Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 3 Karmaáhrif starfsemi Kreditkorta RAGNAR Arnalds, íjármála- ráðherra. hefur farið þess á leit við Seðlabanka íslands. að hann geri úttekt á starf- semi fyrirtækisins Kredit- kort h.f. og meti þau áhrif, sem starfsemi þess hefur á íslenzkt efnahagslíf. „Það gilda engin lög um starf- sen:i fyrirtækja eins og Kredit- kort h.f. Því er það nauðsynlegt að opinberir aðilar átti sig á því hvernig þessi starfsemi kemur inn í íslenzkt efnahagslíf og hvaða afleiðingar hún getur haft,“ sagði Ragnar Arnalds m.a. í samtali við Mbl. er hann var inntur eftir því hvers vegna hann hefði óskað eftir þessari úttekt. „í fljótu bragði lítur þetta þannig út, að ef starfsemin naer verulegri útbreiðslu, þá virka þessi kort eins og útgáfa á seðlum og eykur þannig verulega pen- ingamagn í umferð. Ég vil því gjarnan vita hverjar eru skoðanir Seðlabankans á þessu máli,“ sagði Ragnar ennfremur. INNLENT Samgönguráðuneytið: Bréfum Neytendasam- takanna var svarað SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hef- ur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem svarað er fullyrðingum Neytendasamtakanna, um meint- ar ólögmætar innheimtuaðgerðir Skemmdarverk, á sumarhúsum LÍÚ STÖPLAR, sem steyptir höfðu verið undir væntanleg sumarhús LÍÚ á jörð samtakanna, Skjald- artröð við Hellna, voru brotnir niður og eyðilagðir i fyrrinótt og hefur ekki tekist að hafa hendur i hári skemmdarvarga. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LIÚ, sagði í samtali við Mbl., að LÍÚ hefði þegar kært atburðinn og óskað eftir lögreglu- rannsókn. Jafnframt mun LÍÚ leggja fram skaðabótakröfu, þegar ákæra hefur verið gefin út á hendur þeim seku. opinberra stofnana, aðallega Póst- og simamáiastofnunarinn- ar. Segir að i viðtali við frétta- mann útvarps hafi Gisli Jónsson stjórnarmaður i Neytendasam- tökunum tint margt til ávirð- ingar stofnuninni og samgöngu- ráðuneytinu. Segir að bréfum Neytendasam- takanna frá 14. ágúst 1979 um meinta ólöglega innheimtu Póst- og símamálastofnunarinnar á gjaldi fyrir langa snúru og frá 18. apríl 1979 um meinta óheimila innheimtu á rekstrargjöldum af aukabúnaði og bakkröfur vegna gjaldskrárhækkana hafi báðum verið svarað. Fyrra bréfinu 12. des. 1979 með umsögn frá Pósti og síma og því síðara 10. júní 1979 með umsögn lögfræðings stofnun- arinnar. Segir að fullyrðingar um að bréfum samtakanna hafi ekki verið svarað, séu úr lausu lofti gripnar. GEFH) BÖRNUNUM -oífe-LIFRAKÆFU Blódaukandi — stvrkjandi — nærandi. Sparíð viðbit. SILD & FISKUR Heildsala — Smásala Mjög góð sala hjá Oddgeiri ODDGEIR frá Grenivík fékk af- bragðsgott verð fyrir afla sinn í Grimsby í gærmorgun. Báturinn seldi 52,3 tonn og fékk fyrir aflann 39,5 milljónir króna, meðalverð 752 krónur fyrir hvert kíló. Maí frá Hafnarfirði seldi 122,9 tonn í Hull og fékk fyrir aflann 78 milljónir króna, meðalverð 634 krónur. Loks seldi Gandi VE 51 tonn í Fleetwodd fyrir 21,6 millj- ónir króna, meðalverð 425 krónur. 5752 bílar f luttir inn á fyrri helm- ingi ársins FYRRI helming þessa árs hafa verið fluttir inn samtals 5.752 bilar, en á sama tima i fyrra höfðu verið fluttir inn 3.965 bílar eða 1.787 bilum færra. Fólksbilar eru 5.079, voru á sama tíma i fyrra 3.459 og er um nokkra aukningu að ræða i öllum flokk- um, þ.e. fólksbilum, sendibilum og vörubilum, nýjum sem notuð- um. Af þessum 5.079 fólksbílum, sem fluttir hafa verið inn til júníloka á þessu ári, eru 2.451 japanskir eða 48%. Sovézkir bílar, þ.e. Lada, eru 442, bandarískir 415, 211 eru frá Svíþjóð, 134 frá Vestur—Þýzkalandi og 96 frá Frakklandi. Þá eru 116 dísilbílar af þessum 5.079. í flokknum ann- ars konar bílar, þ.e. aðrir en fólks-, sendi- eða vörubílar, hafa verið fluttir inn 15 nýir og 25 notaðir og má þar nefna t.d. sjúkrabíla, grjótflutningsbíla, sorphreinsunarbíla, mjólkurtank- bíla, íssölubíl, dráttarbíla, steypu- bíla og grindur án yfirbyggingar. Samningafund- ur f armanna og útgerðarmanna AÐ SÖGN Ingólfs Stefánssonar hjá Farmanna- og fiskimanna- sambandinu hefur yfirvinnubann yfirmanna á farskipum gengið mjög friðsamlega fyrir sig, og nær engar undanþágubeiðnir borizt. Þá sagði Ingólfur, að sáttasemj- ari ríkisins hefði boðað deiluaðila, þ.e. yfirmenn á farskipum og útgerðarmenn, til fundar nk. mið- vikudag. Ók á ljósastaur LjÓNin. Mbl. Júllus. Laust eftir klukkan 15 i gær var bifreið ekið á Ijósastaur við húsið númer 65 við Hringbraut. Tvær konur voru i bifreiðinni og sluppu þær án meiðsla. Bifreiðarstjórinn beygði sig niður og missti þá stjórn á henni. Dagpeningar ráðherra: „ÞAÐ ER min skoðun, að dag- peningar, sem ráðherrar fá, þeg- ar þeir eru í embættiserindum erlendis, séu mjög rýmilegir,“ sagði Svavar Gestsson félags- málaráðherra i samtali við Morg- unblaðið. Samkvæmt upplýsing- um, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, fá ráðherrar 276 þýsk mörk í dagpeninga, en það er 20% hærri upphæð en þeir emb- ættismenn fá, sem hæsta fá dag- peningana. „Þessir dagpeningar eru ætlaðir til þess að greiða allan annan kostnað við ferðir ráðherra en hótelgistingu og símtöl. Ég sé í sjálfu sér enga ástæðu til að dagpeningar ráðherra séu hærri en hjá öðrum opinberum embætt- ismönnum," sagði Svavar. Morgunblaðið spurði ráðherr- ann hvort menn kæmu ekki heim með góða summu í vasanum að utanferðum loknum. Svavar svar- aði því til, að hann vissi ekki hvernig þetta væri almennt, en sagði, að hann hefði haft þann háttinn á að taka dagpeninga frá þeim tíma, er hann kæmi á ákvörðunarstað og til þess tíma er hann lyki sínum embættiserind- um. „Ég hef reynt að hafa þetta eins nákvæmt eins og mögulegt er, en það er alveg ljóst, að þetta eru rýmilegir dagpeningar. Ég hef aldrei skilið rökin fyrir því, að ráðherrar skuli hafa hærri dag- peninga en aðrir embættismenn," sagði Svavar Gestsson. Tæp 86 þúsund kr. auk hótels- og símakostnaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.