Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 Hraðfrystihús Grundarfjarðar keypti nýlega frá Danmörku beinamjölsverksmiðju, sem ætlað er að vinna karfabein. Bæring Cesilsson, fréttaritari Mbl. tók þessa mynd þegar verið var að skipa hlutum verksmiðjunnar upp á Grundarfirði. Samhliða viðræður við YSÍ og VMS óraunhæfar - segir Þorsteinn Pálsson FULLTRÚAR Vinnuveitend asambandsins lýstu þvi yfir í morgun á fundi. sem sáttanefnd hélt með fulltrúum alþýðusam- bandsins og VSÍ, að þeir væru ekki reiðubúnir til að taka þátt i þeim samningaviðræðum, sem nú ættu sér stað. Ennfremur lýstu þeir þvi yfir að þeir hæfu ekki samningaviðræður við ASÍ með- an að viðræður ASÍ og VMS stæðu yfir. Sáttanefnd kallaði siðan fulltrúa VSÍ til fundar, þar sem rædd var sú hugmynd að koma á viðræðufundi milli VSÍ og VMS en því var hafnað af hálfu VSÍ. Morgunblaðið sneri sér til Þorsteins Pálssonar, fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bandsins og spurði hann um af- stöðu VSÍ til þessa máls. Þor- steinn sagði; „Við álítum óraun- hæft að samhliða fari fram við- ræður við VSÍ og VMS á tvenns konar grundvelli. Beiðni ASÍ snýst um það, að við hefjum viðræður við þá á nýjan leik um kjarna; samninginn á sama tíma og ASÍ ræðir við VMS um frestun kjarna- samnings. Slíkt er tæknilega séð ekki hægt. Aðrar hvorar viðræð- urnar verða að hafa forgang og það var ákvörðun ASÍ að láta viðræðurnar við VMS hafa for- gang. Það á ekki við nein rök að styðjast að við höfum slitið sam- starfi við VMS. í fyrra tilkynnti nýkjörinn formaður VMS, Hall- grímur Sigurðsson, að þess væri ekki að vænta að VMS hefði eins náið samstarf og verið hefði. Þeir hefðu áhuga á að fara eigin leiðir. Eftir að samningarnir fóru fyrir sáttanefnd í vor hefur fulltrúi VMS allan tímann starfað með okkur og setið í sama herbergi, þar til VMS tilkynnti að sérvið- ræður þeirra og ASÍ væru að hefjast. VSÍ á ekki í neinum deilum við VMS, — við eigum í kjaradeilu við ASÍ — og því er ekki nein þörf á sáttafundi með okkur," sagði Þorsteinn að lokum. Morgunblaðið leitaði einnig til þeirra Snorra Jónssonar, forseta ASÍ og Hallgríms Sigurðssonar, formanns VMS, en þeir kváðu lítið að frétta af gangi viðræðnanna. Tíminn hefði farið í að ræða stöðu mála og formsatriði og væri ákveðið að halda næsta samninga- fund þessara aðila á mánudaginn kemur kl. 16:00. Vatnsgeymir á Grafarholti HITAVEITA Reykjavíkur mun á næstunni hefja framkvæmdir við byggingu vatnsmiðlunargeyma á Grafarholti, en nú eiga sér stað viðræður milli borgaryfirvalda og verktaka þess, sem átti lægsta tilboð í framkvæmdina. í sumar er ráðgert að einn geymir verði byggður, en upphaflega var áætl- að, að tveir geymar yrðu byggðir á þessu ári. Hinn geymirinn verður byggður á vori komanda. Samkvæmt upplýsingum Jóhannesar Zoega, hitaveitu- stjóra, mun tilboð verktakanna hljóða upp á því sem næst 220 milljónir, en efnið leggur Hita- veitan sjálf til. 15 menn til gróðurrann- sókna á Grænlandi FIMMTÁN starfsmenn Rann- sóknastofnunar landbúnaðar- ins halda á mánudag til Suð- vestur Grænlands til að vinna að gróðurrannsóknum undir stjórn Ingva Þorsteinssonar. Stendur ferðin yfir i hálfan mánuð og verður unnið að rannsóknum á gróðri og rækt- unarskilyrðum á Grænlandi. Að sögn Ingva Þorsteinsson- ar er þessi ferð liður í fimm ára verkefni, sem Rannsókna- stofnunin tók að sér að vinna með það markmið í huga, að kanna möguleika á aukinni sauðfjárrækt á Grænlandi. Er þetta fjórða ár rannsókn- anna og í sumar er áætlað að ljúka útivinnu við kortagerð, gróðurmælingar, tilraunir o.fl. Grænlendingar munu síðan væntanlega sjálfir taka við og halda áfram ýmsum þáttum rannsóknanna. Aðaltengiliður og samstarfsmaður íslendinga á Grænlandi hefur verið Kaj Egede ráðunautur. Rannsóknirnar hafa þegar veitt margvíslegar upplýsingar um þær spurningar, sem þeim var ætlað að svara, m.a. að á Suðvestur Grænlandi er frá- bært gróðurlendi til sauðfjár- ræktar og ræktunarmöguleik- ar meiri en hingað til hefur verið talið. Vilja lögleiðingu bílbelta Ummæli utanrikisráðherra: Enginn misskilningur hjá Morgunblaðinu Á FUNDI umferðarnefndar Reykjavíkur 22. júlí var gerð svohljóðandi samþykkt: „Umferðarnefnd Reykjavíkur lýsir áhyggjum sinum vegna hinna tiðu og alvarlegu umferð- arslysa. sem orðið hafa undanfar- ið, og beinir þvi til almennings að virða lög og reglur i umferðinni. Ljóst er, að fræðsla um umferð- armál, ein út af fyrir sig, nægir ekki til að stemma stigu við umferðarslysum. Fleira verður að koma til, t.a.m. aukin löggæzla. Beinir umferðarnefnd þeim ein- dregnu tilmælum til lögreglu- yfirvalda í Reykjavík, að þau auki enn hraðamælingar frá því sem nú er, í því skyni að veita öku- mönnum aðhald. Þá beinir umferðarnefnd Reykjavíkur því til dómsmálaráð- herra, að í þeirri endurskoðun umferðarlaga, sem fyrirhuguð er, verði gerð tillaga um, að notkun bílbelta verði lögleidd." í ÞJÓÐVIUANUM í gær er haft eftir ólafi Jóhannessyni, utanrikisráðherra i viðtali um fyrirhugaða olíugeyma í Helgu- vik að „það er misskilningur blaðamanns Morgunblaðsins að láta að þvi liggja i fyrirsögn, að ég hafi heimilað undirbúning framkvæmda. Ekkert slikt sam- þykki liggur fyrir.“ Fyrirsögn á frétt Morgun- blaðsins var svohljóðandi: Bygging 45 milljarða króna eldsneytisgeyma fyrir varnar- liðið: Ráðherra samþykkir að hefja undirbúning. Min ákvörð- un en ekki rikisstjórnarinnar, segir ólafur Jóhannesson.“ I upphafi fréttar Morgun- blaðsins segir svo: „Ólafur Jó- hannesson, utanríkisráðherra hefur gefið grænt ljós á, að undirbúningur hefjist að bygg- ingu 12 neðanjarðareldsneytis- geyma fyrir Keflavíkurflugvöll. Að sögn Helga Ágústssonar í varnarmáladeild utanríkisráðu- neytisins var fyrsta skrefið að leita til Atlantshafsbandalags- ins með fjármögnun þessara miklu framkvæmda, sem talið er að muni kosta allt að 45 millj- arða íslenzkra króna. Ólafur Jóhannesson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að mál þetta hefði ekki verið rætt í ríkisstjórninni enda þurfi það ekki að hljóta samþykki hennar. Sagði ráðherrann, að hann tæki sjálfur ákvarðanir í þessu máli. Af Morgunblaðsins hálfu er ekki um neinn misskilning að ræða. Blaðið skýrði frá því, að utanríkisráðherra hefði sam- þykkt að hefja undirbúning málsins. Deildarstjóri varnar- máladeildar staðfesti það í sam- tali við blaðið eins og fram kemur hér að framan. Utanríkisráðherra ítrekar í samtali sínu við Þjóðviljann að hér sé um mál að ræða er heyri undir hann einan en ekki ríkis- stjórnina. Hann segir í Þjóðvilj- anum: „Ég lít svo á að fram- kvæmdir á vegum hersins séu ekki ríkisstjórnarmál því svo hefur ekki verið. Þær hafa ekki verið brotnar upp í ríkisstjórn- inni. Flugstöðin er að vísu und- antekning enda um hana sér- ákvæði í stjórnarsáttmála."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.