Morgunblaðið - 26.07.1980, Síða 40
Síminn
á afgretöslunni er
83033
Jtttrgunblabtb
OHaisí
NYR MATSEÐILI
HUMAR A LA NAUST
Opið alla daga frá kl. 11-24
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980
Kassabílaþeysa
Vinnuskóla Hafnarfjarðar var slitið í gær. I tilefni af þvi var ýmislegt til skemmtunar i miðbænum og var Strandgötunni iokað á kafla.
Medal atrida var kassabílaþeysa, hjólreiðakeppni og pokahlaup. Á myndinni sjást þrír landsfrægir bílaíþróttamenn, þeir Hafsteinn
Aðalsteinsson, Ilafsteinn Hauksson og ómar Ragnarsson, keppa á kassabilum. Nánar er f jallað um keppnina á bls. 5.
Á 4 mánuðum hefur kaupmátt-
ur kauptaxta rýrnað um 6,1%
KAUPMÁTTUR kauptaxta allra launþega frá því í febrúar á þessu ári fram í maí
hefur rýrnað um 6,1%. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér um
kaupmátt kauptaxta i maí sl. er kaupmáttarrýrnun kauptaxta verkamanna frá því í
september 1978 til maí 1980 15,9%. Kaupmátturinn í maí er minni en hann var fyrir
sólstöðusamningana og minni en hann var á fyrstu mánuðum ársins 1978.
Við samanburð á kaup-
mætti kauptaxta verka-
kvenna frá því í september
1978 til maí 1980 kemur í
ljós að rýrnunin er 16,0%,
en ef borið er saman tíma-
bilið frá júní ’78 til maí ’80
er kaupmáttarrýrnunin
17,3%.
Kaupmáttur kauptaxta
opinberra starfsmanna er
meiri nú í maí en hann var
fyrir sólstöðusamningana,
en allmiklu minni en hann
var á fyrstu mánuðum árs-
ins 1978. Ef borið er saman
tímabilið frá september
1978 til maí 1980 sést að
kaupmáttarrýrnunin er
16,5%.
Ef skoðuð er þróun kaup-
máttar lífeyristrygginga-
bóta frá því á fjórða árs-
fjórðungi 1978 til fjórða
ársfjórðungs 1979 kemur í
ljós að kaupmáttarrýrnun
elli- og örorkulífeyris er
6,9%. Ekki tókst að afla
upplýsinga um þróun kaup-
máttar lífeyristrygginga-
bóta á þessu ári.
Vöruskipta-
jöfnuður
óhagstæður
um 32.4
milljarða kr.
Vöruskiptajöfnuður lands-
manna var óhagstæður
fyrstu sex mánuði ársins
um rúmlega 32,4 milljarða
króna, en verðmæti út-
flutnings á þessu tímabili
var rúmlega 186,4 millj-
arðar króna. Verðmæti
innflutnings var hins veg-
ar tæplega 219 milljarðar
króna.
Vöruskiptajöfnuðurinn í
júnímánuði einum saman
var óhagstæður um tæp-
lega 25,4 milljarða króna,
en þá voru fluttar út vörur
fyrir tæplega 36,9 milljarða
króna. Vörur voru hins
vegar fluttar inn fyrir um
62,3 milljarða króna.
Á s.l. ári var vöruskipta-
jöfnuðurinn óhagstæður
fyrstu sex mánuði ársins
um rúmlega 4,6 milljarða
króna, en í júnímánuði um
rúmlega 2,1 milljarð króna.
Af útflutningi lands-
manna fyrstu sex mánuði
þessa árs vó ál og álmelmi
þyngst, eða að verðmæti
rúmlega 23,3 milljarða
króna. í innflutningnum vó
þyngst innflutningur fyrir
íslenzka járnblendifélagið
fyrir liðlega 16,6 milljarða
króna og flugvélar fyrir
tæplega 11,5 milljarða
króna.
Við samanburð á utan-
ríkisverzlunartölum frá
1979 verður að hafa í huga,
að meðalgengi erlends
gjaldeyris í janúar-júní
1980 er talið vera 32,2%
hærra en það var sömu
mánuði í fyrra.
Söluskattur af millilandasamtölum hækkar:
Gefur ríkissjóði
um 400 milljónir
SAMKVÆMT nÚKÍIdandi lrtjfum og reKluxerðum (treirta notendur 4%
söluskatt a( samtrtlum við útlrtnd, en þegar hægt verður að hrintfja beint til
útlanda með tilkomu ifervihnattar. mun skrefatalninKÍn fara fram eins og
um venjulega innanlandstalninKU
söluskatturinn i 23,5%.
Þessi srtluskattshækkun mun gefa
ríkissjóði tæplega 400 milljónir
króna, en á síðasta ári fékk ríkis-
sjóður inn í srtluskatt fyrir innan-
landssamtöl ríflega 1600 milljónir
króna.
Morgunblaöið innti Pál V. Daní-
elsson hjá Pósti og síma eftir því
hvernig stæði á því, að aðeins 4%
srtluskattur væri reiknaður á samtöl
til útlanda. — „Þetta kemur til
væri að ræða, og því hækkar
vegna þess, að söluskattur er aðeins
reiknaður af íslenzka hlutanum, og
af honum er venjulegur söluskattur
greiddur, eða 23,5%.
Við höfum hins vegar bent ráðu-
neytinu á, að þegar hægt verður að
hringja beint, þá getum við ekki
greint á milli skrefa innanlands og
milli landa. Hver niðurstaða málsins
verður, get ég ekkert sagt um,“ sagði
Páll ennfremur.
Krefja Flugleiðir
um lendingargjöld
HJÁ rikisféhirði hefur að und-
anförnu hlaðist upp skuld
Keflavíkurflugvallar að upp-
hæð um 250 milljónir króna.
Hún er tilkomin vegna þess að
Keflavikurflugvöllur hefur
ekki greitt inn a andvirði
launaávisana starfsmanna flug-
málastjórnarinnar á Keflavík-
urflugvelli. „Ég tel mig ekki á
nokkurn hátt hafa hcimild til
þess að afgreiða lán út úr
rikissjóði með þessum hætti og
skrifaði þvi utanrikisráðuneyt-
inu bréf, þar sem skýrt var frá
þvi, að yrði þessi skuld ekki
greidd, þá væri ekki hægt að
komast hjá þvi að stöðva launa-
greiðslurnar,“ sagði Höskuldur
Jónsson ráðuneytisstjóri i fjár-
Verða launa-
greiðslur til starfs-
manna Keflavíkur-
flugvallar stöðvaðar?
málaráðuneytinu i samtali við
Mbl.
„Ég hef hreinlega enga pen-
inga til að borga þessi laun og
það er fráleitt annað, en það sé
stjórnmálaleg ákvörðun, að lána
250 milljónir úr ríkissjóði.
Flugmálastjórinn á Keflavík-
urflugvelli segir hins vegar í
svari sínu, að þessi skuld sé
tilkomin vegna þess, að þeir fái
ekki greidd lendingargjöld frá
Flugleiðum. Það gerir málið enn
flóknara og það er mjög skrítið
ef ríkissjóður er þannig orðinn
lánveitandi til Flugleiða," sagði
Höskuldur Jónsson.
Skuld Flugleiða við Keflavík-
urflugvöll í ógreiddum lend-
ingargjöldum mun vera álíka
upphæð og skuld Keflavikur-
flugvallar við ríkissjóð. Sam-
kvæmt upplýsingum Mbl. myndi
það valda Flugleiðum verulegum
vandræðum, ef þeir þyrftu nú á
einu bretti að greiða þessa skuld
að fullu. Það er líka talið fullvíst,
að Luxemborgarar myndu end-
urskoða fyrri afstöðu sína um
niðurfellingu lendingargjalda
Flugleiða, ef til þess kæmi, að
fyrirtækið yrði látið greiða skuld
sína hér að fullu.