Morgunblaðið - 26.07.1980, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980
BRETLAND Litlar plötur
1(1) XANADU Olivia Newton John &
2 ( 2) USE IT UP AND WEAR IT OUT Odyssey
3 ( 3) JUMP TO THE BEAT Stacy Lattisaw
4 ( 5) CUPID Detroit Spinners
5 ( 9) COULD YOU
BE LOVED Bob Marley & The Wailers
6 ( 7) MY WAY OF THINKING UB40
7 (-) BABOOSHKA Kate Bush
8 ( 4) CRYING Don McLean
9 (-) WATERFALLS Paul McCartney
10 (-) MORE THAN I CAN SAY Leo Sayer
Stórar plötur
1 ( 2) THE GAME Queen
2 ( 1) EMOTIONAL RESCUE Rolling Stones
3 (-) DEEPEST PURPLE Deep Purple
4 ( 3) FLESH & BLOOD Roxy Music
5 (-) KINGS OF THE ROAD Boxcar Willie
6 ( 6) UPRISING Bob Marley & The Wailers
7 (—) XANADU Olivia Newton John &
8 ( 5) BLACK SABBATH LIVE AT LAST
9 ( 7) ME MYSELF I Joan Armatrading
10 ( 9) MCCARTNEY II Paul McCartney
USA Litlar plötur
1 ( 2) IT’S STILL ROCK ’N’ ROLL TO ME Billy Joel
2 ( 1) COMING UP Paul McCartney & Wings
3 ( 4) LITTLE JEANNIE Elton John
4 ( 5) CUPID Spinners
5 (-) SHINING STAR Manhattans
6 ( 6) STEAL AWAY Robbie Dupree
7 ( 8)7MAGIC Olivia Newton John
8 ( 3) THE ROSE Bette Midler
9 ( 9) LET’S GET SERIOUS Jermaine Jackson
10 (10) LETMELOVEYOU
TONIGHT Pure Praire League
Stórar plötur
1 ( 1) GLASS HOUSES Billy Joel
2 ( 2) JUST ONE NIGHT Eric Clapton
3 ( 3) MCCARTNEY II Paul McCartney
4 ( 4) THE EMPIRE STRIKES AGAIN Soundtrack
5 ( 5) EMPTY GLASS Pete Townshend
6 ( 6) LET'S GET SERIOUS Jermaine Jackson
7 ( 7) HEROES Commodores
8 (-) EMOTIONAL RESCUE Rolling Stones
9 ( 9) URBAN COWBOY Soundtrack
10 (-) HOLD OUT Jackson Browne
Jazz-plötur
1 ( 1) THISTIME Al Jarreau
2 ( 2) CATCHING THE SUN Spyro Gyra
3 ( 3) WIZARD ISLAND Jeff Lorber Fusion
4 ( 4) HIDE AWAY David Sanborn
5 ( 5) ROCKS PEBBLES AND SAND Stanley Clarke
6 (-) RHAPSODY & BLUES Crusaders
7 (-) H Bob James
8 ( 8) ONE BAD HABIT Michael Franks
9 ( 9) A BRAZILIAN LOVE AFFAIR George Duke
10 ( 6) MONSTER Herbie Hancock
w
EMOTIONAL
^HRESCUE
Það er dálítið einkennilegt til þess að
hugsa að Rollinn Stones hafa nú leikið
saman í 18 ár samfleytt og gefið út yfir
30 breíðskífur. Og við sem byrjuðum að
hlusta á þá 1964/5 fylgjumst í mörgum
tilfellum ennþá með útgáfu þeirra.
Ekki nóg með það, Stones hafa safnað
nýjum aðdáendum með hverri plötu, og
eru margir aðdáenda þeirra mun yngri
en ferill þeirra!
„Emotional Rescue" veldur engum
vonbrigðum, vinnur á við hverja spilun
að því er virðist.
Tónlist þeirra hefur komið úr ýmsum
áttum frá „rhythm & blues“, í gegnum
Jazz“, „blues", „rock’n roll“, „country"
og „reaggae" að ógleymdu „diskóinu",
sem þeir hafa verið gagnrýndir fyrir að
nýta sér.
Á „Emotional Rescue“ virðast þeir
muna eftir flestum áhrifunum enda
platan Fjölbreytt um leið og hún er
heilsteypt. Platan byrjar á þrumu
rokklagi, „Dance“, sem er eftir þá
Jagger og Richard auk Ronnie Wood.
Charlie Watts og Bill Wyman sýna
kraft sinn á trommum og bassa, Jagger
syngur með svertingja-stíl sínum og
áá
Rolling Stones
(Rolling Stones Records)
lagið allt er undir afar „svörtum"
áhrifum, þungum ákveðnum danstakti.
Bobby Keys leikur á saxófón á móti
rödd Mick Jaggers.
„Summer Romance" fylgir á eftir
með sterkum „rhythm & blues“ takti.
Jagger og Richard blanda röddum í
viðlagi og Richard og Wood slá takta á
gítarana. Eins og í „Dance" eru bassi og
trommur einkenni.
„Send It To Me“ er með „reaggae"
takti og fyrst í þessu lagi er rödd
Jagger blönduð fram. Djúpur bassa-
taktur og krosstaktar í gíturum eru
einkenni. Einfalt og sterkt lag. Textinn
er nokkuð óvenjulegur, frá Rolling
Stones kominn. Hann fjallar um þörf
fyrir ást. Yfirleitt hefur komið fram í
textunum viss óbeit á kvenfólki og
hæðni í þeirra garð, og má þar nefna
texta flestra laganna hér: „Let Me Go“
og „Summer Romance“, sem bæði fjalla
um konur sem þeir vilja losna við, og
„She’s So Cold“ er ekki hlýlegra en
„Some Girls“ á síðustu plötu. „Let Me
Go“ er næsta lag á eftir „Send It To
Me“. „Let Me Go“ er eitt sterkasta lag
plötunnar, ekta Stones rokkari í stíl við
„Honky Tonk Women“, „Street Fight-
ing Man“ og „Brown Sugar“ svo nokkur
séu nefnd, og Jagger er í besta formi.
„Indian Girl“ er síðasta lagið á hlið
eitt. Jagger reynir að ná „spænskum"
hreim í röddina og tekst bærilega, en
textinn fjallar um meðferð á fórnar-
lömbum stríða. Nokkuð sérkennilegt
lag sem venst.
Hlið tvö hefst á sterkasta rokklagi
plötunnar „Where The Boys Go“ sem
minnir sterklega á Ian Hunter. Stuðlag
af bestu gerð. „Down In The Hole“ er
ekta rólegur „blues“ eins og Jagger
syngur hann best. Lagið er á bakhlið
„Emotional Rescue“, 2ja laga plötunni.
Richard á góðan gítarleik í laginu og
Sugar Cane „vælir“ á munnhörpu til að
undirstrika textann sem er bitur.
Titillagið er næst á eftir, og byrjar á
diskó-takti, og viti menn, Jagger bregð-
ur fyrir sig falsetto-söng í stíl Gibb
bræðra! En lagið er sérlega grípandi og
ætti að gera það gott í sumar. „She’s So
Cold“ er með gamla Stones rokk
taktinum, einfalt grundvallarrokk með
grimmum texta og sungið af vissri
fyrirlitningu. Jagger virðist nokkuð
sannfærandi á sinn hátt. Keith Richard
syngur svo síðasta lagið, „All About
You“ sem er ljúfasta lag plötunnar, og
nokkuð óvenjulegt að Keith syngi það.
„Country" hefur þó alltaf verið áber-
andi í lögum hans. „Wild Horses"
kemur strax fram í hugann en „AU
About You“ er vel heppnað eins og það.
Rolling Stones eru búnir að láta bíða
eftir þessari plötu í tæp tvö ár, og valda
ekki vonbrigðum. Við skulum þó vona
að þeir láti ekki bíða jafn lengi eftir sér
næst.
Það er alltaf gaman að spá í litlar
plötur af stórum plötum. Af „Emotion-
al Rescue" er titillagið þegar komið út
á litla plötu og gerir það gott, en aðrar
litlar plötur gætu verið, „Dance“, „Let
Me Go“, „Where The Boys Go“ og
jafnvel „She’s So Cold“. HIA
Ný
súper
grúppa
• Friðrvk
Pálmi Gunnarsson hefur stofn-
að nýja hljómsveit í kjölfar útgáfu
á sólóplötu sinni „Hvers vegna
varst’ ekki kyrr?“
Heitir hljómsveit Priðryk, og er
skrifað með ypsilon. Friðryk mun
leika á dansleikjum um allt land,
t.d. í Húnaveri um Verslunar-
mannahelgina. Á efnisskránni
verða hefðbundin rokklög og svo
lög af sólóplötu Pálma.
Auk Pálma, sem leikur á bassa-
gítar og syngur, eru í hljómsveit-
inni Pétur Hjaltested, hljóm-
borðsleikari, Lárus Grímsson,
hljómborðsleikari einnig, Tryggvi
Hubner, gítarleikari, og Sigurður
Karlsson trommuleikari.
Þeir Tryggvi og Sigurður eru
þar með hættir í Geimsteini, en í
þeirra stað koma þar Hrólfur
Gunnarsson (trommur) á ný, og
Þorsteinn Magnússon (gítar), sem
áður fyrr gat sér gott orð með Eik.
Hljómplötuútgáfan sér um allar
bókanir fyrir Friðryk, eins með
annað fólk sem útgáfan gefur út
plötur með. HIA.