Morgunblaðið - 26.07.1980, Side 30

Morgunblaðið - 26.07.1980, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 Magnús Jóhann- esson — Minning Fæddur 27. marz 1957 Dáinn 18. júli 1980. Þeir sem guðirnir elska deyja ungir, sögðu Rómverjar til forna. Rins má segja um Magga vin okkar, hann var elskaður og virtur af þeim, sem kynntust honum. Hann var elskulegur og prúður í framkomu, upplitsdjarfur og ein- arður, vinfastur og vandlátur og eftirsóttur vinnukraftur, enda heiðarlegur og samviskusamur. Ungur byrjaði hann vð vinna fyrir sér. Þegar hann var í Reykja- skóla hringdi kaupfélagsstjórinn á Hvammstanga í skólastjórann og t Bróðir okkar STEINGRÍMUR WELDING Mfvélavirki, veröur jarösunginn fró Fossvogskirkju mánudaginn 28. júl( kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hins látna láti líknarstofnanir njóta þess. Elfn Snorradóttir, Þorvaldur Snorrason, Snorri S. Welding, Ágúst Snorraaon, Friörik S. Welding. Bróöir minn, GEORG SCHRADER dó þann 14. júlí 1980 af hjartabilum, 61 árs, f Hamborg. F.h. vandamanna og vina Haraldur Ómar Vilhelmsson Malmö 3055 t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jarðarför, KATRÍNAR ÞORBJÖRNSDÓTTUR, Frakkastfg 5. Jóhann Guölaugsson, Ágústa Jóhannsdóttir, Ema Jóhannsdóttir, Sigurbjörn Ármannsson, Guölaug Jóhannsdóttir, Sverrir Gunnarsson, Þórir Jóhannsson, Áslaug Guðnadóttir. t Innlþegar þakklr og kveöjur til allra þelrra er sýndu okkur samúö og hlýhug vegna andláts og jaröarfarar eiginmanns mfns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa. GUÐJÓNSJÓNSSONAR trá Höfn í Grindavfk. Fyrir mfna hönd, barna okkar, tengdadætra, barnabarna, barnabarnabarna og annarra ættingja. Guöbjörg Pétursdóttir. t Fósturfaöir minn, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON foratjóri, Hnífsdalsvegi 27, Ísafiröi, veröur jarösunginn frá ísafjaröarkirkju laugardaginn 26. júlf kl. 2 e.h. Fyrir mfna hönd, barna minna, systra hins látna og sambýliskonu hans, Gestur Halldórsson. t Innilega þökkum viö öllum þeim mörgu er sýndu okkur samúö og hlýhug viö fráfall og jaröarför ÞORSTEINS JÓNSSONAR fré Hraungeröi Hellissandi, Yrsufelli 9. Álaug Einardóttir, Jónfna Þorsteinsdóttir, Ása Þorsteinsdóttir, Sigurlaug Þorsteinsdóttir, og barnabörn. Einar Þorsteinsson, Baldur Magnússon, Guömundur Bjarnleifsson, Siguröur Kristjénsson, t Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö fráfall, GUDMUNDAR H. JÓHANNESSONAR. Fyrir hönd aöstandenda, Ingigeröur Sigfinnsdóttir. bað hann um að benda sér á efnilegan pilt í verslunina, og þá mælti hann með Magga. Það er mikil upphefð fyrir ungling úr stórum skóla að verða fyrir valinu enda reyndist hann vel, þarna vann hann í nokkur ár, en langaði svo að breyta til og fór til Reykjavíkur og vann hjá Vöru- flutningamiðstöðinni. Þannig kynntumst við hjónin honum, því hann kom með yngsta syni okkar að norðan, og vantaði samastað. Svo var hann hjá okkur til húsa á meðan hann var í Reykjavík. Þeir voru miklir vinir, Kjartan sonur okkar og Maggi, og fóru nokkrum sinnum milli Reykjavík- ur og Hvammstanga á bíl sem Maggi átti, og sagði Kjartan hann öruggan og góðan bílstjóra. Þeir voru miklir vinir og voru vart aðskiljanlegir bæði fyrir norðan og eins hér í bænum meðan þeir höfðu tök á. Maggi fór aftur til Hvammstanga og til kaupfélags- ins, síðan vann hann við bensín- afgreiðslu. Síðast vann hann hjá Blossa í Reykjavík. Hann hóf að byggja á móti móður sinni og því lauk hann eftir því sem tök voru til. Hann var mjög góður móður sinni og vildi allt fyrir hana gera sem hann gat. Hann hlýddi líka á ráð föður síns sem vildi honum allt hið besta. En svo kom stóra stundin í lífi hans, hann kynntist unnustu sinni, og hann hlýddi boðorðinu að yfirgefa föður sinn og móður og stofnaði sitt eigið heimili að Maríubakka 20 og tók að sér ungan son hennar, sem hann reyndist sem besti faðir. Síðast þegar við sáum Magga var í vor þegar hann kom í heimsókn til okkar með litla drenginn, sem kallaði hann pabba og vildi ekki frá honum víkja meðan hann stóð við. Það er erfitt að enda þessar línur, það er svo sárt að horfa á eftir ungum mönnum, þegar allt lífið virðist blasa við, bjart og fagurt. En það er erfiðara fyrir unnustuna og litla drenginn, mömmu , pabba og bræðurna að sjá á eftir þeim yngsta. Guð styrki ykkur og huggi í þeirri von að allir hittist aftur þegar dauðinn verður ekki lengur til. Með samúðarkveðjum frá okkur öllum. Lydia Guðjónsdóttir. Það skiptast á skin og skúrir í lífi hvers manns. Þótt tíminn sé okkur náðugur, þegar við rifjum upp atburði liðinnar tíðar og varðveiti fremur bjartari hliðar endurminninganna, verða ógnar- legir atburðir á vegi okkar, sem seint fyrnast. Hver man ekki sólskinsdaginn síðastliðið sumar og allar björtu stundirnar á þessu vori? í miðri gæsku þessa árferðis eru ungir elskendur að ráðgera framtíð sína. Áhyggjulaus aka þau eftir steyptum þjóðveginum í átt til bæjarins. Þau hyggjast festa sér íbúð, því nú er lífið að byrja fyrir alvöru. En skjótt skipast veður í lofti. Áður en þau ná áfangastað, skýst steinn gegn- um framrúðu bílsins og lendir á höfði Magnúsar, hann missir með- vitund og nokkrum dögum síðar er hann látinn. Barátta lækna megn- ar ekki að afstýra hinum voveif- legu örlögum. Við svo þungan dóm, yfir æfi ungs manns, hvarfla hugir vina og vinnufélaga á vit endurminn- inganna. Magnús var hvers manns hugljúfi, hlýja hans og einlægni snart hvern þann sem honum kynntist. Starfsfólkið í Blossa s/f minnist léttrar lundar, hressandi hláturs, glettna og gamanyrða, sem ávallt styttu okkur stundirn- ar í dagsins önn. Snjöll og skörp tilsvör hans verða okkur einnig lengi minnisstæð. Hvernig getur eitt augnablik svipt menn allri þeirri ánægju? Slíks spyrjum við, sem daglega umgengumst Magn- ús. Hans er því mjög saknað af samstarfsfólki. Innilegar samúðarkveðjur til allra sem eiga um sárt að binda við fráfall okkar kæra vinar Magnúsar. Samstarfsfólkið Blossa s/f. Benedikt Grímsson frá Kirkjubóli — Minning Fæddur 17. apríl 1898 Dáinn 21. júlí 1980 Benedikt frændi okkar er dáinn. Það kom okkur þó ekki á óvart, því hann hafði átt við vanheilsu að stríða undanfarin ár og dvaldi nú síðast ásamt eiginkonu sinni í sjúkraskýlinu á Hólmavík og þar lést hann í svefni 21. júlí sl. Benedikt var eitt af 12 börnum sæmdarhjónanna Gríms Bene- diktssonar og Sigríðar Guðmunds- dóttur sem bjuggu allan sinn búskap að Kirkjubóli við Stein- grímsfjörð. Aðeins tvö þessara systkina eru nú eftir á lífi; Þor- björg, gift Árna E. Blandon og búa þau í hárri elli í Kópavogi og Guðjón, bóndi að Miðdalsgröf, kvæntur Jónnýju Guðmundsdótt- Benedikt var búfræðingur að mennt og bjó alla tíð á ættarsetri sínu, Kirkjubóli, við mikinn og góðan orðstír. Hann var forystu- maður í sveit sinni, mikilsvirtur höfðingi, mikill mannvinur og vinur og vinsæll af öllum er honum kynntust. Enda sýna störf- in sem á hann hlóðust með búskapnum hve mikils menn mátu verðleika hans. Hann var hrepp- stjóri árin 1932—76, sparisjóðs- stjóri Kirkjubóls- og Fellshreppa árin 1946—76. Einn af stofnendum Búnaðarsambands Strandamanna og formaður þess frá upphafi 1944—73. Formaður ungmennafé- lagsins var hann um 20 ára skeið, auk þess sem hann annaðist póst- þjónustu fyrir sveit sína. Frændi okkar var ekki einn á ferð í öilum þessum umsvifum sínum. Hans hægri hönd var eiginkona hans Ragnheiður Lýðs- dóttir frá Skriðunesenni í Bitru- firði, sem hann kvæntist 2. ágúst 1925. Ragnheiður er annáluð fyrir gestrisni, dugnað og gegndi hús- freyjustarfi þessa gestkvæma heimilis með miklum sóma. Bene- dikt og Ragnheiður eignuðust 3 syni og eina kjördóttur og eru þau: Grímur, bóndi og hreppstjóri á Kirkjubóli, kvæntur Kristjönu Ingólfsdóttur, Sigurður, bóndi og smiður á Kirkjubóli, kvæntur Sig- rúnu Valdimarsdóttur, Lýður, fulltrúi hjá S.Í.S. í Reykjavík, kvæntur Helgu Valdimarsdóttur og Rósa Jónída sem býr í Reykja- vík. ÖIl eru þessi börn þeirra hjóna mikið mannkostafólk, sem gefa foreldrum sínum og heimili fagran vitnisburð með framkomu sinni allri og dugnaði. Manninum sjálfum, Bensa frænda, kynntumst við systurnar best er hann dvaldi á heimili foreldra okkar þegar hann sat Búnaðarþing í Reykjavík. Hann var svo einstaklega þægilegur í umgengni, svo dagfarsprúður og rólyndur, kíminn og hæglátlega gamansamur, að öllum leið vel í návist hans. Þau voru lík í mörgu systkinin Ingunn móðir okkar og hann. Bæði áttu létta lund, mikla rósemi og jákvæða kímnigáfu í ríkum mæli. Faðir okkar mat Benedikt mik- ils og taldi hann til sinna bestu vina. Eftir lát móður okkar lagði hann oft leið sina að Kirkjubóli til að heimsækja Benedikt og fjöl- skyldu hans og einnig Guðjón móðurbróður okkar sem býr þar á næstu grösum. Kom hann jafnan heim endurnærður eftir þessar heimsóknir. Þær eru orðnar margar ferðirn- ar sem við systurnar höfum farið að Kirkjubóli, fyrst í fylgd for- eldra okkar og síðar með mökum okkar og börnum. Alltaf hafa móttökurnar verið á sömu lund, höfðinglegar, en umfram allt hlýj- ar og breyttist það ekki þó bústjórnin færðist yfir á þá bræð- ur Grím og Sigurð og þeirra konur. Það hefur alla tíð verið gott að koma heim að Kirkjubóli. Með þessum fáu linum viljum við systurnar kveðja kæran frænda og þakka honum allt sem hann var okkur og fjölskyldu okkar. Hvíli hann í friði. Sigga, Palla, Bára SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Vinsamlegast segið mér, hvort kvikmyndir séu frá Guði eða djóflinum. Hvers vegna spyrjið þér ekki hvort bækur séu frá Guði eða djöflinum? Til eru góðar bækur og slæmar bækur, góðar kvikmyndir og slæmar kvikmyndir. Því miður eru í mörgum kvikmyndum dregnar upp heillandi myndir af synd og ofbeldi. Þá eru þær slæmar, enda hafa þær gífurleg áhrif á fólk. Dásamlegar kvikmyndir hafa verið búnar til, með sögulegum frcðleik, einnig hollar myndir sem hafa orðið fólki til uppörvunar og mikillar hvatningar. Samt eru slíkar myndir færri en hinar. Mjög líkt er háttað um bækur. Margar dásamlegar og gagnlegar bækur eru til, en líka margar slæmar bækur. Nú á dögum virðast bókagrindurnar vera þaktar bókum, sem geta aðeins haft skaðleg áhrif á lesendur. Þar sem syndin er gerð góð og aðlaðandi, hvort sem er í kvikmyndum, bókum, útvarpi eða sjónvarpi þar er illskan á ferðinni og fyllir hugi manna, svo að Guði er bægt í burtu. Eg veit, að sumum finnst að kvikmyndir séu af hinu illa. Ef menn líta svo á, skyldu þeir forðast að horfa á kvikmyndir og breyta þannig á móti samvizku sinni. En út frá sama sjónarmiði ættum við aldrei að lesa bók, af því að margar bækur eru slæmar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.