Morgunblaðið - 22.08.1980, Page 3

Morgunblaðið - 22.08.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980 3 Högni og kattabandið í fullum skrúða, en þeir félagar munu skemmta á vegum Morgunblaðsins á Heimilis sýningunni í Laugardalshöll. I Iögni og katta- bandið hlaupa af stokkunum MM8É 5KIN6 THETRE£\ UIHERE WU UÆRE BORN WILL MAKE VOU FEEL A ] LlTTLÉ BéTTER... ■ nkal W|)a þer k*að vWI irraa rt vlð (Innuia M rr t rkki kana mommu þina frtani *M þé tkkl að aftar tU a| minnxta koatl vkruppiA é (•AimaratnMnn þlnn' « «in»' M a*rð tréð þnr M Forsíða sérprentunar Morgunblaðsins, Myndasögur Moggans. sem verður dreift í fyrsta skipti með Morgunblaðinu í dag. iMyndasögur Moggans með 9 myndasögur í sérprentun á föstudögum HÖGNI og kattabandið heitir ný hljómsveit sem leikur fyrst opin- berlega á Heimilissýningunni í Laugardal. en þar eru á ferðinni nokkrir félagar sem búa á siðum Morgunblaðsins og eru því heim- ilisvinir á nær hverju heimili í landinu. Högni er aðalmaðurinn i Kattabandinu og með honum leika helztu persónurnar í félags- skapnum, fisksalinn. Sonja og villikötturinn. Högni og Katta- bandið mun skemmta daglega á Heimilissýningunni i Laugardal á vegum Morgunblaðsins, en þar verður einnig dreift nýju blaði sem mun fylgja Morgunblaðinu í dag og framvegis á hverjum föstudegi. Heitir það Myndasög- ur Moggans og er átta siðna litprentað blað með niu litmynda- sögum. Smásögurnar í Myndasögum Moggans heita: Smáfólk, Her- mann, Jötuninn ógurlegi, Betri helmingurinn, Anna, Skúfur, Heimsins mestu ofurmenni, Högni hrekkvísi og Steinaldarmennirnir. Sumar sögurnar eru kunnar les- Smáfólkið SMÁFÓLKIÐ hefur verið í Morgunblaðinu um árabil, en það birtist nú í fyrsta sinn í ljt. Smáfólkið verður áfram daglega í Morgunblaðinu sjálfu, en í Myndasögunum á föstudögum verður það sjálfstaett í lit, en Smáfólkið þarf vart að kynna frekar. endum Morgunblaðsins í gegn um árin og hafa þær verið sívinsælar, aðrar eru nýjar af nálinni og meðal annars er verið að gera kvikmyndir um sumar sögurnar og söngleiki. Allir vita hvernig Högni og félagar hafa látið söng sinn hljóma með breimi hér og þar bæði í laumi og opinberlega, en nú hefur Högni loksins stofnað hljómsveit opinberlega með val- inkunnum vinum sínum. Kattabandið mun spila ýmis kunn lög sem krakkar og fullorðn- ir kunna. Högni og kattabandið mun skemmta á Heimilissýning- unni í Laugardalshöll á virkum dögum kl. 6 og 9 og á laugardögum og sunnudögum kl. 3, 6 og 9. í sérstökum sýningarbás sem Morg- unblaðið hefur á Heimilissýning- unni verður Myndasögum Mogg- ans og Morgunblaðinu dreift og Högni og félagar munu gefa krökkum stundaskrá með marg- földunartöflu. Sögurnar í Myndasögum Mogg- ans eru úr ýmsum áttum: Steinaldarmennirnir STEINALDA RMENNIRNIR er níunda teiknimyndasagan í Myndasögunum, en þá félaga Fred og Barney, Vilmu og Betty þarf vart að kynna fyrir lesendum. Þáttur með þeim er sýndur um þessar mundir á laugardögum í sjónvarpinu. Steinaldarmennirnir voru með fyrstu skemmtiþáttum íslenzka sjónvarpsins og urðu þeir strax mjög vinsælir hjá sjón- varpsáhorfendum. Steinaldar- mennirnir munu heilsa upp á vini og vandamenn á síðum Mynda- sagna Moggans. Ofurmennin — Supermann OFURMENNIN heitir sagan um Supermann. Sagan var í Morgun- blaðinu um langt skeið en birtist nú með nýju sniði í Myndasögu Moggans og hefur göngu sína í Hermann háðski HERMANN heitir ný gaman- söm teiknimyndasaga. Hermann er ekki hinn rómaði elskulegi húsbóndi, heldur háðfugl sem með gálgahúmor stríðir eiginkonu sinni og félögum. Það var t.d. í sögunni þar sem talað var um að afburða fagrar konur ætti að tala um sem 10. Hermann sat og las blaðið sitt og þá spurði eiginkon- an. Hermann, er ég númer 9. Ekkert svar. Hermann er ég númer 8...7...6. ..5...4...S ... Þögn. Þá leit Hermann upp úr blaðinu og sagði: Haltu áfram. Högni hrekkvísi HÖGNI mætir nú til leiks í Myndasögum Moggans í fullum skrúða í lit og þar með flytur hann búferlum í litklæðum úr Lesbók- inni í Myndasögurnar. Anna ANNA heitir ný teiknimynda- saga sem hefur hlotið frægð víða á skömmum tíma. Þetta er banda- rísk teiknimyndasaga og er þegar búið að gera söngleik með Önnu. Hefur hann verið sýndur á Broad- way í New York í nokkur ár og hljómplatan úr söngleiknum verð- ur sífellt vinsælli. Þá stendur til að gera meiriháttar söngleika- mynd um Önnu. Anna er fulltrúi réttlætiskennd- arinnar í spjallinu, en á auðvitað við ýmis vandamál að glíma í þeim efnum. Jötuninn ógurlegi JÖTUNINN ÓGURLEGI. Marg- ir kannast eflaust við sagnaper- sónuna Hulk, tvískinnunginn sem var ýmist tvær verur. Á næstunni kemur til sýninga í Laugarásbíói kvikmynd um Jötuninn ógurlega (Hulk) en í Morgunblaðinu birtist framhaldssagan á föstudögum og þar ráða ævintýri og ógnir ferð- inni. Betri helmingurinn BETRI HELMINGURINN er framhaldssaga um betri helming hjóna, en hvort þeirra það er skal látið ósagt, enda skiptast þar á skin og skúrir eins og vera ber í mannlífinu. Þessi saga er ekki síður fyrir fullorðna en yngra fólk. SKÚFUR er mikill hrakfallab- álkur í stétt kúreka og verður flest til vandræða hjá honum, því Skúfur er yfirleitt á vitlausum stað á vitlausum tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.