Morgunblaðið - 22.08.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980
29
sjónvarp kalla Frelsissamtök Pal-
estínumanna, en þeir eru einna
helst frægir fyrir flugrán og morð
á saklausu fólki. Eg skora á
yfirvöldin að neita að taka á móti
þessum mönnum og þeirra líkum.
Einnig á að neita þeim um að opna
skrifstofu hérna ef til kæmi því
það væri svívirða og móðgun við
alla þá sem þeir hafa kúgað og
myrt, að ég tali nú ekki um ísrael.
Við getum aldrei viðurkennt
ofbeldi sem rétta lausn á einu eða
neinu máli, síst af öllu morð.
Með vinsemd V.S.
Þessir hringdu . . .
• Besta kjarabótin
Sigurður Guðmundsson frá
Bíldudal hringdi:
Það er ekki ýkja hátt risið á
formanni B.S.R.B. þessa dagana.
Það var allt öðruvísi haustdagana
1977. Það er e.t.v. véfréttin frá
Mánaþúfu sem gefur honum þær
upplýsingar að opinberir starfs-
menn séu síður tilbúnir í verkfall
nú en árið 1977. Kannski væri það
besta kjarabótin sem opinberir
starfsmenn gætu fengið ef þeir
félagar Kristján og Haraldur
tækju sér ævilangt frí frá stjórn-
arstörfum B.S.R.B. Þeir gætu þá
ógrímuklæddir snúið sér að póli-
tíkinni.
• Höfum verið í
hálfgerðu fangelsi
með listina
Vegna fyrirspurnar sem birt-
ist í Morgunblaðinu sl. þriðjudag,
langar mig til að víkja örlítið að
viðkomandi máli:
Áður fyrr voru óperur fluttar
beint í gegnum útvarpið, og allir
gátu tekið upp eftir vild. En háu
herrarnir í útvarpinu sáu sér ekki
fært lengur að hafa þann háttinn.
Nú orðið eiga þeir eina til tvær
óperur í mesta lagi, öllum hinum
hefur annaðhvort verið fleygt, eða
þeir hafa náðarsamlegast gefið
manni óperurnar. Aftur á móti
eru nokkrir sem hafa tekið óper-
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Bakú
við Kaspíahaf í sumar kom þessi
staða upp í skák þeirra K. Grig-
orjans og Garry Kasparovs, sem
hafði svart og átti leik.
27... Hxg3!, 28. Rxg3 - Rg4, 29.
Rfl - Bxe3, 30. Rxe3 - Dh2+ og
hvítur gafst upp, því eftir 31. Kfl
— Rxe3+, 32. Kel — Rxg2+. tapar
hann drottningunni. Kasparov sig-
raði á mótinu og tryggði sér um
leið seinni áfanga að stórmeistara-
titli.
urnar upp og eiga þær allar á
bandi. í augnablikinu hef ég í láni
af manni alla Labohene eins og
það ieggur sig. En þeir nota alltaf
útlenda í verkin, því þeir myndu
þurfa að borga okkur og sinfóníu-
nni ef þeir spiluðu verk eftir
okkur. Við óperusöngvararnir höf-
um gert margt gott, og lært í
mörgum tilfellum eins mikið og
útlendu söngvararnir. Þeir hjá
útvarpinu eiga íslensku lögin
okkar, þau geyma þeir vel, því þau
eru íslensk. Þetta er gífurlega
óhvetjandi að gera þetta, þegar
öllu er svo hent. Ef við viljum gera
vel stoppa þeir okkur. Það er eins
og að við höfum verið í hálfgerðu
fangelsi hérlendis með listina.
E.t.v. kem ég að þessu síðar. Þetta
yrði allt of langt mál í Velvak-
anda. Þó að sumir sofi kannski þá
vaka líka aðrir.
Guðrún Á. Símonar
HÖGNI HREKKVÍSI
SIGGA V/öGA £ ÁlLVEÍUkJ
3
VlVÖ^SÁÍ
tá VM ■bVCö ÍKK/
sm ao uw uW/
Frá lögreglunni:
Lýst eftir vitnum
og tjónvöldum
ÞANN 15.8. sl. var tilkynnt að ekið
hefði verið á bifreiðina R-69815,
sem er Datsun fólksbifr. ljósbrún
að lit á bifr.stæði framan við
Hagkaup. Skemmd er á vinstra
afturaurbretti og afturhurð. Átti
sér stað frá kl. 18.30 til 18.45, og er
rauður litur í skemmdinni.
Þann 16.8. sl. var tilkynnt að ekið
hafi verið á bifr. R-53327 sem er
Renault fólksbifr. græn að lit á
Bólstaðarhlíð við hús nr. 14.
Skemmd er á hægra afturhorni,
höggvara og aurbretti. Átti sér stað
frá kl. 20.30 þann 15.8. til kl. 03.50
þann 16.6.
Þann 16.8. sl. var tilkynnt að ekið
hafi verið á bifreiðina F-388 sem er
Skoda, gulur að lit, á Hólsvegi
vestan Langholtsvegar. Skemmd er
á vinstra framaurbretti og fram-
höggvara.
Þann 16.8. var tilkynnt að ekið
hefði verið á bifreiðina Y-8882 sem
er Honda Accord, grásanseruð. Átti
sér stað á bifr.stæði sunnan
Tryggvagötu og norðan veitinga-
staðarins Nausts. Átti ser stað frá
kl. 14.00 til 16.20. Skemmd er á
hægri hurð og framaurbretti og er í
skemmdinni för eftir höggvara-
gúmmí. Bifreiðin stóð að norðan-
verðu á bifr.stæðinu og snéri fram-
enda til suðurs.
Þann 18.8. var tilkynnt að ekið
hefði verið á bifr. R-71048 sem er
Toyota Corolla, rauð að lit, á
bifr.stæði við Grettisgötu 84. Átti
sér stað þann 17.8. frá kl. 17.00 til
19.00. Skemmd er á vélarloki,
vinstra framaurbretti og svuntu.
Viljaekki
Laaa-bíla
WashinKton. 20. áKÚst. AP.
TVEIR handarískir öldunga-
deildarþingmenn, Thomas
Eagelton og Birch Bayah
beita sér nú af alefli fyrir
því, að komið verði í veg
fyrir innflutning sovéskra
Lada-bifreiða til Bandaríkj-
anna. Öldungadeildarþing-
mennirnir eru frá tveimur
mestu bílaverksmiðjurikjum
Bandaríkjanna. „Það er i
hróplegri andstöðu við
handaríska stefnu að flytja
inn Lada-bifreiðir þegar
Bandaríkin hafa sett við-
skiptabann á Sovétrikin
vegna innrásar Sovétríkj-
anna i Afganistan,** sögðu
þeir í yfirlýsingu.
Þeir hyggjast fá öldunga-
deildina til þess að samþykkja
bann á innflutning bifreið-
anna. Satra-fyrirtækið hyggst
á næstunni flytja inn nokkur
hundruð Lada-bifreiðir til
reynslu. Talsmaður fyrirtæk-
isins sagði, að vonir stæðu í
framtíðinni til að flytja inn 50
þúsund Lada-bifreiðir á ári.
Hann sagði, að andúðin á
Sovétríkjunum væri nú svo
mögnuð að til lítils væri að
flytja inn bifreiðar frá Sov-
étríkjunum. Fyrirtækið hygð-
ist koma þessu á til reynslu og
síðan bíða átekta þar til öldur
andúðar lægir. Tæplega 8,4
milljónir bifreiða voru fram-
leiddar og seldar í Bandaríkj-
unum á síðastliðnu ári.
Fryöryk og Pálmi í fyrsta skipti fyrir sunnan,
í Stapa í kvöld og Hvoli annaökvöld.
Sætaferöir frá B.S.Í.