Morgunblaðið - 22.08.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980
Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra:
Leiðrétta verður rekstrargmnd-
völl frystihúsanna og það
verður þjóðin að taka á sig
TÍMINN birtir i gær á baksiðunni
frétt al ummælum Stcinxríms Her-
mannssunar sjávarútveKsráðherra i
ræðu sem hann flutti á Fjórðungs-
þinKÍ Vestfirðinxa i Bolungarvík
um siðustu helíti. Fyrirsogn Tímans
er: „GenKÍsfellinK sem haldið verður
utan vísitölu?“ og undirfyrirsoKnin
er: „ok launþeKauppbót til tekju-
læKstu. huKsanleK leið til að rétta
við rekstrarKrundvöll frystihús-
anna i Iandinu.“
Frétt Tímans er svohljóðandi:
“Kás — Samkvæmt nýlegri athug-
un Þjóðhagsstofnunar eru frystihús-
in hér á landi að meðaltali rekin með
tæplega 6% halla á tímabilinu júlí og
ágúst. M. ö. o. meðalframlegð þeirra
er um 19,5%, en talið hefur verið að
25% framlegð væri vjðunandi. Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hefur
einnig kannað hvernig rekstur þeirra
frystihúsa gengur sem aðild eiga að
samtökunum. Samkvæmt þeirri at-
hugun eru frystihúsin rekin með
tæplega 12% halla.
Eins og sjá má er verulegur munur
á tölum Þjóðhagsstofnunar og SH, og
er nú verið að kanna í hverju sá
mismunur liggur.
„Niðurstaðan er augljós", sagði
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra, í ræðu sem hann
hélt á Fjórðungsþingi Vestfirðinga í
Bolungarvík um sl. helgi. „Það vant-
ar a.m.k. 6—7% uppá rekstrar-
grundvöll frystihúsanna og reyndar
meira ef niðurstaða SH á rekstrar-
afkomunni reynist vera sú rétta.
Ég vek athygli á því, að þessi
6—7% eru fyrir utan þá hækkun á
launum sem kann að verða í þeim
samningum sem nú er unnið að á
vinnumarkaðnum. Þannig er í raun
og veru ekkert svigrúm til launa-
hækkunar. Ætti það að vera öllum
Ijóst þegar markaðshorfur eru eins
og ég lýsti áðan. Þegar tekið er tillit
til þessa alls, kann að vera nauðsyn-
legt að leiðrétta rekstrargrundvöll-
inn um það bil 10%“, sagði Stein-
grímur.
Nefndi Steingrímur að frá 1. mars
til 31. júlí hefði gengi ísl. krónunnar
verið látið síga gagnvart bandaríkja-
dollar um rúm 21%. „Það ætti að
gera meira en að bæta þá fiskverðs-
hækkun sem orðið hefur á tímabil-
inu. Þrátt fyrir það er afkoma
frystihúsanna mjög slæm eins og ég
hefi þegar lýst“, sagði Steingrímur.
IIIT
Frystlhúsin rekin meö 6-12% halla
Frystibúsin rekin meo b-i«r* naua . — • je
Gengisfelling sem haldio
veröur utan vísitölu? Sm§
gsgaasaggKar'i^á ggggg| fágg
Í23
Athugasemd
„Þegar hráefniskostnaður og
vinnulaun eru orðin um eða yfir 80%
af framleiðsluverðmæti, er útilokað
að það sem eftir er hrökkvi fyrir
öðrum kostnaði hvað sem gert er,
jafnvel þótt vextir verði lækkaðir
verulega.
Ég er því sjálfur orðinn sannfærð-
ur“, sagði Steingrímur, „um það, að
leiðrétta verður rekstrargrundvöll
frystihúsanna. Það verður þjóðin að
taka á sig. Ef það kemur inn í
vísitöluna þýðir það aðeins meiri
verðbólgu og að öllum líkindum
hærri vexti og við verðum í sömu ef
ekki verri stöðu eftir nokkra mánuði.
Hins vegar tel ég sjálfsagt, að
ráðstafanir verði gerðar til þess, að
tekjuskerðing þeirra sem lægst laun-
in hafa verði sem minnst“.“
RÍKISSTJÓRNIN sendi í gær út
eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Sú frétt í fjölmiðlum í morgun,
að þrír ráðherrar hafi skýrt
Vinnuveitendasambandi Islands frá
því, að gengisfelling væri ákveðin
framundan, er tilhæfulaus.
Ríkisstjórnin ræðir nú ýmsar
aðgerðir og stefnumótun í efna-
hagsmálum, en það hefur ekki verið
til umræðu í ríkisstjórninni að taka
áhrif gengisbreytinga út úr vísitöl-
unni.“
Aths. ritstj. Sú frétt sem hér er
talað um, er höfð eftir aðilum
vinnumarkaðarins, sem sátu fund-
inn með ráðberrunum, og hefði því
átt, ef fréttatilkynningin frá ríkis-
stjórninni væri á einhverri sann-
girni byggð, átt að tala um, að
skilningur þeirra, sem sátu fyrr-
nefndan fund, á áformum ríkis-
stjórnarinnar væri rangur, eins og
þeir hafa túlkað hann, m.a. í
fjölmiðlum. Orðið „tilhæfulaus"
hittir því aðra fyrir en fjölmiðla og
hafa þeir og munu áreiðanlega
svara fyrir sig.
* *
Asmundur Stefánsson framkvæmdastjóri ASI:
Sýnist YSÍ hafa haft það eitt
eftir, sem þeir vildu helzt
að ráðherrarnir hefðu sagt
„Á fundi okkar með ráðherrunum
komu til umræðu þau ummæli, sem
gerð hafa verið opinber af fundi
okkar viðsemjenda og rikisstjórn-
arinnar í gærmorgun. t stuttu máli
sagt sýnist mér af ummælum ráð-
herranna við okkur. að vinnuveit-
endur hafi sagt það frá fundinum,
sem þeir hefðu kosið að ráðherrarn-
ir segðu i samtalinu við þá, en
frásögn þeirra sé fjarri lagi. hvað
sannleiksinnihaldið snertir,“ sagði
Ásmundur Stefánsson. fram-
kvæmdastjóri ASÍ, er Mbi. ræddi
við hann eftir fund verkalýðsleið-
toga með ráðherrum í gærmorgun.
„Ég verð að segja það eins og er,
að mér fannst hálfundarlegt, að
heyra í hádegisútvarpinu Þorstein
Pálsson lýsa því yfir, að það sem
Karl Steinar Guðnason sagði í sam-
talinu við Mbl., væri eitthvert
stjórnarandstæðingsspil.
Mér þykir einsýnt að hér sé um
spil að ræða af hálfu vinnuveitenda-
sambandsins, þar sem verið er að
reyna að efna til ágreinings í okkar
röðum. VSÍ hefur uppi tilburði til að
bera ríkisstjórnina fyrir sig á röng-
um forsendum.
Þá sagði Ragnar Arnalds, fjár-
málaráðherra, ennfremur á fundin-
um með okkur í morgun, að á
fundinum með vinnuveitendum hefði
hann sagt skýrt fyrir sitt leyti, að ef
ætti að fylgja þeirri stefnu, sem
mörkuð er í samningum ríkisins og
BSRB, þá yrðu þeir vinnuveitendur,
sem hafa margt láglaunafólk í sinni
þjónustu að búast við því að það fólk
fengi meira en þá 4,5% kauphækk-
un, sem vinnuveitendur telja rúmast
innan útgjaldaauka ríkisins af
samningunum við BSRB.
Þannig sýnist mér vinnuveitendur
ekki frekar hafa haft það rétt eftir
frá fundi sínum með ráðherrunum
en annað, þegar þeir voru að segja
okkur frá þeim viðræðum."
Drógum sömu ályktun af yfirlýsingum
ráðherra og Tíminn af orðum Steingríms
Vinnuveitendasamband íslands:
„Ástæða þess að við höíum ekki viljað ganga að launahækkunarkröfum
Alþýðusambandsins er fyrst og fremst sú, að við höfum ekki talið okkur
hafa umboð til þess að skrifa út nýjar KengisfellinKarávísanir," sagði
Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, í
samtali við Mbl. í gær. „Við höfum talið að það samrýmdist ekki þeirri
stefnu stjórnvalda að hafa hemil á verðbólgunni. Vinnuveitendasamband-
ið er á móti gengisfellingarstefnu.“
Að öðru leyti vísaði Þorsteinn til
eftirfarandi fréttatilkynningar, sem
VSÍ sendi frá sér í gær:
„Vegna ummæla, sem höfð eru
eftir Karli Steinari Guðnasyni al-
þingismanni í Morgunblaðinu í
morgun, vill Vinnuveitendasam-
band Islands taka eftirfarandi fram:
Á sáttafundi síðdegis í gær
greindu fulltrúar VSÍ frá því, að
þeir hefðu þá um morguninn átt
fund með forsætisráðherra, fjár-
málaráðherra og sjávarútvegsráð-
herra. Á þeim fundi var ekki sagt að
gengisfelling væri ákveðin, og á
sáttafundinum létu fulltrúar VSÍ
ekki þau orð falla, að gengisfelling
væri þegar ákveðin.
Samningaráð VSÍ óskaði eftir
fundi með ríkisstjórninni sl. mið-
vikudag til þess að ræða stöðu
samninga á almennum vinnumark-
aði eftir samkomulag fjármálaráð-
herra við opinbera starfsmenn. Á
fundinum gerðu fulltrúar VSÍ ítar-
lega grein fyrir afleiðingum hugsan-
legra samninga á verðbólgu og
gengi. Lagðir voru fram útreikn-
ingar hagdeildar VSÍ þar að lútandi.
Af hálfu ríkisstjórnarinnar kom
fram að VSÍ gæti ekki í samningum
við ASÍ miðað við meiri útgjalda-
aukningu en mörkuð hefði verið af
ríkisvaldinu í samkomulaginu við
BSRB. Jafnframt var þó sagt af
hálfu ríkisstjórnarinnar að hún
gæti ekki ákveðið hvaða útgjalda-
hækkanir atvinnuvegirnir tækju á
sig. Af hálfu ríkisstjórnarinnar var
einnig tekið fram að gera þyrfti
sérstakar ráðstafanir til þess að
koma sjávarútveginum úr þeim
hallarekstri sem hann hefur verið í
að undanfömu. Ekki var minnst á,
að þessum óumflýjanlegu aðgerðum
yrði haldið utan vísitöluútreiknings.
Að öðru leyti komu í því sambandi
efnislega fram sömu atriðin og
Steingrímur Hermannsson sjávar-
útvegsráðherra ræddi um í viðtali
við dagblaðið Tímann í morgun
undir fyrirsögn blaðsins: „Gengis-
felling, sem haldið verður utan
vísitölu?" Þá kom fram af hálfu
ríkisstjórnarinnar að hún teldi
óhjákvæmilegt að hækka lægstu
laun, en ef komast hefði átt hjá
verðbólguáhrifum samninga hefði
verið eðlilegast að hækka engin
laun, en það væri óraunhæft vegna
kjaraskerðingar launþega, er staf-
aði af versnandi viðskiptakjörum.
Einnig fóru miklar umræður fram
um vísitölugólfið svonefnda og áhrif
þess á verðbólgu.
VSI lýsti yfir því þegar í byrjun
viðræðna við ASI í janúar sl. að við
núverandi efnahagsaðstæður gætu
launahækkanir ekki orðið að kjara-
bótum, heldur einvörðungu lækkað
gengið og aukið verðhækkanir. Und-
anfarna mánuði hefur öllum verið
ljóst að ráðstafanir til þess að
leiðrétta rekstrargrundvöll fisk-
vinnslunnar gætu ekki falist í öðru
en gengislækkun, nema ráðist yrði í
niðurskurð á helstu kostnaðarþátt-
um svo sem launum og hráefni, en
engar slíkar tillögur hafa verið til
umræðu.
Fundir með sáttanefnd eru haldn-
ir fyrir luktum dyrum og lögum
samkvæmt er óheimilt að greina frá
ummælum sem þar eru viðhöfð
nema með samþykki beggja samn-
ingsaðila. Á þessum vettvangi töldu
fulltrúar VSI eðlilegt að tala tæpi-
tungulaust um afleiðingar kaup-
hækkana og afstöðu ríkisstjórnar-
innar til þeirra mála og þess vanda
sem þegar er fyrir hendi hjá fisk-
vinnslunni burtséð frá hugsanlegum
launahækkunum í nýjum kjara-
samningum. Það er ekkert launung-
armál að fulltrúar VSÍ drógu sömu
ályktun af yfirlýsingum fulltrúa
ríkisstjórnarinnar í gær og dagblað-
ið Tíminn af ummælum Steingríms
Hermannssonar sjávarútvegsráð-
herra í morgun. Fulltrúar VSI telja
að þetta ætti síst að koma þeim
forystumönnum verkalýðsfélaga á
óvart, er þegar hafa orðið fyrir
barðinu á rekstrarstöðvunum í fisk-
vinnslu vegna þess hallarekstrar
sem of miklar kostnaðarhækkanir
eða of há gengisskráning hefur haft
í för með sér. VSÍ lítur svo á, að
rangfærslur og trúnaðarbrot Karls
Steinars Guðnasonar alþingis-
manns séu af pólitískum toga
spunnar og síst til þess að auðvelda
samningaviðræður.
VSÍ ítrekar nú eins og við upphaf
samningaviðræðnanna að aukinn
launakostnaður í núverandi efna-
hagsástandi leiðir óhjákvæmilega
til meiri lækkunar á gengi krónunn-
ar og aukinna verðhækkana, ef full
atvinna á að haldast. Útreikningar
hagdeildar VSÍ um hækkun vísitölu,
dollaragengis og launa til 1. ágúst
1981 miðað við mismunandi launa-
kostnaðarbreytingar fylgja með til-
kynningu þessari. Sérstök ástæða er
til að vekja athygli á því, að
verðbætur með svokölluðu gólfi skv.
tillögum ASÍ valda tæpiega 6%
meiri verðbólgu en óbreytt verð-
bótakerfi og að sama skapi meiri
lækkun á gengi krónunnar."
VSÍ hefur nú gert spár um þróun
verðlags, gengis og launa, sem
byggja á eftirfarandi forsendum um
launabreytingar.
I. Engar launakostnaðarhækkan-
ir utan verðbóta og óbreytt
verðbótakerfi.
II. 5% launakostnaðarhækkun 1.
september 1980, og óbreytt til-
högun verðbóta.
III. 5% launakostnaðarhækkun 1.
september 1980, og gólf sett á
verðbætur m.v. 357.000.- kr.
laun í ágúst 1980.
IV. 10% launakostnaðarhækkun 1.
september 1980, og gólf á verð-
bætur.
Að öðru leyti er hér um að ræða
hliðstæður við fyrri spár VSÍ af
„ÞAÐ kemur brátt i ljós, hvernig
farið verður með gengismálin, en
hvað viðkemur ummælum mínum i
samtalinu við Mhl. þá hygg ég, að
aðrir samningamenn, sem sátta-
fundinn sátu, geti staðfest þau og ég
hygg að fundargerð rikissáttasemj-
ara styðji frásögn mina,“ sagði Karl
Steinar Guðnason, varaformaður
Verkamannasambands tslands, i
samtali við Mbl. i gær.
Karl sagði, að ummæli fram-
kvæmdastjóra vinnuveitendasam-
þessu tagi. Þannig er gert ráð fyrir
að fiskverð hækki líkt og laun
fiskvinnslufólks og gengi sigi til að
jafna mun innlendra og erlendra
verðhækkana. Þó er rétt að taka
fram að reiknað er með að vandi
fiskvinnslunnar verði leystur fyrir
áramót með lækkuðu gengi. Að öðru
leyti er ekki gert ráð fyrir frekari
aðgerðum stjórnvalda.
bandsins um stjórnarandstöðutil-
burði af sinni hálfu, væru stráks-
skapur, sem hann vildi ekki leggja
sig niður við að svara. Hins vegar
væru þessi viðbrögð vinnuveitenda
og viðbrögð ríkisstjórnarinnar afar
fróðleg að sínu mati, því þau sýndu
að annað hvort hefði VSI ætlað að
hræða ASÍ með ríkisstjórninni eða
þá ráðherrar skipt um skoðun milli
funda með VSÍ og ASÍ. „Þessi leikur
er ámælisverður og bætir ekki stöð-
una í samningamálunum," sagði Karl
Steinar.
Hækkun vísitölu I. II. III. IV.
1. 8. 79 - 1. 8. 80 57.7% 57.7% 57.7% 57.7%
1.11. 79 - 1.11. 80 51.9% 55.5% 56.3% 60.2%
1. 2. 80 - 1. 2. 81 52.3% 58.9% 61.1% 69.0%
1. 5. 80 - 1. 5. 81 47.5% 56.3% 60.0% 70.5%
1. 8. 80 - 1. 8. 81 Gengi dollars, kr. 46.6% 56.6% 62.3% 74.9%
ágúst 1980 496 496 4% 4%
nóvember 1980 555 570 575 595
febrúar 1981 594 621 632 672
maí 1981 635 676 695 753
ágúst1981 Hækkun launa 679 730 757 828
1. 9. 80 grunnkaup 0.0% 5.0% 5.0% 10.0%
1. 9. 80 8.5% 8.5% 9.5% 9.5%
1.12. 80 10.0% 13.0% 14.5% 17.5%
1. 3. 81 8.0% 10.0% 12.0% 14.5%
1. 6. 81 8.5% 10.0% 12.0% 14.0%
1. 9. 81 8.0% 9.0% 11.0% 12.5%
Karl Steinar Guðnason:
Hygg að fundargerð sátta-
semjara styðji frásögn mina