Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 39 Gunnar Níels- son—Minning Gunnar Níelsson á Hauganesi er látinn. Þetta voru mikil tíðindi okkur vinum hans, sem höfðum kvatt hann, áður en hann fór utan, glaðan og reifan. Eftir heimkom- una í byrjun september gekk hann undir erfiða skurðaðgerð, er dró hann til dauða. Hann lézt mánuði síðar, hinn 5. október, eftir erfiða sjúkdómslegu. Þá var þungur harmur kveðinn að byggð hans og víða skarð fyrir skildi. Gunnar Níelsson fæddist 1. des- ember 1905 í Kálfskinni í Árskógs- hreppi, sonur hjónanna Níelsar Jónssonar síðar bónda á Birnunesi og Kristínar Kristjánsdóttur frá Selá. Hann kvæntist 1926 Helgu Jónsdóttur, smiðs Jónssonar frá Vallholti. Þeirra börn eru: Níels skipstjóri og útgerðarmaður á Hauganesi, kvæntur Rósu Stef- ánsdóttur. Petrea, gift Jóhanni Antonssyni sjómanni á Hauga- nesi. Halldór sjómaður og útgerð- armaður á Hauganesi, kvæntur Ástu Hannesdóttur. Valborg, gift Sigtryggi Valdimarssyni vöru- flutningabílstjóra á Akureyri. Helga, gift Ellert Kárasyni skrifstofumanni á Akureyri. Gunnborg, gift Pétri Sigurðssyni múrara á Akureyri. Gunnar Níelsson var einn þeirra manna, er svo setja svip sinn á sitt byggðarlag, að saga hvorugs verður rakin nema hins sé um leið getið. Ásamt Jóni bróður sínum, er síðar rak um langt skeið Húsgagnaverslunina Kjarna á Akureyri, hóf Gunnar ungur út- gerð á Brimnesi á opnum báti, en fluttist árið 1938 til Hauganess. Þar hóf hann sjálfstæðan útgerð- arrekstur og eignaðist brátt dekk- bát. Þannig jukust umsvifin jafnt og þétt og síðustu tvo áratugina eða svo hefur hann rekið umtals- verða útgerð og fiskverkun í félagi við syni sína, Níels og Halldór, sem mjög kippir í kynið við föður sinn um dugnað, hörku og fyrir- hyggju í sjósókn, svo að því er við brugðið. Gunnar Níelsson hefur látið báta sína einn af öðrum bera nafn föður síns og trúað því, að gifta fylgi nafninu. Gunnar Níelsson var í hópi þeirra, sem hljóta að teljast brautryðjendur þeirrar útgerðar og byggðar, sem nú er á Hauga- nesi og Litla-Árskógssandi. Bar- áttan hefur verið hörð við nátt- úruöflin á opnum bátum. Hafn- leysi og hvað annað háðu mönnum, en sjálfsbjargarhvötin var rík og jafnan reynt að vera tilbúinn, þegar fyrstu loðfiugöng- unnar var að vænta snemma í apríl og haldið viðstöðulaust áfram til hausts, jafnvel fram í október. Ef um þrengdist, var þrautaráðið aðeins eitt, að herða sóknina í þorskinn. Eftir að dekk- bátarnir komu til sögunnar var byrjað enn fyrr — í marz og haldið lengur út. Og smátt og smátt fór byggðin að rísa, einhver snyrtilegustu og blómlegustu sjáv- arpláss í gjörvöllu landinu. Og segja mætti mér, að útflutnings- verðmæti væru hvergi meiri á höfuð í landinu öllu, ef það væri einungis talið, sem algjöríega væri sótt og unnið af heimamönnum sjálfum. Það er sannarlega út í hött núna, þegar maður gengur niður á bryggjuna, að hugsa sér Gunnar, þar sem hann situr á bitanum og ætlar að róa við þriðja mann inn á Akureyri til að selja ýsu eða steinbít á torginu upp af Torfunefsbryggju. En svo hörð var lífsbaráttan, þegar hornsteinninn var lagður að þeirri blómlegu byggð, sem nú brosir við manni á Hauganesi og Sandinum. Gunnar Níelsson var ekki hár maður, en hann var svipmikill og þéttur á velli. Á yngri árum hafði hann verið íþróttamaður góður. Hann var skapríkur maður og fór sínu fram, en vildi líka hlusta á það, sem aðrir höfðu til málanna að leggja og taka tillit til þess. Þess vegna átti hann traust sveit- unga sinna og var oft kallaður til, ef nauðsyn þótti bera til þess að fylgja málum eftir. Hann var kjörinn í hreppsnefnd árið 1946 og sat þar jafnan síðan. Hann var varaoddviti, þegar hann lézt. Hann var mikill vinur kirkjunnar, áhugasamur um skólamál og hvatamaður að byggingu sund- laugarinnar. En þegar kom að hafnarmálunum, var hann brenn- andi í andanum, óþreytandi að hvetja menn til dáða og óbugandi að hafa sitt fram. Fáum var líka ljósar en honum, að framtíð stað- anna beggja var undir því komin, að hafnarmálunum yrði komið í viðunandi horf og það varð að vinnast samtímis, til þess að ýfingar yrðu ekki með mönnum og jafnvægi héldist í byggðinni. Hon- Jens var fæddur 13. október 1908 í Funningsfirði í Færeyjum. Foreldrar hans voru Jóhann Mathias Eldevig, fiskimaður, Elduvik og Jóhanna Eldevig, fædd Jacobsen, frá Hvalvik. Þau hjón eignuðust stóran barnahóp. Þau systkini voru alls níu. Eins og nærri má geta hefur verið erfið afkoma með þennan stóra barnahóp, og því varð það að Jens fór snemma að vinna og hjálpa til. Eftir venjulegan barnalærdóm í Færeyjum, fór Jens strax til sjós á skútu. Hann vann við allt sem til féll, bæði á sjó og landi á uppvaxt- arárum sínum. Árið 1931 var hann á íslenzkum vélbát, sem gekk frá Innri- Njarðvík. Þá kynntist hann eftir- lifandi konu sinni, Jónu Guðrúnu Finnbogadóttur, dóttur hjónanna Finnboga Guðmundssonar og Þor- kelínu Jónsdóttur í Tjarnarkoti. Þau giftust 28. janúar 1932 og hófu þau búskap í Innri-Njarðvík, að svokölluðum Ljósvöllum. Þar með mátti segja að ísland yrði hans fyrirheitna land. Hér eignaðist hann góða og glæsilega konu, sem stóð við hlið hans alla um tókst að ná þessu fram ásamt öðrum heimamönnum, sem einnig unnu vel að þessu máli, og nú ríður á að ljúka verkinu. Gunnar Níelsson var mikill fé- lagsmálamaður. Hann var einn af stofnendum Slysavarnadeildar Árskógsstrandar og sæmdur heið- ursorðu aldraðra sjómanna. Hann var framarlega í samtökum út- tíð sem bjartur engill sem gaf honum styrk og þrótt, og þá birtu vonanna, sem ætíð er framundan þegar kjarkur og dugnaður mótar lífsstarfið. Þegar Jens kvæntist voru að skella á kreppuár hér á landi. atvinna og afkoma á allan hátt að dragast saman, og eru þessi ár í minnum höfð hjá öllum þeim sem háðu lífsbaráttu sína þá. En ungu hjónin voru hamingju- söm og samtaka, með einum huga og einni sál eins og segir í helgri bók. Og heilög forsjón gaf þeim góð og efnileg börn, en við það efldust þau hjónin bæði í lífsstarfi og skilningi hvors til annars. Börn þeirra eru: María Ester Kjeld kennari, Hanna Marta Kjeld kennari, Kristbjörg Þorkelína Kjeld leikkona, Jóhan Matthías Kjeld læknir, Finnbogi Guðmund- ur Kjeld forstjóri, og Kristjana Guðfinna Kjeld húsfreyja. Allt er þetta mesta manndómsfólk, og eignuðust þau hjón bæði gæfu og gleði með börnum sínum og svo tengdabörnum og barnabörnum. Jens var duglegur maður, hug- myndaríkur og kappsamur. Hann var sömuleiðis lagtækur maður. t GUÐLAUG SIGURDARDÓTTIR, Seljalandsseli, Vestur-Eyjafjallahreppi, lézt miövikudaginn 8. október í Vífilsstaöaspítala. Helgi Jónasson. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, MAGNÚS MARÍNÓ ÞORSTEINSSON, skipasmiöur, Granaskjóli 30, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. október kl 13.30. Ásta Eyjólfsdóttir, Eyjólfur Magnússon, Anna Lórusdóttír, Þorsteinn Magnússon, Brynja Jóhannsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega alla vináttu og samúð er okkur var sýnd viö fráfall sonar okkar, SÖLVA, er andaöist 2. þ.m. Jarðarförin hefur fariö fram. Bergljót Bergsdóttir, Steinn Öfjörð. Jens Sófus Kjeld — Minningarorð gerðarmanna á Norðurlandi og sat mörg þing Landssambands ís- lenzkra útvegsmanna og var lengi á fiskiþingum. Hann var kjörinn í stjórn Vélbátatryggingar Eyja- fjarðar 1967, en hafði þá verið alllengi í varastjórn, og var for- maður hennar síðan 1974. Gunnar Níelsson var mikill sjálfstæðismaður og traustur bak- hjarl okkar, sem setið höfum á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann gegndi um áratugaskeið fjölmörgum trúnaðarstörfum fyr- ir flokkinn, átti sæti í stjórn og var lengi varaformaður kjördæm- isráðs og skipaði heiðurssæti á lista flokksins við síðustu alþing- iskosningar. Gunnar Níelsson var farsæll í sínu fjölskyldulífi. Þau hjónin voru samhent og áttu barnaláni að fagna, þar sem dugnaðurinn og sjálfsbjargarviljinn er aðalsmerk- ið. Þau voru höfðingjar heim að sækja, vinmörg og vinsæl og hjálpsöm sér í lagi. Ég ætla, að margir hafi leitað þangað úr- lausnar sinna mála og jafnan fengið áheyrn. í viðtali við ‘Morgunblaðið 12. ágúst sl., segir Gunnar Níelsson m.a.: „Þeir, sem ætla sér að vinna við útgerð, verða að vera afskap- lega duglegir. Það er fyrsta skil- yrðið til þess að hlutirnir gangi.“ Ævistarfið sýnir, að Gunnar Níelsson var maður fyrir þessum orðum. Hann þótti að vísu harð- drægur í sjósókninni, en hann ætlaði sér aldrei um of og vissi, hvað hann mátti ætla sér, bát sínum og sínu liði. Af aflabrögð- um hans fer mörgum sögum, sem allar enduðu farsællega og sýndu fyrirhyggjuna, sem jafnan ein- kenndi verk Gunnars Níelssonar og var grunntónninn í lífsskoðun- um hans. Það er örðugt að sætta sig við skyndilegt fráfall Gunnars Níels- sonar. Hann dó fyrir aldur fram, þótt hann væri nær 75 ára gamall. Við hjónin minnumst þess með þakklæti að hafa fengið að kynn- ast honum og njóta gestrisni hans og stuðnings, þegar mest reið á. Ættingjunum öllum bera þessar línur hlýjar kveðjur. Megi Guð styrkja þau í þungri sorg og gæta hans, sem horfinn er. Ilalldór Blöndal var hann lítið á sjó, en vann við skipasmíðar, og árið 1963 tók hann iðnpróf í þeirri grein. I Innri-Njarðvík bjuggu þau hjónin til 1964 en þá fluttu þau til Reykjavíkur- og starfaði hann áfram þar við smíðar og fleira, en síðustu árin vann hann aðallega við útgerð sonar síns í Reykjavík. Þau hjónin bjuggu í Reykjavík í 12 ár, en síðustu 2 árin í Hafnarfirði. Fyrir ári síðan fórum við Jens í lystiferð til Færeyja. Það var gott að koma til ættfólksins, sem Jens átti þar. Það var gestrisið og gott fólk. Á öllu mátti sjá að þar átti Jens til vina og skyldmenna að sækja. Jens var traustur maður, ljúfur og kurteis í dagfari. Hann taldi það helga skyldu að vera trúr þeim hugsjónum, sem maður setur sér í sambandi við ástvini sína og lífsbaráttuna. Hann greindi vel kjarnann frá umbúðunum. Við ráðgerðum að fara aftur til Færeyja. En þeirri ferð er nú aflýst. En nú hefur hann lagt út í stærri ferð. Þar mun trúmennsk- an og fórnarlundin sem hann ætíð bar í öllu lífsstarfi sínu verða leiðarljós hans. Innilegar samúðarkveðjur flyt ég konu hans og börnum og allri fjölskyldunni. Guðsvernd og varðveizla sé með mínum góða vini. Jón Thorarensen. + Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför, eiginmanns míns og fööur okkar, AGÚSTS KRISTJÁNSSONAR, Víðimel 51. Sigríöur Þ. Viggósdóttir, Guörún H. Ágústsdóttir, Gayle og Helgi Ágústsson og barnabarn. Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa, ÞOROAR KRISTJÁNSSONAR, fyrrum skipstjóra, trá Ólafsvík, Börn, tengdabörn og barnabörn. Ef sjómennska féll niður á milli gat hann þessvegna fengið starf í landi við eitt og annað. Þessvegna mun honum sjaldan hafa fallið verk úr hendi og margt smátt gerir eitt stórt. Aðalatriðið er, eins og kom fram í lífsstarfi Jens, að vera vakandi og skilja það, að hver stund og hvert starf, stórt eða smátt, styður manninn að ná því marki, að vinna þann sigur sem hann hefur sett sér. Á þessum árum stundaði Jens sjómennsku, bæði við Grænland, Færeyjar og ísland, en eftir 1940 + Viö þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, tengdasonar. broöur, fööur, tengdafööur og afa. JÓNS HELGASONAR, TRYGGVAGÖTU 2, SELFOSSI. Halldóra Bjarnadóttir, Kristín Halldórsdóttir, Þuríður Helgadóttir, Erna Kr. Jónsdóttir, Bjarnfinnur Hjaltason, Bjarni Jónsson, og barnabörn. Guörún Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.