Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980
Byggðasafnið í Vatnsnesi í Keflavík
Fyrsti vísir aö byggöasafni á Suöurnesjum
í Vatnsnesi í Keflavík hefur nú verið komið upp
vísi að fyrsta byggðasafni á Suðurnesjum. Var húsið
opnað til sýnis fyrir almenning 17. nóvember sl.
Gefur þar m.a. á að líta myndir sem sýna þróun
Keflavíkurbæjar og Njarðvíkur og ýmsa smærri
muni. Stærri munur safnsins eru ennþá í geymslu þar
sem húsrými í Vatnsnesi er ekki mikið.
Ungmennafélag Keflavíkur varð fyrst til þess að
safna munum fyrir hugsanlegt byggðasafn og upp úr
árinu 1940 var kosin nefnd innan félagsins til
framkvæmda. Síðar afhenti nefndin bænum safn sitt
til varðveislu og áframhaldandi uppbyggingar. Að
ósk þjóðminjavarðar var fyrir nokkrum árum leitað
samstöðu allra sveitarfélaga á Suðurnesjum um
sameiginiegt safn. Þegar það tókst ekki tóku
Keflavíkurbær og Njarðvíkurbær sig saman og
ákváðu að ríða á vaðið og koma á fót byggðasafni
fyrir bæjarfélögin tvö. Gert er ráð fyrir að önnur
sveitarfélög á Suðurnesjum komi síðar inn í myndina.
t-*wm ijSB t
E
Pi
•^u
Ve«na þreng.sla er meKÍnhluti safnsins byKKður upp á myndum af þróun Keflavikurbæjar og
Njarðvíkur ok ýmsum smærri munum.
Vatnsnes. húsnæði ByKKðasafns Suðurnesja.
Myndir Emiliit.
ólafur ok Skafti við stálþráðartækið.
Áki GrSnz ok ólafur Þorsteinsson (þeir sem standa) er i stjórn
Vatnsnessafnsins ásamt Guðleifi SÍKurjónssyni. Skafti Friðfinns-
son er starfsmaður safnsins. beir eru hér i herberKÍ því i safninu
sem tileinkað er Kefanda hússins, Bjarnfriði SÍKurðardóttur. ok
fjölskyldu hennar.
Úr myndaherberKÍnu. Á borðunum lenKst til vinstri eru albúm með
myndum af þeim húsum sem voru i Keflavik árið 1920, ibúm þeirra
þá ok afkomendum þeirra fram á þennan daK. Myndirnar sem
hanKa í rekkanum eru af ýmsu þvi sem tenKÍst Keflavik ok söku
byggðar þar.
Húsið Vatnsnes, sem byggða-
safnið er í og dregur nafn sitt af,
er gjöf til Keflavíkurbæjar.
Bjarnfríður Sigurðardóttir
ánafnaði bænum húseigninni
undir byggðasafn er hún lést 20.
apríl 1974. Húsið er gefið í
minningu manns hennar, Jó-
hanns Guðnasonar og foreldra
þeirra beggja.
Njarðvíkurbær hafði einnig
fengið gjöf, húsið Njarðvík í
Innri-Njarðvík, með tilheyrandi
úr búi þeirra hjóna Helga Ás-
björnssonar og Jórunnar Jóns-
dóttur er þar bjuggu síðast.
Gefendur voru ekkja og börn
Eggerts Jónssonar frá Nautabúi.
Njarðvíkurbær hyggst varðveita
húsið með innbúi sem safngrip
og hafa þar til sýnis myndir
tilheyrandi Njarðvíkingum.
Telst það hluti af Vatnsnessafn-
inu og er undir sömu stjórn.
Næsta verkefni mun verða að
opna það til sýnis fyrir almenn-
ing.
I stjórn Vatnsnessafnsins eru
Ólafur Þorsteinsson, Áki Grán
og Guðleifur Sigurjónsson,
Starfsmaður þess er Skafti Frið-
finnsson. Ivar Gissurarson fom=_
leifanemi sá um hluti af upp-
setningu safnsins en að öðru
leyti var sú framkvæmd í hönd-
um stjórnarinnar.
Bygging nýs safn-
húss á döfinni
Eins og áðan var var drepið á
er ekki hægt að hafa nema
takmarkaðan hluta safnmuna til
sýnis í Vatnsneshúsinu sem er
eins og venjulegt íbúðarhús að
stærð. Allir stærri munir, svo
sem stærri innbúsmunir og
munir tengdir útgerð, verða að
bíða þess að stærra húsnæði
fáist.
Vatnsnesi fylgdi afgirt land
umhverfis húsið og forgangs-
réttur til leigu eða kaupa á
frekari lóð næst húsinu. Kefla-
víkurbær hefur notfært sér þann
rétt og keypt 5.093 fermetra
lands undir væntanlega safn-
byggingu. Leyfi hefur fengist til
teikninga og er ráðgert að hafist
verði handa um framkvæmdir á
fyrsta áfanga hússins á næsta
ári. Áætlað er að það rísi í vinkil
kringum Vatnsneshúsið.
Myndir af gömlum
húsum, fyrstu
íbúunum og
afkomendum þeirra
Margt merkra muna er í
Vatnsnessafninu. Má þar t.d.
nefna einn elsta mun safnsins
sem er fundagerðabók Skotfé-
lags Keflvíkinga sem var stofnað
1869. í bókinni eru fundargerðir
skrifaðar bæði á dönsku og
íslensku.
Þá er í safninu mynd af kirkju
sem byggð var í Keflavík fyrir
aldamótin en fauk áður en hún
var fullgerð. Fram að þessu
vissu menn ekki nákvæmlega
hvar sú kirkja stóð en fyrir
nokkru rákust forráðamenn
safnsins á mynd af kirkjunni á
Þjóðminjasafninu. Er mynd af
þessari mynd í Vatnsnesssafn-
inu.
Eitt af fáum stálþráðartækj-
um sem nothæf eru á landinu er
í byggðasafninu í Vatnsnesi.
Helgi S. Jónsson keypti tækið
fyrir hönd Ungmennafélagsins
handa safninu ti) að taka upp á
það hátíðarhöld 17. júní í Kefla-
vík. Á safninu eru því til upptök-
ur af 17. júníhátíðarhöldum í
Keflavík allt frá árinu 1946.
Á efri hæð hússins dveljast
gestir lengst. í einu herbergj-
anna er elsti uppdráttur af
Keflavík, frá því árið 1920. Hann
hefur verið stækkaður upp og öll
hús í bænum númeruð. Síðan
hefur verið komið fyrir albúm-
um þar sem í eru myndir af
húsunum eins og þau voru og þá
einnig eins og þau eru í dag. Þá
eru þar einnig myndir af fólki
því sem í húsunum bjó og
afkomendum þeirra fram á
þennan dag.
Eitt herbergið í safninu er
tileinkað gefandanum og hennar
fjölskyldu. Eru þar munir úr
þeirra eigu og myndir þeim
tilheyrandi.
„Dýrmætustu minj-
ar Keflvíkinga hafa
verið eyðilagðar“
„Áhugi Suðurnesjabúa á safn-
inu er mikill og það hefur verið
vel sótt síðan það opnaði," sögðu
þeir Ólafur Þorsteinsson for-
maður stjórnar safnsins og
Skafti Friðfinnsson starfsmaður
þess er blaðamenn litu inn í
safnið fyrir nokkrum dögum.
„Hingað sækja fyrst og fremst
eldri Keflvíkingar, þeir sem
muna eftir gamla tímanum. Þeir
njóta sin hér best, ekki síst við
það að skoða hér myndir sem
sýna þróun og vöxt Keflavíkur-
bæjar. Þá hafa skólar sótt safnið
nokkuð, sérstaklega nemendur á
ferðalögum."
— Hvers vegna hefur þessu
safni ekki verið komið upp fyrr?
„Það verður að segjast eins og
er að vilji ráðamanna hefur ekki
verið mikill. Eiginlega hefur það
verið eyðilagt sem hefði verið
dýrmætast fyrir Keflvíkinga að
varðveita. Þetta er Stokkavörin,
Duushús, Gamlabúðin svonefnda
»8 bryggjuhúsið, en allt þetta
var í eigu Duus kaupmanns.
Gamlabúðin er nú að hruni
komin, Duus-húsið var rifið í
þögn og bryggjuhúsið er nú
notað undir saltfiskverkun. í
raun hefði átt að byggja safnið
upp í kringum þessar byggingar.
Við opnuðum þennan vísi að
safninu til þess hreinlega að
reyna að vekja áhuga hjá fólki,
ekki síst ráðamönnum bæjanna.
Okkur finnst sú ætlun okkar
hafa tekist vel og við ætlum
okkur að halda ótrauðir áfram
uPPbyggingu þessa fyrsta
byggðasafns á Suðurnesjum,"
sögðu þeir Ólafur Þorsteinsson
og Skafti Friðfinnsson að lokum.
rmn.