Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 Séð heim að Ilólum í Hjaltadal. Haraldur Árnason skólastjóri Bændaskólans á Hólum. Haraldur Árnason skólastjóri: Kennsla í fiskeldisfræðum gæti farið fram í Hólaskóla Þess má geta, að hitaveitan og fiskeldisstöðin eru mjög heppileg í sambýli, ef ekki óaðskiijanleg, þar sem hagkvæmni veitunnar er kom- in undir notkun fiskeldisstöðvar- innar sem ekki getur án heita vatnsins verið. Þriðja meiriháttar framkvæmd- in hér á Hólum er bygging hest- húss, sem lengi hefur staðið til, þar sem hrossakynbótabúið hér hefur um árabil verið á hrakhólum með húsnæði og nú þótti mál til komið að sinna því verkefni. Á sogustaðnum fræga Hólum í IIjaltadal gengur mikið á þessa dagana, þar sem verið er að byggja hitaveitu í nágrenninu. hafin er bygging fiskeldisstöðvar auk hesthúss, sem hýsa á 100 hesta. Á sama tima liggur starfsemi Bændaskólans á Hólum niðri, sem óneitanlega virkar mótsagnakennt við hina miklu uppbyggingu. Blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti Hóla og ræddi þar við Harald Árnason skólastjóra Bændaskólans um framtið skólans og framkvæmdir á Hólum. Öllum kennurunum hefur verið sagt upp Hvað olli því að starfsemi Hóla- skóla lagðist niður? Við þessari spurningu eru mörg svör og ég kann ekki öll svörin, en ein ástæða er vafalítið sú, að landbúnaðurinn er í lægð, sem hefur áhrif á aðsóknina. Önnur skýring er sú, að nú er fjölbreytnin orðin mun meiri í skólakerfinu en áður var, t.d. bjóða fjölbrautaskól- ar uppá búfræðibraut sem dregur fólk til sín. Kr búið að leggja skólann sjálfan niður? Nei það hefur ekki verið gert, og ég hef ekki heyrt nein áform um það, en starfsemin hefur verið lögð niður um óákveðin tíma og öllum kennurum skólans verið sagt upp. Skólabúið er t.d. rekið hér áfram þannig að hugmyndin hlýtur að vera sú að byggja skólann upp aftur. Gátuð þið elíki brugðist á ein- hvern hátt við minnkandi aðsókn að skólanum? Það má kannski segja að það sé rétt, en hafa verður þó í huga að fyrir nokkrum árum skipaði þáver- andi landbúnaðarráðherra nefnd, Hólanefnd, sem átti að móta tillög- ur um framtíð skólans. Nefndin skilaði áliti í ársbyrjun 1980 og lagði þá fram margar tillögur, en aðsóknin í vetur var orðin svo léleg að ekki þótti fært að halda skólan- um lengur opnum. Hvað var það helsta sem Hóla- nefnd lagði til? Nefndin sem skipuð er 7 mönnum gerði margar tillögur, sem allar miðuðu markvisst að því, að efla Hólaskóla á öllum sviðum. Meðal helstu tillagna nefndarinnar voru hitaveituframkvæmdir, fisk- eldisstöð og hesthús, en fram- kvæmdir á þessu öllu eru hafnar. Hitaveita, Fiskeldis- stöð og hesthús Ef þú segir mér nánar frá þessum framkvæmdum? Fyrstar ber að telja hitaveitu- framkvæmdirnar, sem standa yfir við Reyki í Hjaltadal, sem eru í 9 km fjarlægð frá Hólum. Nú þegar hefur verið boruð ein hola á Reykjum, sem gefur 25 sekúndu- lítra af 57 gráðu heitu vatni, og næsta skrefið er að leggja aðveitu- æð frá Reykjum í fiskeldisstöðina og auk þess stendur til að leggja æðina að bæjum sem eru á leiðinni frá Reykjum og til Hóla. En fá aðrir bæir í Hjaltadal og víðar að njóta hitaveitunnar? Élg get ekki svaraö því, en sérfræðingar segja, að nóg sé til af vatninu á Reykjum. Gallinn er hins vegar sá, að þetta er lághita- svæði, sem leiðir það af sér, að erfitt er að halda vatninu heitu um langa vegalengd. Vonandi kemur þó að því, að aðrir bæir njóti heita vatnsins. Það má bæta því við að eigandi hitaveitunnar er Hitaveita Hjalta- dals, en aðilar að henni eru Hólalax hf., rikissjóður, og Hóla- hreppur. í öðru lagi vil ég nefna fiskeld- isstöðina sem hér mun rísa, en hún er í eigu Hólalax hf. Eigendur Hólalax eru öll veiðifélög á Norð- urlandi vestra, ríkissjóður, ein- staklingar og nokkrir veiðiréttar- eigendur á þessu svæði. Reiknað er með, að stöðin taki til starfa á þessu ári og að hún geli framleitt 200.000 gönguseiði árlega auk minni seiða. Forsaga þess að stöðin verður staðsett hér er sú, að í nokkur ár hafa áhugamenn um fiskeldi, á Norðurlandi vestra verið að leita að hentugum stað fyrir stöð og ekki fundið annan sem uppfyllir þau skilyrði sem nauðsynleg eru. Þessi skilyrði eru nægjanlegt magn af heitu og köldu hreinu vatni. Hesthúsið verður sérlega glæsi- legt, það tekur 100 hesta auk æfingavalla og girðinga. Húsin sjálf verða 1400 fermetrar og er það byggingarfyrirtækið Hamar og Sög á Hofsósi sem sér um framkvæmdir. Hólaskóli verði með fiskeldi sem sérgrein Hvar kemur Hólaskóli sjálfur inn í þessar framkvæmdir? Rökin fyrir þátttöku skólans eru þau, að allar þessar framkvæmdir varði framtíð skólans miklu. Með byggingu fiskeldisstöðvar- innar er hugmyndin að skapa aðstöðu til kennslu í fiskeldisfræð- um, sem hingað til hefur orðið að sækja til útlanda. Ef það yrði, gæti sú grein ef til vill orðið sérgrein Hólaskóla og þannig lagt fleiri undirstöður undir starfsemina. Bygging hesthússins skiptir skólann einnig miklu máli, þar sem þá yrði hægt að efla tamninga- kennslu og einnig er það hugmynd- in að reka þar reiðskóla ríkisins ef hann verður stofnaður. Að lokum Haraldur, á Bænda- skólinn á Hólum framtíð fyrir sér? Ef maður hugsar sér að land- búnaður eigi yfir höfuð einhverja framtíð, sem ég efa ekki, þá sé ég enga ástæðu til að ætla annað en að Hólaskóli hefji fljótlega aftur starfrækslu. Hann tekur varla til starfa næsta haust, en efkir það er ég bjartsýnn. Ég álít, að eftir að búfræöinámið var lengt, með lögum árið 1978, eigi skólinn enn meira erindi en áður, en hugmyndin með lögunum er sú, að lengingin komi að veru- legu leyti fram í verknámi. Þá verður samið við bændur um allt land að taka nemendur í verknám 3—4 mánuði á ári ondir eftirliti verknámskennara. Það er mín skoðun að bænda- skóli verði aldrei að fullu rekinn í fjölbrautaskóla, ef til vill bóklega námið, en það verklega verður að koma annars staðar frá. Ég held, að menn séu almennt sammála um, að aldrei verði útskrifaðir búfræð- ingar nema þeir hafi meiri eða minni reynslu úr bændaskóla. Þessi lrlði hópur er frá Byggin/afélaginu Stiganda á Blönduósi og sér um byggingaframkvæmdir við fiskeldistöð Hólalax hf., sem áætlað er að taka i notkun i haust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.