Morgunblaðið - 14.03.1980, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1980
13
tæknilegra öryggi og fjármagni
en hin fyrri. Litlir krakkar, sem
höfðu sloppið af hæli fyrir and-
lega vanheil börn, koma að stóru
afskekktu húsi í eigu læknis
nokkurs. Þar voru fyrir þrenn
læknishjón og einn líttgefinn
þjónustumaður. Börnin taka nú
til við að kála þessu fólki
skipulega. Það er barið í hel með
hömrum, fiskar éta eina stúlku í
baðkeri, lítill drengur rekur eig-
anda hússins í gegn, ráðsmaður-
inn er hengdur í vír svo blóðið
spýtist úr hálsæðunum. Þarna er
atburðarásin mjög skýr. Hvert
smáatriði í morðum barnanna
rakið. Myndavélin fær góðan
tíma til að fylgjast með blóðtapi
fórnardýranna. í þetta skipti
þagnar ekki poppkliðurinn, hann
er jafn og stöðugur, því ekkert er
klippt burt. Allt er samfellu-
laust. Grandvara fólkið í kvik-
myndaeftirlitinu er reiddi skær-
in til klippingar þá fólkið í
„geysidjörfu" myndinni tók að
láta vel hvort að öðru virðist
hafa gleymt þeim í skúffunni er
„hryllings" atriði seinni mynd-
arinnar ber fyrir augu. Það
þykir greinilega ósiðsamlegra að
sýna fólki hvernig eðli náttúr-
unnar nær fram að ganga en
sýna eggjárn í höndum barna
tæta sundur vefi svo að blóðið
spýtist um öll gólf. í sveitinni í
gamia daga horfðu unglingarnir
á dýrin í vorleik, hvar eiga þeir
nú, sem ekki komast í sveit, að
læra á lífið. Annars er ekki við
kvikmyndaeftirlitið að sakast í
þéssu máli. Löggjafinn sem því
stjórnar hefur gleymt ofbeldinu.
Hitt er svo annað mál, að
„klám“ á ekki að þekkjast. Klám
er þegar bældar hvatir fá útrás í
brengluðu formi. Slíku sem lesa
má í söluturnabókmenntum og
bókum þeirra velferðarskálda
sem hafa gefist upp við að vera
skáld. Eðlilegur ástarleikur á
ekki að vera feimnisatriði. Hann
er aðeins hæsta stig atlota og
vináttu. Sé hann læstur niðri eða
gerður að einhverju öðru en
hann í rauninni er, þá verður
hann „klámi". Jafnvel skæri
kvikmyndaeftirlitsins geta gert
hann að „klámi". Því það sem er
bannað verður ímyndunaraflinu
að leik. Og því meiri hömlur sem
settar eru á hið eðlilega því
umsnúnara verður það í hinum
undarlegu vistarverum ímynd-
unaraflsins. í Indlandi hinu
forna var ástarleikurinn ein teg-
und tilbeiðslu. Musteri til dýrðar
honum reist og var trú manna að
í fegursta formi væri hann
sameining við guðdóminn. Fleiri
menningar-heildir hafa dýrkað
fegurð þessa leiks. Hver myndi-
voga sér að segja að myndir
Hokusai sem sýna slíkan leik
japanska karla og kvenna séu
„klám“. Ekki vinur vor Erró,
sem hefur slíka hluti upp í æðra
veldi í sumum mynda sinna —
en Erró býr ekki á íslandi heldur
París.
til kynna að menntun þeirra hafi
verið áfátt, öðru nær. Talið er að
íslenskur stúdent hafi, fyrstur
Skandínava, numið við Sorbonne í
París. Þeir, sem í fyrstunni bjuggu
íslenskunni ritmál, hlutu að vera
vel heima í einhverri málfræði, og
þá auðvitað latneskri, annað kom
ekki til greina.
Þó mörgum spurningum verði
ávallt ósvarað hlýtur því niður-
staðan að verða sú að íslendingar
hafi nánast frá upphafi verið öðru
vísi en frændurnir á Norðurlönd-
um, þjóðlíf og menning hafi strax
orðið hér með öðrum hætti, hvern-
ig sem á því gat staðið. Og þá er
auðvitað komið að spurningunni
um uppruna íslendinga sem hefur
verið dægradvöl hugkvæmra
fræðimanna jafnt sem óbreyttra
áhugamanna um sögu. En það er
önnur saga sem snertir ekki beint
það viðfangsefni sem hér um
ræðir.
Bjarni Guðnason lætur ímynd-
unaraflið ekki hlaupa með sig í
peinar gönur en heldur sig ræki-
lega við verkefni sitt. Fornt orðtak
segir að lærða menn greini á. Því
er naumast að vænta að Bjarni
boði hér endanlegan sannleika
sem allir muni fortakalaust fall-
ast á héðan í frá. En mikið hefur
hann til málanna að leggja, það
hygg ég sé að minnsta kosti óhætt
að segja.
Flóamarkaður
í Garðabæ
KVENFÉLAG Garðabæjar held-
ur flóamarkað í nýja gagnfræða-
skólanum við Vifilsstaðaveg
laugardaginn 15. mars og sunnu-
daginn 16. mars kl. 14—18. Allur
ágóði rennur til samkomuhúss
bæjarins, Garðaholts, en þar hafa
staðið yfir miklar breytingar og
endurbætur á húsinu og er stefnt
að því að það verði tekið í notkun
í vor.
Spurningakeppni
kvenna í Suður-
Þingeyjarsýslu
Húsavík. 12. marz.
KVENFÉLAGASAMBAND
S-Þingeyjarsýslu hefur tvær
síðustu vikur haldið tvær sam-
komur, þar sem farið hefur fram
m.a. spurningakeppni milli kven-
félaga í sýslunni. Hafa samkom-
urnar verið sérlega vel sóttar og
þótt hin bezta skemmtan. Á morg-
un, laugardag, verður þriðja sam-
koman af þessu tagi í Hafralækj-
arskóla og hin síðasta á Húsavík
21. marz, en þar fara fram úrslit
spurningakeppninnar.
-Fréttaritari.
AUGLYSINGASIMINN KR:
22480
2H«r0unbInbib
ÚTSÖLUSTADIR: Karnabær Laugavegi 66-Karnabær Glæsibæ — Eyjabær Vestmannaeyjum-Hornabær Hornafirði-Eplið Akranesi-Epliö ísafirði- Cesar Akureyri.
Sá sem veit hvað hann vill,
velur PIOIMEEIT
HLJÓMDEILD
System X-W
U • • •
R tækin eru odyr? -
ndu þá í verslun okkar
Veist
hvaó PION
ef ekki - y
og beröu s
Sjstem X-55