Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 35 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF umsjón: Sighvatur Blöndahl Vetrarstarf Stjórnunarfélags Islands hafið: Duncan Neuhauser við Case Western Reserve University í Cleveland í Bandaríkjunum, David Hand, heilbrigðishag- fræðingur við King Edward’s Fund í Bretlandi og prófessor Edgar Borgenhammar við Nor- ræna heilsugæsluháskólann í Gautaborg í Svíþjóð. Á þessari námstefnu, sem ætluð er stjórnendum í heil- brigðisstofnunum, verður kynnt Bohm-Pedersen, framkvæmda- stjóri sænska fyrirtækisins Mercury Secretary Institute, en hún hefur leiðbeint á námskeið- um sem þessum víða í Evrópu. Markmið með námskeiðinu er að auka hæfni einkaritara í skipulagningu, almennri skrifstofustjórn og tímastjórn- un. Þróun erlendis sýnir að einkaritarar taka sífellt virkari þátt í daglegri stjórnun fyrir- Boðið verður upp á 33 teg- undir námskeiða í vetur Félagið verður 20 ára í byrjun næsta árs VETRARSTARF Stjórnunaríélags íslands er að heíjast um þessar mundir og af því tilefni boðaði félagið til blaðamannafundar, þar sem voru mættir Hörður Sigur- gestsson, formaður félagsins, og Þórður Sverrisson, fram- kvæmdastjóri þess. Það kom fram að innlend námskeið félagsins verða með mjög svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum árum. Að þessu sinni verða boðnar 33 tegundir námskeiða, en af þeim verða 7 haldin í fyrsta sinn í vetur. Á nýju námskeiðunum verður fjallað um framlegðarútreikn- inga í frystihúsum, gerð árs- reikninga, hraðlestur, kynnt að- ferð um kerfisbundna kostnað- aráætlun, haldið námskeið fyrir ritara, fjallað um tölvur og notkun þeirra og haldið nám- skeið í vinnuvistfræði. Enn- fremur býður félagið þá nýjung að skipuleggja námskeið um stjórnun fyrir einstök fyrir- tæki, félög eða stofnanir og eru þau námskeið sérhönnuð í hverju tilfelli. Að sögn Harðar og Þórðar voru námskeið félagsins á sl. ári vel sótt, en þá var boðið upp á 29 tegundir námskeiða um stjórnun. Mörg þeirra voru endurtekin, svo að alls voru haldin 39 námskeið og þátttak- endur á þeim voru samtals 740. Námskeið félagsins eru flest haldin í fyrirlestrarsal þess að Síðumúla 23. Dagana 9. og 10. október sl. efndi félagið til ráðstefnu, þar sem til umfjöllunar var tekið efnið: ÍSLAND ÁRIÐ 2000 og var ráðstefnan haldin að Hótel Valhöll á Þingvöllum. Þar voru flutt 17 erindi um flest svið þjóðlífsins og reynt með þeim hætti að draga upp heildar- mynd af því hvernig hér yrði umhorgs að 20 árum liðnum. Tvær námstefnur verða haldnar fram til áramóta. Á hinni fyrri verður fjallað um sölu á erlendum mörkuðum, og verður hún haldin í Súlnasaí Hótel Sögu, fimmtudaginn 30. október nk. Á námstefnunni verða flutt 10 erindi, og meðal fyrirlesara eru Daninn Erik Windfeld-Lund, en hann er framkvæmdastjóri markaðs- deildar félags iðnrekenda í Danmörku. Á námstefnunni verður fjallað um útflutning okkar Islendinga á sem breið- ustum grundvelli, og þar m.a. rætt um hlut stjórnvalda við útflutningsverslun, fjármögnun útflutningsafurða, ráðgjafa- starfsemi, söluform við útflutn- ingsverslun og framtíðarút- flutningsmöguleika okkar Is- lendinga. Sala sjávarafurða verður sérstaklega tekin til um- fjöllunar og verða flutt fjögur erindi um þann þátt. Námstefn- unni lýkur síðan með pallborðs- umræðum, þar sem rædd verður útflutningsverslun okkar Is- lendinga. Síðari námstefna félagsins fram til áramóta verður um hagræðingu í heilbrigðisstofn- unum. Á þeirri námstefnu mun flytja fyrirlestra þrír erlendir fræðimenn á sviði heilbrigðis- fræði, en þeir eru prófessor Tvílyft timburein- býlishús frá Hús- einingum á markað JmiimMsilliiillill IIÚSEININGAR hf. á Siglu- firði bjóða nú tvílyft timbur- hús í fyrsta sinn, en fyrir- tækið hefur á undanförnum árum framleitt mikið af einlyftum timhurhúsum. Um er að ræða tvær stærðir húsa, annars vegar 175 m2 og hins vegar 196 mz. Verð minna hússins, miðað við byggingar- vísitölu 490 stig, er breytilegt eftir byggingarstigi hússins, eða ailt frá 19,3 milljónum króna upp í 38,1 milljón króna frá verksmiðju. Stærri húsin, ennfremur miðuð við byggingarvísitölu 490, kosta frá 20,6 milljónum króna upp í 39,8 milljónir króna, eftir byggingarstigi húsanna. Samkvæmt upplýsingum verksmiðjunnar er hægt að reisa húsin á nokkrum dögum og unnt er að taka þau í notkun í tveimur áföngum, þar sem innrétta má hvora hæð fyrir sig. og rætt hvernig hagræða má og draga úr tilkostnaði við heil- brigðisþjónustu. A síðastliðnum vetri var lögð á það sérstök áhersla að fá erlenda aðila til að leiðbeina á námskeiðum og voru haldin fimm siík námskeið. í vetur verður þessu haldið áfram og fram til áramóta verða þrjú námskeið með erlendum fyrir- lesurum. Á hinu fyrsta verður tækja og því mikilvægt fyrir þær að tileinka sér þessi nýju störf. í samvinnu við Skýrslutækni- félag íslands mun verða efnt til námskeiðs um endurskoðun tölvukerfa. Þessi félög efndu sameiginlega til samskonar námskeiðs í nóvember á sl. ári. Leiðbeinandi á þessu námskeiði verður Kevin R. Batchelor, sem er forstöðumaður áætlanadeild- ar bandaríska endurskoðunar- fyrirtækisins Alexander Grant Frá einu námskeiða Stjórnunarfélagsins á sl. vetri. fjallað um skipulag skjalavist- unarkerfa, en þar mun Michael S. Preston, ráðgjafi hjá banda- ríska endurskoðunarfyrirtæk- inu Alexander Grant gera grein fyrir hvernig skipuleggja megi skjalavistunarkerfi, kynna nýj- ungar á sviði skjalavistunar- tækni og sýna hversu stórt hlutverk tölvur munu hafa við skjalavistun í framtíðinni. Síð- ari hluta nóvembermánaðar verður endurtekið einkaritara- námskeið sem efnt var til í febrúar á þessu ári, við góðar undirtektir. Leiðbeinandi á námskeiðunu verður Eiwor & Co. Mikill árangur varð af því námskeiði sem haldið var í fyrra, því nokkur stór tölvufyr- irtæki hér á landi hafa gert róttækar ráðstafanir við endur- skoðun tölvukerfa sinna fyrir- tækja. Innan Stjórnunarfélagsins eru starfandi klúbbar um ýmis málefni, og má þar fyrst nefna starfsmannastjóraklúbb, en hann heldur reglulega fundi þar sem tekin eru til umræðu hin ýmsu vandamál sem upp koma við starfsmannastjórn og skipu- lag starfsmannamála. Á síðastliðnu ári var stofnað- ur bókaklúbbur en hlutverk hans er að kaupa og dreifa reglulega til klúbbfélaga góðum erlendum bókum um stjórnun. Meðal nýjunga sem áformað- ar eru á þessum vetri má nefna að á næsta ári mun Stjórnunar- félagið veita viðurkenningu til þess fyrirtækis sem sendir frá sér bestu ársskýrslu það árið og er ætlunin að þetta verði ár- legur viðburður í starfi félags- ins. Tilefni þessa er m.a. það að vænta má mikilla breytinga á gerð ársskýrslna íslenskra fyrirtækja vegna tilkomu nýrra laga sem tengjast gerð árs- reikninga. Stjórnunarfélag íslands er áhugamannafélagsskapur sem opinn er öllum sem áhuga hafa á að stuðla að bættri stjórnun, hagræðingu og almennri hag- sýslu í rekstri félaga, fyrir- tækja og stofnana. Aðild að félaginu eiga ein- staklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök, og eru í dag um 250 einstaklingar félagar og um 300 fyrirtæki og stofnanir. Hinn 24. janúar á næsta ári verða 20 ár liðin frá stofnun Stjórnunarfélags íslands. Á þeim tveimur áratugum sem liðnir eru, hefur talsverð fram- þróun átt sér stað í stjórnunar- fræðslumálum hér á landi. Líta má á Stjórnunarfélagið sem brautryðjanda þessa starfs, en eins og kunnugt er, hefur félag- ið frá upphafi staðið fyrir ráðstefnum, fundum, námskeið- um og útgáfustarfsemi um stjórnunarmál. Þó að hér á landi hafi miðað allnokkuð í þá átt að auka stjórnunarþekkingu meðal stjórnenda fyrirtækja, er enn á brattann að sækja, ef íslend- ingar eiga að standa jafnfætis nágrannaþjóðum sínum á þessu sviði og geta þannig staðist samkeppni við erlenda aðila. Um allan hinn vestræna heim er lögð mikil áhersla á það innan fyrirtækja að stjórnend- ur og starfsmenn viðhaldi þekk- ingu sinni og kynni sér nýjar hugmyndir um stjórnun og rekstur. Til að fullnægja þess- ari þörf eru starfandi á hverju landi félög eða stofnanir sem hafa svipaðan starfsvettvang og Stjórnunarfélagið. En við ís- lendingar eigum að geta orðið við óskum um aukna hagræð- ingu, meiri framleiðni, bætt skipulag, fullkomnar áætlanir og betri aðbúnað á vinnustað ásamt aukinni hagkvæmni í rekstri fyrirtækja, er brýnt að efla sem mest á næstu árum fræðslu um stjórnun og rekstur fyrirtækja. _ r Fjölbreytt vetrarstarf VI: Tilsögn í greinarskrifum og í sjónvarpsframkomu VERZLUNARRÁÐ ' íslands hyggst brydda upp á ýmsum nýjungum í starfsemi sinni í vctur að sögn Árna Árnasonar, framkvæmdastjóra ráðsrns. I næstu og þarnæstu viku mun Indriði G. Þorsteinsson, rithöf- undur, halda þrjú námskeið i greinarskrifum fyrir félags- mcnn verzlunarráðsins, en það er nýlunda. Á námskeiðunum mun Indriði fjalla um þau atriði, sem gæta þarf að við framsetningu stuttra greina í blöðum og tímaritum, en þau verða á þriðjudag, fimmtu- dag og þriðjudag í næstu viku. Árni sagði að þátttaka yrði takmörkuð við 20 manns og verða námskeiðin haldin í húsa- kynnum Verzlunarráðsins við Laufásveg. Ólafur Stephensen mun í lok mánaðarins halda tvö námskeið í framkomu í sjónvarpi fyrir félaga Verzlunarráðsins. Á nám- skeiðinu verður tekið fyrir und- irbúningur undir framkomu í sjónvarpi. Æfingar verða í sjálf- stæðum flutningi efnis, panel- umræðum og að svara gagnrýn- um spurningum í viðtali. Nám- skeiðið byggir á raunverulegum æfingum, sem teknar verða upp á myndsegulband og sýndar í sjónvarpi. Arni sagði að í vetur væri ráðgert að halda nokkuð reglu- lega umræðu- og fræðslufundi í húsakynnum Verzlunarráðsins. Umræðuefnið rnurl tengjast rekstri fyrirtækja og störfum Verzlunarráðsins. Er hugmynd- in með þessum fundum að auka áhrif félagsmanna á st.örf og stefnu Verzlunarráðsins og skapa nánari tengsl félags- manna og skrifstofu ráðsins. Einnig er hugmyndin. að þessir fundir taki fyrir ef:v, om fé- lagsmönnum má að g koma í eigin rekstri. í þes mánuði verða tveir fundir Su fyrri verður í vikunni, eð.. á miðviku- dag klukkan 16.00 og . crður þar fjallað um þjónustu ustofn- ana, sá síðari verðui któber n.k. og verður þá ið um verðlagsmál. Nánar veröur sagt frá vetrarstarfi Verzlunarráðs- ins hér á síðunni síðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.