Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 15 þessu tilliti. Helstu afsakanir og árviss viðburður eru, að fjárhagur ríkissjóðs sé óvenju slæmur — að mörg mál bíði afgreiðslu, — að læknar séu ósammála um forgang framkvæmda og myndi þrýsti- hópa. Þessar afsakanir eru ekki haldbærar! Læknar í hverri sér- grein fyrir sig reyna að sjálfsögðu að vinna sinni sérgrein framgang, þar sem engin afgerandi heildar- stefna er fyrir hendi eða sam- þykktir um forgangsröðun. Ógeðfelldasta fyrirbrigðið, og það sem nú virðist tízkufyrirbrigði hjá forstöðumönnum heilbrigðis- þjónustu, er þó svokölluð „cost benefit" analysa. Ef svona orða- lag, sem tekið er beint upp frá verzlun og iðnaði, ætti við í heilbrigðisþjónustu, þýddi það í raun og veru, að einungis einstak- í stað myndatöku með margs konar aukaráðstöfunum til óþæginda fyrir sjúklinginn í marga klukkutima og langrar skoðunar er unnt á nokkrum mínútum án alira óþæginda að fá margfalt öruggari niðurstöður og í mörgum tilvikum árangur i stað árangursleysis með hinu nýja og fullkomna sneiðmynda- tökutæki sem er til á öllum vestrænum löndum nema ís- landi. Þessi mynd sýnir æxli i heila, þ.e. hviti depillinn við miðbik myndarinnar. Niður und- ir höfuðkúpubotninum þar sem æxlið situr og veldur stiflun á frárennsli á mænuvökva frá heilahólfunum sem sjást útvíkk- uð á hinni sneiðmyndinni. en stíflan verður vegna aukins þrýstings er æxlið veldur. Þessi myndataka tekur um 15 minútur í nýja tækinu. 8—10 sneiðmynd- ir, i stað IV2 tíma myndatöku með gömlu aðferðinni sem nær mun minni árangri. Útvikkuð heilahólf vegna stíflu af völdum æxlisins. Stjórnleysi í ákvörðunum sem varða líf eða dauða Greinarhöfundur, sem að af- loknu 8 ára sérfræðinámi í geisla- greiningu erlendis og 10 ára starfi, sem sérfræðingur við Röntgen- deild Landspítalans, hefur á und- anförnum árum reynt að vinna skilning hjá forstöðumönnum Rík- isspítalanna og heilbrigðisyfir- völdum varðandi þessar augljósu staðreyndir. Árlega hafa verið sendar inn ítarlegar greinargerðir með útskýringu. Gengið hefur verið á fund forráðamanna í heilbrigðismálum og jafnvel ráð- herra en oft hefur árangur ekki orðið sem erfiði og talað fyrir daufum eyrum. Kemur þar senni- lega margt ti|. Óvenjutíð skipti hafa orðið á heilbrigðismálaráð- herrum síðustu árin og hafa þeir ekki setið nógu lengi, til að taka afstöðu og marka skýra stefnu í Jón L. Sigurðsson í þessum stól fer loftskoðun á heila fram samkvæmt gömlu aðferðinni sem tiðkast hér á landi ennþá. en stóllinn er langt frá því að vera það þægilegasta sem um getur fyrir sjúklinginn. þvi hann er reyrður niður og getur sig hvergi hreyft hvernig sem honum líður. ir sjúkdómar væru þess eðlis, að það borgaði sig að rannsaka þá eða reyna lækningu. — Auk þess ætti að beita þessari „cost benefit" aðferð á furmstigi heilbrigðis- þjónustunnar og myndi þá kannski koma í ljós, að árangur heilbrigðisþjónustu stendur ekki í réttu hlutfalli við glæsi- og minn- isvarðabyggingar í heilsugæslu víðs vegar um landið. Þar mun hrein hreppapólitík ráða málum. Réttur einstakl- ingsins að njóta mesta öryggisins I þessu sambandi er óhjákvæmi- legt að minnast einnig nokkuð á rekstrarfyrirkomulag hinna stærri rannsóknarsjúkrahúsa, sem ekki virðast byggja á neinni „cost benefit" analysu. Landspít- ali, sem er ríkisspítali, fær fasta fjárveitingu í ársbyrjun og skiptir engu máli, þótt dýrtíð rýri þessa fjárveitingu um 50% eða meira á því sama ári. Borgarspítali er rekinn sem héraðssjúkrahús eftir daggjaldakerfi, en getur auk þess sent inn bakreikninga til Ríkis- sjóðs um allt að 85% af öllum nýbyggingarkostnaði. Hér kemur fram sjálfvirkni í fjárlagagerð ríkisins, sem oft er torskilin. Hvort kerfið, sem notað er, bygg- ist að engu á „cost benefit" hugfræði. Það skiptir engu máli í þessu sambandi hvort einn sjúkl- ingur liggur í sjúkrarúmi í 365 daga á ári eða hvort 365 sjúkl- ingar nýta eitt og sama rúmið árlega. Með öðrum orðum, enginn hvetjandi þáttur er fyrir betri nýtingu rúma á hinum dýru rann- sóknarsjúkrahúsum. Það verður ekki nógu vel undir- strikað, að það er réttur hvers einasta þegns þessa lands, að séð sé fyrir bestu fáanlegu þjónustu, þegar sjúkdóm ber að höndum og að sjúkdómsgreining sé gerð á sem tryggastan og skjótastan hátt, þannig, að meðferð geti hafist. Ef ríkið ekki vill standa við þessar skyldur verður að finna annað fyrirkomulag. í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 57 frá 20. maí 1978 stendur: 1. gr. 1.1. Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomnustu heil- brigðisþjónustu, sem á hverj- um tíma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði. 1.2. Heilbrigðisþjónusta tekur til hvers kyns heilsugæslu, heil- brigðiseftirlits, lækninga- rannsókna, lækninga í sjúkra- húsum og endurhæfingar- starfs. 1.3. Ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála sér um að heil- brigðisþjónusta sé eins góð og þekking og reynsla leyfir og i samræmi við lög og reglu- gerðir. Eitt gleggsta dæmið um algeran skort á skilningi og virðingu yfirvalda fyrir sjúku fólki kom fram á síðasta ári, er ríkisstjórnin fyrirskipaði sparnað á sjúkrahús- um heilbrigðisþjónustunnar að vera nokkuð takmörkuð ennþá. Hann lýsti því hins vegar yfir að hann vildi kynna sér málin eins vel og kostur væri á, m.a. með heimsóknum á sjúkrahúsin og umræðum. Aðspurður um fjár- mögnun til hinna ýmsu þátta, svaraði hann m.a. því til, að vinna þyrfti ákveðnum málum stuðning og að ákvörðun yrði tekin af 220 þús, einstaklingum, þ.e.a.s. lands- mönnum öllum. Það gefur hins vegar auga leið að það er erfitt fyrir hvern einstakling að taka ákvörðún um hluti, sem hann veit ekkert um. Einnig má benda á að einnig geta þrýstihópar sem að- eins hafa áhuga á einum þætti í heilbrigðiskerfinu eða jafnvel ein- um sjúkdóm valdið nokkurri rugl- un á forgangsröðun verkefna. Þar að auki heldur hinn almenni borgari áð allt sé í lagi og að hann eigi rétt á fullkominni heilbrigðis- þjónustu, enda er það tekið fram í stefnuskrá allra stjórnmálaflokka að landsmenn allir þurfa að eiga kost á fullkomnustu heilbrigðis- þjónustu, sem tök eru á að veita til verndunar líkamlegri og andlegri heiisu. Þetta er óframkvæmanlegt ef undirstaðan er veik og illa séð fyrir grundvallaratriðum. Hinn nýi heilbrigðismálaráðherra lýsti því hins vegar yfir á fundi á Landspítala nýlega að hann hefði fullan hug á að endurmeta heil- brigðisþjónustu hér á landi og boðaði í því skyni m.a. skipan 10 manna nefndar, er gera skyldi úttekt á heilbrigðisþjónustu og sjúkrahúsrekstri almennt. í ís- lenskri politík þýðir skipun nefnd- ar um mál oft það sama og að málin tefjist endalaust og jafnvel lognist útaf. Auk þess hefur val manna í nefnd þessa sætt nokk- urri gagnrýni, þar eð í fljótu bragði virðast viðkomandi aðilar Eiga Islendingar kost á sömu læknisþjónustu og þegnar nágrannaríkja? — Eru íslensk sjúkrahús jafn vel útbúin og sjúkra- hús á Norðurlöndum? um ríkisins, m.a. með því að setja „þak“ á yfirvinnu lækna, án þess að nokkur rannsókn var gerð á því, hvort þessi yfirvinna væri óþörf eða hvort sú lágmarks öryggisþjónusta, sem veitt er sjúkum, skaðaðist við þetta. Ekki var heldur athugað eða áætlað hvort þá þyrfti að ráða fleiri lækna til þess að sleppa yfirvinnu. Það er hins vegar grundvallar- krafa þess, sem lagður er inn á sjúkrahús, að öryggisþjónusta sé í vissu lágmarki! Inni á sjúkrahús- inu á sjúklingur og aðstandendur hans að geta fundið til þess öryggis, að allt sé gert til þess að lina þjáningar og beita þeim rannsóknum og aðgerðum, sem nauðsynlegar eru til skjóts bata. Að taka sauðkindina af stalli og dýrka mannlíf í staðinn Núverandi heilbrigðismálaráð- herra hefur nýlokið „visitasiu" á stærstu sjúkrahúsin hér í Reykja- vík, sem er nýmæli og mjög virðingarvert. Heilbrigðismála- ráðherra hefur nýlega tekið við embætti og hlýtur þekking hans á hinum mörgu og oft flóknu þátt- ekki hafa þá grundvallarþekkingu og reynslu, sem nauðsynleg er, til þess að gera slíka úttekt. Til dæmis er enginn sjúkrahúslæknir eða sérfræðingur sem starfar ein- göngu á sjúkrahúsi í nefnd þess- ari. I æðstu stjórn heilbrigðismála sitja hins vegar velmenntaðir læknar, sem vissulega gætu bent ráðherra á, að slikar athuganir hafa verið gerðar í nágrannalönd- um okkar oft og margsinnis og myndu viðkomandi heilbrigðisyf- irvöld, t.d. Socialstyrelsen í Sví- þjóð eða SPRI (Statens Planering og Rationaliserings Institut), fús til að veita aðstoð og aðgang að gögnum, sem síðan mætti sníða að íslenskum aðstæðum. Það er von greinarhöfundar, að nú þegar verði tekin upp mark- vissari stefna í sjúkrahúsmálum. Grundvöllurinn verði treystur með eflingu rannsóknardeilda sjúkrahúsanna, þ.e. allir sitji við sama borð hvað sjúkdóm snertir. Gera þarf stórátak nú þegar og veita til þess myndarlegri fjár- hæð, þó ekki væri ekki nema hluta af útflutningsbótum til landbún- aðarafurða árlega. Kominn er tími til að sauðkindin verði tekin af stalli og heilbrigðara mannlíf dýrkað í staðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.