Morgunblaðið - 12.07.1980, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.07.1980, Qupperneq 11
11 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980 Hitaveitan ekki of góð til að sjá okkur fyrir vatni — segir Sigurður Jónsson Sigurður Jónsson með dóttur sinni. Ljósm. Mbi. Emilia. Enginn ánœgður með vatnssveltið — segir Ólafur Ólafsson „Það er auðvitað enginn ánægður með þessa yfirlýs- ingu um vatnssveltið," sagði Ólafur Ólafsson, einn húsbyggjenda í Seljahverf- inu í Breiðholti, í samtali við Morgunblaðið, en hann er einn þeirra sem ekki mun fá hitaveitu. „Við lítum á þetta sem tímabundið ástand, en ekki sem verðandi ástand í þess- um málum. Sumir eru jafn- vel það bjartsýnir að þeir telja að þetta mál muni leysast áður en að byggingu kemur, en það verður varla fyrr en eftir rúm tvö ár,“ sagði Ólafur. „í dag eru engin sérstök áform um mótmælaaðgerð- ir í sambandi við þetta, en ef við munum ekki fá neina hitaveitu, þegar þar að kemur, þá reikna ég með að við munum frekar nota rafmagn til upphitunar en olíu. Eg held að mönnum finnist það viðráðanlegra en olían, hér á þessu skeri, þar sem alltaf er verið að státa af öllum þessum raf- magnsmöguleikum. Við höfum ekki velt fyrir okkur kostnaðinum, enda erum við ekki í eldlínunni enn, það er ekki stærsti þátturinn. Það er margt fleira sem er að brjótast um í fólki um þessar mund- „HLJÓÐIÐ í mönnum er mjög slæmt vegna þessa máls,“ sagði Sigurður Jónsson í samtali við Mbl., en Sigurður er að byggja í Hvammahverfinu í Hafnarfirði. „Við erum þrír eða fjórir sem flytjum innan 2ja mánaða og hjá okkur virðist ekki um neitt annað að ræða en setja upp tæki til olíukyndingar," sagði Sigurður. „Það var lokið við að leggja fyrir hitaveitunni hér í húsið fyrir um hálfum mánuði og kostaði það um 5 milljónir. Ég held að olíu- kyndingartækin komi ekki til með að kosta mikið, það er hægt að fá þau notuð. Aðalkostnaðurinn er fólginn í aukatengingarkostnaði og auðvitað olíukostnaðinum sjálfum. ir,“ sagði Ólafur. „Mér finnst það sér- kennilegt með þetta vísi- tölukerfi, að verðinu á heitu vatni er haldið niðri hér í Reykjavík til þess að einhverjir fái ekki kaup- hækkun. Ég held að þetta séu þrýstiaðgerðir hjá Hitaveitunni til að vekja athygli á fjárhagsstöðu fyrirtækisins, enda finnst manni kannski ekki óeðli- legt að það fái hækkun í samræmi við verðbólgu- stigið. Og ég held að við viljum gjarnan greiða ögn meira fyrir vatnið heldur en að fá það ekki,“ sagði Ólafur Ólafsson. Kostnaðurinn við að koma hita- veitu í þetta hverfi er ekki mikill og mér finnst skömm að því að við skulum ekki fá heitt vatn. Við höfum hér nokkrir verið að velta því fyrir okkur að efna til hverfa- fundar um þetta mál og ræða þar ástandið hér. Einnig erum við að gæla við það að grípa til einhverra aðgerða í mótmælaskyni. Mér finnst Hitaveitan ekki of góð til að sjá okkur hér fyrir vatni og finnst hún eigi að borga þetta sjálf. Hún á vel fyrir þessu, samkvæmt könnun sem fór fram á stöðu fyrirtækisins fyrir nokkru. Auk þess er hún búin að fá 56% hækkun á heimtaugargjöldum," sagði Sigurður Jónsson. Ólafur ólafsson Ljósm. Mbi. rax Vísitölukerfið lýsir ágœtlega vitleysunni i þessum niálum — segir Gylfi Magnússon Gylfi Magnússon Ljósm. Mbl. RAX. „STAÐAN hjá okkur er þann- ig að lóðunum var úthlutað í vor og því er ekki farið að gera eitt eða neitt á þessum stað,“ sagði Gylfi Magnússon í spjalli við Mbl., en hann er einn þeirra sem hafa fengið lóð í Seljahverfi, en kemur ekki til með að fá hitaveitu, ef að líkum lætur. „Lóðirnar verða ekki bygg- ingarhæfar fyrr en næsta sumar og síðan tekur bygging- in einhvern tíma. Ég hef þvi ekki stórar áhyggjur af þessu enn og held að þegar að því kemur að ég þarf á hitaveitu að halda, þá verði þetta í lagi,“ sagði Gylfi. „Ef þessi mál leysast ekki þegar að byggingu kemur, þá kemur maður til með að velta því alvarlega fyrir sér hvort maður leggur yfirleitt út í þetta. Það er allt eins líklegt að maður hætti við. Eftir því sem ég hef lesið í blöðum þá er olían margfalt dýrari en hitaveitan og ég held að ég myndi ekki vilja kaupa það, að komast í einbýlishús, svo dýru verði. Mér finnst það heldur dýru verði keypt að borga tífaldan kostnað við að komast í einbýlishús. Ég er alveg sammála þeirri gagnrýni sem komið hefur fram í þessu málj, að með þessu móti sé ekki verið að nýta innlenda orkugjafa og þetta því óhagkvæmt fyrir þjóðarbúið. Ég las um daginn ágæta grein eftir Guðmund G. Þórarinsson og ég get tekið undir hvert orð sem í henni stendur. Ég held að vísitölu- kerfið lýsi ágætlega þeirri vitleysu sem er í þessum málum hjá okkur, að verðinu sé haldið niðri hjá Hitaveit- unni vegna einhverra annar- legra sjónarmiða. Maður verður að vona að þetta vandamál verði leyst fljótlega, a.m.k. áður en við förum að byggja," sagði Gylfi Magnússon. Stöðumæl- ar áfram í borginni ÞEGAR ákveðið var að hækka stöðumælagjald í borginni á lundi borgarráðs á dögunum. eins og frá var skýrt i Morgun- blaðinu. lagði Albert Guðmunds- son borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins fram svohljóðandi til- lögu: „Vegna framkominnar tillögu um ný gjöld í stöðumæla, verulega hærri en nú eru í gildi, leyfi ég mér að gera það að tillögu minni að kannað verði, hvort ekki sé tímabært að leggja niður stöðu- mæla innan borgarmarka Reykja-' vikur." Tillaga Alberts hlaut aðeins tvö atkvæði og því ekki stuðning og er því ljóst að stöðumælar verða enn um sinn í Reykjavík. V er kak vennaf élagið Framsókn: Mótmælir seinagangi í samninga- málum AÐALFUNDUR Verkakvennafé- lagsins Framsóknar var haldinn 26. júní 1980. Lýst var kjöri stjórnar, þar sem enginn listi var lagður fram á móti. Formaður er Þórunn Valdimarsdóttir, ritari Guðbjörg Þorsteinsdóttir, gjald- keri Helga Guðmundsdóttir, með- stjórnandi Kristín Símonardóttir, varaformaður Ragna Bergmann, varamenn Halldóra Magnúsdóttir og Stella Stefánsdóttir. Sam- þykktar voru lagabreytingar og breytingar á reglugerð sjúkra- sjóðs. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar: Fundur hjá Verkakvennafélag- inu Framsókn, lýsir megnri óánægju með það, að lögin um fæðingarorlof í samræmi við til- lögur samninganefndar A.S.I., skyldu ekki vera samþykkt sem lög frá Alþingi, áður en það lauk störfum. Skorar fundurinn á ríkis- stjórnina að taka frumvarpið til afgreiðslu á Alþingi næsta haust, þannig að lög um þriggja mánaða fæðingarorlof, á fullum launum, sem greiðast af Almannatrygging- um, taki gildi, ekki síðar en um næstu áramót. Á fundi í Verkakvennafélaginu Framsókn, er mótmælt harðlega seinagangi í samningamálum. Fundurinn skorar á samninga- nefnd A.S.Í. að standa fast á þeirri körfu um að hækkun á lægstu laun hafi algjöran forgang. Enn- fremur að sú hækkun sem fæst verði ekki sett út í verðlagið. Niðjamót í Fljótum Ba\ Hófðastrónd. 9. júli. NIÐJAMÓT var haldið að Ketilási í Fljótum 5. júlí þar sem saman komu 130 afkomendur Sigríðar Jónsdóttur og Jóhanns Benedikts- sonar frá Miðmói í Fljótum. Af- komendur þeirra eru nú alls um 170. Mót þetta tókst i alla staði mjög vel. Samstilltur hópur ætt- menna lagði sig fram um að gera daginn eftirminnilegan. Veðurguðir voru hliðhollir eins og bezt varð á kosið. Stofnaður var myndarlegur minningarsjóður um hjónin. — Björn í Bæ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.