Morgunblaðið - 22.08.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.08.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980 19 Vill ná peninga- skápi Titanics Bo8ton, 21. áfúst. AP. BANDARISKI auðkýfingur- inn Jack Grimm, sem Iagði til fé í leitina að Titanic, segist ekki ætla að vinna að því að ná skipinu upp af hafsbotni en segist vilja leggja fram fé til þess að ná peningaskápi skipsins. Ekki segist Grimm vera viss um hvað hann hafi að geyma, en segir að í ensku dagblaði hefði á sínum tíma komið fram að í peningaskápi Titan- ics væru demantar fyrir 125 milljónir Bandaríkjadala. Á núgildandi verðlagi væri verð- mæti þeirra um 300 milljónir dala. Grimm segist vera viss um að skápurinn hafi að geyma mikil verðmæti, hvort sem það eru demantar eður ei. Til þessa hefur Grimm eytt 1 milljón dala til leitarinnar en telur að það muni kosta 3 milljónir dala að ná skápnum. Til þess þarf kafbát sérstak- lega útbúinn til að bora gat á skrokk Titanics. Grimm hefur ERLENT þegar lagt fram umsókn um leyfi til framkvæmdanna og áætlar að þær geti hafist í maí eða júní á næsta ári. Vegna veðurs hefur enn ekki verið unnt að senda niður myndavélar til að ganga úr skugga um að flakið sem leitarflokkur Grimms fann sé raunverulega flak Titanics. Hins vegar segja leitarmenn að sónarmælingar hafi sýnt að skipið á hafsbotni sé ná- kvæmlega eins og Titanic. Segist Grimm vera sannfærð- ur um að flokkurinn hafi fundið hið sögufræga skip sem sökk fyrir 68 árum. Marx Lenin Engels Stalín Marx, Engels, Lenín og Stalín hverfa af Torgi hins himneska friðar PekinK 21. áinist. AP. VERKAMENN í Kína hófu i dag að brjóta niður styttur af Marx, Engels, Lenín og Stalín sem staðið hafa á Torgi hins himn- Rússar truf la á ný útvarpssendingar Washington, I»ndon 21. ágÚRt. AP. RÚSSAR hafa nú tekið til við það að nýju að trufla útsend- ingar útvarpsstöðvarinnar Voice of America á rússnesku, eftir nærri sjö ára hlé. Tals- menn BBC höfðu i dag sömu sögu að segja og töldu megin- ásta'ðuna vera atburðina i Pól- landi. Talsmaður Voice of America sagðist ekki hafa neina hugmynd um ástæðuna fyrir truflununum, en hins vegar hefðu þær oft staðið í sambandi við ástandið í samskiptum þjóðanna. Rússar ávarpa á ensku til Bandaríkj- anna um endurvarpsstöð á Kúbu og er ekki fyrirhugað að trufla þær útsendingar. í tilkynningu BBC sagði, að nú væri unnið að því eftir öðrum leiðum að ná eyrum rússneskra hlustenda. Gerard Manseli, for- stöðumaður þeirrar deildar BBC, sem sér um útsendingar til annarra þjóða, sagði, að truflan- irnar bæru merki um veikleika Rússa. „Þeir óttast hugsanleg áhrif atburðanna í Póliandi en frá þeim hefur skilmerkilega verið sagt í BBC,“ sagði hann. Sovétmenn neituðu því í dag, að þeir trufluðu útvarpssend- ingar og kalla ásakanir Breta og Bandaríkjanna hugarburð. eska friðar síðan í menningar byltingunni. Aðgerðir þessar komu i kjölfar tilkynningar frá stjórnvöldum um að styttur þessar skyldu fjarlægðar. Samstundis var gefin út tilkynning um að þing landsins kæmi saman 30. ágúst nk. Aðalmál þingsins verða um- ræður og lagasetningar varðandi tekjuskatt, skipulagsreglur fyrir lögfræðinga og efnahagsmál strandhéraðanna. Þetta verður fyrsta þingið sem kemur saman eftir að stjórnvöld hófu aðgerðir sem miða að því að gera ímynd Maos fyrrum formanns mann- legri en hún hefur verið meðal almennings í Kína. Meðal annars hafa margar stórar veggmyndir af formanninum verið fjarlægð- VITRETEX . ÞAÐERVITIÞVI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.