Morgunblaðið - 12.07.1980, Page 36

Morgunblaðið - 12.07.1980, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JULI1980 MORöJlv- , KAFf/NO \\ j arZQ ... að leiðast hrifin hönd í hönd. TM Reg U S Pat Oft -all rights • 1978 Los Angatas Times Syndlcate Ég geng i svefni... Hafið þér verið lengi hér á þcssari sólbaðsströnd? „Að verða lappaskortur" BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Áberandi er, hve lega spilanna er alltaf verri hjá ákveðnum hópi spilara en hjá öðrum. Að minnsta kosti þykir þeim það sjálfum. Og sá, sem stýrði úrspilinu í spilinu, sem lýst er að neðan, var úr þessum hópi. Enda kvartaði hann sáran. Norður gaf, allir útan hættu. COSPER Norður S. KD74 H. 4 T. KG3 L. KDG96 Vestur S. Á1098 H. D9862 T. 754 L. 2 Austur S. 52 H. G753 T. 862 L. Á1087 Blessaður hættu þessu. frímiða! — Við fáum þá ekki aftur Suður S. G63 H. ÁK10 T. ÁD109 L. 543 Sagnirnar urðu fáar. Norður opnaði á einu laufi, austur pass og suður stökk í þrjú grönd. Eftir pössin þrjú spilaði vestur út hjartasexi og sagnhafi tók gosann með ás. Hann fór umsvifalaust í laufin, spilaði lágu á kónginn en austur tók á ásinn og spilaði aftur hjarta. Þetta reyndist óhagstætt upphaf. Úr því, að austur hafði enn vald á laufinu gat sagnhafi ómögulega fengið nema átta slagi. Einn niður. En með vandvirkni mátti sjá, að engin ákveðin lega gat banað spilinu. Hefur þú komið auga á örugga leið í níu slagi? Eftir fyrsta slaginn er þá -tígli spilað á gosann. Og þá kemur það skemmtilega við spilið. Lítill spaði frá blindum að gosanum. Taki vestur á ásinn getur hann ekki spilað aftur hjarta án þess, að þar fáist þrír slagir, sem ásamt tveim á spaða og fjórum á tígul nægir í níu slagi. Vestur spilar því spaða og þá má búa til tvo slagi á laufin. Og ef austur hefði átt spaðaás- inn yrði þessi leið enn jafn pottþétt. Taki hann á ásinn þegar lága spaðanum er spilað frá blind- um, verða spaðaslagirnir þrír, sem aftur nægir. Og ef hann bíður með ásinn fæst á gosann og tími verður til að ná tveim slögum á lauf. Kæri Velvakandi, Ekki alls fyrir löngu fullyrti flytjandi útvarpsþáttarins um mælt mál, að orðin ær og kýr mættu heita horfin úr málinu en rolla og belja komin í staðinn. Á mánudaginn var kom svo önnur dánartilkynning. Nú voru það fót- ur og fingur sem löpp og putti áttu að hafa gengið af dauðum. Mér blöskrar að heyra slíkar fullyrðingar hverja á lappir arin- arri, því að ég veit upp á mína tíu putta, að fyrir þeim er engin löpp. Þegar þeim sem hafa það að atvinnu að fetta putta út í málfar naungans verður þannig lappa- skortur á staðreyndunum, er eng- in ástæða til að sjá í gegnum putta við þá. Að vísu er ástæðulaust að hlaupa upp til handa og lappa yfir hverri smáskyssu sem slíkum mönnum verður á, og þaðan af síður er ástæða til að leika við hvern sinn putta af fögnuði yfir að þeim skuli líka geta skjátlast. Ekkert er mér heldur skapi fjær en bregða fyrir þá löpp í starfi sem um margt er til góðs. En þegar þeir löppumtroða sannleik- ann í nafni málvöndunar, er eng- um láandi sem óttast að ríkjandi málræktarstefna með þessari þjóð sé komin á fallanda löpp. Jóhann S. Hannessun. • Þættir um skólamál í vetur voru í útvarpinu þætt- ir um skólamál. Þar voru kynntar ýmsar námsbrautir sem boðið er uppá við Háskóla íslands. Ekki man ég nú hver það var sem sá um gerð þessara þátta, en þeir voru um margt fróðlegir og mættu ríkisfjölmiðlarnir yfirleitt gera meira af því að kynna almenningi hvað fram fer innan veggja æðstu menntstofnana landsins. Þá er þessi kynning líka hagkvæm fyrir ungt fólk sem hyggur á langskóla- nám. En ég held að ég fari með Rakarastofan Cleó opnar í Mosfellssveit Rakarastofan Cleó heitir ný hársnyrtistofa sem nýlega hefur tekið til starfa í Verslunarmiðstöðinni, Mosfellssveit. Öll almenn snyrti- þjónusta er á staðnum fyrir dömur, herra og börn. Opið er alla virka daga frá kl. 9 til kl. 18 en föstudaga frá kl. 9 til kl. 19. Ásbjörn Kristófersson fyrir framan hina nýstofnuðu verslun sína. Ný ísbúð aó Síðumúla 35 NÝ ísbúð var nýlega opnuð að Síðumúla 35 (þar sem Fíatumboðið var áður). Eigandi verslunarinnar er Ásbjörn Kristófersson. í ísbúðinni er íssala með venjulegu sniði en auk þess er á boðstólum pakkaís og ístertur. Einnig fást þar heitir borgarar og samlokur, bæði heitar og kaldar. Verslunin er opin frá kl. 10 til kl. 23.30 alla daga. Á rakarastofu Cleó sem nýlega hefur tekið til starfa í Mosfellssveit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.