Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 Rósir í garðin um Ýmsir þeir, sem við ræktun fást, hafa sínar eigin aðferðir við að hlúa að plöntunum, aðferðir sem ef til vill hafa ekki fengið vísindalegt samþykki. Einn rósaræktandi lét uppi sína aðferð við að gera vel við plöntur sínar. Hann grefur bananahýði niður í moldina við hlið rósanna og heldur því fram, að þeim verði gott af. Avextir og græn- meti á andlitið Ávextir og grænmeti eru ekki aðeins hollur matur, en geta líka gert sitt gagn útvortis, eftir því sem sérfræðingar segja okkur. í samræmi við það hafa snyrti- vöruframleiðendur, í auknum mæli síðustu ár, snúið sér að afrakstri móður jarðar við til- búning hinna mörgu snyrti- og fegrunarlyfja. Fyrir nokkru kom út hjá Pelham-útgáfufélaginu (Pelham Books) í Bretlandi bók sem heitir „Making Your Own Cos- metics" (að búa sjálfur til snyrtivörurnar), eftir James Sholto Douglas, þar sem kennt er að búa til allskonar snyrtivör- ur. Þar eru leiðbeiningar um tilbúning á kremi af öllu tagi, maska, sólolíu, varalit, maskara, shampoo, sápu, tannkremi og jafnvel ilmvatni. Það þarf sjálfsagt þolinmæði og nákvæmni við slíka snyrti- vörugerð í heimahúsi, en getur vel verið þess virði að reyna slíkt og gæti sjálfsagt reynst hag- kvæmt. Þess má að lokum geta, að vitað er, að konur hérlendis hafa eitthvað fengist við að búa til sín eigin krem, dálkahöf. hefur vitn- eskju um slíkt úr eigin fjöl- skyldu, föðursystir, sem nú er látin, fædd í Reykjavík árið 1913, bjó til sín eigin hreinsunar- og „cold“-krem, líklega á árunum í kringum 1940, en samsetning þeirra hefur því miður ekki varðveist. Leikir, gátur, þrautir og sögur_______________________________ Umsjón: Rúna Gfsladóttlr og Þórlr S. Guöbergsson Mikið að gera á stóru heimili — Afi og amma koma í dag, hrópuðu þau Bjarni og Birna bæði í einu. Þau hentust niður tröppurnar og höfðu nær hent pabba sínum um koll sem stóð við bílinn sinn og var önnum kafinn við að þvo. — En sá gauragangur, sagði pabbi þeirra og rétti úr sér. — Var það ætlun ykkar að henda mér á hausinn ofan í vatnsfötuna? spurði hann og hló. — Getum við ekki farið í sund í dag? spurði Bjarni ákafur og Birna tók undir þessa einlægu ósk. En faðir þeirra var ekki á því. — Við verðum að ganga frá svo miklu áður en afi ykkar pg amma koma, sagði hann. Ég þarf að þvo bílinn og mamma ykkar þarf að skreppa útí búð, kaupa í matinn og leggja á borð, áður en þau koma. — Getum við ekki eitthvað hjálpað til? spurði Birna og horfði stórum augum á pabba sinn, sem aftur var önnum kafinn við að þvo bílinn sinn. — Já, get ég ekki hjálpað þér að þvo? spurði Bjarni og rétti honum svampinn, sem flaut í fötunni. — Já, og ég get skroppið út í búð fyrir mömmu og hjálpað henni að leggj atborð. Systkinin tóku til óspilltra málanna. Foreldrarnir tóku þeim vel. Þeir létu það af- skiptalaust þó að eitthvað væri öðru vísi en þeim fyndist það ætti að vera. Þeir örvuðu börnin sín og hvöttu, og allt gekk vonum framar. Þegar margar hendur vinna saman og við lærum að hjálpa hvert öðru — er jafn vel tími til að fara í sundlaug áður en afi og amma koma i heim- sókn. Með sumarkveðju Þ. Hafmeyjar og sækarlar Hafmeyjar eru þekktar í sög- um og ævintýrum. Hver veit nema þið hafið lesið um ein- hverjar þeirra, sem lokkað hafa menn til sín með galdrabrögðum sínum. Margir þekkja að minnsta kosti hafmeyjuna í Kaupmannahöfn, sem fræg er orðin á síðustu árum. Löngu áður en tímatal okkar hófst, þekktu menn sögur um hafmeyjar, og vitrir menn álíta, að tilvera þeirra hafi byrjað þannig: Þegar fólk sá sækýr rísa skyndilega upp úr sjónum með andlit, sem helst líktist feitum, luralegum manni, andlit sem var sumpart af manni og sumpart af skepnu — og þar sem til voru sækarlar, var ekkert líklegra en að til væru líka sækvenmenn, það er að segja hafmeyjar. Margir kannast við þá Trölla og Gilla gíraffa. Þeir voru á ferð og flugi hér í Reykjavík í allt fyrrasumar og skemmtu krökkunum á leikvöllum höfuðborgar- innar. Okkur þætti gaman að fá bréf frá einhverjum krökkum á leiksvæðum borgarinnar ásamt teikning- um, þar sem þeir segja okkur, hvort þeir hafi heyrt og séð til þeirra félaga eða vina þeirra. Gleðilegt sumar áfram. Hausakast Margt er sér til gamans gert, stendur einhvers staðar. Hér kemur leikur, sem auðvelt er að framkvæma. Þátttakendur (tveir í einu) búa sér til hring úr þykkum pappa, sem þeir setja siðan á höfuðið eins og myndin sýnir, og festa hann með teygju. Leikurinn er síðan i þvi fólginn að annar byrjar og kastar upp peningi. en hinn hleypur undir hann og reynir að grípa peninginn með nýja „hattinum* sinum. Sá sem grípur oftar hefur unnið — (annars er aðal atriðið að leika sér, æfa sig og skemmta sér, eins og þið munið, ekki að vinna). Góða skemmtun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.