Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 13
1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980
Gafl-inn við Reykjanesbraut:
Létt vín
með hlað-
borðs-réttum
VEITINGAHÚSIÐ Gafl-inn við
Reykjanesbraut i Hafnarfirði
hefur nýlega fengið vínveit-
ingaleyfi og hefur því tekið upp
fjölbreyttari þjónustu við gesti
sina en áður. Meðal nýjunga má
nefna hlaðborð á sunnudögum
með köldum og heitum réttum.
svo og fullkomnari þjónustu við
litla og stóra hópa.
Fyrirtækið hóf rekstur á grill-
stað og kaffiteríu í ágúst 1976
við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði
og í desember 1978 við Reykja-
nesbraut. Báðir veitingastaðirn-
ir bera nafnið Gafl-inn. Um 40
Jón sker væna sneið af svínasteik handa einum gesta sinna.
Jón Pálsson og Einar Sigurðsson við kalda borðið.
manns vinna hjá fyrirtækinu, en
því veita forstöðu Jón Pálsson og
Einar Sigurðsson, en eiginkonur
þeirra, Pálmey og Fanney Ottós-
dætur, reka fyrirtækið með
þeim.
Gaflinn við Reykjavíkurveg er
opinn frá kl. 8 að morgni til kl.
21 að kvöldi og er þar boðið upp
á fjölbreytta grill-rétti, svo og
smurt brauð og kökur. Fljótlega
hóf fyrirtækið að selja tilbúinn
veizlumat út í bæ, köld borð og
smurt brauð.
Síaukin starfsemi leiddi svo til
þess að fyrirtækið færði út
kvíarnar með opnun grillstaðar
og kaffiteríu í nýju húsi við
Reykjanesbraut (Keflavíkurveg).
Að auki eru í húsinu veizlu- og
fundarsalir, sem rúma allt að
150 manns. Reksturinn færðist
þar með inn á nýtt svið, þ.e.
móttöku lítilla og stórra hópa til
hvers konar veizluhalda og fund-
arstarfsemi. Gafl-inn við Reykj-
anesbraut er opinn frá 8 að
morgni til kl. 23.30 að kvöldi.
Þeir Jón Pálsson og Einar
Sigurðsson tjáðu Morgunblaðinu
að þeir hefðu sótt um vínveit-
ingaleyfi eftir tilkomu veizlusal-
anna og hefði leyfið fengizt fyrir
skömmu. Nær það bæði til léttra
og sterkra drykkja.
Þeir félagar sögðu, að þar með
væri þeim kleyft að stórauka
þjónustuna við matargesti í
veizlusölunum, svo og við litla og
stóra hópa, allt frá 6 manna til
50 manna. Áfengir drykkir eru
einungis seldir matargestum (þó
ekki á grillstöðunum).
Á næstunni mun Gafl-inn við
Reykjanesbraut bjóða gestum
upp á hlaðborð með heitum og
köldum réttum á sunnudögum
frá kl. 17 til kl. 21. í hádeginu á
sunnudögum verður einnig tekin
upp sú nýjung að bjóða upp á
fjölskyldumatseðil með ljúffeng-
um réttum á hagkvæmu verði.
13
Annað óhappið á
tveimur dögum:
Mótor
brann yfir
í Arnar-
flugsvél
ÞAÐ óhapp varð, þegar verið
var að keyra upp mótora á
Twin Ottervél Arnarflugs í
gærmorgun, að olíuþéttir í
öðrum mótornum gaf sig og
mótorinn brann yfir. Þetta er
önnur vél Arnarflugs, sem
lendir í svona óhappi á tveim-
ur dögum.
Halldór Sigurðsson hjá
Arnarflugi sagði, að skipt yrði
um mótor í vélinni, þannig að
hún ætti að geta farið í loftið
að nýju á morgun. Arnarflug í
samvinnu við Flugfélag Norð-
urlands hefur alla jafna einn
slíkan mótor ef óhöpp verða.
Mótor sem þessi kostar nýr
á bilinu 20—30 milljónir
króna, en Halldór sagði, að
mótorinn sem brann yfir í
gærmorgun væri ekki ónýtur,
heldur yrði hann gerður upp.
Halldór sagði það mjög
bagalegt fyrir Arnarflug, að
missa tvær vélar út á sama
tímanum, en mjög mikið væri
um að vera bæði í áætlunar-
flugi og leiguflugi.
Við hönnun PIONER plastbátsins, var aðal
áherslan lögð á eitt atriði — ÖRYGGl. —
PIONER bátnum hvolfir ekki, (nema þá að öll
áhöfnin leggist á eitt) — og að sökkva honum er
útilokað. Hann er tvöfaldur, með holrúmum á
milli, þannig að fullur af vatni ber hann hámarks
áhöfn. PIONER báturinn er ótrúlega léttur. en
um leið geysi sterkbyggður. Þó ógætilega sé
með hann fariö brotnar hann ekki. Auk 5 stærða
af árabátum, framleiðir PIONER kajaka. kanóa
og seglbáta.
SKRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRÐ HF
Hólmsgata 4 Boi 906 121 R«yk|<vik
I