Morgunblaðið - 22.08.1980, Page 22

Morgunblaðið - 22.08.1980, Page 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1980 Magnús A. Arna son — Minning Listamaðurinn Magnús Á. Árna- son heldur ekki fleiri sýningar. Síðustu sýningu á verkum hans sá ég fyrir nokkrum mánuðum, þegar hann var hálfníræður. Það var yfirlitssýning, þar sem gaf að líta margar fallegar myndir, hluta af því besta sem hann hafði gert. Listamaðurinn stóð ljúfur og hress að sjá meðal gesta sinna, og fram að þeim tíma hafði hann haldið áfram að vinna að list sinni, eftir því sem ég best veit. Nú voru margir sem vildu votta honum virðingu sína, og það var ekkert að undra, svo innilegur sem hann var í list sinni og frábitinn loddarabrögðum. Ég komst ekki að til að tala við hann nema fáein orð. En þarna voru myndirnar. Þær gat ég skoðað. Þær fluttu mér boð frá gamla íslandi. Og þær fluttu mér einnig boð frá heims- iistinni, einhver tengsl við impressjónistana, sem ég þóttist vita að hefðu haft áhrif á hann, þegar hann var ungur maður. Og þó er það aðeins getgáta mín. Ég veit ekkert um það. En mér hefur oft fundist ég sjá þessi áhrif í málverkum hans. Fyrir mörgum árum var ég að hugleiða þann sérkennilega milda blæ, sem er á landslagsmyndum hans, þennan blæ sem gat sýnst einhverskonar daufleiki, þar til maður áttaði sig á því, að þetta var beinlínis aðferð hans og stíll. Þá fannst mér ég merkja skyld- leika með honum og Jónasi Hall- grímssyni, líkt og hann væri okkur í málaralistinni að nokkru leyti það sem Jónas var okkur í skáldskapnum. Hann orti um landið í litum og línum með reynslu frá erlendum straumum í myndlistinni eins og Jónas orti í orðum og lagaði sig eftir erlendum straumum í kvæðagerð. Og báðir höfðu rómantískt viðhorf til ís- lands, mildir og lágværir, þótt myndir beggja gætu orðið sterkar engu að síður, hvort sem þær voru í ljóðum eða litum og línum. Þessi orð eru óskiljanleg nema menn hafi séð bestu landslagsmyndir Magnúsar, því myndir hans voru margar og misjafnar, hann vann eins og náttúrubarn, málaði oft mikið á stuttum tíma, sumt heppnaðist vel, sumt miður, en allt hlaut það að standa nokkurn veginn eins og það kom fyrst á léreftið, því hann föndraði lítt við myndir sínar eftir á, það hentaði honum ekki. Þegar ég skrifa þessar línur, er ég nýkominn norðan frá Akureyri, þar sem ég hafði vinnuaðstöðu í skólahúsi og sat löngum við ritvél- ina mína í þreytandi þýðingar- puði. Jafnan þegar mér fannst höfuðið á mér vera orðið að kletti, stóð ég upp til að rétta úr mér, gekk út á ganginn og að málverki einu eftir Magnús Á. Árnason. Það var gamall torfbær eða eyði- býli, undarlega sterk mynd, að mér þótti. Það brást ekki, að höfuð mitt varð léttara við að horfa á myndina og ég gat aftur fundið hæfileg íslensk orð til að þýða sögu úr erlendri sveit. Sumir segja, að Magnús hafi haft meiri hæfileika til að vera myndhöggvari en málari. Það kann vel að vera, en ef til vill hefur honum þótt það of viðamikil listgrein, of kostnaðarsöm, og óhugsandi að lifa af henni á íslandi á þeim tíma, þegar Magn- ús var að brjóta sér braut. Hann hefur þó látið eftir sig nokkrar höggmyndir eða myndir mótaðar í leir og síðan steyptar í annað efni. Þannig mótaði hann Kópavogs- skáldin sem hann kallaði svo á sinni tíð. Ég lenti í þeim hópi, þar sem ég var heimilisfastur í Kópa- vogi um skeið, þó ekki væri það lengi. Ég átti heima úti á Kársnes- inu, stutt frá heimili þeirra Magn- úsar og Barböru, eða við Hlégerði, en á milli okkar, yst á nesinu, var Þorsteinn frá Hamri, og einhvers- staðar í hinni áttinni var Þor- steinn Valdimarsson. Það var mér útlátalaust, þar sem svo skammt var á milli okkar þegar Magnús greip mig glóðvolgan, að ganga yfir til hans og sitja fyrir hjá honum eða standa meðan hann var að móta hausinn á mér í leir. Þá undraðist ég, hversu harður hann var að vinna, hversu snögg og þó liðleg handtökin voru og hversu fljótur hann var að ná svipnum. Ég held ég hafi ekki þurft að fara nema þrisvar til hans og hann íþyngdi mér ekki meira en í tuttugu mínútur eða hálftíma í hvert skipti. Þá mun hann hafa verið búinn með mynd- irnar af Þorsteinunum báðum. Veit ég ekki betur en þessar myndir hafi tekist með ágætum. Magnús hafði áður gert málverk af Jóni úr Vör, sem bjó í næsta nágrenni við hann, og má það hafa verið upphafið að þessari ræktar- semi hans við Kópavogsskáldin eins og hann nefndi þau. Það var ætíð gaman að koma í sérkennilegt hús þeirra Magnúsar og Barböru, konu hans, við Kárs- nesbraut, þar sem allt bar listinni fagurt vitni, að utan sem innan. Barbara hafði til dæmis mynd- skreytt vegginn sem sneri upp að götunni. En kynni okkar Magnús- ar höfðu hafist nokkru áður en hann mótaði á mér höfuðið. Það var skömmu eftir að ég gaf út aðra ljóðabók mína, sem út kom 1958, að Magnús hringdi til mín, sagði til nafns og bað mig að koma og tala við sig, því hann ætti dálítið erindi við mig, en þau hjónin bjuggu þá niður undir sjó við Borgartún, skammt frá Kirkju- sandi. Ég furðaði mig á, hvað þessi kunni myndlistarmaður gæti vilj- að mér, en erindi hans var þá það, að hann var búinn að þýða alla fyrrgreinda ljóðabók (Nóttin á herðum okkar) á ensku. Ég er ekki dómbær á það hvernig til hafði tekist, en Barbara, kona Magnús- ar, sem hafði yfirfarið þýðingarn- ar, var ensk að ætterni og vel að sér bæði í íslenskum og enskum bókmenntum. Handritið að þýð- ingunum lenti reyndar á villigöt- um, en það er önnur saga, og var ekki hans sök. Fjölhæfni Magnúsar var með ólíkindum. Hann þýddi fyrir utan þetta fjölda ljóða eftir aðra höf- unda og voru margar þýðingar hans notaðar í sambandi við útgáfu íslenskra ljóða í Rúmeníu, þar sem þýðendurnir, lærðir í skandinavískum málum, en ekki fullvel læsir á íslensku, lögðu þýðingar hans til grundvallar þýð- ingum sínum á rúmensku. Einnig frumorti hann sjálfur og skrifaði bækur í óbundnu máli, svo sem kunnugt er. En ég hafði einnig kynni af enn einum þætti fjöl- hæfni hans. Svo er mál með vexti, að Magnús lærði ekki aðeins myndlist í Kaupmannahöfn og San Francisco, heldur gekk hann einnig á skóla í tónlist. Og einn góðan veðurdag tilkynnti hann mér, að hann væri búinn að semja lag við órímað ljóð eftir mig. Þótti mér það merkileg tilviljun, að þessi þúsundþjalasmiður, sem fæddur var fyrir aldamót, skyldi verða fyrstur til að semja lag við eitt af rímleysuljóðum mínum. En ef til vill var það ekki nein tilviljun. Það var sami maður, sem mörgum árum áður, hafði fyrstur samið lög við mörg þau sérkenni- legu kvæði Steins Steinarrs, sem fáir litu við á þeim tíma. Eftir er að geta eins þáttar enn í fjölhæfni Magnúsar, þar sem var samtalsgleði hans og frásagnar- gáfa. Hann hafði kynnst mörgum á lífsleiðinni, ekki síst skáldum og listamönnum, var til dæmis náinn vinur Halldórs Laxness og hafði verið samtíma honum í Ameríku. Hann kunni margar sögur að segja af því fólki, sem hann hafði kynnst og sagði þær vel, sumar skráði hann í bók, en bestar voru þær, þegar hann sagði þær í vinahópi. Ég tel mig eiga Magnúsi Á. Árnasyni mikið að þakka, eins og af framanrituðu má sjá, en einnig minnist ég með söknuði vináttu beggja, hans og Barböru, við mig, konu mína og dóttur. Magnús heldur ekki fleiri sýningar. En verk hans og konu hans lifa áfram með þjóðinni. Jón óskar Birting afmœlis- og minningar- greina. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðvikudagsblaði, að berast í siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu linubili. + Dóttir mt'n og móðir okkar, MARGRÉT ÁGÚSTSDÓTTIR, Hólmgaröi 7, lézt í Landspítalanum aö morgni 20. ágúst. Sigríöur Pólsdóttir og börn hinnar létnu. t Maöurinn minn, ÓSKAR KRISTJÁNSSON, frá Brautarholti, Njarövík, andaöist í Borgarspítalanum miövikudaginn 20. ágúst. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Guörún Þorsteinsdóttir. + Maöurinn minn og faöir okkar, SNORRI GÍSLASON Torfastööum, Grafningi, lést aöfaranótt 21. ágúst. Valgerður Hannesdóttír og dætur. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, BALDVIN SIGURÐSSON, Hjalteyri, Arnarneshreppi, sem andaöist á fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. ágúst, veröur jarösunginn frá Mööruvallakirkju, Hörgárdal, laugardaginn 23. ágúst kl. 2 e.h. Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Siguröur Kr. Baldvinsson, Magöalena Stefónsdóttir, Ingvi R. Baldvinsson, Þórunn Elíasdóttir, Margrét Baldvinsdóttir, Óli Þ. Baldvinsson, Halla Guömundsdóttir, Ari S. Baldvinsson, Sonja Baldvinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför, SIGMUNDAR K. GUÐMUNDSSONAR, garöyrkjumanns, Hveragerói. Kristín Jónsdóttir, Guöfinna Sigmundsdóttir, Árni Guðmundsson, Karlinna Sigmundsdóttir, Magnús Gíslason, Ingibjörg Sigmundsdóttir, Hreinn Kristófersson, og barnabörn. + Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jarðarför SIGRÍDAR GÍSLADÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavfk. Sigþór Þórarinsson Sigríöur Guómundsdóttir, Jón G. Þórarinsson, Helga Jónsdóttir, Gyöa Þórarinsdóttir, Kristinn Guöbrandsson, Kristbjörn Þórarinsson, Katrín Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför ÖNNU STEFÁNSDÓTTUR, frá Borg. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu Lundi, Hellu fyrir alla hjálp henni veitta. F.h. vandamanna, Hafliói Pétursson. + Þökkum öllum þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug viö fráfall litla drengsins okkar SÓLMUNDAR ARNAR HARALDSSONAR, Belgsholti. Sigrún Sólmundsdóttir, Haraldur Magnússon, systkini, afar og ömmur. + Hugheilar þakkir til þeirra mörgu sem sýnt hafa okkur samúö og vinarhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, ANDRÉSAR GUDNASONAR frá Vöölum, Bergstaóastræti 57, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild I A á Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun sl. 2 ár. Guörún J. Bergsdóttir, Anna J. Andrásdóttir Fish, James C. Fish, Bergljót Andrésdóttir, Mekkin J. Fish, Lf#a c_ Fi,h> Andrea M. Fish, Guörún Anna Friðbertsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.