Morgunblaðið - 22.08.1980, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.08.1980, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980 Ljósm. Mbl. Rax. „Lengi dreymt um að fá svona mót- tökur hér heima“ — Ég vil endilega þakka fólki fyrir góðar móttökur. Mig hefur lengi dreymt um að fá svona móttökur, þetta hefur verið stórkostlegt. Ég held að fólkið hér heima sé núna fyrst að fá verulegan áhuga fyrir myndunum mínum, sagði Sveinn Björnsson, list- málari og lögreglufor- ingi úr Hafnarfirði, þeg- ar blaðamaður leit við á sýningu hans á Kjarvals- stöðum á miðvikudaginn. Sýningin hefur verið „success“ eins og þeir segja í útlandinu, þús- undir manna hafa séð hana og 21 mynd hefur selst. Sveinn hefur fram til þessa ekki verið mikill spámaður í sínu föðurlandi, list hans hefur fengið mun betri hljómgrunn hjá útlendum listavinum en íslenzkum. En nú virðist breyt- ing ætla að verða á og því má telja þessa sýningu Sveins tímamótasýningu á ferli hans. Jafnvel kollegar Sveins þurftu langan tíma til að viðurkenna hann sem einn úr sínum hópi, en það er liðin tíð. Sveinn byrjaði á sjónum 14 ára gamall og var það óslitið í 14 ár. Árið 1948, þegar Sveinn var 23 ára gamall byrjaði hann að mála á frívöktum á togur- um. Það var svo árið 1953 að Sveinn fór í land til þess að geta helgað málaralistinni bet- ur krafta sína. Alla tíð hefur hann unnið fulía vinnu með, lengst af í rannsóknarlögregl- unni í Hafnarfirði. Sveinn hef- ur haldið fjöldann allan af sýningum, þá stærstu í Den frie í Danmörku 1978. Á sýn- ingunni nú eru 85 verk, sem aldrei hafa verið á sýningu áður. í þessum verkum má sjá helstu viðfangsefni Sveins, fantasíu, sjávarmyndir og landslagsmyndir. VINN HELMINGI MEIRA EN AÐRIR Þeir sem þekkja til Sveins undrast mjög afköst hans, hann heldur fleiri sýningar en margir málarar, sem eingöngu helga sig listinni. Hver er galdurinn spyrjum við Svein? — Galdurinn er sá að ég vinn helmingi meira en aðrir. Ég hef vanið mig á að vinna mikið. Þegar andinn kemur yfir mig get ég málað 10—15 tíma án hvíldar. Þegar ég er búinn í vinnunni klukkan fimm á daginn fer ég í vinnustofuna mína í Krísuvík. Og ef ég er í stuði mála ég stanzlaust til klukkan 4—5 á morgnana og held þá heim til mín. Éggleymi mér alveg þegar ég er að mála. Ég er eins og í öðrum heimi, gleymi að borða og ef ég á danskan bjór gleymi ég meira að segja að drekka hann. — Þú talaðir um að andinn kæmi yfir þig. Málar þú ekkert nema andinn komi yfir þig? — Nei, en sem betur fer kemur andinn oft yfir mig. Það kemur eitthvað sem ég ræð ekki við, ég verð óstöðvandi og gleymi stund og stað. — Málar þú mest allt í Krísuvík? — Þar mála ég allt nema litlu myndirnar, þær mála ég heima í Hafnarfirði. Mér finnst óskaplega gott að mála í Krísuvík. Ég byrja gjarnan á myndunum úti og klára þær svo inni í húsinu sem ég hef þar. Krísuvík verkar vel á mig. Ég sé ýmsar kynjamyndir í björgunum og klettunum og reyni að koma þeim á léreftið. Annars var ég óskaplega lán- samur að fá þessa aðstöðu í Krísuvík. Ég ætlaði að byggja vinnustofu við húsið mitt heima í Hafnarfirði og var búinn að láta teikna það. En herrarnir hjá bænum neituðu mér um leyfi til að byggja. Ég þurfti því að leita mér að öðru og fann þá hús í Krísuvík, sem staðið hafði ónotað í 15 ár. Ég fékk afnot af húsinu, gerði það upp og hef notað síðan. Þetta er mátulega langt frá Hafnar- firði, 20—25 mínútna keyrsla og þegar maður er kominn þangað er maður alveg útaf fyrir sig. FANTASÍURNAR SKEMMTILEGASTAR — En ef við snúum okkur að málaralistinni. Þú hefur haldið þínu striki þar hverju sem tautar og raular? — Já, það hef ég gert, málað landslagsmyndir, sjávarmynd- ir og fantasíur. Mér þykir skemmtilegast að mála þær enda hef ég gert það óslitið síðan 1962. Þeir sem hafa málað fantasíur hér á íslandi hafa átt erfiða daga en nú er þetta að breytast sýnist mér. Ég held að fólk virði það við mig að ég hef haldið mínu striki. Á þessari sýningu hef ég selt margar fantasíur, þær hafa sáralítið selst áður. Danir eru aftur á móti hrifnir af fantasíunum og þegar ég sýndi þar 1978 seldust fantasíurnar bezt. Nú langar mig mest til þess að mála risastórar fanta- síur, eins stórar og stærstu sjávarmyndirnar mínar, 2x6 og 2x4 metrar. Mér þykir gaman að mála stórar myndir og vil endilega mála sem flestar áður en ég verð gamall, maður getur „Nú langar mig mest til þess að mála risastórar fantasíur.“ ekki bisað þessu þegar maður er orðinn gamall. — Hefurðu aldrei hugsað um það að snúa þér alveg að listinni? — Mikil ósköp, ég hef mikið gælt við þá hugmynd. Það fer að styttast í það að ég komizt á eftirlaun og þá sný ég mér eingöngu að málaralistinni. Annars hefur mér fundist lög- reglustarfið verka hvetjandi á listina. Þegar maður er búinn að vinna heilan dag við lög- reglustörfin hefur maður óskaplega löngun til að mála. Mér finnst ég hafa svikist um við að mála. Það spilar líka inní að, það er svo dýrt orðið að mála. Litirnir, striginn og rammarnir, allt er þetta feiknadýrt. Það er eiginlega ekki fyrir aðra en milljóna- mæringa að mála í dag. Þess vegna held ég að unga fólkið sé svo mikið í grafíkinni núorðið. Hún er ekki svona óskaplega dýr. — Nú fer ekki hjá því að þú umgangist margt fólk í starfi þínu sem lögreglumaður. Skýt- ur ekki upp á sýningum hjá þér fólki, sem þú hefur nýlega verið að yfirheyra? — Jú mikil ósköp. Það koma á sýningarnar menn, sem mað- ur hefur sett í steininn. Þeir rjúka á mig, kalla mig Svenna og kaupa af mér mynd. Þetta kann ég að meta, þetta sýnir að ég er ekki illa liðinn. AÐSÓKNIN SLÆR ÖLL FYRRI MET — Nú hefur aðsóknin að þessari sýningu slegið öll fyrri met hjá þér. Varstu ekkert hræddur að sýna í ágúst? — Það voru margir sem vöruðu mig við því. En ég gaf mig ekki. Ef ég hef ákveðið eitthvað þá stendur það. Sama var með sýninguna í Dan- mörku, margir vöruðu mig við því að leggja í hana, en ég hélt mínu striki, setti myndirnar mínar í gámana, sendi þá út og allt gekk vel. Það sama hefur gerst núna, aðsóknin hefur verið góð og 21 mynd seld, jafnvel þótt fólk sé nýbúið að fá skattseðlana sína. Ágúst- mánuður virðist a.m.k. henta mér. Ég er einnig ánægður með Kjarvalsstaði, myndirnar mín- ar virðast njóta sín þar vel. Eins og fram hefur komið hér í blaðinu varð Sveinn nýlega þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn í ítölsku lista- akademíuna. Fékk hann gull- medalíu senda því til staðfest- ingar og meðlimakort, sem opnar honum allar dyr að ítölskum listasöfnum. — Mlg langar mjög mikið til að fara til Italíu og skoða söfnin þar. Það hlýtur að vera ógleymanlegt. Ég hef ekki áform um að halda þar sýn- ingu, það kemur kannski seinna. Næst langar mig til að fara til Ameríku og sýná Ameríkönum myndirnar mín- ar, segir þessi síungi listamað- ur í lok samtalsins. Sýningu Sveins á Kjarvals- stöðum lýkur á sunnudaginn. Þangað ættu allir listunnendur að halda áður en dyrum Kjar- valsstaða verður lokað klukkan 22 á sunnudagskvöldið. _ SS. Spjallað við Svein Björnsson listmálara og lögreglu- foringja í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.