Morgunblaðið - 11.10.1980, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
225. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Frá setningu Alþingis. Forseti íslands. Vigdís Finnbogadóttir í raniustól. Sjá fréttir bls. 20
og 21.
Mannskæður jarð-
skjálfti í Alsír
AlKPÍrshoris. 10. októhcr. AP.
ÞÚSUNDIR manna hiðu hana þen-
ar öfluKur jarðskjálfti lauái horu-
ina A1 Aznam í rúst i daK. JarA-
skjálftinn maddist 7,5 stÍK á richter
ok eyðileKKÍnK hans var KifurlcK.
A1 Aznam. sem hefur um 125
þúsund íhúa, laKÚist i rúst <»k
nærlÍKKjandi svæði urðu einnÍK illa
úti. Jarðskjálftinn fannst allt til
Spánar. Ekki hafa borist nákvæm-
ar tölur um mannskaöa. en hin
Innrás
í Úganda
Kampala. 10. október. AP.
IIERSVEITIR hafa ráðist inn í
ÚKanda frá Súdan ok Zaire <>k náð
á sitt vald einni helstu borg
landsins, i n-vesturhluta þess,
Arua. að því er fréttir frá Kamp-
ala herma. Otema Allimadi. utan-
rikisráðherra landsins, vildi ekki
skýra frá því, hverjir innrásar-
mennirnir væru en Milton Obote,
fyrrum forseti. hefur skýrt frá
hardöKum við hersveitir hollar Idi
Amin. fyrrum einræðisherra.
Áreiðanlegar heimildir frá
Kampala herma, að heil herdeild
úganska hersins hafi verið þurrkuð
út í bardögum um Koboko, heima-
borg Amins. Þá hefur einnig verið
barist um bæinn Moyo, skammt frá
landamærum Súdan. Allimadi
sagði að innrásarherirnir hefðu
ráðist inn í landið á mánudaginn.
Hann sagði, að sendiherrar Zaire og
Súdan hefðu neitað vitneskju um
innrásina. Allimadi sagði, að Úg-
anda mundi taka málið upp í
Öryggisráðinu og eins í Einingar-
samtökum Afríku. Vitað er, að
hermenn, hollir Amin, flýðu til
vesturhluta landsins í kjölfar falls
einræðisherrans. Fréttir herma, að
þeir hafi tekið með sér mikið magn
vopna. Fréttir af bardögum eru
óljósar. Samgöngur við norð-vest-
urhluta landsins hafa legið niðri,
svo og símasamband. Ferðamenn,
sem komið hafa frá n-vesturhlutan-
um hafa skýrt frá bardögum. Kosn-
ingar eiga að fara fram í landinu
þann 10. desember, en ólíkiegt er að
af þeim verði.
opinhera fréttastofa Alsír sagði
látna skipta þúsundum,
Fréttastofan sagði að átta af
hverjum tíu húsum í borginni væru
hrunin eða skemmd. Fólk var ein-
dregið varað við að fara inn í hús,
þar sem þau gætu hrunið á hverri
stundu. Skömmu eftir fyrsta skjálft-
ann kom annar. ekki eins öflugur en
hann olli mikilli skelfingu meðal
fólks. Sá þriðji fylgdi í kjölfarið í
kvöld.
Skjálftans varð vart í Algeirsborg.
Mikil skelfing greip þar um sig en
mannskaðar urðu ekki. Árið 1956
varð A1 Aznam illa úti í jarðskjálfta.
Þá fórust tæplega tvö þúsund
manns. Sá skjálfti mældist 6,7 stig á
richter. Sjúkrahús A1 Aznam er nú
rústir einar, svo og dómshúsið,
bæjarskrifstofur, helstu verslanir,
helsta moska staðarins og mennta-
skóli. Björgunarstarf er þegar hafið.
Herinn hefur sent lið til jarð-
skjálftasvæðanna og innanríkisráð-
herra Alsír fór í kvöld til borgarinn-
ar til að stjórna björgunaraðgerðum.
Bani-Sadr hótar eldflauga-
árásum á herteknar borgir
Tohcran. Baudad. Tripóli. 10. októhor. AP.
BANI-SADR, forseti írans saKði í kvöld, að íranir væru reiðuhúnir að
gera eldflaugaárásir á íranskar borgir á valdi íraka. Ilann sagði. að
reynt yrði að koma írönum í þessum horgum undan áður en gripið yrði
til þess ráðs, að gera eldflaugaárásir á horgirnar. írakar hafa beitt
eldflaugum síðustu daga i bardögum. „Risaveldin skulu vita, að við
erum reiðubúnir að berjast til þrautar með öllum meðölum. Við munum
ekki gefast upp. Ef trakar halda eldflaugaárásum áfram, erum við
neyddir til að biðja fólk okkar að yfirgefa borgir á valdi íraka og svara
i sömu mynt," sagði Bani-Sadr í iranska útvarpinu. Hann tiltók ekki
hvaða borgir yrði ráðist á, en írakar segjast hafa helstu borgir í
Kuzestan á sínu valdi. Ljóst er. að gripi íranir til eldflaugaárása mun
mannfall aukast verulega.
Líbýumenn lýstu fyrstir Araba-
ríkja yfir stuðningi við Irani í
stríðinu við íraka. Moammar
Khadafy, leiðtogi Líbýu, sagði að
það væri „íslömsk skylda“ Araba-
ríkja, að styðja Irani í baráttu við
Iraka, sem væru skósveinar Banda-
ríkjanna. Fréttir bárust um stór-
fellda hergagnaflutninga frá Trip-
ólí, höfuðborg Líbýu, til írans. Að
minnsta kosti 10 herflugvélar,
þeirra á meðal bandarískar
Boeing-þotur, fluttu hergögn til
írans yfir Grikkland, Búlgaríu og
Sovétríkin. Loftflutningar Líbýu-
manna eru sagðir hafa hafist á
miðvikudag.
Hatrammlega er nú barist um
Þingi íhaldsflokksins lokið:
Einhugur í Brighton
hafnarborgina Khoramshahr í ír-
an. íranir veita öfluga mótstöðu í
þorginni og fyrri yfirlýsingar íraka
um að borgin væri í þann veginn að
falla, hafa ekki rejnst á rökum
reistar. Að sögn Iraka' féllu 22
íranskir hermenn í bardögum í
borginni í dag en sjálfir segjast
þeir hafa misst 4 menn fallna.
Írakar segjast hafa skotið niður
tvær þyrlur í dag. írakar halda
n-vesturhluta borgarinnar og hafn-
arsvæðinu en íranir hafa búið um
sig í s-vesturhluta borgarinnar og
halda mikilvægum brúm þar.
íranir gerðu harðar loftárásir á
borgirnar Kirkuk, Mosul og Sulei-
manieh í dag og að sögn íraka féllu
13 óbreyttir borgarar. Fimm ír-
anskar orrustuþotur voru skotnar
niður. írakar réðust á olíuleiðslur
skammt frá Ahwaz og að sögn
írana féllu 14 borgarar. Að sögn
írana réðust orrustuþotur á tvö
sjúkrahús í borginni. Bani-Sadr,
forseti írans, sagði landsmönnum
að láta sprengingar í Ahwaz ekki
skjóta sér skelk í bringu. Hann
sagði, að íranir hefðu sjálfir valdið
svipuðu tjóni í írak. Bani-Sadr
sagði, að íranskar hersveitir hefðu
brotið sér 10 kílómetra leið á um 38
kílómetra svæði skammt frá
Ahwaz.
íranir sögðu í dag, að þeir
hygðust senda nefnd.til vinveittra
ríkja til að kynna málstað Irana.
Þá er búist við að þeir muni taka
innrás íraka upp við Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
tilkynnti í kvöld, að undanfarna
daga hefðu starfsmenn ráðuneytis-
ins verið í símasambandi við einn
bandarísku gíslanna í íran. Sadeq
Ghotbzadeh, fyrrum utanríkisráð-
herra írans, sagði í dag í viðtali við
norska blaðið Aftenposten, að ír-
anska stjórnin ætti tafarlaust að
láta bandarísku gíslana úr haldi.
Hann sagði, að íranska stjórnin
bæri ábyrgð á innrás íraka —
stjórnle.vsi í landinu hefði gert
írökum mögulegt að ráðast inn í
landið.
Brivchton. 10. októher. AP.
ÞINGI brezka íhaldsflokksins
lauk i Brighton í dag. Margarct
Thatcher hélt ræðu og hét því, að
halda fast við stefnu stjórnarinnar
f efnahagsmálum. í lok ra'ðu
hennar var hún ákaft hyllt af
þingheimi. Mikill einhugur íhalds-
manna kum fram á þinginu í
Brighton og þrátt fyrir að tala
atvinnulausra sé nú yfir 2 milljón-
ir og mörg fyrirtæki hafi orðið að
leggja upp laupana. hét Margaret
Tatcher því, að stefnunni i pen-
ingamálum yrði ekki breytt. „Þið
getið snúið aftur ef þið viljið — en
frúin gerir það ekki." sagði
Thatcher i ra‘ðu sinni og var ákaft
hyllt.
Mikill einhugur ríkti í Brighton,
gagnstætt þingi Verkamanna-
flokksins sem fram fór í Blackpool í
síðustu viku. Þetta hefur greinilega
- fylgi flokks-
íns vex
orðið til þess, að íhaldsfiokkurinn
hefur bætt við sig fylgi. í Gallup-
skoðanakönnun, sem birt var í
vikunni, kom fram, að nú munar
aðeins 3% atkvæða á fylgi flokk-
anna tveggja, en fyrir þingin var
munurinn 11%.
Fréttaskýrendur eru sammála
um, að skilin milli þessara tveggja
höfuðandstæðinga í brezkum
stjórnmálum hafi aldrei verið
skarpari. Samþykkt var á þinginu
að efla varnir landsins, hvatt til
öflugri þátttöku í Atlantshafs-
bandalaginu, Efnahagsbandalagi
Evrópu og því lýst yfir, að friður í
heiminum sé best varinn með öfl-
ugri samvinnu V-Evrópu og Banda-
ríkjanna. í efnahagsmálum var lögð
áhersla á að virkja einkaframtakið
og áhersla var lögð á að framfylgja
núverandi stefnu stjórnarinnar í
efnahagsmálum. Þetta er mikil
andstaða við samþykktir Verka-
mannaflokksins. Þar var samþykkt
einhliða kjarnorkuafvopnun Breta,
úrsögn úr EBE og víðtæk þjóðnýt-
ingaráform.
Um fimm þúsund mótmælendur
söfnuðust saman við þingstaðinn í
Brighton. Lögreglan hafði mikinn
viðbúnað og 16 manns voru hand-
teknir. Tveimur mótmælendum
tókst að komast inn í ráðstefnuhús-
ið og öðrum aðeins nokkra metra
frá Thatcher þar sem hún hélt ræðu
sína. Þar gripu þingmeðlimir
manninn og Thatcher lét sér fátt
um finnast. Mótmælendur báru
spjöld fyrir utan þar sem á stóð
„réttur til vinnu“.
Norðmenn leita
óþekkts kafbáts
Osló. 10. októbrr. AP.
NORSKAR herflugvélar og
herskip leita nú ákaft óþekkts
kafbáts í Kváefirði i Norður-
Noregi. Kafháturinn sást frá
bænum Harstad. sem er á Hinnö-
eyju. Tvær orustuþotur og tvær
Orion-leitarflugvélar. húnar
sonar-tækjum leita nú kafbáts-
ins ásamt freigátu og tundur-
skeytabátum.
„Ef við finnum kafbátinn mun-
um við neyða hann upp á yfir-
borðið með því að varpa djúp-
sprengjum að honum," sagði
Magne Sörensen, yfirmaður
norska hersins í N-Noregi. Leit
Norðmanna að kafbátnum í
N-Noregi kemur skömmu eftir að
Sviar urðu varir við sovéskan
kafbát í skerjagarðinum skammt
fyrir utan Stokkhólm. í níu daga
leituðu sænskar herflugvélar og
herskip kafbátsins sem að lokum
hafði sig á brott eftir hótanir um,
að hann yrði neyddur upp á
yfirborðið með því að varpa
djúpsprengjum að honum.