Morgunblaðið - 16.03.1980, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
64. tbl. 67 árg.
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Báknið burt
í Brasilíu!!
Carter boðaði millj-
arða dala niðurskurð
að draga úr ríkisbákninu, sem
löngum heíur þótt þunglama-
legt og svifaseint. Árangurinn
er þegar að koma í ljós. og hefur
almenningur tekið vel ýmsum
breytingum sem gerðar hafa
verið.
Feimnir
fá frekar
kvefen
ófeimnir
VÍSINDAMAÐUR við Oxford-
háskóla í Englandi hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að
sálrænar ástæður valdi því
fyrst og fremst að fólk fái
kvef. Hann sagði að einnig
réðist það að einhverju leyti
af persónuleika viðkomandi
hvort þeir fengju kvef eða
ekki, þcir sem væru einrænir
og ómannblendnir fengju
miklu frekar slæmt kvef held-
ur en þeir sem væru hneigðir
til að blanda geði við fólk.
Vísindamaðurinn fékk 52
sjálfboðaliða til að taka þátt í
athugun sinni. I upphafi geng-
ust sjálfboðaliðarnir undir um-
fangsmikla rannsókn þar sem
mótefni í blóði þeirra var mælt
og einnig vógu sálfræðingar og
mátu sálrænt ásigkomulag
þeirra.
Að svo búnu voru sjálf-
boðaliðarnir sýktir, hver með
tveimur kvefveirum. Niður-
stöðurnar voru þær að það
væri ekkert samband milli
alvarleika kvefsins og magns
mótefnis í blóði viðkomandi, en
það . hafði lengi verið trú
manna að afgangsmótefni frá
síðustu sýkingu mundi gera
það að verkum að næsta sýking
yrði ekki eins alvarleg. Beint
samband væri hins vegar miili
veikindanna og þess sálræna
ásigkomulags sem viðkomandi
var í við sýkingu.
Vísindamaðurinn klykkti svo
út með því að segja að þetta
ætti ekki aðeins við um kvef,
heldur ýmsa aðra veirusjúk-
dóma.
Stofnað var sérstakt ráðuneyti
til að athuga hvar draga mætti
úr umsvifum. Hefur það breytt
starfstilhögun í ráðuneytum og
opinberum stofnunum með þeim
árangri að dregið hefur verulega
úr alls konar skriffinnsku.
Helzta breytingin er sú að
ákvörðunarvald í ýmsum málum
var fært „niður á við“ og með því
hefur mátt fækka alls konar
skýrslugerð og útfyllingum
umsóknareyðublaða o.s.frv.
Ráðherrann sem hefur það
verkefni að draga úr bákninu
segir að brátt muni koma að því
að ráðuneyti hans verði leyst
upp, og óttast hann að við svo
búið muni skriffinnskan og
báknið aukast á ný.
Bob Dole
er hættur
Lawernce, 15. marz. AP.
BOB DOLE öldungadeildarþingmað-
ur tilk.vnnti formlegá í dag, að hann
væri hættur keppni repúblikana um
að hljóta útnefningu flokksins við
forsetakosningarnar í landinu í
haust. Dole er fimmti þátttakandinn
sem hættir keppninni.
Washinnton. 15. marz.
Frá íréttaritara Mbl. önnu Bjarnadóttur.
JIMMY CARTER Bandaríkjafor-
seti skýrði frá nýrri stcfnu Banda-
ríkjamanna gcgn vcrðbólgu á
föstudagskvöld. Hún er i fimm
atriðum. en forsetinn lagði megin-
áherzlu á að láta fjárlög fyrir árið
1981 verða hallalaus. Tii að ná því
marki þarf að skera niður ríkis-
útgjöld um 13—15 milljarða doll-
ara. Carter tiltók ekki hvaða
fjárveitingar hann mundi skera
niður en að þær yrðu teknar út,
sem væru nýjar í fjárlögum. bað
eru til dæmis áform Carters um
nýjan stuðning við stórborgir, og
opinber störf fyrir atvinnulausa.
svo að eitthvað sé nefnt. Fjár-
veitingar til varnarmála verða
ekki snertar.
Þingið þarf að samþykkja niður-
skurð á ríkisfjármálum, en Carter
hefur unnið með þingmönnum
beggja flokka að undirbúningi til-
lögu sinnar og vonast til að hún
verði samþykkt. Þingmenn
repúblikana sögðu að demókratar í
þinginu yrðu að hafa forystu um
það en yfirleitt voru þeir ánægðir
með tillögur forsetans, en þótti
hann ekki ganga nógu langt. Carter
sagðist beita neitunarvaldi gegn
sérhverri samþykkt þingsins sem
fæli í sér kostnaðarauka fyrir ríkið.
Önnur atriði í stefnu Carters eru
ráðstafanir til að draga úr lánsfé
tii almennings, án þess þó að það
komi niður á framleiðslunni,
innflutningsgjald á olíu, sem nem-
ur um 10 sentum á gallon af
bensíni og Carter getur sett á án
samþykkis þingsins. Hann mun
síðar leggja til að þetta verði að 10
senta bensínskatti til að draga úr
eftirspurn. Hann lagði til við
verkalýðsfélög og vinnuveitendur
að þeir takmörkuðu launahækkanir
sínar við 8,5% á ári og að lokum
ætlar Carter að gera breytingar,
sem munu hafa áhrif á efnahagslíf
Bandaríkjanna í framtíðinni og
tryggja aukna framleiðslu heima
fyrir og stöðugleika.
Þetta var fjórða ræða Carters á
þremur árum um verðbólgu-
vandann. Hingað til hefur honum
orðið lítið ágengt. Verðbólgan er nú
18% á ári. Flestum kemur saman
um að hallalaus fjárlög hafi lítil
áhrif á verðbólguna í sjálfu sér, en
þau hafi sálræn áhrif á almenning.
Carter sagði að ástand þjóðarinnar
væri mjög slæmt og hún yrði að
hætta að lifa um efni fram.
England:
Lítil systkini
brunnu inni
Sundcrland. EnRlandi. 15. marz. AP.
ÞRJU ung börn brunnu inni
aðfararnótt laugardags þegar
eldur kom upp á heimili þeirra.
að foreldrunum fjarverandi. Tvö
systkini önnur. þau elztu. komust
út og gátu kvatt slökkvilið á
vettvang. en ekki tókst að komast
inn í húsið að bjarga hinum
þremur. Þau voru fjögurra. sex
og átta ára.
Eldsvoði varð á svipuðum siö^
ð fyrir nokkrum vikum og fórust
þá fimm systkini. Ekki er vitað
hvort einhver tengsl eru þarna á
milli, að sögn lögreglu.
50%blý-
magnsins
úr niður-
suðudósum
Pasadona. 15. marz. — AP.
BLYMENGUN í matvælum er
miklu meiri en áður var haldiö
og helmingur hennar á rætur
að rekja til niðursuðudósanna
sem matvælin eru gevmd í.
samkvæmt niðurstöðum at-
hugana vísindamanna við
vísindastofnun Kaliforníu
(CIT). Segja vísindamennirnir
að 500 sinnum meira magn af
blýi sé i líkama nútíma-
mannsins en forsögulegum
miinnum.
1 niðurstöðunum segir að
1.000 sinnum meira ntagn af blý
sé í túnfiski upp úr niðursuðu-
dós sem lokað sé með brasmálmi
(dós lokað með sérstakri
„kveikingaraðferð") en ný-
veiddum fiski úr menguðu hafi.
Hins vegar sé 20 sinnum meira
blýmagn í fiski sem soöinn sé
niður í dós sem ekki sé lokað
með blýþræði.
Stofnunin hefur í 10 ár unnið
að rannsóknum á blýi í matvæl-
um, og segir í niðurstöðunum að
blýmengun sé miklu umfangs-
meiri og víðfeðmari en hægt sé í
fljótu bragði að gera sér grein
fyrir
Mikil kosningaþátttaka að
sögn útvarpsins í Teheran
Tehcran. 15. raarz. — AP.
TEIIERAN útvarpið skýrði frá því
í morgun. að mjög mikii þátttaka
hefði vcrið í fyrri umferð þing-
kosninganna í íran í gær en þess
var þó ekki getið hversu mörg
prósent hefðu grcitt atkva'ði.
Khomcini erkiklerkur lét ekki
opinberlega í ljós afstöðu í
kosningunum. en hins vegar munu
þingmennirnir, 270 talsins, ganga
á hans fund hinn 18. apríl þegar
ljóst er hver úrslit hafa orðið og
síðan kemur þing saman viku
síðar. Ekki er búizt við að þingið
muni hefja umræður um málefni
gíslanna í handaríska sendiráðinu
fyrr en um miðjan maí.
Carter Bandaríkjaforseti ásakaði
írönsk stjórnvöld í gær fyrir að
svíkja gefin loforð um gíslana og
sagði að hugsanlegt væri að engin
lausn fyndist á málinu þó svo að
þing væri kjörið. Hann kvaðst vona
að nýja þingið myndi styrkja stöðu
Bani Sadr forseta og annarrahóf-
samari afla, sem hafa látið þá
skoðun í ljós að „námsmennirnir“ í
sendiráðinu fari ekki að lögum.
Carter sagði að það hefðu verið sér
vonbrigði fram að þessu að sjá að
Bani Sadr og fyigismenn hans
hefðu reynzt gersamlega
vanmáttugir í að stjórna og fengju
bersýnilega engu ráðið.
„Heimsækið Sovét-
ríkin — áður en þau
heimsækja ykkur
99
Bclxrad. 15. marz. AP.
„HAFIÐ þið séð nýjustu ferða-
auglýsingarnar? spyrja Júgó-
slavar nú hvern annan: „Heim-
'sækið Sovétríkin — áður en
þau heimsækja ykkur...“ AP
fréttastofan segir að þetta sé
meðal nokkuð kaldranalegra
kerskniyrða sem gangi manna
á milli í Júgóslavíu síðan Sov-
étríkin gerðu innrásina í Af-
ganistan. „Vitiði hvað sov-
ésku hermönnunum var sagt
kvöldið fyrir innrásina í Af-
ganistan? — Standið ykkur
með sóma og þá fáið þið að
fara í leyfi á Adriahafs-
ströndina.“ hljóðar önnur
kersknisaga. Sagt er að Jú-
góslavar beiti óspart kímni
og háði til að reyna að létta af
sér spennu og kvíða sem hafi
ágerzt eftir Afganistaninnrás-
ina þar sem margir óttist nú
meira en nokkru sinni fyrr að
Sovétríkin láti til skárar
skríða í Júgóslavíu að Tító
látnum.
„Við erum að bíða eftir að
Brezhnev hrökkvi upp af — þá
ætlum að ráðast inn í Sov-
étríkin...“ segir AP-frétta
stofan að sé meðal þess sem
ýmsir hreyti út úr sér þeg-
ar þessi mál beri á góma.