Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980
23
Ragnar Arnalds, f jármálaráðherra:
Olíumöl leiti nauðungar-
samninga um skuldir sinar
- að öðrum kosti verði óskað eftir gjaldþrotaskiptum
RAGNAR Arnalds fjármálaráð-
herra sagði í samtali við Mbl., að
hann myndi i næstu viku skrifa
stjórn Oliumalar h.f. bréf og fara
fram á að hún myndi reyna til
hins ýtrasta að ná fram nauðung-
arsamningum um skuldir fyrir-
tækisins, sem nema um þessar
mundir um 2.2 milljörðum, og
siðan yrði starfsemin endurskoð-
uð. Að öðrum kosti sæi hann enga
leið færa aðra en óska eftir
gjaldþrotaskiptum fyrirtækisins.
„Ég elti ekki lengur ólar við
Eiður Guðnason, formaður fjárveitinga-
nefndar, um málefni Olíumalar:
Málið er úr
höndum f jár-
veitinganefndar
VEGNA þeirra ummæla, sem
höfð voru eftir Ragnari Arnalds
fjármálaráðherra i hádegisfrétt-
um útvarps i gær varðandi mál-
efni fyrirtækisins Oliumalar hf.
óskar Eiður Guðnason formaður
fjárveitinganefndar Alþingis eft-
ir að koma eftirgreindu á fram-
færi:
1. í sjöttu grein fjárlaga yfir-
standandi árs er fjármálaráð-
herra veitt heimild til að breyta
kröfum ríkissjóðs á hendur fyrir-
tækinu Olíumöl hf. í hlutafé, að
fengnu samþykki fjárveitinga-
nefndar Alþingis.
2. Hinn 10. apríl sl. skrifaði
fjármálaráðherra fjárveitinga-
nefnd bréf og óskaði samþykkis
fjárveitinganefndar til þess að
nota mætti þessa heimild. Hafði
skv. því ákveðið að nota heimild-
ina.
3. Fjárveitinganefnd hófst þá
þegar handa um könnun málsins,
ræddi við stjórnendur Olíumalar
hf., yfirmenn Vegagerðar ríkisins
og ýmsa fleiri aðila, skoðaði eignir
Olíumalar h.f. og aflaði upplýs-
inga um fjárhagsstöðu fyrirtækis-
ins, þeirra sem tiltækar voru.
Bæjarfógeti í Sigluf.
Fimm sóttu
um starfið
FIMM umsóknir bárust um emb-
ætti bæjarfógeta i Siglufirði, sem
verður veitt frá 15. ágúst nk.
Elías Eliasson, sem verið hefur
bæjarfógeti, hefur verið skipaður
bæjarfógeti á Akureyri.
Umsækjendurnir fimm, að sögn
Baldurs Möllers ráðuneytisstjóra í
dómsmálaráðuneytinu, eru: Barði
Þórhallsson bæjarfógeti, Ólafs-
firði, Erlingur Óskarsson fulltrúi
á Akureyri, Finnbogi H. Alexand-
ersson fulltrúi í Hafnarfirði, Hall-
dór Þ. Jónsson fulltrúi á Sauð-
árkróki og Volter Antonsson
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík.
22 180
AK.I.VSIV. \
SIMINN EK:
4. Hinn 13. maí skýrði fjármála-
ráðherra frá því í umræðum á
Aiþingi að hann hefði með bréfi til
Seðlabanka íslands hinn 8. maí
óskað eftir því að Seðlabankinn
gerði úttekt á fjármálalegum
viðskiptum Olíumalar hf. við
bankakerfið, og jafnframt að
Seðlabankinn, „leggi fram öll þau
gögn í þessu máli, sem tiltæk eru
hjá þeirri stofnun". í þessum
umræðum sagði fjármálaráðherra
einnig að hann mundi ekki gera
upp hug sinn í þessu máli fyrr en
greinargerð Seðlabankans hefði
borist, og dró þannig til baka fyrri
ákvörðun um að nota fjárlaga-
heimildina.
Með þessu tók fjármálaráðherra
því málið úr höndum fjárveitinga-
nefndar og flutti athugun þess frá
nefndinni til Seðlabankans, og sló
málinu á frest meðan beðið var
greinargerðar bankans.
5. Er þessi ummæli ráðherrans
lágu fyrir ræddi fjárveitinganefnd
mál Olíumalar hf. að nýju í ljósi
þeirra, og ritaði Ragnari Arnalds
fjármálaráðherra bréf hinn 20.
mái, sem lýkur með þessum orð-
um: „Fjárveitinganefnd gerir ráð
fyrir að fá í hendur þau gögn, sem
leiða af athugun Seðlabanka ís-
lands í máli þessu. Ef yður að
lokinni athugun Seðlabankans á
málefnum Olíumalar hf. þykir enn
rétt að óska samþykkis fjárveit-
inganefndar til að nota áður
nefnda heimild í fjárlögum, mun
nefndin taka það mál til athugun-
ar að nýju.“
6. Hinn 20. júní sl. barst fjár-
veitinganefnd greinargerð Seðla-
banka íslands um málefni Olíu-
malar, sem fjármalaráðherra
hafði beðið um. Skýrslunni fylgdi
svohljóðandi bréf:
„Hér með sendist yður skýrsla
sú, sem Seðlabanki íslands tók
saman sbr. beiðni ráðuneytisins
um fjárhagsstöðu Olíumalar hf.
Skýrslan þarfnast ekki skýringa.
Fyrir hönd ráðherra
Þröstur Ólafsson (sign)“
7. Fjárveitinganefnd hefur því
engin ósk borist frá ráðherra um
að taka þetta mál fyrir að nýju.
Ákvæði fjárlaga eru ótvíræð og
tvímælalaus. Það er fjármálaráð-
herra að óska eftir því að umrædd
heimild verði notuð. Sú ósk hefur
ekki borist eftir að ráðherra íok
málið úr höndum nefndarinnar í
maí. Þær ákvarðanir, sem fjárlög
fela fjármálaráðherra, getur hann
ekki ætlast til að aðrir taki fyrir
hann, þótt óþægilegar kunni að
vera.
Fréttatími ríkisútvarpsins er
ekki réttur vettvangur til að svara
dylgjum ráðherra í garð fjárveit-
inganefndar. Til þess munu hins
vegar gefast næg tækifæri, þótt
síðar verði.
Eiður Guðnason,
form. fjárvcitingan.
fjárveitinganefnd vegna þessa
máls. Ég tel að reynslan hafi sýnt,
að fjárveitinganefnd sé ekki í
stakk búin til að fjalla um þetta
mál. Ráðuneytið sendi málið til
fjárveitinganefndar á sínum tíma
og óskaði eftir því að hún tæki
málið fyrir á grundvelli ákvarð-
ana í fjárlögum. Hún vann vel að
málinu um skeið og ég hélt að frá
henni kæmi álitsgerð og stefnu-
mótun í málinu. Málið fór hins
vegar allt upp í loft hjá nefndinni
og þegar ég svo óskaði eftir því við
Seðlabankann, að hann gæfi ýms-
ar upplýsingar í málinu, þá notaði
fjárveitinganefnd það tækifæri til
þess að vísa málinu frá sér,“ sagði
Ragnar ennfremur.
„Ég hef hins vegar ekki ennþá
skilið hvaða rök lágu þar að baki.
Ég bað Seðlabankann einfaldlega
um gögn í málinu og sendi fjár-
veitinganefnd. Síðan skeður það,
að m.a. formaður nefndarinnár
segir það í fjölmiðlum, að nefndin
hafi málið ekki lengur itl meðferð-
ar. Ég get ekki túlkað það á annan
veg en að fjárveitinganefnd sé
einfaldlega ekki í stakk búin til að
marka stefnuna i þessu máli
vegna einhverrra innri vanda-
mála,“ sagði Ragnar.
CATERPILLAR 3408
Vela- og
þjónustukynning
Útgerðarmenn og vélstjórar um land allt
Leyfum okkur aö heimsækja ykkur á næstu 2—3 vikum til skrafs
og ráöagerða.
Augnayndiö í feröinni veröur ein af hinum frábæru CATERPILLAR
VÉLUM, CAT. 3408 365 hö. viö 1800 sn/mín.
Veröum á eftirtöldum stöðum:
Stokkseyri og Eyrarbakka
Vestmannaeyjum
Þorlákshöfn
Grindavík
Keflavík
Sandííerði
28: júlí kl. 8.30 — 10.30
28. júlí kl. 17.00 — 23.00
29. júlí kl. 11.00 — 12.00
29. júlí kl. 15.00 — 16.00
29. júlí kl. 17.00—18.00
29. júlí kl. 18.30 — 19.30.
Œ
HEKLA hf.
CATERPILLAR
SALA S. ÞJONUSTA
Caterp*Har, Cot. og CB eru skrósett vorumerki
Laugavegi 170-172, — Simi 21240