Morgunblaðið - 22.08.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980
15
Verkföllin í Póllandi:
Alþjóðleg samtök verka-
lýðsfélaga bjóða aðstoð
Genf, London ok Chicajío. 21. júlí. AP.
FRAMKVÆMDASTJÓRI alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga, ILO, til-
kynnti í dag, að samtökin hefðu boðið stjórnvöldum í Póllandi hjálp
sína við að semja reglugerð sem „tryggði starfsemi frjálsra
verkalýðssamtaka“ í Póllandi. Þykir það mjög óvenjulegt af
samtökunum að bjóða slika hjálp. Pólland er aðili að samningi ILO,
sem var undirritaður 1948. Þar er þess getið, að verkamenn eigi að
hafa fullan rétt til að mynda eigin samtök.
frá sér svipaða tilkynningu. Þar
skoraði hún einnig á ríkisstjórnir í
hinum vestræna heimi að styðja
verkfallsmennina, en ekki að beita
Pólland efnahagslegum þvingunum.
Þá hafa samtök ítalskra verka-
manna ákvéðið, að senda nefnd til
Póllands til að ræða við yfirvöld,
verkalýðsleiðtoga og verkfallsmenn.
Miklar deilur hafa risið upp í
Bretlandi vegna þeirrar ákvörðunar
bresku verkalýðssamtakanna að
þiggja boð pólskra stjórnvalda og
senda sex manna nefnd í opinbera
heimsókn til landsins. Þykir sumum,
bæði innan og utan samtakanna, það
vera stuðningur við stjórnvöld í
Póllandi að senda nefndina þangað
einmitt nú, þegar verkamenn þar í
Htibner vann
9. skákina
Abano Terme, 21. ágúst. AP.
V-ÞJÓÐVERJINN Robert Hubner
sigraði Ungverjann Lajos Portisch í
9. einvígisskák þeirra. Átta fyrstu
skákunum lauk með jafntefli, svo
Hubner hefur nú tekið forustu í
einvíginu. Portisch gaf skákina án
þess að tefla biðstöðuna frekar enda
með gjörtapað tafl.
... og á góðar
vinningslíkur
í 10. skákinni
Abano Terme, 21. ágúst. AP.
10. EINVÍGISSKÁK Lajos Portisch
og Roberts Hubners fór í dag í bið
eftir 41. leik. Hubner teflir með
svörtu mönnunum og að sögn sér-
fræðinga á hann „ágætar vinnings-
líkur“. Biðskákin verður tefld á
morgun, föstudag.
Eins og sjá má hefur svartur peði
meira og hættulegt frípeð á d-lín-
unni. Menn svarts eru mun virkari en
hvíts auk þess sem hvítur er mót-
spilslaus.
Með réttri taflmennsku ætti svart-
ur því að vinna skákina. Hugsanlegur
biðleikur er 41. Hal.
landi berjast fyrir þeim rétti sem
verkamenn í Bretlandi hafa þegar
öðlast.
Hafnarverkamenn í Chicago, sem
höfðu tilkynnt að þeir ætluðu að sýna
samstöðu með pólskum verkamönn-
um með því að neita að afgreiða pólsk
skip, sögðust í dag ætla að fresta
þessum mótmælaaðgerðum sínum
þar til nk. föstudag. Ástæðuna sögðu
þeir vera þá, að þeir ætluðu að reyna
að fá fleiri verkalýðssamtök í lið með
sér.
Forseti samtakanna sagði, að þeir
væru að reyna að koma skipulagi á
þessar mótmælaaðgerðir og væru
þeir m.a. að reyna að fá evrópska
hafnarverkamenn í lið með sér. Sagði
hann, að aðgerðirnar næðu ekki
einungis til pólskra skipa, heldur
allra þeirra sem sigldu með pólskar
vörur.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
lagði í dag áherslu á, að þeir
andófsmenn, sem handteknir hafa
verið í verkföllunum í Póllandi, yrðu
látnir lausir hið fyrsta. Er þetta hið
fyrsta, sem Bandaríkjamenn láta
fara frá sér varðandi deilurnar í
Póllandi.
Sakharovnefndin sendi í dag frá sér
tilkynningu þar sem hún skorar á
verkalýðsfélög í hinum frjálsa heimi
að styðja verkfallsmenn í Póllandi og
pólska andófsnefndin í Svíþjóð sendi
Flugslysið í Riyadh:
Fjölskyldur
fórnarlambanna
fá f járstyrk
Riyadh. Saudi-Arahíu 21. ágúst AP.
KHÁLED konungur af Saudi-
Arabiu tiikynnti i dag að 15.000
Bandarikjadölum (7,5 milljónum
íslenskra króna) skyldi varið til
styrktar fjölskyldum þeirra sem
fórust i flugslysinu mikla á flug-
vellinum i Riyadh. Alis fórust 301
maður.
Flugmálayfirvöld í Saudi-Arabíu
sögðu að gaseldunartæki hefði lík-
lega ollið þessu þriðja mesta flug-
slysi sögunnar. Talsmaður þeirra
sagði að tvö slík tæki hefðu fundist í
flakinu.
Félagar Billys grunað-
ir um eiturlyfiasmygl
ERLENT
Frá Önnu Bjarnadóttur. (réttaritara Mbl.
i WashinKton. 21. áKÚst.
BILLY Carter, bróðir banda-
rikjaforseta, sat fyrir svörum
undirnefndar dómsmálanefndar
öldungadeildar bandariska
þingsins á fimmtudag og mun
gera svo á ný i dag. Nefndin var
stofnuð, til að rannsaka samband
Carters við stjórnvöld i Líbýu í
siðasta mánuði. Spurningar
nefndarinnar snerust fyrst og
fremst um 220.000 dollara. sem
Carter segir, að hann hafi fengið
að láni frá Libýu, en engin skjöl
eru fyrir hendi til að sanna að um
Ián sé að ræða og ekki greiðslu
eða gjöf.
Tólf ár liðin frá innrásinni í Tékkóslóvakíu:
„Okkur barst alþjóðleg hjálp“
segir blað tékkneska
kommúnistaflokksins
Praij. 21. áitúst AP.
BLAÐ tékkneska kommúnista-
flokksins „Rude Pravo“ minn-
ist þess í dag að tólf ár eru liðin
frá innrás Sovétmanna og fleiri
austantjaldslanda í Tékkósló-
vakiu með því að verja innrás-
ina. Kallar blaðið hana „alþjóð-
lega hjálp“.
„Vegna þessarar hjálpar er
Tékkóslóvakía aftur öflugt sósí-
alskt ríki,“ segir blaðið.
Herir frá Sovétríkjunum,
Austur-Þýskalandi, Ungverja-
landi, Búlgaríu og Póllandi réð-
ust inn í Tékkóslóvakíu 21. ágúst
1968. Þá hafði pólitísk frelsis-
alda stöðugt farið vaxandi í
kommúnistaflokknum sem var
undir forystu Alexanders Dub-
cek.
Franski kommúnistaflokkur-
inn minntist innrásarinnar í dag
með því að fordæma hana í blaði
sínu „L’humanite". Samt sem
áður styðja franskir kommúnist-
ar aðgerðir Sovétmanna í Afg-
anistan.
Ronald V. Sprague, efnahags-
ráðgjafi George Belluomini, bónda
í Kaliforníu og vinar Billy Carters
sat fyrir svörum nefndarinnar á
miðvikudag. Hann fór til Líbýu
fyrir Carter í marz, til að reýna að
ganga endanlega frá láninu, en
220.000 dollararnir voru aðeins
forskot á 500.000 dollara lán. Eftir
að- Carter las yfirlýsingu fyrir
nefndina á fimmtudagsmorgun,
tók nefndin sér hlé. Þegar hún
kom aftur saman var skýrt frá
því, að Sprague og Belluomini eru
grunaðir um eiturlyfjasmygl
(marijuhana og cocain) og er mál
þeirra til rannsóknar í dómsmála-
ráðuneytinu.
Carter fölnaði við þessar fréttir
og sagðist ekkert um málið vita.
Nefndin tók skýrt fram, að hann
væri ekki viðriðinn eiturlyfjamál
þeirra félaga, en Robert Dole,
öldungadeildarþingmaður frá
Kansas, sem á sæti í nefndinni,
sagði að þessar upplýsingar gæfu
tilefni til frekari spurninga um
samband bróður forsetans við
þessa menn.
PRISMA
Loksins hefur okkur tekist aö finna fullkomió, nýtískulegt og
vandað litsjónvarpstæki á lægra veröi en aðrir geta boðiö.
KDL5TEF
model 1980
STÆRÐ VERO STAÐGR.VERÐ STRAUMTAKA
20 t. 670.000,- 636.500,- 85 wött
22 t. 730.000.- 693.500,- 85 wött
26 t. 850.000,- 807.500,- 95 wött