Morgunblaðið - 14.03.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1980
41
fclk í
fréttum
+ Um daginn birtum við mynd frá athöfninni er Grænlandsbiskup var vígður. — Þessi mynd er af
biskupnum, Jens-Chr. Chemnitz og f jölskyldu hans. — Biskupinn er skrýddur biskupskápu, en kona
hans og börn í grænlenskum samkvæmisklæðnaði. Myndin er tekin að lokinni vígsluathöfninni.
„Tarzan“
stjórnar
+ Ameríski leikarinn Ron Elý,
sem fyrstur leikara hefur leikið
Tarzan í sjónvarpsmynd, hefur
verið ráðinn til þess að vera
framkvæmdastjóri þess mikla
apparats sem fegurðarsam-
keppni Bandaríkjanna er. Ron
þessi er 42ja ára gamall. —
Hann er 14. leikarinn, sem fer
með hlutverk apabróðurins, í
gegnum tíðina. Sem fyrr segir,
sá fyrsti sem leikur hann í
sjónvarpsmynd. Myndin var
sýnd á árunum 1966—69. —
Hin frægu Tarzan-öskur gat
hann ekki ráðið við, en þá var
það leyst á þann hátt að sækja
þau í gamlar kvikmyndir þar
sem Johnny Weissmuller lék
Tarzan.
Það vakti allmikil blaðaskrif
vestra er fyrirrennara Ron Elý
var fyrirvaralaust vikið úr
stöðu fegurðarsamkeppnis-
stjórans. Sá maður heitir Bert
Park. Á það var minnst hér í
dálkum á sínum tíma.
Konunglegi dansflokkurinn frá Laos
KONUNGLEGI bailettinn í
Laos, í borginni Luang Prabang
var hér á árunum fyrr talinn
meðal fremstu balettflokka
heimsbyggðarinnar. Munu fáir
hafa átt að baki sér lengri eða
merkilegri sögu. — Hún spannar
600 ár! — Þegar kommunistar
brutust til valda í landinu, var
settur punktur aftan við sögu
þessa dansflokks, sem þá taidi
alls 74 dansara. —
Nú herma fregnir frá Bankok
að 55 dansarar úr flokknum sem
komnir eru þangað, hafi fengið
ieyfi bandarískra yfirvalda til að
flytjast til Bandaríkjanna. Ætl-
ar dansfiokkurinn að setjast að í
borginni Nashville í Tenne-
seefylki. Það fylgir fréttinni að
fleiri muni koma síðar. — En
dansfiokknum fylgja alls um 200
manns — fjölskyldulið dansarar.
— Það er kaþólska kirkjan Í
Bandaríkjunum, sem hér hefur
veitt aila hjálp.
— Talsmaður hins konungiega
dansflokks Houmpheng Phengs-
omphone þrítugur, sagði blaða-
mönnum í Bankok, að dönsurun-
um væri ljóst að kálið væri ekki
sopið þó í ausuna væri komið. —
Miklir erfiðleikar væru fram-
undan, m.a. vegna þess að mjög
fáir kunna orð í ensku. Allir eru
læsir og skrifandi á frönsku.
Mörgum í dansflokknum tókst
að komast til Thailands með því
að synda yfir Mekongfljótið —
sumir með ungabörn sín með
sér. En aðrir voru drepnir á
flóttanum eða reknir til baka, til
Laos.
Fyrir
þvottahús
fjölbýlishúsa
VANDLÁTIR VEUA
WESTINGHOUSE
Westinghouse þvottavélin og þurrkar-
inn eru byggð til að standa hlið við
hlið, undir borðplötu eða hvorl ofan á
öðru við enda borðs í eldhúsi eða
þvottahúsi, þarsem gott skipulag nýtir
rýmið til hins ýtrasta.
Traustbyggðar vélar með 30 ára
reynslu hér á landi.
Þið getiö veriö
örugg sé vélin Westinghouse
KOMIÐ — HRINGIÐ — SKRIFIÐ!
við veitum allar nánari upplýsingar.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
SLOTTSUSTEN
Látið okkur þétta fyrir yður opnanlega glugga og
hurðir með SLOTTSLISTEN-innfræstum þéttilistum
og lækkið með þvi hitakostnað.
Aflið yðurupplýsinga
strax í dag.
Varist
eftirlíkingar.
Olafur Kr. Sigurðsson & Co.
Tranavogi 1, sími 83484-83499