Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 166. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Engin lausn í augsýn St. Johns. Nýfundna- landl, 25. júlf. AP. ENGIN lausn virðist i sjónmáli i fiskverðsdeiiu, er lamað hefur smábátaútfíerð á Nýfundnalandi, þrátt fyrir að Brian Peckford fylkisstjóri hvetti i dag öðru sinni til þess. að snúið yrði aftur til vinnu og að deiluaðilar gæfu sér 30 daga frest til að reyna að ná samkomulagi. Deilan hófst á mánudag, er um 1000 sjómenn í norðurhluta Ný- fundnalands hættu að leggja upp fisk hjá tveimur fiskiðjuverum í St. Anthony og Port Au Choix til að leggja áherzlu á kröfur sínar um hærra fiskverð, en samninga- viðræður um nýtt fiskverð fyrir 1980 hafa tvívegis runnið út í sandinn á árinu. Til að mótmæla aðgerðum sjómannanna, lokuðu samtök fiskiðnaðarins 75 öðrum fiskiðjuverum í fylkinu. Við það urðu sjómenn, er ekki tóku þátt í aðgerðum norðanmanna, að hætta róðrum og um 20.000 starfsmenn fiskiðjuveranna urðu heima að sitja. Á flestum grunnmiðum leggjast þorskveiðar niður innan skamms tíma, þar sem fiskurinn gengur brátt dýpra. Sumarið að koma í Evrópu London, 25. júlí. AP. SUMARIÐ er loks komið til Evrópu og úrhellið sem, hrjáð hefur ibúa Evrópulanda, hætt i bili, en ekki er þó útlit fyrir að uppstyttan verði iöng, í Bret- landi a.m.k. Sólskinsglennann hefur orðið til þess að íbúar í Bretlandi og á Norðurlöndum streyma til strandbæjanna í fyrsta skipti í sumar. Hitastigið komst upp í 28 gráður á Celcius í London, en þar er spáð skúrum á sunnudag. í Sviss komst hitinn í dag upp í 35 gráður. Þar í landi hefur sumar- úrkoman ekki verið jafn mikil og hitastig jafn lágt í hartnær heila öld. „Verður sumarið aðeins þriggja daga?“ hljóðaði fyrirsögn í vest- ur-þýzku blaði i dag, en þar í landi tekur fólk hlýindunum með tak- markaðri trú á að blíðan haldist lengi. Þjóðverjar hafa þurft að draga fram auka ábreiður til að ofkælast ekki á nóttunni og þar í landi hafa regnhlífar og aðrar vatnsverjur ekki áður selzt i jafn miklum mæli yfir sumarmánuð- ina. Svona til að Þjóðverjar gleymdu því ekki hvernig gott sumar væri dró sjónvarpsstöð þar i landi fram sólarlagskvikmynd úr safni sínu i siðustu viku og sýndi nokkra daga í röð. ^endiherra Egypta í Israel kallaður heim? Tel Aviv, 25. júll. AP. SÁ ORÐRÓMUR var á kreiki í dag, að Anwar Sadat, Egyptalandsforseti, hygðist kalla heim sendiherra Egypta í ísrael ef Menachem Begin forsætisráðherra flytur skrifstofu sína yfir í þann hluta Jerúsalemborgar sem Arabar byggja. Er haft eftir vestrænum heimildum, að sendiherrann verði kallaður heim þann dag, sem Begin opni skrifstofu sina í austurhluta Jerúsalem, en embættismenn hafa skýrt frá því, að forsætisráðherrann flytji i nýjar stjórnarráðsbyggingar i austurhlutanum innan fárra vikna. Sendiherra Egypta, Saad Murtada, er tók við starfi í febrúar síðastliðnum er löndin tvö skiptust á sendiherrum í samræmi við friðarsamkomu- lag, sem gert var á fundum á sveitasetri Bandaríkjaforseta í Camp David, sagðist í dag ekki hafa fengið neinar upplýsingar um, að Sadat hafi í hyggju að kalla hann heim. Staða Jerúsalem með tilliti til samkomulags um frið í Miðaust- urlöndum, er eitt helzta ásteit- ingarefni ísraela og Egypta. Frumvarp, er gerir ráð fyrir Jerúsalem sem eilífðar höfuð- borg ísraels, liggur fyrir þing- inu og er búist við afgreiðslu þess fljótlega. Andstæðingar frumvarpsins á þingi segja, að frumvarpið sé ónauðsynlegt og geri lítt annað en að hleypa illu blóði í andstæðinga ísraela og valda frekari vandræðum í við- ræðum um sjálfsforræði Palest- ínumanna, þar sem Jerúsalem sé þegar höfuðborg ríkisins. Samuel Lewis, sendiherra Bandaríkjanna í ísrael, hélt í gær á fund Begins, sem óðum er að hressast eftir lítilvægt hjartaáfall, og brýndi mjög fyrir honum að láta af áætlunum sínum um að flytja skrifstofur sínar í austurhluta Jerúsalem, að sögn bandarískra embættis- manna, sem vörðust allra nán- ari fregna af fundi Begins og Lewis. Þoturæningjar gáfust loks upp Kuwait. 25. júll. AP. JÓRDANIRNIR tveir, sem rændu í gær Boeing 737 þotu flugfélags Kuwait, gáfust upp í Fórst andófskonan, eða var hún myrt? Mofikvu, ParÍK, 25. júli. AP. ANDÓFSKONAN Irina Kaplum fórst fyrr í vikunni í bilslysi i Lettlandi. að þvi er kunningjar hennar skýrðu frá í dag i Moskvu. en ekkill hennar, andófsmaðurinn Vladimir Borisov, sem nýlega var fluttur nauðugur frá Sovétrikjunum. staðhæfði á fréttamannafundi i París, að sovézka leyniþjónustan hefði myrt konu sina en Iátið svo lita út sem um slys hefði verið að ræða. Borisov sagði að kona hans hefði verið myrt á sérstökum vegi sem liggur að keppnisstað siglinga- manna á Ólympíuleikunum við Tallin í Eistlandi. Morðið hefði verið framið í hefndarskyni, þar sem kona hans hefði verið stuðn- ingsmaður þess að vestrænar þjóðir tækju ekki þátt í Ólympíu- leikunum. Hún hefði verið virkur andófsmaður frá því á unglingsár- um sinum. Kunningjar Irinu sögðu í dag að þeir hefðu fengið skeyti frá yfir- völdum í Lettlandi um lát hennar, og að ættingjar hennar í Moskvu væru komnir til borgarinnar Pan- evezys í Lettlandi til að bera kennsl á lík hennar. Þeir sögðu að ásamt Irinu hefðu þrír ættingjar hennar farizt í bílslysinu, sem varð með þeim hætti, að tvær bifreiðir skullu saman á talsverðri ferð. Atvikið hefði átt sér stað annaðhvort 21. eða 22. júlí síðast- liðinn. Borisov sagði í dag, að kona hans hefði verið undir stöðugu eftirliti KGB frá því í júníbyrjun, en frá því að honum hefði verið vikið úr landi hefði hún beðið eftir því að sovézk yfirvöld gerðu sér boð um að halda úr landi. Hún hefði álitið sig betur setta i Tallin en í Mosvku, en fyrir slysni ekið inn á ólympíuveginn. Þess vegar væri vel gætt í öryggisskyni og þeir sem þar væru í erindisleysu væru tafarlaust skotnir. kvöld, sólarhring eftir að hafa rænt vélinni. Skömmu fyrir uppgjöfina tókst flugstjóra og flugmanni þotunnar að sleppa ómeiddum frá borði þrátt fyrir skothrið flugræningjanna. Strax eftir að flugmönnunum tókst að komast frá borði, um- kringdu öryggissveitir flugvélina og skömmu seinna gáfust ræningjarnir upp. Um borð í vélinni voru 41, en nokkrum hleyptu þeir frá borði í gærkvöldi og blaðakona, sem var í þeim hópi, sagði, að ræningjarnir, sem væru bræður, hefðu sagst vera Palestínuarabar. Þeir hefðu strax skýrt áhöfn og farþegum frá því, að engum yrði mein gert ef orðið yrði við kröfum þeirra, en ella myndu þeir sprengja flugvélina í loft upp. Kröfðust ræningjarnir 750.000 Banda- ríkjadala í lausnargjald fyrir flugvélina. Flugvélinni var rænt, er hún var í flugi frá Beirút í Líbanon til Kuwait. Áður en ræningjarnir gáfust loks upp, höfðu þeir látið þotuna fljúga milli landa við Persaflóa, m.a. hafði hún þríveg- is viðkomu í Kuwait.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.