Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 2
r
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
Lagt á hrattann.
LjÓNmynd Mbl. Kristján.
Hver dagur án samninga:
SAMKVÆMT upplýsingum
Morgunblaðsins eru áætlaðar
launatekjur launþega innan
Alþýðusambands íslands um
400 miiljarðar á ári. miðað
við kauplag í septembermán-
uði 1980. Sé gert ráð fyrir að
þær kjarabætur, sem ASÍ og
VSÍ eru að semja um séu að
meðaitali um 7%, þar með
taiin 14 þúsund króna hækk-
un launataxta á mánuði, læt-
ur nærri að tap launþeganna
allra sé um 100 milljónir á
dag.
Samningaviðræður hafa nú leg-
ið niðri í viku, þar sem aðilar hafa
ekki talazt við. Níu mánuðir og 10
dagar eru frá því er samningar
voru lausir. Enn er ekki fyrir-
sjáanlegt, hvenær samningar
verða undirritaðir, en það mun
vera stefna VSÍ, að þeir gildi frá
undirskriftardegi. Miðað við þessa
400 milljarða, sem áður eru nefnd-
ir, er 7% kjarabót 28 milljarðar
króna á ári. Sé deilt í þá' upphæð
með vikufjölda ársins, er tap
launþeganna á drætti samninga-
viðræðna á viku um 500 til 550
milljónir króna. Á dag er því tapið
eins og áður sagði um 100 milljón-
ir króna.
Unnið að mótun fískveiðistefnu til næstu ára:
Kvótakerfi á næstu vertíð?
MIKIL vinna er um þessar mund-
ir lögð i mótun fiskveiðistefnu
fyrir næstu ár i sjávarútvegs-
ráðuneytinu. að þvi er Steingrím-
ur Hermannsson sjávarútvegs-
ráðherra tjáði Mbl.
Steingrímur sagði að unnið væri
að mismunandi hugmyndum og
þær útfærðar, t.d. væri unnið að
því að endurbæta núverandi
stefnu um aflatakmarkanir, unnið
væri að kvótakerfi og einnig að
hugmyndum um skiptingu aflans
á löndunarsvæði og stjórn innan
löndunarsvæða. Steingrímur sagði
að ekki væri hægt að segja um það
núna hvaða leið yrði valin. Hann
kvaðst hafa átt fund með þing-
mönnum, fyrrverandi sjávarút-
vegsráðherrum og fleiri aðilum og
Iscargo fær
leyfi til far-
þegaflutninga
FLUGRÁÐ mælti með því á fundi
sinum I gærdag. að flugfélagið
ísca'go fengi leyfi til farþegaflutn
inga á flugleiðinni frá íslandi til
liollands og til baka, en félagið
hefur haft leyfi til fraktflutninga á
þessari flugleið undanfarin misseri.
Leifur Magnússon, einn flugráðs-
manna, sagði í samtali við Mbl., að
flugráð mælti með þessu, að því
tilskiidu, að viðhald véla félagsins
færi fram hér á landi að því marki
sem mögulegt og hagkvæmt væri.
í þessari viku og þeirri næstu
væru ráðgerðir fundir með hags-
munaaðilum.
Sjávarútvegsráðherra sagði að
stefnt yrði að því að ný fiskveiði-
stefna lægi fyrir vel fyrir áramót
og hún myndi ekki aðeins ná til
ársins 1981 heldur til lengri tíma.
Fyrir lægju frá Hafrannsókna-
stofnun hugmyndir um þróun
þorskstofnsins á næstu árum mið-
að við aflamagn á hverju ári og á
þeim yrði ákvörðunartaka byggð.
Stefnan yrði endurskoðuð með
tilliti til breytinga í náttúrunni,
þróun markaðsmála o.s.frv.
Stal níu millj.
úr báti sínum
SKIPVERJI á Sporði RE 16 var
nýverið dæmdur í 500 sterlings-
punda sekt fyrir að stela 7
þúsund pundum í ávisun og
peningum um borð í bát sinum i
Fleetwood í Bretlandi, er bátur-
inn var þar í söluferð í haust.
Þegar báturinn var búinn að
landa aflanum og halda átti heim
Kostar ASÍ-félaga
100 milljónir króna
Startgjald
leigubíla
í 1750 kr.
EINS og fram hefur komið í
Mbl. hefur verið heimiluð
10,5% hækkun á töxtum
leigubíla og 18,4% hækkun á
farmiðum sérleyfisbifreiða.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, er svokallað startgjald
leigubíla eftir hækkunina
1750 krónur. Kílómetragjald í
dagvinnu er 219,91 krónur og
sama gjald í næturvinnu
329,87 krónur. Biðgjald er
6807 krónur á klukkutíma.
Eftir hækkunina kostar far-
miðinn frá Reykjavík til Ak-
ureyrar 18.300 krónur með
rútu, farmiði til Stykkishólms
kostar 8.700 krónur og farmiði
frá Reykjavík til Selfoss kost-
ar 2.400 krónur.
til íslands mætti umræddur mað-
ur ekki til skips. Lét báturinn úr
höfn án mannsins. Fljótlega upp-
götvaðist að horfin var 5 þúsund
punda ávísun og 2 þúsund pund í
peningum, en það eru jafnvirði
tæplega 9 milljóna íslenzkra
króna. Bátnum var snúið við til
Fleetwood og þjófnaðurinn kærð-
ur. Böndin bárust að skipverjan-
um, sem ekki mætti til skips.
Hann náðist og var hann með
ávísunina í fórum sínum en pen-
ingunum hafði hann eytt að mestu
leyti. Enskur dómstóll dæmdi
manninn í 500 punda sekt, sem
samsvarar um 640 þúsund íslenzk-
um krónum og 60 daga varðhald
yrði sektin ekki greidd.
Þegar skipið kom til Islands var
málið kært til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Hún getur lítið gert
í málinu, þar eð maðurinn hefur
þegar hlotið dóm fyrir afbrotið í
Bretlandi.
Sendiherra
veitt lausn
ÁRNA Tryggvasyni sendiherra
hefur verið veitt lausn frá störf-
um i utanrikisþjónustunni frá 1.
október sl. að telja, að eigin ósk.
Árni nálgast hámarksaldur emb-
ættismanna, varð 69 ára gamall i
ágúst sl.
Arnarflug og Flug-
félag Norðurlands
fljúga á Ólafsfjörð
FLUGRÁÐ fjallaði um
umsóknir Arnarflugs og
Flugfélags Norðurlands
um flugrekstur á flugleið-
unum Akureyri — Olafs-
fjörður og Reykjavík —
Olafsfjörður.
Leifur Magnússon, flug-
ráðsmaður, sagði, að flug-
ráð hefði verið sammála
um að mæla með því, að
Arnarflug fengi flugrekstr-
arleyfi á flugleiðinni
Reykjavík — Ólafsfjörður
og Flugfélag Norðurlands á
leiðinni Akureyri — Ólafs-
fjörður.
Ferðalög ráðherra til útlanda:
Kostnaður tæpar 14
milljónir á þessu ári
FERÐALÖG íslenskra ráðherra
til útlanda á þessu ári haía
kostað tæplega 14 milljónir
króna, samkvæmt upplýsingum
er Morgunblaðið fékk í gær hjá
Þorsteini Geirssyni, skrifstofu-
stjóra fjármálaráðuneytisins, í
gær. Upphæðin, 13.885.690, er
fyrir fargjöld. dagpeninga.
risnu og útlagðan kostnað á
ferðum ráðherra erlendis, auk
þess sem hótelkostnaður er inni-
falinn f upphæðinni.
Að sögn Þorsteins Geirssonar
er þessi upphæð miðuð við lok
ágústmánaðar, 31. ágúst síðast-
liðinn, frá ársbyrjun. Kostnað
þennan kvað hann vera til kom-
inn eftir stjórnarskiptin, hinn 8.
febrúar síðastliðinn, enda hefðu
Dagpeningar ráð-
herra 89.970 kr.
ráðherrar fyrri ríkisstjórnar ekki
farið utan á þessu ári, að því er
hann myndi best.
Þorsteinn kvaðst ekki hafa
tiltækt hvernig þessi kostnaður
skiptist niður í ferðakostnað,
dagpeninga eða önnur útgjöld, og
hann kvaðst heldur ekki hafa
upplýsingar tiltækar um hve
marga daga ráðherrar hafa verið
í útlöndum á þessu ári. — Upp-
lýsingar um útgjöld hvers og eins
ráðherra kvað Þorsteinn fjár-
málaráðuneytið ekki gefa upp,
aðeins yrði upplýst hver þessi
útgjöld væru í heild.
Almenna dagpeninga til opin-
berra starfsmanna á ferðalögum
í útlöndum kvað Þorsteinn nú
vera 120 bandaríska dollara, ef
ferðast væri til Ameríku, og 230
vestur-þýsk mörk ef ferðast væri
um Evrópu. Þessi upphæð á þó
ekki við um ráðherra, þar sem
þeir fá greiddan hótelkostnað
utan við þá upphæð er þeir fá í
dagpeninga. — Dagpeningar ráð-
herra eru hins vegar 20% hærri
en dagpeningar annarra opin-
berra embættismanna. Á ferða-
lögum til Ameríku fá ráðherrar
því 84.776 krónur í dagpeninga,
auk þess sem símahótelkostnaður
er greiddur, og fari þeir til
Evrópu, er upphæðin 89.970 krón-
ur á dag.
Staða inn-
kaupajöfn-
unarreikn-
ings batnar
STAÐA innkaupajöfnunar-
reiknings olíuvara hefur
batnað talsvert að undan-
förnu, samkvæmt upplýsing-
um Georgs Ólafssonar verð-
lagsstjóra.
Staða reikningsins er um
þessar mundir neikvæð um 6—
700 milljónir króna en var
neikvæð um 1400 milljónir fyrr
á þessu ári. Samkvæmt upplýs-
ingum verðlagsstjóra er með
nýlegri verðlagningu á olíuvör-
um stefnt að því, að staða
reikningsins komist á núll á
næstu 6 mánuðum. Skuld inn-
kaupajöfnunarreiknings verða
olíufélögin að fjármagna með
lánum hjá bankakerfinu.
o
INNLENT