Morgunblaðið - 16.03.1980, Page 31

Morgunblaðið - 16.03.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980 31 Hvað er að vera „ Hvaö er aö vera „smáborgaralegur" — þá í hugsun og geröum? Þessu orði „smáborgaralegur“ er oft slegið fram í umræðum viö hin ólíklegustu tækifæri — óttalega er maðurinn smáborgaralegur! Þaö er líka hægt aö spyrja: Hvaö er aö vera „borgaralegur"? Er í nútímaþjóöfélagi hægt aö tala um aö ákveöinn maður sé „borgaralegur" eöa um borgaralegan lifimáta? Hver vill ekki eiga eigiö húsnæöi, falleg húsgögn, góöan bíl, jafnvel sumarbústaö, feröast til sólarlanda af og til, horfa á sjónvarp, stunda heilsurækt, klæðast fallegum fötum, boröa nautalundir, saltfisk, jaröarber meö rjóma! Búseta í borgum, kaupstööum, sveitum. í hverju liggur þetta „borgaralega"? Leggur einhver einn meira upp úr ofangreindum hlutum en annar — eru siðvenjur manna mismunandi, skiptir fjarlægð heimilis frá sveitasælunni máli? Lesendum er látiö eftir aö velta þessari spurningu fyrir sér, en spurningunni um hvaö er aö vera „smáborgari" var beint til fjögurra manna, sem nokkuö eru í sviðsljósinu: Bessíar Jóhannsdóttur kennara, Guörúnar Helgadóttur alþ.manns, Þorsteins Pálssonar framkvæmdastjóra og Braga Guðbrands- sonar kennara. Hvað er að vera „smáborgari“? Guðrún Helgadóttir svaraði spurningunni á þessa leið: „Ætli við verðum ekki að grípa til félaga Karls Marx til þess að útskýra það? Samkvæmt marxískri kenningu voru smáborgarar eigendur minni háttar atvinnutækja og unnu oftast sjálfir að framleiðslunnij Voru þetta gjarnan smákaupmenn, miðl- ungsbændur og handverksmenn, sem gátu ekki arðrænt launþegana að neinu ráði. Þess vegna trúði Karl Marx, að þetta fólk hlyti að enda sem launþegar eftir því sem kapitalismanum yxi fiskur um hrygg og Lenín hélt, að þeir myndu taka höndum saman við alþýðuna og gera byltinguna með henni. Ekki hefur þetta nú staðist hjá þeim félögum mínum, enda ýmislegt orðið flóknara en þeir kannski gerðu ráð fyrir. Þvert á móti hafa smáatvinnurekendur þessir oft tek- ið höndum saman hverjir við aðra og orðið afturhaldssamastir allra stétta og barist um á hæl og hnakka gegn þróun verkalýðshreyfingar- innar og sennilega er skýringin sú, að hagsmunir eigenda fyrirtækja og launþega fara sjaldnast saman, ingjusamur held'ég, því hann þorir ekki að vera til. Sjálfsagt er hann í okkur öllum, en þá er bara að berjast við hann!“ Bessí Jóhannsdóttir svaraði: „Smáborgari er sá sem sér ekki nema niður á tærnar á sér og heldur að heimurinn nái ekki lengra. Eða maður sem hefur salt- fisk í hjartastað." Bragi Guðbrandsson sagði: „Eins og kunnugt er voru þeir kallaðir smáborgarar er byggðu fyrstu bæi miðalda. Þeir stunduðu ýmist hand- verk og/ eða verzlun og áttu til ánauðugra bænda að telja. Lífsstíll og lífsviðhorf þessarar stéttar voru eins og gefur að skilja töluvert frábrugðin því sem almennt gerðist í hinu hefðbundna samfélagi sjálfs- þurftarbúskaparins. Það sem öðru fremur einkenndi lífsviðhorf smá- borgarans var annars vegar gróða- hyggja og hins vegar meinlæta- hyggja. Gróðahyggjan felur það í sér að auðsöfnun er gerð að sjálf- stæðu markmiði sem mönnum ber siðferðileg skylda til að rækja. Þetta felur einnig í sér gildismat sem grundvallast á því að meta alla hluti til fjár, að peningar séu eini raunverulegi mælikvarðinn á verð- mæti. Þar sem þessi auðhyggja jafnvel þótt smáir séu, hvað þá ef um mikla hagsmuni er að ræða. Þessir miðstéttarmenn voru drjúgir stuðningsmenn nasista á sínum tíma og ætli Ku Klux Klan sé ekki í ætt við þá? En þetta getur nú Hannes Hólm- steinn útskýrt betur en ég. Ég býst líka við að spurningin sé fremur um hversdagslega notkun orðsins, og ég skal reyna að svara fyrir mína notkun á orðinu, sem er mun sakleysislegri en hin fræðilega skýring. Smáborgari er svolítið andlega skyldur hinum ofangreindu að því leyti, að hann er óöruggur, þröng- sýnn og í vörn gagnvart öðru fólki. Hann reynir gjarnan að þóknast ríkjandi kerfi og hættir ekki á neitt, sem ógnar öryggi hans. Ætli sál- fræðingar segðu ekki að hann skorti sjálfsvitund? Hann hugsar oftar um hvernig aðrir vilji að hann sé en hvernig hann vill sjálfur vera. Þess vegna er hann sjaldan ham- Guðrún Helgadóttir smáborgaranna var markmið í sjálfu sér, var auðsöfnunin t.d. ekki tæki til lífsnautnar. Raunar höfðu þeir megnustu andúð á slíku, sem þeir töldu vera fánýtt og tilgangs- laust. í þessu felst meinlætahyggja, en æðstu boðorð hennar er að gæta hófs í hvívetna, að neyzla eigi að miðast við fullnægingu grundvall- arþarfa, en þarfir aðrar en þær sem lúta að brýnustu lífsnauðsynjum séu af hinu illa. Jafnframt er hvatt til sparsemi og ráðdeildar og áherzla lögð á að leita lífsfyllingar í þrotlausu starfi og striti. Þetta hefur stundum verið orðað þannig, að meinlætalifnaður klaustursins sé fluttur út í atvinnulífið. Orðið „smáborgaralegur" hefur því fyrr á tímum verið notað um þá sem aðhylltust þær lífsskoðanir sem að ofan er greint frá og lifðu samkvæmt þeim. Á þeim tíma hefur merking hugtaksins líklega verið jákvæð, a.m.k. ekki neikvæð. Öðru máli gegnir hins vegar um Bessí Jóhannsdóttir Er smáborgari í dag kannski eftir allt saman andstæðan við heimsborgara?? þann skilning sem menn leggja í það í dag. Ég held að yfirleitt sé sá skilningur frekar neikvæður. Þjóð- félagsbreytingar síðustu alda kunna að gefa nokkra vísbendingu um hvað hér um ræðir. Eins og kunnugt er miðast fram- leiðsla á bernskuskeiði kapitalism- ans við óbrotinn varning sem gekk kaupum og sölum á hinum frjálsa markaði. Afkoma smáborgarans var því að miklu leyti komin undir atorku hans og ráðdeild, þar sem hann var ofurseldur samkeppninni á markaðnum. Það knúði ennfrem- ur á að ágóða af rekstrinum væri varið til frekari framleiðslu, en ekki til einkaneyzlu og má af þessu ráða þá áherzlu sem lögð var á mein- lætalifnað. Úr smáborgarastéttinni þróaðist stórborgarastétt nútímans samfara frekari þróun framleiðslu- hátta, sem fólust m.a. í samsöfnun auðmagns og fjöldaframleiðslu. Smáborgarinn var ekki lengur merkiberi hins nýja tíma og þær Þorsteinn Pálsson dyggðir er hann hélt trúnað við, var í auknum mæli farið að líta á sem bæði úreltar og einstrengingslegar. Eins og gefur að skilja krafðist fjöldaframleiðslan fjöldaneyzlu, — öreiginn var dubbaður upp í neyt- anda og meinlætahyggja smáborg- arans varð sem hjáróma rödd úr fortíðinni. f stað þess að leita hamingjunnar í einfaldri og fábrot- inni tilveru, kom tíðarandi neyzlu- samfélagsins sem leitar hennar í vörudýrkun. Og ekki reyndust smá- borgararnir heldur hafa rétt fyrir sér í því að „iðni og reglusemi legðu beinastan veg til velgengni og virðingar", svo vitnað sé til orða Benjamíns Franklíns, hins mikla hugmyndafræðings þeirra. Það er fyrir löngu orðin viðurkennd stað- reynd að slíkt er með öllu ónauð- synlegt og bezt að gera sem minnst. Aðgangur að fjármagni skiptir hér mestu, enda er það svo að það safnast sífellt í æ færri hendur. Þannig slá lífsviðhorf smáborg- Bragi Guðbrandsson arans ekki lengur í takt við tímann. Að vera smáborgaralegur er því að vera tímaskekkja.“ Þorsteinn Pálsson sagði: „Smá- borgari getur verið maður lágur í vextinum. íslenzkur heimsborgari fjallaði einhvern tímann um öfugar höfðingjasleikjur. Þær geta líka verið smáborgarar. Við getum tekið dæmi af þekktum fjölmiðlaborgara sem ég man ekki nafnið á. Hann lifir í vellystingum í pólitík á embættismennsku og rithöfundar- skap en virðist vart mega vatni halda yfir öreigastandi sínu og annarra. Hann er smáborgari í öfugum höfðingjasleikjustíl. Svo eru stórborgarar sem móðg- ast óskaplega ef þeim er ekki boðið að renna fyrir borgarstjóralaxinn í Elliðaánum. Þeir eru líka smáborg- arar.“ Hvað segir orðabók Menningarsjóðs? Samkvæmt orðabók Menningar- sjóðs er smáborgari broddborgari, maður af lágri borgarastétt. Og broddborgari aftur oddborgari, þröngsýnn (og hégómagjarn) mið- stéttarmaður. Oddborgari aftur yfirlætisfullur og gikkslegur fyrir- maður. Samkvæmt sömu bók er borgari 1) borgarbúi, 2) sá sem hefur borgarabréf (verzlunarleyfi) 3) maður úr hópi embættis- eða kaupmanna: borgaraflokkur, borg- arastétt, sbr. smáborgari. Heims- borgari er heimsmaður, að vera heimsborgari í hugsunarhætti er að hafa alþjóðleg sjónarmið. Hvar stöndum við nú, þú og ég?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.