Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JULI1980 39 Frá sjöunda riðli i 100 metra hlaupi á ólympíuleikunum i Moskvu. Alan Wells. annar frá vinstri, sigrar oj? nær besta timanum i undanrásunum. Wells sigraAi svo i gærkvöldi i úrslitahlaupinu i 100 m. Don Quarrie frá Jamaica, lengst til vinstri, varð annar. Lengst til hægri sést Oddur Sigurðsson, sem varð siðastur i riðiinum, hljóp á 10,94 sek. AP-símamynd frá Moskvu. Ólympíufréttir Wells sigraði í 100 m hlaupinu ÞAÐ VAR hamingjusamur Alan Wells sem hljóp sigurhringinn á Leninleikvanginum i gærkvöldi er hann hafði sigrað í 100 m hlaupinu á ólympiuleikunum. Wells var sjónarmun á undan Silvio Leonard frá Kúbu. Báðir hlutu sama tima 10,25 sek. Úrslit í 100 m hlaupi karla: Sek. Alan Wells Bretlandi 10,25 Silvio Leonard Kúbu 10,25 Petar Petrov Búlgaríu 10,39 Aleksandr Aksinsin Sovétr. 10,42 Osvaldo Lara Kúbu 10,43 Muravyov Sovetríkjunum 10,44 M. Woronin Póllandi 10,46 Hermann Panzo Frakklandi 10,49 Eftir mjög harða og tvísýna keppni í þrístökki á Ol-leikunum tókst Sovétmanninum UUdmae að sigra, hann stökk lengst 17,35 metra. Annar varð landi hans Saneyev sem hefur sigrað í þessari grein á síðustu þremur Ol-leikum, en varð nú að gera sér silfurverð- laun að góðu. Úrslit í þrístökki karla: Metrar Jaak UUdmae, Sovétr. 17,35 Viktor Saneyev, Sovétr. 17,24 Joao Olivera, Brasilíu 17,22 Keith Connor, Bretlandi 16,87 Ian Campell, Ástralíu 16,72 Atanass Tcotchev, Búlgaríu 16,56 Tugþrautarkeppnin: Það var Bretinn Daley Thomp- son sem hafði örugga forystu eftir fjórar greinar í tugþrautinni í gær. Fimmtu greininni 400 metra hlaupi var ekki lokið er blaðið fór í prentun. Thompson hafði hlotið 4542 stig eftir fjórar greinar. Árangur hans var sem hér segir. 100 m 10,62 sek., langstökk 8,00 metrar, kúluvarp 15,18 m og í hástökki stökk hann 2,08 m. í öðru sæti var rússinn Kutsenko með 4278 stig og í þriðja sæti Kach- anov frá Rússlandi með 4265 stig. Tugþrautarkeppninni lýkur í dag. 800 metra hlaupið i dag: Sú keppni sem flestir bíða með hvað mestri eftirvæntingu á 01- leikunum er keppnin í 800 og 1500 metra hlaupunum. Þar mætast landarnir Coe og Ovett, mestu hlauparar heimsins í dag. Þeir hafa ekki keppt saman á hlaupa- brautinni síðan á Evrópumeist- aramótinu í Prag árið 1978. Báðir hafa verið iðnir við að setja heimsmet síðan þá. Síðast þegar kapparnir mættust hafði Ovett betur og margir hallast að sigri hans í dag. Spurningin er líka hvort heimsmetið í greininni stenst átökin. í kúluvarpi kvenna sigraði Ilona Slupianek frá A-Þýzkalandi, setti nýtt heimsmet, kastaði 22,41 metra. Þá var sett nýtt olympíu- met í spjótkasti kvenna. Richter frá A-Þýzkalandi kastaði 66,66 metra. Gamla metið var 65,94 metrar. Finnski stórhlauparinn Lasse Viren lenti í vandræðum í 10.000 metra hlaupinu í undanrás- unum og rétt tókst að komast í úrslitin, varð fjórði í sínum riðli, hljóp á 28,45,8 mín. Mikill hiti var meðan á hlaupinu stóð og gáfust 6 keppendur upp vegna hans. Morgunblaðið til sölu í Moskvu VÍÐA kemur Morgunblaðið við. Það vakti mikla undrun islensku keppendanna á ólympiuleikun- um i Moskvu. að hægt er að kaupa Morgunblaðið á blaðsölu- stöðum í ólympiuþorpinu. Þann- ig geta keppendur fylgst með því sem gerist heima á Fróni. Dagblöð viða úr heiminum eru til sölu i þorpinu og þar á meðal Morgunblaðið, að sögn Sveins Björnssonar fararstjóra íslenska hópsins. Afgreiðsla Morgunblaðsins mun hafa fengið beiðni um að senda 10 blöð til Moskvu á meðan á leikunum stendur. Hópferð Framara STUÐNINGSMENN Fram munu efna til hópferðar á leik Fram og ÍBV sem fram fer i Vestmanna- eyjum i dag og hefst kl. 14.00. Þeir sem hafa áhuga snúi sér til Arnarflugs. Skipting verðlauna a 01-leikunum I GÆRKVÖLDI höfðu þessar þjóðir hlotið flest verðlaun á ólympiuleikunum i Moskvu: Gull Silfur Brons Samanlagt Rússland 34 27 13 74 A-Þýskaland 11 19 17 47 Búlgaria 4 2 8 14 Ungverjaland 4 5 3 12 Rúmenia 4 4 3 11 Pólland 0 4 3 7 Svíþjóð 2 0 4 6 Ástralia 1 0 4 5 Bretland 2 2 1 5 Frakkland 1 2 0 3 ítalia 2 0 1 3 Kúba 2 1 0 3 N-Kórea 0 1 1 2 Tékkóslóvakía 0 0 2 2 Brasilia 0 0 2 2 Grikkland 1 0 0 1 Jamaica 0 0 1 1 Spánn 0 0 1 1 Mexico 0 1 0 1 Finnland 0 0 1 1 Sviss 1 0 0 1 Danmörk 0 0 1 1 Libanon 0 0 1 1 Austurriki 0 0 1 1 Fram leikur gegn FH-ingum DREGIÐ hefur verið i undanúrslitum i Bikarkeppni KSÍ. FH-ingar leika gegn Fram og eiga heimaleik og UBK á heimaleik gegn íslandsmeisturum ÍBV. Leikir þessir eiga að fara fram 13. ágúst kl. 20.00. þr. Jón og Oddur nokkuö frá sínu besta KEPPNI i frjálsum íþróttum hófst á ólympíuleikunum i Moskvu á fimmtudag. Þá keppti Oddur Sigurðsson i 100 m hlaupi og Jón Diðriksson i 800 metra hlaupi. Oddur hljóp i 7 riðli og hafnaði i 7 sæti af sjö keppend- um, hlaut timann 10,94 sek. Sigurvegari i riðlinum varð All- an Wells frá Bretlandi hljóp á 10,11 sek. Jón Diðriksson var nokkuð frá sinum besta árangri i 800 metra hlaupi, varð siðastur i sinum riðli, hljóp á 1,51.1 sek. Voru þetta aukagreinar bæði hjá Jóni og Oddi. Þrír fyrstu í hverjum riðli komust áfram í milliriðla. Wells náði bestum tíma í 100 m í riðlakeppninni 10,11 sek. og And- reas Busse frá A-Þýzkalandi í 800 metrunum 1,47,4 mín. Menn fóru sér hægt og flestir bestu hlaupar- arnir tryggðu sér aðeins sæti í milliriðlunum átakalaust. Oddur Sigurðsson og Jón keppa aftur á sunnudag. Og þá mun Óskar Jakobsson keppa í kringlu- kasti. Hreinn og Óskar keppa svo í undankeppninni í kúluvarpi á mánudag. -þr. • Getur þú ekki talað hærra, gæti Iuliyaka Semenova verið að segja við þjálfara sinn. Semenova er 2,15 metrar á hæð, leikur aðalhlut- verkið i geysistérku, sovésku körfuknattleiksliði kvenna, sem er öruggt með sigur á ólympiuleikunum i Moskvu. í gærdag vann liðið Ítalíu með 119 stigum gegn 53, en i flestum leikjunum til þessa hefur iiðið sigrað með um 35 stiga mun. Þess má geta, að sovésku stúlkurnar hafa ekki tapað landsleik i 20 ár. Hefur hlotið 8 verðlaun SOVÉTMAÐURINN Aleksander Ditytin hefur unnið átta verðlaun i fimleikakeppninni á ólympiu- leikunum og þar með sett nýtt met hvað varðar flest verðlaun á einum leikum. Dityatin hefur hlotið fern gullverðlaun. þrenn silfurverðlaun og ein bronsverð- laun. Bandarikjamaðurinn Spitz átti fyrra metið, en hann vann sjö gullverðlaun á ól-leikunum i . Munchen. Mjög óvænt úrslit urðu í spjótkasti kvenna í gær. Sigur- vegarinn, sem var frá Kúbu. Maria Colon, setti nýtt ól-met, kastaði 68,40 metra, önnur varð rússneska stúlkan Gunba með 67,76 metra. Úrslit i handknattleikskeppni leikanna í gær urðu þessi: Júgó- slavía sigraði Rúmeniu 23—21, Pólverjar sigruðu Dani 26-12, Rússar sigruðu Alsír 33—10, Sviss vann Kuwait 32—14 og Ungverjar sigruðu Spánverja 20—17. Þá sigruðu A-Þjóðverjar Kúbu 27- 20. Héraösmót UMSB HÉRAÐSMÓT Ungmennasam- bands Borgarfjarðar verður háð í dag og á morgun á iþrótta- vellinum í Borgarnesi. Mótið hefst kl. 13 háða dagana. Allt bezta íþróttafólk UMSB verður meðal þátttakenda á mótinu. að undanskildum Jóni Diðrikssyni, sem nú þreytir keppni á ólympiu- leikunum i Moskvu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.