðarinn- anríkisráðherra samkvæmt opin- berum framboðslistum er sovézk blöð hafa birt. Á lista um menn sem voru kosnir á þing rússneska sambandslýðveld- isins er að finna nafn Churbanovs sem er titlaður fyrsti aðstoðaryfir- maður ráðuneytisins. Churbanov, sem frettir herma að sé kvæntur dóttur Brezhnevs, Galinu, var skip- aður aðstoðarinnanríkisráðherra 1977. Sem fyrsti aðstoðarinnanríkisráð- herra tekur Churbanov við af Viktor S. Paputin hershöfðingja sem frétt- ir hermdu 3. janúar að væri látinn. Paputin fór til Afganistans í des- ember til að auka öryggi í landinu að því er fréttir sögðu. Yuri Brezhnev, sonur forsetans, er fyrsti aðstoðarutanríkisvið- skiptaráðherra. Fred Astaire, sem nú er áttræður að aldri, hefur skýrt frá því að hann og 35 ára gömul hestakona, Robyn Smith, muni á næstunni ganga í hjónaband. Astaire fylgist með kappreiðum af miklum áhuga, og það var þetta sameiginlega áhugamál, sem stuðlaði að fyrstu kynnum hjónaefnanna. Árásum á Norð- meim haldið áfram Moskvu. 10. mars. AP. MÁLGÖGN Sovetstjórnar- innar héldu í dag áfram árásum sínum á norsku stjórnina vegna þátttöku Norðmanna í varnarsam- starfi NATO-ríkjanna. Heldur Kuznetsov, frétta- ritari Prövdu í Osló, því fram í blaði sínu í dag, að stefnu norsku stjórnarinn- ar sé til þess ætluð að hrella friðelskandi þjóðir Norður-Evrópu. Heldur fréttaritarinn því fram, að með því að halda heræf- ingar nálægt sovézku landamærunum og koma fyrir nýjum vopnabirgðum í Norður-Noregi séu Norð- menn að víkja frá þeirri stefnu, sem þeir hafi fylgt árum saman. Knut Frydenlund utanríkis- ráðherra Norðmanna lýsti því yfir fyrir nokkrum dögum að vart gæti farið hjá því að sambúð Noregs og Sovétríkj- anna versnaði til mikilla muna ef ekki yrði lát á árásum Moskvustjórnarinnar á utan- ríkis- og öryggismálastefnu Norðmanna, en sem kunnugt er birtist ekki stafkrókur í sovézk- Knut Frydenlund. um blöðum án þess að ritskoð- arar stjórnarinnar hafi lagt blessun sína yfir það. Sovézkar hleranir í höf uðborg Kanada Ottawa, 10. marz. AP. BLÖÐIN The Citizen og Edmonton Journal skýrðu frá því um helgina að Rússar gætu með flóknum og fullkomnum rafcindatækjabúnaði hlerað leynileg samtöl stjórnarinnar og vitnuðu í heimildir í Kanadísku riddaralögreglunni. Rafeindabúnaðinum er komið fyrir á þaki sendiráðsins nálægt aðalstöðvum lögreglunnar og landvarnaráðuneytinu þannig að Rússarnir geta hlerað leynileg simtöl og fjarskipti lögreglunnar að sögn blaðanna. Blöðin segja að vegna þessara rafeindahlerana neyðist Kanadamenn til að skipta um símanúmer til að geta ræðst við leynilega, breyta útvarps- bylgjulengdum reglulega og taka upp nýtt dulmál fyrir herinn og utanríkisþjónustuna. Því er haldið fram að Rússar hafi með þessari starfsemi valdið miklum skaða í kanadískum öryggismálum og að þeir geti jafnvel fylgzt með eftirliti lögreglunnar með sendiráðinu. Talsmaður landvarnaráðuneytisins sagði um fréttina að hann vissi ekkert um málið. Talsmaður riddaralögregl- unnar vildi ekki staðfesta fréttina. Akureyrí Amsterdam Aþena Barcelona Berlín BrQmel Chicago Frankfurt Genf Helainki Jerúsalem Jóhanneaarborg Kaupmannahöfn Lissabon London Lot Angeles Medrki Malaga MaHorca Miami Moskva New York Oeló París Reykjavtk Rio de Janeiro Róm Stokkhólmur Tet Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg 1 léttskýjaó 9 skýjaft 18 skýjað 13 ekýjaó 3 skýjaó 8 skýjaö 5 skýjaft 13 haióskfrl 10 heiftskírt -5 heiðskirt 16 heiðskírt 24 heiftskirt 2 skýjaö 17 Heióskírt 9 heíðskfrt 28 skýjað 16 heíóskírt 19 heióskírt 16 skýjaó 26 skýjaó -5 snjókoma 11 haióskfrt 2 skýjaó 11 skýjaó -2 «l 36 heiöskirt 13 heióakfrt 0 snjókoma 19 heiðskfrt 17 heióskírt 9 skýjaó 6 sfcýjaö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.