Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
19
„Land og synir44
aftur í Reykjavík
Indverjar sýna áhuga á að fá myndina
INDVERJAR hafa sýnt áhuga á
að fá kvikmyndina „Land og
syni“ til Indlands og þýða á
hindustani, og hefur ræðismaður
íslands i N-Delhi. S.B. Saran
unnið að þvi máli að undanförnu.
Land og synir verður sýnd í
Reykjavík að nýju á næstunni og
verða fyrstu sýningar á morgun í
Regnboganum.
Myndin hefur verið sýnd undan-
farna mánuði í öllum kvikmynda-
húsum og félagsheimilum á land-
inu og nú er verið að sýna
myndina í Noregi. Einnig verður
hún sýnd á skandinaviskri kvik-
myndahátíð í Museum og Modern
Art í New York á næstunni og
síðan víðar í Bandaríkjunum.
Flóamarkaður hjá KR-konum
KR-KONUR starfa enn af mikl-
um krafti til þess að efla félagið
og ekki láta þær deigan siga þvi
nú er komið að hinum stórkost-
lega flóamarkaði þeirra.
Þar verður á boðstólum margt
eigulegra hluta, bæði gamlir, nýir
og eldgamlir munir, t.d. fatnaður,
sportfatnaður, búsáhöld, skraut-
munir o.fl. o.fl.
KR-konur vilja hvetja fólk til að
koma við í KR-heimilinu á sunnu-
daginn og líta á úrvalið. Það getur
orðið skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna að taka þátt í mark-
aðsstemmningunni og „prúttinu".
Flóamarkaðurinn verður á
sunnudaginn, 12. október nk. kl. 1
e.h. í KR-heimilinu við Frosta-
skjól. Fréttatilkynning
Magnús L.
Sveinsson
formaður VR:
f'
J
lífeyrismálum þeirra, eftir
því hvort þeir hafa skilað
sínu dagsverki hjá ríkinu eða
á almennum vinnumarkaði.
í ríkisstjórninni eru menn,
sem telja sig sérstaka boð-
bera jafnréttis meðal þegn-
anna. Ekki verður þó sagt
með sanni, að þeir hafi sýnt
það í verki með samningun-
um í ágúst sl., þar sem að
með þeim stórjókst það mis-
rétti, sem var þó ærið fyrir í
lífeyrismálum.
En þeir hafa enn mögu-
leika á að bæta hér um. Þeir
hafa valdið, sem þarf til að
standa við fyrirheitin um
Misréttið í lífeyrismál-
um aldraðra er siðleysi
Einn þýðingarmikill liður í
lausn yfirstandandi kjara-
deilu snýr að sjálfri ríkis-
stjórninni, þ.e. sú sjálfsagða
krafa, að launþegar innan
ASÍ búi eigi við lakari kjör
varðandi lífeyrisréttindi er
ríkisvaldið samdi um við sína
starfsmenn í ágúst sl.
Þau lífeyrisréttindi, sem
ríkisvaldið samdi um við sína
starfsmenn verða tryggð
m.a. með skattlagningu á
almenna launþega innan
ASÍ. Það er því ekki nema
eðlilegt, að þeir geri þá
lágmarkskröfu, að þeir sjálf-
ir búi eigi við lakari kjör að
þessu leyti.
Hvergi verður óréttlætið
ógeðfelldara en þegar öldr-
uðum er mismunað eins og
nú á sér stað í lífeyrismálum.
Það er beinlínis siðleysi, að
ætla öldruðum að búa við
það misrétti, sem nú ríkir í
jafnréttið. Nú er ekki við
aðra að sakast, sem ef til vill
hafa talað minna um jafn-
rétti.
Hvorki aldraðir né aðrir
lifa af loforðunum einum
saman. Launþegar innan
ASÍ bíða eftir að sjá verkin
tala í þessu mikla hagsmuna-
og réttlætismáli við lausn
yfirstandandi kjaradeilu,
sem þegar hefur staðið allt
of lengi.
Carter á í vök að verjast
Frá önnu Bjarnadóttur. írétta-
ritara Mbl. í Bandarikjunum.
CARTER
Forsetakosningabaráttan í
Bandaríkjunum hefur til
þessa ekki gengið eins og
Jimmy Carter forseti og
stuðningsmenn hans hefðu
helzt kosið. Tæpar fjórar
vikur eru til kosninga og enn
virðist Ronald Reagan, fram-
bjóðandi Repúblikanaflokks-
ins Sigurstranglegastur.
Hann og Carter hafa svipað
fylgi í skoðanakönnunum,
sem ná til landsins í heild, en
Reagan stendur betur að
vígi, þegar litið er á sigur-
möguleika hans í einstökum
ríkjum. John Anderson, sem
býður sig fram sjálfstætt,
kemur langt á hæla fram-
bjóðenda stóru flokkanna í
skoðanakönnunum.
Forsetakosningar í Banda-
ríkjunum eru í framkvæmd
eins og kosningar í 50 sjálf-
stæðum ríkjum. Kjörfundur
kýs endanlega forseta lands-
ins, en 538 fulltrúar eiga sæti
á honum. Fólksfjöldi ríkj-
anna ákvarðar fulltrúafjölda
þeirra á kjörfundi. Allir full-
trúar einstakra ríkja greiða
sigurvegaranum í forseta-
kosningunum í þeirra ríki
atkvæði sitt á kjörfundinum.
Þess vegna er það mjög
mikilvægt fyrir frambjóð-
endurnar að vinna í fjöl-
mennustu ríkjunum.
Dagblöðin Washington
Post og New York Times
birtu um helgina niðurstöður
kannana sinna á sigurmögu-
leikum frambjóðendanna í
ríkjunum 50 og í District of
Columbia eða Washington,
höfuðborg landsins. Sam-
kvæmt könnun Washington
Post hefur Reagan forystu í
28 ríkjum og þar með 283
atkvæði á kjörfundi, en 270
atkvæða er þörf til að vinna
kosningarnar. Carter hefur
forystu í 14 ríkjum og Dist-
rict of Columbia og 151
atkvæði. Úrslit í 8 ríkjum,
sem búa yfir 104 atkvæðum,
voru óljós. New York Times
komst í könnun sinni að
þeirri niðurstöðu, að Reagan
hlyti meirihluta atkvæða í 29
ríkjum og 314 atkvæði á
kjörfundi, en Carter í 12
ríkjum og District of Colum-
bia og 136 atkvæði. Úrslit
voru óljós í 9 ríkjum með
samtals 88 atkvæði.
Kannanir beggja blaðanna
benda til, að Carter þurfi að
vinna verulega á meðal kjós-
enda, ef hann á að halda
forsetaembættinu. Sú bar-
áttuaðferð hans, sem hann
beitti 1976 og í forkosninga-
baráttunni gegn Edward
Kennedy í ár, að gera and-
stæðing sinn að kosninga-
máli í stað málefna, hefur
snúizt í höndunum á honum í
baráttunni gegn Reagan.
Talið var í upphafi, að Carter
gæti hæglega dregið veru-
lega úr fylgi Reagans með
því að minna á háan aldur
hans (Reagan er 69 ára),
óvinsælar yfirlýsingar og
rangfærslur í ræðum og
mjög íhaldssamar skoðanir.
Vitað var, að hann gæti ekki
notað sér reynsluleysi Reag-
ans til hins ítrasta, þar sem
hann sjálfur bjó ekki yfir
mikilli reynslu fyrir fjórum
árum, þegar hann var kjör-
inn, en hann státar sig þess í
stað nú af reynslunni, sem
hann hefur öðlast á þessum
fjórum árum.
Carter hefur látið að því
liggja í ræðum, að Reagan sé
kynþáttahatari, ófriðarsinni
og nú síðast, að hann muni
etja svörtum á móti hvítum,
Gyðingum á móti kristnum,
Norðurríkjunum á móti Suð-
urríkjunum og íbúum dreif-
býlis á móti borgarbúum.
Baráttuaðferð Carters þykir
kvikindisleg og hefur leitt til
harðrar gagnrýni á hann í
fjölmiðlum. Þetta hefur
komið Reagan vel. Hann
tekur árásum Carters með
hryggð í augum, en jafnað-
argeði, og segir Carter ekki
samboðinn embætti sínu, og
hann eigi að biðja þjóðina
afsökunar á framferði sínu
frekar en honum sjálfum.
Framboð Andersons hefur
ekki náð hylli mikils hluta
almennings. Hann mun þó
verða í framboði í öllum
ríkjunum. Loforð kosninga-
stjórnar um fjárstyrk úr
ríkissjóði, ef hann hlýtur 5%
atkvæða í kosningunum, er
talin ein ástæða hans til að
halda vonlausri baráttunni
áfram. Líklegt þykir, að
hann dragi mest fylgi frá
Carter og geti kostað hann
meirihluta í mikilvægum
ríkjum og þar með á kjör-
fundi.