Morgunblaðið - 12.07.1980, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980
Útvarp kl. 11.20:
Barnatími —
„Eg elska hesta44
Sigríður Eyþórsdóttir stjórnar
barnatímanum sem er á dagskrá
kl. 11.20 í dag. Umfjöllunarefnið
er hestar og heiti þáttarins, „Ég
elska hesta", er haft eftir lítilli
stúlku í reiðskólanum í Saltvík,
en þangað verður m.a. farið í
heimsókn og krakkarnir spurðir
hvað það sé sem gerir hesta-
mennskuna svona heillandi, að
sögn stjórnandans. Þá verður
spjallað við Ástríði Sigurmund-
ardóttur sem segir frá kynnum
sínum af hestum og Sigríður les
hluta úr formála bókarinnar
„Hesturinn minn“, um hlutverk
íslenzka hestsins í fortíð og
nútíð.
Tónlistin sem leikin verður í
þættinum verður að sjálfsögðu í
tengslum við efnið; M.a. syngur
Björgvin Halldórsson „Gott er
að ríða sandana mjúka" af
vísnaplötunni, karlakór syngur
dýravísur eftir Jón Leifs og
Sigurður Ólafsson „Ástarvísur
hestamannsins".
„Hver á börnin?“
í þættinum „Vissirðu það?“ í
umsjón þeirra Guðbjargar Þór-
isdóttur og Árna Blandon kennir
margra grasa að vanda. Að því
er Guðbjörg tjáði Mbl. munu þau
aðllega hafa tvær bækur til
hliðsjónar; Spámanninn eftir
Kahil Gibran og Bókina um
veginn eftir kínverska heim-
spekinginn Lao Tse þegar fjallað
verður um hinar ýmsu spurn-
ingar, s.s. „hver á börnin?" en
við því kunni Kahil Gibran svar
í Spámanninum. Rætt verður um
„hina þrjá kostgripi" Lao Tse,
„einkenni einfeldni" og sagt frá
því „hvernig kötturinn fór að því
að losa sig við flærnar". Þá
verður tekið fyrir hvers vegna
kettir voru heilagir í Egypta-
landi og þeir sem ekki vita,
munu verða einhvers vísari um
leyndardóma Tai Majhal. Guð-
björg sagði að þau Árni styddust
við hin margvíslegustu rit við
gerð þáttanna, m.a. barnaútgáfu
alfræðiorðaljókarinnar „Brit-
annica“.
Fróðleiksfús börn, á
öllum aldri. ættu því að leggja
við hlustirnar kl. lfi.20. en þá er
þátturinn á dagskrá.
Gömlu
revíurnar
Mishermt er í hljóðvarps-
dagskrá að þáttur þeirra Rand-
vers Þorlákssonar og Sigurðar
Skúlasonar um gömlu revíurnar,
sem er á dagskránni í kvöld kl.
20.30, sé annar í röðinni og heiti
„Lausar skrúfur". Þar urðu
breytingar á, þannig að þáttur-
inn í kvöld er sá fyrsti og ber
heitið „Einhver hlær og einhver
reiðist". Að sögn Sigurðar Skúla-
sonar verður fyrst fjallað um
upphaf revíunnar á Islandi, en
heimildir eru til um revíuflutn-
ing hér á landi allt frá árinu
1880, en þá sýndu Isfirðingar
revíuna „Getjón" og í Reykjavík
fluttu skólapiltar í M.R. „Brand-
majórinn" eftir Einar Hjörleifs-
son. Þá verður farið nokkrum
orðum um þróun revíuformsins í
heiminum yfirleitt. En aðaluppi-
staða þáttarins verður þó frá-
sögn af þeirri revíu sem hvað
mestu fjaðrafoki hefur valdið
hér á landi fyrr og síðar, „Allt í
grænum sjó“, sem sýnd var í
Reykjavík árið 1913. Voru þar
tekin fyrir ýmis þau mál, er
mörgum var hvað ósárast um á
þeim tíma, s.s. spíritisminn og
skopast var að bræðings-
mönnum. Viðbrögðin létu ekki á
sér standa, bærinn stóð á öðrum
endanum og sýningar urðu
aldrei fleiri en ein. Frá þessu
munu þeir félagar segja í þætt-
inum, auk þess sem þeir munu
leika nokkur atriði úr „Allt í
grænum sjó“ og njóta við það
liðsinnis Helgu Þ. Stephensen,
leikkonu.
Ein helsta heimild þeirra Rand-
vers og Sigurðar við gerð þess-
ara þátta hefur verið ritgerð
samin af þeim Páli Baldvinssyni
og Sigurjóni Sighvatssyni sem
prófverkefni í bókmenntafræði
við H.í. en hún fjallar einmitt
um sögu revíunnar.
Við gatnagerðarframkvæmdir á Egilsstöðum varð það óhapp nýlega að ein grafan valt á hliðina. Engin
slys urðu á mönnum en garður kaupfélagsstjórans skemmdist nokkuð. Ljósm. j.d.j.
Báðum Sandeyjunum lagt
vegna samdráttar í sölu
á sjávarefnum í steypu
Magnús Guðbrandssun hofundur
Gamanyrða
VERULEGA hefur dregið úr sölu
á sjávarmöl og sjávarsandi i
steinsteypu á þessu ári. Hefur
fyrirtækið Björgun h/f i Reykja-
vik. sem gerir út sanddælu- og
dýpkunarskip þegar lagt einu af
þremur skipum sínum og fyrir-
hugað er að leggja öðru í haust.
Að öllu óbreyttu verður því aðeins
eitt skip gert út á vegum fyrirtæk-
isins í vetur en það er Perlan.
Gamanyrði — frásagn-
ir af mönnum og mál-
efnum í bundnu máli
KOMIN er út bókin Gamanyrði,
frásagnir af mönnum og málefn-
um i bundnu máli, eftir Magnús
Guðbrandsson. Skopteikningar í
bókinni eru eftir Halldór Pét-
ursson.
Bókin Gamanyrði inniheldur
vísur um ýmis menn og málefni og
er efninu skipt í flokka: I léttum
dúr, söngbræður, samstarfsfólk,
ættar- og fjölskyldutengsl, bland-
að efni og gamanvísur. í formála
höfundar kemur fram að árið 1965
birtist eftir hann kvæði í Lesbók
Mbl. með skopteikningu eftir
Halldór Pétursson. Síðar teiknaði
hann fleiri myndir við kvæði
Magnúsar. „Mér er það ljóst að
kvæði mín og vísur eru að mestu
tækifærisbundin og því eitthvað
frábrugðin annarri ljóðagerð,
enda aðallega gerð til ánægjulest-
urs þeim sem hlut eiga að máli“,
segir Magnús Guðbrandsson.
Magnús Guðbrandsson er fædd-
ur í Reykjavík 1896 og hefur
lengst af unnið ýmis skrifstofu-
störf, síðast hjá Olíuverslun ís-
lands. Bókin er unnin hjá Odda,
Sveinabókbandi og Korpusi, en
höfundur gefur hana út.
Hér fer á eftir fyrsta vísan í
kvæðinu Heimkoma fóstbróður á
kvennaárinu 1975:
Þú komst með þotu frá
Kanaríeyjum.
Þú komst með frúnni aftur heim.
Þú fékkst þér sólböð hjá svörtum
meyjum
og sérð nú dálítið eftir þeim.
Ástæðan fyrir þessum samdrætti
eru takmarkanir á notkun á
sjávarefnum í steinsteypu í
Reykjavík vegna alkalivirkni.
Hreinn Hreinsson, útgerðar-
stjóri hjá Björgun h/f sagði, að
þeir hefðu lagt dýpkunarskipinu
Sandey II fyrir síðustu áramót og
væru nú búnir að segja upp öllu
starfsfólki á sanddæluskipinu
Sandey, sem oft væri nefnd gamla
Sandey. Byrjað hefði verið á að
segja upp annarri áhöfn Sandeyj-
arinnar, en nú væri skipið aðeins
starfrækt á daginn og væru 12
menn í áhöfninni. Þessum 12 hefði
nú verið sagt upp og kæmi sú
uppsögn til framkvæmda 1. októ-
ber n.k. og yrði Sandey þá lagt um
tíma. „Við höfum orðið að grípa til
þessara aðgerða vegna verkefna-
skorts og vonum að þetta verði
aðeins tímabundið, sagði Hreinn.
Sandey er nú að dæla upp
skeljasandi fyrir Sementsverk-
smiðjuna á Akranesi en Perlan er
að dæla upp steypuefni úr sjó í
nágrenni Reykjavíkur en fer síðan
til ísafjarðar til að dæla upp efni
fyrir steypustöðina þar. Síðar í
sumar fer Sandey í að dæla upp
steypuefni við Reykjavík en Perlan
fer í að dæla upp fyllingarefni á
nýju athafnasvæði Björgunar í
Örfisey. Hreinn sagði, að fyrirtæk-
ið væri nú flutt með alla starfsemi
sína úr Sundahöfn inn á Ártúns-
höfða. Kostnaðarsamt væri hins
vegar að aka fyllingarefni í gegn-
um borgina og því hefði fyrirtækið
fengið lóð undir söluaðstöðu á möl
og sandi skammt frá baðhúsinu í
örfisey.
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
12. júlí
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar. Þul-
ur : kynnir.
8.00 Frettir. Tónieikar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
daghl. (útdr.) Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjuklinga.
kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
(10.00 Fr r !0.10 Veður-
fregnir.)
11.20 Barnatími..
Sigríður Eyþórsdóttir
stjórnar. Fjallað um hesta.
m.a. segir Ástríður Sigur-
mundardóttir frá kynnum
sinum aí hestum. Fluttar
verða hestavísur og söngvar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
SÍDDEGIÐ
14.00 í vikulokin.
Umsjónarmenn: Guðmundur
Árni Stefánsson, Guðjón
Friðriksson, óskar Magn-
ússon og Þórunn Gestsdóttir.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vissirðu það?
Þáttur í léttum dúr fyrir
börn á öllum aldri. Fjallað
um staðreyndir og leitað
svara við mörgum skritnum
spurningum.
Stjórnandi: Guðbjörg Þóris
dóttir. Lesari: Árni Blandon.
16.50 Siðdegistónleikar
Boston Pops-hljómsveitin
leikur „Fransmann í New
York“ eftir Darius Milhaud;
Arthur Fielder stj. / Sylvia
Sass syngur ariur úr óperum
eftir Verdi og Puccini með
Sinfóniuhljómsveit Lund-
úna; Lamberto Gardelli stj.
17.50 Endurtekið efni: t minn-
ingu rithöfundar.
Dagskrá um Jack London
frá Menningar- og fræðslu-
stofnun Sameinuðu þjóð-
anna. Þýðandi: Guðmundur
Arnfinnsson. Umsjón: Sverr-
ir Hólmarsson. Lesarar með
honum: Steinunn Sigurðar-
dóttir, Heimir Pálsson og
Þorleifur Hauksson.
(Áður útv. 6. þ.m.)
18.20 Söngvar i léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 „Babbitt“, saga eftir Sin-
clair Lewis.
Sigurður Einarsson íslenzk-
aði. Gisli Rúnar Jónsson
leikari les (32).
20.00 Harmonikuþáttur.
Sigurður Alfonsson kynnir.
20.30 „Lausar skrúfur“
Einhver hlær einhver reiðist.
Annar þáttur um elztu reví-
urnar í samantekt Randvers
Þorlákssonar og Sigurðar
Skúlasonar.
21.15 Hlöðuball.
Jónatan Garðarsson kynnir
ameriska kúreka- og sveita-
söngva.
22.00 t kýrhausnum.
Sigurður Einarsson sér um
þáttinn.
22.15 Veðurfregnir.
Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.35 Kvöldlestur: „Auðnu-
stundir“ eftir Birgi Kjaran.
Höskuldur Skagfjörð les (8).
23.00 Danslög.
(23.45 Fréttir.)
01.00 Dagskrárlok.