Morgunblaðið - 11.03.1980, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
Guðsteinn óstöðvandi
þegar UMFN hélt
áfram sigurgöngu sinni
— EF VIÐ leikum jafn vel og í
dag ok reyndar í síðustu fjórum
leikjum, vinnum við Val, sagði
Gunnar Þorvarðarson fyrirliði
UMFN eftir sigurleikinn við KR
á sunnudaginn, en samkvæmt
mótaskrá eiga toppliðin Valur og
UMFN að mætast í Laugardals-
höll annað kvöld, miðvikudag, og
verður það úrslitaleikur mótsins.
— Þetta hefur blómstrað hjá
okkur í síðustu leikjum, við
höfum náð upp góðum hraða og
hittni hefur verið mjög góð. Ég er
bjartsýnn fyrir leikinn við Val og
vona að með góðum stuðningi
áhorfenda náum við að vinna,
sagði Gunnar.
Leikur Njarðvíkinga og KR í
íþróttahúsinu í Njarðvík á sunnu-
daginn var mjög góður af hálfu
beggja liða. Leikurinn var lengst
af jafn en undir lokin sýndu
Njarðvíkingarnir styrk sinn og
sigu framúr og unnu öruggan
sigur, 100:83, en staðan í hálfleik
hafði verið 48:42, Njarðvíkingum í
vil. Maður leiksins var tvímæla-
laust Guðsteinn Ingimarsson,
hinn snjalli bakvörður Njarðvík-
urliðsins. Hann átti sannkallaðan
stjörnuleik, var allt í öllu hjá
liðinu bæði í vörn og sókn og ætíð
beztur þegar mest á reyndi. Guð-
steinn hefur verið mjög vaxandi
leikmaður í vetur og væri vissu-
lega gaman að sjá þá saman með
landsliðinu Guðstein og Jón Sig-
urðsson, en í þessum leik skyggði
Guðsteinn algerlega á Jón.
En snúum okkur að leiknum.
Njarðvíkingarnir byrjuðu leikinn
vel og var staðan orðin 12:6 eftir
þrjár mínútur en eftir 6 mínútur
hafði KR snúið við blaðinu og
hafði komist yfir 15:14. Liðin
skiptust síðan á um að skora og
var mikið skorað framan af enda
sóknarleikurinn mjög sterkur á
þeim tíma hjá báðum liðum. Síðan
kom tímabil þar sem lítið var
skorað en undir lok fyrri hálfleiks
tók Guðsteinn sprett og skoraði
hverja körfuna á fætur annarri og
Njarðvík hafði sex stiga forystu í
hálfleik, 48:42.
KR-ingar voru hins vegar ekk-
ert að gefast upp og þegar 3
mínútur voru búnar af síðari
hálfleik munaði aðeins einu stigi,
60:59. En upp úr miðjum hálf-
leiknum skildu loks leiðir og
KR-ingum tókst ekki, þrátt fyrir
góða tilburði nýja Bandaríkja-
mannsins Keith Yow og annarra
liðsmanna, að halda í við Guðstein
og Co í Njarðvíkurliðinu og örugg-
ur sigur Njarðvíkinga var í höfn.
Undir lokin var spurningin aðeins
sú hvort Njarðvíkingum tækist að
ná 100 stiga markinu og það tókst.
Síðustu þrjár mínúturnar voru
varamenn liðsins settir inn á
völlinn og þeir héldu uppi
merkinu. Það var hinn ungi og
bráðefnilegi Smári Traustason
sem skoraði síðustu körfuna og
hinir tryggu áhorfendur Njarðvík-
urliðsins, sem fylltu áhorfenda-
pallana að venju ærðust af gleði.
Sem fyrr segir átti Guðsteinn
algjöran stjörnuleik í liði UMFN
og þarf ekki að fara fleiri orðum
um frammistöðu hans. Þá átti Ted
Bee einnig afbragðsgóðan leik.
Gunnar var að vanda góður, sér-
stakleag í fyrri hálfleik, og Jónas
og Brynjar komu báðir vel frá
þessum leik.
Keith Yow er hávaxinn og
sterkur leikmaður. Hann sýndi
það strax á fyrstu mínútunum að
hann er mjög snjall varnarmaður
en í sókninni náði hann sér ekki
virkilega á strik fyrr en í seinni
hálfleik og skoraði þá grimmt. Jón
Sigurðsson var með d .ufara móti
enda hefur hann ekki gengið heill
til skógar. Geir Þorsteinsson og
Ágúst Líndal áttu jafnan leik en
Garðar Jóhannsson var nokkuð
mistækur. Hann skoraði 10 stig á
fyrstu 5 mínútunum en síðan ekki
söguna meir.
Sti({ UMFN: IVd Bee 31, Guðsteinn Ingi-
marssun 28. Gunnar PorvarAarson 17. Jónas
Jóhannsson 9. Brynjar SÍKmundsson 8.
Smári Traustason 4 ok Valur Inximundar-
son 2 stivr-
Stis KR: Keith Yow 26, Jón SÍKurósson 14.
Geir Þorstcinsson 12, Ágúst Líndal 11.
Garóar Jóhannsson 10, Árni GuAmundsson
4. Þrðstur GuAmundsson 4. ItirKÍr GuA-
björnsson 2 stig.
HörAur Thulenius ok Guðbrandur Sík-
urðsson dæmdu leikinn vel. oo
IR skoraði 120 stig gegn Fram
ÍR ÁTTI ekki í erfiðleikum með
að sigra fallið Fram í úrvajs-
deildinni í körfu á sunnudag. Án
þess þó nokkurn tíma að sýna
sínar beztu hliðar þá skoruðu
ÍR-ingar 120 stig gegn 94 —
fleiri stig en nokkurt annað lið í
úrvaldsdeildinni í vetur. En vörn
Fram var ákaflega slök, baráttu-
leysi og vonleysi einkenndi lið
Fram. ÍR-ingar gátu nánast
gengið út og inn um vörn Fram
eins og þá lysti. Viðureign lið-
anna í Hagaskóla bauð sárafáum
áhorfendum ekki upp á mikla
spennu, né mikil tilþrif. Til þess
var mótstaða Fram alltof lítil.
Lið Fram hefur hrakað mjög
eftir því sem á veturinn hefur
liðið. Enda má segja að óheppnin
hafi elt liðið í vetur. Bandaríkja-
maðurinn John Johnson hvarf á
braut um miðjan vetur eftir að
ósætti hafði komið upp milli hans
og Fram. Þá kölluðu Framarar
annan Bandaríkjamann hingað
upp. Darrel Shouse, — bróðir hins
snjalla Danny, sem skorað hefur
svo mikið af stigum í vetur. En
Darrell reyndist ekki mikill bógur
og lék raunar ekki með á sunnu-
dag. Hann hafði verið sendur
heim.
Frám fékk óskabyrjun á sunnu-
dag, komst í 18—9 en ÍR náði að
jafna og komast yfir, 28—26 og
næstu 10 stig skoraði ÍR, komst í
38—26. Eftir það var það nánast
formsatriði að ljúka leiknum.
Fram hafði yfir í leikhléi, 58—45.
í síðari hálfleik jókst munurinn
stöðugt, þeir Mark Christiansen,
Kristinn Jörundsson og Kolbeinn
Kristinsson voru iðnir við að
skora. Hvað eftir annað missti
fram knöttinn eftir pressuvörn ÍR
og leiðin að körfu Fram var greið.
Lokatölur urðu 120—94 — stórsig-
ur IR í höfn, sigur sem í raun
skiptir engu því IR á enga mögu-
leika á að vinna deildina. Og hvað
Fram snertir þá var liðið þegar
fallið í 1. deild.
Það er ekki bjart framundan
hjá Fram. Fall í 1. deild og búast
má við því, að einhverjir hinna
betri leikmanna Fram hverfi á
brott. Fram hefur nú síðustu árin
verið stimplað efnilegasta liðið á
íslandi en ekki hefur ræst úr.
Hvað veldur er erfitt að segja til
um. I raun má segja að aðeins
tveir leikmenn liðsins, — þeir
Þorvaldur Geirsson og Símon
Ólafsson hafi borið uppi leik
liðsins í vetur. Aðrir leikmenn eru
einfaldlega ekki nógu góðir og því
fór sem fór.
ÍR hefur í vetur verið á þrösk-
uldi þess, að ná að skipa sér meðal
beztu en ekki tekist að brúa
herzlumuninn. Efniviðurinn hefur
verið fyrir hendi en leikur liðsins
hefur verið of sveiflukenndur í
vetur.
Stig ÍR skoruðu: Mark Christ-
iansen 35, Kristinn Jörundsson 28,
Kolbeinn Kristinsson 24, Jón Ind-
riðason 11, Sigmar Karlsson 8,
Þorsteinn Hallgrímsson 5, Sigurð-
ur Bjarnason 2.
Stig Fram skoruðu: Þorvaldur
Geirsson 32, Símon Ólafsson 22,
Ómar Þráinsson 18, Björn Magn-
ússon 10, Hilmar Gunnarsson 8,
Björn Jónsson 2 og Gunnar
Guðnason 2. Þeir Jón Otti Ólafs-
son og Gunnar Valgeirsson
dæmdu.
KA sigur í daufum leik
KA-MENN bættu 2 stigum í
safnið um helgina er þeir unnu
Aftureldingu með 22 mörkum
gegn 19. í 2. deildinni fyrir
norðan.
Jafnt var með liðunum framan
af, allt fram á 23. mín. er staðan
var 9:9. Þá tóku KA menn kipp
og breyttu stöðunni í 12:10 og var
staðan þannig í leikhléi. í upp-
hafi seinni hálfleiksins náði Aft-
urelding að jafna 12:12 en síðan
náði KA forystunni aftur og hélt
henni alveg til- leiksloka. Munur-
inn varð þó aldrei mikill, mestur
3 mörk.
Leikurinn var ekki vel leikinn,
og það sem helst gladdi augað var
góð markvarsla Emils Karlssonar
í marki Aftureldingar og Ólafs
Haraldssonar i KA-markinu. Emil
varði mjög vel allan leikinn en
Ólafur kom í markið hjá KA í
seinni hálfleiknum og varði þá
mjög vel, m.a. 3 vítaskot.
Sigur KA var sanngjarn, en
liðið hefur oft leikið betur en það
lék í þessum leik. Spilið var á
stundum ráðleysislegt, en þess á
milli lék liðið ágætlega saman. Lið
Aftureldingar lék þennan leik
einnig nokkuð vel og komu þeir
KA-mönnum oft í opna skjöldu
með hraðaupphlaupum sínum,
sérstaklega þó í byrjun leiksins.
Bestir útileikmanna Aftureld-
ingar voru Gústav Baldvinsson og
Steinar Tómasson en hjá KA var
Jóhann Einarsson bestur útispil-
aranna, og lék hann einn sinn
besta leik í vetur.
Mörk KA: Jóhann Einarsson 8,
Alfreð Gíslason 7 (2 v), Friðjón
Jónsson, Þorleifur Ananíasson og
Gunnar Gíslason 2 mörk hver og
Hermann Haraldsson 1 mark.
Mörk Aftureldingar: Lárus Hall-
dórsson 6 (4 v), Gústav Baldvins-
son 5, Steinar Tómasson og Sigur-
jón Einarsson 3 mörk hvor og
Þórir Hjaltesteð og Pétur Jó-
hannsson 1 mark hvor.
Sor.
• Guðsteinn var óstöðvandi er Njarðvík lagði KR.
íslandsmet
hjá Frey
FREYR Aðalsteinsson setti nýtt
íslandsmet í snörun og saman-
lögðu í 75 kg flokki á lyftinga-
móti sem fram fór á Akureyri um
helgina. Snaraði Freyr 122,5 kg,
en lyfti samanlagt 270 kg. Keppti
hann í tvíþraut.
í kraftlyftingum kom nýliði
mjög við sögu. Víkingur Trausta-
son keppti í 125 kg flokki og setti
6 ný Akureyrarmet. Samanlagt
lyfti hann 665 kg, sem er 72,5 kg
meiri þyngd heldur en gamla
Akureyrarmetið hljóðaði upp á .
sor/gg.
UMFN: Guðsteinn Ingimarsson 5, Gunnar Þorvarðarson 3, Jónas
Jóhannesson 3, Brynjar Sigmundsson 3, Smári Traustason 1, Júlíus
Valgeirsson 1. Jón V. Matthiasson 1, Valur Ingimundarson 1, Ingimar
Jónsson 1.
KR: Jón Sigurðsson 3, Geir Þorsteinsson 3, Garðar Jóhannsson 2,
Ágúst Líndal 2, Árni Guðmundsson 2, Þröstur Guðmundsson 2, Birgir
Guðbjörnsson 1.
Fram: Símon ólafsson 3, Þorvaldur Geirsson 3, Ómar Þráinsson 2,
Björn Magnússon 2, Björn Jónsson 1. Hilmar Gunnarsson 2, Gunnar
Guðnason 1, Örn Þórisson 1.
ÍR: Kristinn Jörundsson 3, Kolbeinn Kristinsson 3, Jón Indriðason
2, Sigmar Karlsson 2, Þorsteinn Hallgrímsson 2, Sigurður Bjarnason
2, Björn Leósson 1.
Dýrmæt stig til Þórs
ÞAÐ leit ekki út fyrir að þeir
áhorfendur sem höfðu borgað sig
inn á leik Þórs og Aftureldingar
fengju að sjá hinn minnsta snefil
af handbolta, en samt verða vitni
að því að Þórsurum áskotnuðust
2 dýrmæt stig. Búið var að flauta
leikinn á og Aftureldingar-menn
höfðu ekki látið sjá sig. Dómar-
arnir gáfu þeim hins vegar 10
mínútna frest til að mæta á
staðinn. Þegar fresturinn var að
renna út birtust þeir svo og
leikurinn fór því fram.
Þórsarar unnu góðan sigur
yfir Aftureldingar-mönnum og
náðu sér í dýrmæt stig í fallbar-
áttunni. Þegar upp var staðið
höfðu Þórsarar gert 24 mörk
gegn 19 mörkum Aftureldingar.
Fyrri hálfleikur var slakur af
beggja hálfu og fátt um fína
drætti. Leikurinn var mjög jafn og
skiptust liðin á um að skora,
staðan í hálfleik var 13—12 fyrir
Þór. I seinni hálfleik lifnaði held-
ur yfir leiknum, þó einkum og sér
í lagi yfir leik Þórsara. Þeir juku
forystu sína og höfðu þeir náð 3ja
marka forystu um miðjan hálf-
leikinn og eftir það var sigur
þeirra aldrei í hættu. Þórsarar
léku ekki vel framan af í leiknum
en í seinni hálfleik rifu þeir sig
svo upp úr sleninu og léku þá
ágætlega, þó einkum í vörn. Þeirra
bestur að þessu sinni var Sig-
tryggur Guðlaugsson, hann átti
sinn langbesta leik í vetur og lék
hann Aftureldingarmenn oft
grátt.
Lið Aftureldingar var ekki upp
á marga fiska í þessum leik, og var
enginn sem skaraði sérstaklea
framúr nema þá helst Gústaf
Baldvinsson.
Dómarar voru þeir Guðmundur
Lárusson og Ólafur Haraldsson og
voru dómar þeirra viðunandi.
Mörk Þórs: Sigtryggur Guð-
laugsson 7(lv), Benedikt Guð-
mundsson (5v), Pálmi Pálmason 4,
Árni Stefánsson 2, Gunnar Gunn-
arsson 2 og Valur Knútsson 1.
Mörk Aftureldingar: Lárus
Halldórsson 6(3v), Steinar Tóm-
asson 4(2v), Gústaf Baldvinsson 4,
Sigurjón Einarsson 2, Björn
Bjarnason 2 og Þórir Hjaltested 1.
Sor