Morgunblaðið - 12.07.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980
15
Skúli Jónasson hjá ísafold:
Skattpíning og vaxta-
byrðir þyngsti bagginn
„VIÐ bíðum eftir lausn þeirra
mála, sem i brennidepli eru, eftir
því hvort rekstrargrundvöliur
fyrir fiskvinnsluna fæst," sagði
Skúli Jónasson, framkvæmda-
stjóri frystihússins ísafoldar.
„Þetta hefur gengið erfiðlega
hjá okkur í ísafold undanfarið, en
það rak endahnútinn á að við
höfum ekki losnað við fiskinn og
því eru allar frystigeymslur fullar
og rekstrargrundvöllur ekki leng-
ur fyrir hendi. Nýlega höfum við
því neyðst til að senda allt kven-
fólkið heim í sumarfrí, en karl-
mennirnir vinna enn við ýmsar
smáframkvæmdir og endurbætur.
Það voru um sextíu manns í vinnu
hjá okkur og við unnum tíu tíma á
dag. í sumar höfum við ekki getað
tekið neitt skólafólk eins og und-
anfarin ár, vegna þessa vanda.
„Gengislækkun
hjálpar ekkert“
Vaxtastefna ríkisstjórnarinnar
er fyrir neðan allar hellur og
gengislækkun hjálpar okkur ekk-
ert, allar okkar skuldir eru geng-
istryggðar og því hækka þær með
gengisfellingu. Það væri nær að
minnka skattpínsluna, það mætti
til dæmis fella niður launaskatt og
söluskatt af umbúðum, sem við
verðum að kaupa.
Ríkið tekur sitt og vel það. Það
hefur sýnt sig á liðnum árum, að
gengisfelling hefur aldrei bætt
neitt, auk þess sem hún lækkar
kaupmátt, þrátt fyrir að kaupið
hækki í krónutölu.
„Stoppið er
óheppilegt“
Það er vandi að stoppa vegna
þeirra, sem vinna hjá okkur og
vegna skipanna sem við gerum út,
ég veit ekki hve lengi hægt er að
láta skipin sigla með aflann. Ég
vona að við getum byrjað í næsta
mánuði, hvernig sem það fer. Við
höfum átt í miklum fjárhagsörð-
ugleikum, en alltaf getað borgað
út þar til á síðasta föstudag, en við
vonumst til að geta kippt því í lag
í þessari viku.
„Allsstaöar
sami vandinn“
Þetta er allsstaðar sami vand-
inn og hann verður ekki leystur af
einstaklingum eða einstökum
fyrirtækjum. Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar eru aðeins lítið
skref í rétta átt. Skattpíning og
vaxtabyrði eru þyngsti bagginn,
þar er ekkert gefið eftir, dráttar-
vextir eru lagðir á okkur strax á
fyrsta degi. Ríkisstjórnin hefði átt
að reyna að koma í veg fyrir kaup-
og fiskverðshækkanir, fólk hefði
betur fengið aðrar ívilnanir, því
launahækkanir eru fljótar að
hverfa.
U nglingavinnan
er skemmtileg
„BÆJARVINNAN er
skemmtileg, það er alltaf
gott að vinna úti,“ sogðu
þær Guðný Ólafsdóttir og
Jóna Hauksdóttir, er við
hittum þær á leið í mat. „Við
fáum líka þokkalegt kaup,
eða tæp fimmtíu þúsund
fyrir vikuna. Núna vorum
við að vinna við að leggja
þökur við iþróttavöllinn og
svo er alltaf nóg að gera við
hreinsun í bænum.
Sumt fólk er svo miklir sóðar,
það hendir rusli út um allt. Við
höfum vinnu í þrjár vikur,
kannski lengur ef við erum
duglegar. Það eru tæplega
fimmtíu krakkar á biðlista og
aðeins tíu í vinnu hverju sinni.
Við hefðum helzt viljað fá vinnu
lengur, helzt í tvo mánuði. Við
unnum í ísafold í fyrra og þá
var nóg að gera, þar var betra
kaup, en við vildum heldur
vinna hjá bænum.
Við erum oftast duglegar, en
oft erum við bæði latar og
syfjaðar á morgnana, því við
byrjum að vinna klukkan sjö.
Það er ágætt að vera hér í
Siglufirði, en mætti þó vera
meira fyrir okkur unglingana
að gera. Hér er bara bíó á
kvöldin, engin böll, svo við
þræðum aðallega göturnar,"
sögðu vinkonurnar svo að lok-
um.
Kári Eövaldsson:
Nóg að
gera við
smíðar
„ÞAÐ er nóg að gera hjá
okkur, við höfum verkefni
fram á næsta ár,“ sagði
Kári Eðvaldsson smiður og
einn af eigendum trésmíða-
verkstæðisins Búfs h.f„ er
við hittum hann við vinnu
sina.
„Aðalverkefni okkar eru inn-
réttingasmíði, hurðir og fata-
skápar, en við tókum einnig að
okkur húsbyggingar. Nú erum
við með fimmtán manns í vinnu
og höfum nýlokið við byggingu
láfeknabústaðar, erum að hefja
innréttingasmíði og allan frá-
gang á tólf leigu- og söluíbúðum
á vegum bæjarins, hér á flug-
vellinum erum við að byggja
tækjaskemmu fyrir flugmála-
stjórn. Og einnig smíðum við
innihurðir í um fimmtíu hús
fyrir Húseiningar á þessu ári
auk annarra smá verkefna.
Rennum nokkuð
blint í sjóinn
með framhaldið
Framhaldið á næsta ári er svo
nokkuð óljóst. Það veltur allt á
afkomu fiskvinnslufyrirtækj-
anna, sem eru undirstaða at-
vinnulífsins. Þar verður ríkið að
koma til skjalanna, það er ekki á
meðfæri bæjarfélagsins. Ríkið á
meiri hlutann í stærstu atvinnu-
stöðunum hér, svo það stendur
því næst.“
Ása Þórarinsdóttir:
Betra að f á
eitthvað
en ekki neitt
„ÉG HEF unnið hér í sex ár og
kann ákaflega vel við mig. Þegar
ég var ung, vann ég eins og
flestir i síld á sumrin og er þvi
farin að þekkja sildina nokkuð
vel, en það var nú skemmtilegra í
gamla daga. þó þetta sé einhver
bezti staður. sem ég hef unnið á.“
sagði Ása Þórarinsdóttir, er við
hittum hana i vinnu sinni i
Lagmetisiðjunni.
Hvað kaupið okkar varðar erum
við alveg tilbúin til að bíða aðeins
eftir því, við vonum að þetta sé
aðeins tímabundið og erum viss
um að þetta kemst í lag. Það er
alltaf betra að fá eitthvað en ekki
neitt. Mér finnst þetta góður
vinnustaður og ætla að vinna hér
áfram, svo lengi sem ég get.“