Morgunblaðið - 16.03.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980
7
Umsjón: Gísli Jónsson
í síðasta þætti laumuðust
inn nokkrar villur, flestar
smávægilegar. Verst var að
orðið aukin sniglaðist inn í
máisgrein sem átti að vera
svo: Aðaláhersla skal vera á
fyrsta atkvæði og auka-
áhersla á þriðja.
í 22. passíusálmi
Hallgríms Péturssonar segir:
Yfirmönnum er því vant,
undirsátarnir hnýsa grannt
eftir því, sem fyrir augun ber,
auðnæmast þó hið vonda er.
Hvað höfðingjarnir hafast að,
hinir meina sér leyfist það.
Þetta vers kom í huga
minn, þegar ég hafði lesið
plagg nokkurt sem Arni
Árnason í Reykjavík sendi
mér ljósrit af. Þetta er bréf
eða tilskipun fjármálaráðu-
neytisins „til allra ráðuneyta
er málið varða“ (leturbreyt-
ing sendanda). Oft hefur
stofnanaíslenska eða ný-
kansellístíll sætt harðri
gagnrýni í þessum þáttum og
sýnist ekki vanþörf á. Skal
því birta hér efni þessa
hræmulega bréfs ráðuneytis-
ins. Sendandi hefur undir-
strikað þá málsgrein, þar
sem amböguhátturinn er
sýnstur:
„Með vísan til aðalkjara-
samnings BSRB og fjármála-
ráðuneytisins síðla árs 1977
svo og sérkjarasamnings
BHM var viðurkennd sú
staðreynd að ríkisstarfs-
mönnum hafði um árabil
verið mismunað í mötuneyt-
isaðstöðu og dýrleik mat-
fanga. Misneyti aðstöðu var
gert skil í framangreindum
samningum að vissu marki
en dýrleikar matfanga er
enn ágreiningsefni. Laun-
þegar líta oft til þess, hvort
nágranninn búi við betri kjör
og aðstöðu, en þeir sjálfir.
Niðurstaða launþegarann-
sókna er sú að ríkissjóður
beri mjög misjafnan kostnað
af rekstri mötuneyta nú í
dag, sérstaklega þeirra
mötuneyta sem framreiða
aðfluttan og/eða eldaðan
mat. Því hefur fjármálaráðu-
neytið að höfðu samráði við
fjárlaga- og hagsýslustofnun
og ríkisendurskoðun ákveðið
eftirfarandi reglur um þátt-
töku ríkissjóðs í rekstrar-
kostnaði þeirra mötuneyta
ríkisins sem bjóða upp á
heitan mat sem að mestu
leyti er matreiddur utan
mötuneyta ríkisins sbr. gr.
3.4. í kjarasamningi BSRB
við fjármálaráðherra.
1. Ríkissjóður greiðir upp-
hæð sem svarar 25% af
matarpeningum ríkis-
starfsmanna á hverjum
tíma með hverri máltíð
sem elduð er utan mötu-
neyta ríkisins.
2. Hér er um að ræða fryst-
an tilbúinn mat sem ein-
ungis þarfnast upphitunar
á staðnum svo og heitan
aðkeyptan mat.
3 Ríkissjóður leggur til að-
stöðu til upphitunar og/
eða skömmtunar á matn-
um svo og aðstöðu til
neyslu matarins og greiðir
kostnað sem af því leiðir.
4. Ríkissjóður greiðir vinnu-
laun vegna upphitunar og
skömmtunar á matnum og
frágangs í mötuneytinu
sbr. lið 4.
5 Uppgjör fari fram með
þeim hætti að greidd verði
upphæð skv. lið 1 pr.
keyptan matarskammt
samkvæmt framlögðum
reikningum þess sölufyr-
irtækis sem skipt er við.
42. þáttur
6. Reglur þessar taki gildi 1.
mars 1980. Ríkisfyrirtæki
og/eða mötuneytisfélög
launþega, sem telja þessar
reglur óhagstæðar því
fyrirkomulagi sem nú er
tíðkað hafa þó frest til
breytinga á núgildandi
fyrirkomulagi og aðstöðu
til 1. júní 1980.“
Undir þessi ósköp ritar
ráðuneytisstjórinn við annan
mann, og verður sannast
sagna að ætla að hann hafi
ekki sjálfur samið, hvar sem
sá taðjarpur hefur fundist á
æðstu stöðum sem ekki kann
skilsmun persónulegra og
ópersónulegra sagna, mynd-
ar þolmynd skakkt og er
haldinn fleirtöluáráttu, en
kann þó ekki að hafa tölu
sagnar í samræmi við það.
Eru þá aðeins augljósustu
gallarnir nefndir. Þar að
auki er margt minna sem allt
stuðlar að því að gefa bréfinu
þann ámátlega heildarsvip
sem raun ber vitni. Gott ef
efnið skilst fullkomlega.
Úr því að þetta bréf fjár-
málaráðuneytisins er til
„allra ráðuneyta er málið
varða“, er þess að vænta að
ráðuneyti menningarmála
taki sig til og komi því til
skila við „rentukammerið"
að nýkansellístíll, af þessu
tagi sé því ekki þóknanlegur.
Hér kastar tólfunum, og fyrr
má rota en dauðrota.
En svona rétt til að létta
skap lesenda er hér ein
orðaleiksvísa í lokin. Henni
var skotið inn á skrifborðið
til mín, og ekki veit ég
hvaðan hún kom:
Víða ísa- var á -fold,
vífin mörg þess gjalda.
Orðið hefur orðið hold
oft hjá séra Valda.
Kassettur
beztu kaup landsins
1 spóla 5 spólur Heildsölu birgðir
60 mínútur kr. 800.- kr. 3.800.-
90 mínútur kr. 1.000.- kr. 4.800.-
Verslióísérverslunmeó ^ i _ / nr.or.n
LITASJÓNVÖRPog HLJÓMTÆKI 29800
VBÚÐIN Skipholti19
JÓRNUNARFRÆÐSLAN
SKATTSKIL
einstaklinga með atvinnurekstur
Stjórnunarfélag íslands heldur námskeiö um
Skattskil einstaklinga með atvinnurekstur í fyrir-
lestrarsal félagsins að Síðumúla 23 dagana 20.—21.
mars kl. 20—22 og 22. mars kl. 13—18.
Á námskeiðinu verður farið yfir
helstu ákvæöi skattlaga og lögö
sérstök áhersla á breytt ákvæði í
nýju skattalögunum. Útskýrðar
verða reglugerðir skattalegs eðlis.
Námskeiðið er ætlað einstaklingum
sem leggja stund á sjálfstæðan
atvinnurekstur og hafa einhverja
innsýn í bókhald.
Skráning þátttakenda og nánari
upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi
íslands, sími 82930.
Árni Bjðrn Birgiuon við-
■kiplalraðingur og Iðg-
giltur ondurvkoðandi.
Verksmiðjusala
Buxur
á alla aldurshópa úr
denim, flaueli, kakí og flannel.
Góö efni, fjölbreytt sniö, fallegir litir, gott verö.
Úlpurogjakkar
Margar stæröir og geröir. Gott verö.
Gerið góð kaup í úrvalsvöru.
Nýjar buxur í dömu og herrastærðum teknar upp á morgun.
Opið virka daga kl. 9—
Laugardaga kl. 9—12.
18. Föstudaga kl. 9—22.
Skipholti 7.
Sími 28720.