Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 48
^SÍminn á afgreiöslunni er 83033 JlUrijunlibttltb tr03$JllrIlíS»íl» Síminn á afgreiöslunni er 83033 JlUrsunblabib LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 Fjármálaráðherra setur Flugleiðum afarkosti: Sala á eignum er skil- yrði fyrir ríkisábyrgð Skilmálar fyrir bakábyrgð vegna Atlantshafsflugs óljósir RAGNAR Arnalds. fjármálaráöherra. hefur sent Flugleið- um bréf, þar sem fyrirtækinu eru annars vegar settir afarkostir fyrir veitingu ríkisábyrgðar en hins vegar eru skilmálar fyrir hakábyrgð ríkissjóðs vegna Atlantshafs- fiugsins illskiljanlegir og óljósir að dómi sérfróðra manna um flugmál. sem Morgunhlaðið hafði samhand við í ga'rkvöldi. Uá kemur fram í bréfi fjármálaráðherra. að ríkisstjórnin hefur enn ekki tekið ákvörðun um niðurfell- ingu lendingargjalda. í bréfi fjármálaráðherra kemur m.a. fram eftirfarandi: Þau eru mörg handtökin við sildartunnurnar og það fengu þessir kuldalegu Eskfirðingar að reyna á þriðjudaginn. Þeir eyddu morgninum i það að bera tunnur úr stæðu utanhúss inn i Söltunarstöð Sæbergs, meðan norðanáttin æddi og vindhæðin hefur sjálfsagt verið yfir 12 vindstig i verstu hryðjunum. Tunnurnar eru snjóbarðar og úti fyrir má sjá hvitfextar öldurnar. Sjá nánar bls. 10 og 11. (LjÓNm. Ragnar Axelsstm) Qpinber fyrirtæki óska eftir hækkunum: Póstur og sími 25%, Lands- virkjun 19%, Hitaveitan 37% • Fjármálaráðherra segir í bréf- inu til Flugleiða, að til þess að unnt sé að samþykkja beiðni félagsins um nýja ríkisábyrgð vegna rekstrarlána þurfi félagið „sennilega" að selja nokkrar eign- ir, m.a. í hlutabréfum, bílaleigu eða hótel- og skrifstofubygging- um. • Fjármálaráðherra kveðst reiðu- búinn að leggja til við Alþingi, að ríkisábyrgð verði veitt, „eftir því sem veð leyfa", með því skilyrði, að samkomulag náist um sölu eigna og veð. • í bréfinu segir að „ákvörðun um uppgjör eða niðurfellingu" lend- ingargjalda verði tekin, þegar í ljós komi, hvort Atlantshafsflugið heldur áfram eða ekki, hins vegar verði ógreidd lendingargjöld vegna Atlantshafsflugsins fyrir árið 1979 og fram til 30. september 1980 ekki innheimt á þessu ári eða næsta ári. • I þeim kafla bréfsins, þar sem fjallað er um þá bakábyrgð, sem ríkisstjórnin hefur heitið Flug- leiðum gegn því að fyrirtækið haldi áfram Atlantshafsfluginu, segir að þessi fjárhæð, allt að 3 milljónum dollara, „verði miðuð við þær tekjur, sem ríkissjóður hefur haft af umræddu flugi undanfarin ár og rekstrarstöðu fyrirtækisins samkvæmt uppgjöri að ári liðnu, þegar fullnægjandi upplýsingar liggja fyrir um rekstrarafkomu". Morgunblaðinu tókst ekki að fá upplýst í gær- kvöldi, hvað þessi setning þýðir. • Þá segir í þessum sama kafla: „Ef Flugleiðir telja sig hins vegar þurfa á þessari fyrirgreiðslu að halda, áður en umræddir skattar og gjöld falla í gjalddaga er ríkisstjórnin reiðubúin að útvega og ábyrgjast bráðabirgðalán í Seðlabanka íslands, sem brúað gæti þetta bil og greitt yrði með jöfnum greiðslum yfir vetrarmán- uðina." • En síðan segir: „Lánafyrir- greiðsla af þessu tagi er þó háð því skilyrði að.viðunandi skil verði á sköttum og öðrum gjöldum í ríkissjóð, enda yrði þeim varið til að greiða lánið samkvæmt fram- ansögðu." Bréf fjármálaráðherra til Flug- leiða er birt í heild á bls. 26 og þar er einnig birt í heild samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 16. sept- ember sl. þannig að samanburður fáist á upphaflegu fyrirheiti ríkis- stjórnarinnar frá miðjum sept- ember og fyrirhugaðri fram- kvæmd þess fyrirheits nú. FRAMUNDAN eru hækk- anir á þjónustu ýmissa opinberra íyrirtækja og stofnana, en þær ei>ía sem kunnuKt er að taka gildi 10 síðustu dagana fyrir útreikning vísitölu. Fram- færsluvísitala verður næst reiknuð 1. nóvember ok mun hún taka gildi 1. desember. Samkvæmt upplýsingum, I sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, liggja þegar fyrir hækk- I unarbeiðnir frá nokkrum stærstu fyrirtækjunum. Póst- ur og sími hefur beðið um 25% hækkun. Landsvirkjun hefur beðið um 19% hækkun. Raf- magnsveita Reykjavíkur hefur beðið um 5% hækkun auk þeirrar hækkunar, sem stafa myndi af hækkun heildsölu- verðs frá Landsvirkjun en I 19% hækkun Landsvirkjunar myndi t.d. hafa í för með sér I Kemur miðl- unartillagan í dag? SÁTTASEMJARI ríkisins og sáttanefnd hafa boðað viðræðu- nefndir ASÍ og VSÍ til viðræðu- fundar í dag klukkan 16 i húsakynnum sáttasemjara að Borgartúni 22. Guðlaugur Þor- valdsson ríkissáttasemjari vildi ekkert segja um það i gær. hvort sáttanefnd myndi leggja fram miðlunartillögu eða ekki. „Það hefur ekkert verið ákveðið um það,“ sagði Guðlaugur, er hann var spurður um miðlunar- tillöguna, „við erum hér enn á fundi. Það verður bara að koma í ljós. Við ætlum að fá aðilana saman og þá er að sjá, hver verður fyrstur til að hreyfa málin. Það hafa allir þessir þrír aðilar möguleika á því, ASÍ, VSÍ og sáttanefndin." 7,6% hækkun á rafmagnsverði til neytenda frá RR. Hitaveita Reykjavíkur hefur óskað eftir 37% hækkun. Þá hafa Strætis- vagnar Reykjavíkur óskað eft- ir 10% hækkun á fargjöldum. Gjaldskrárnefnd mun á næstu dögum meta hækkunar- þörf þeirra opinberu fyrir- tækja, sem óskað hafa eftir hækkun og skila áliti til ríkis- stjórnarinnar, sem hefur end- anlegt ákvörðunarvald um hækkanir. Soðning- ín hækkar ÁKVEÐIN hefur verið hækkun á fiski til neytenda í samræmi við nýákveðna hækkun á almennu fiskverði. Hækkunin er að jafnaði 12,5%. Má sem dæmi nefna að ýsuflök hækka úr 1270 í 1430 krónur kílóið en ýsuflök eru uppistaðan í söl- unni hjá fisksölum. Þorskaflinn er orð- inn 351 þúsund tonn SAMKVÆMT bráðabirgða- tölum Fiskifélags íslands höfðu veiðst um síðustu mán- aðamót 351.141 tonn af þor.->ki. í»ar af höfðu bátar aflað 188.585 tonna og togar- ar 162.564 tonna. Miðað við að þorskafli verði það sem eftir er árs sá sami og hann var í október, nóvember og desember árið 1979 munu veiðast um 400 þúsund tonn af þorski árið 1980, samkvæmt þeim upplýsingum, sem Ingólf- ur Arnarson hjá Fiskifélaginu veitti Mbl. í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.