Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 MORö-JKi-.'v’ KAeriNU ' ! t1' .t n «1 ' Þú hcfur alveg nón í höndunum, svo ég slepp við að þú farir að Þyi þannig farið, að engin drösla mér hér yfir þröskuldinn, væni minn. eiginkvenna þinna skilur þig? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Hluti af æfingum danska landsliðsins fyrir Olympíumótið, sem nú er að ljúka í Hollandi, var þátttaka í mjög góðu móti í franska bænum Deauville. Danska liðið sigraði í mótinu þó andstæð- ingarnir væru ekki af lakara taginu, Frakkland, Ítalía, Holland, Belgía og Bandaríkin. Spilið í dag kom þá fyrir í leik Dananna við Bandaríkjamennina. Vestur gaf, allir á hættu. Norður S. 1083 H. K10753 T. 97 L. Á83 Vestur Austur S. K54 S. DG972 H. D6 H. 82 T. D1084 T. Á62 L. DG42 L. 1076 COSPER Ef nú pabbi og mamma spyrja mig, hvað ég sjái í þér. — Ilverju á ég þá að svara? Öfugmæli R.J.R. skrifar: „Kæri Velvakandi: I fréttum sjónvarpsins sl. laug- ardagskvöld var rætt um breyt- ingar þær, sem nýlega voru gerðar á norsku stjórninni. Var það fréttamaður sjónvarpsins í Nor- egi, Ingólfur Margeirsson, fyrrv. blaðamaður á Þjóðviljanum, sem flutti yfirlit um þau mál. Tók Ingólfur svo til orða, að nýju ráðherrarnir í stjórninni væru allir úr „hinum afturhaldssamari armi Verkamannaflokksins". Nú langar mig, Velvakandi góður, til að biðja þig um að koma þeirri fyrirspurn á framfæri við Emil Björnsson fréttastjóra sjónvarps- ins, hvort hann telji slíkt orðaiag geta samrýmst hlutleysisreglum stofnunarinnar. • „Afturhalds- menn“ Orðalag, sem þetta er auðvit- að viðurkennt í Þjóðviljanum, því að þar eru allir kallaðir „aftur- haldsmenn", sen\ ekki játa trú á rykfallnar kenningar Karls Marx. En spurningin er, hvort sjónvarp- ið hafi tekið upp sömu stefnu. Ef svo er ekki, virðist full þörf á því að Ingólfur Margeirsson sé beðinn um að óvirða ekki sjónvarpið með þeim öfugmælum^ sem honum hafa orðið töm í munni við dvöl sína á Þjóðviljanum. Með kveðju til þín og séra Emils.“ • Svar til „Húsmóður“ J.H. skrifar: „í Velvakanda í gær (8. okt.) er birt bréf frá Húsmóður“, þar sem hún fjallar um þættina um Staiín og umræðuþáttinn, sem sjónvarpið sýndi ekki alls fyrir löngu. I þessari grein gefur hún í skyn að Vesturveldin hafi farið með sigur af hólmi í síðari heims- styrjöldinni á eigin spýtur. Þetta er rangt, og ég held að flestir sem eitthvert vit hafa á mannkynssögu hafi gert sér ljóst að stríðið hefði staðið mun lengur og Bretar og Bandaríkjamenn farið mun verr út úr því, ef Sovétríkin hefðu ekki barist. Hvaða herir voru það sem héldu hundruðum þúsunda þýskra hermanna á austurvígstöðvunum allt frá árinu 1941 til stríðsloka? éEg efast um að innrás banda- manna á Italiu 1943 og innrásin í Frakkland 1944 hefðu verið fram- kvæmanlegar ef allur þýski her- inn hefði verið til varnar á vesturvígstöðvunum. Suður S. Á6 H. ÁG94 T. KG53 L. K93 Á báðum borðum opnaði suður á 1 grandi og varð hann síðan sagnhafi í 4 hjörtum. Og út kom laufdrottning. Þegar Danirnir Möller/Werde- lin, sem hingað komu á síðasta vetri, voru með spil austurs og vesturs tók sagnhafi í blindum með ás og svínaði næst tígulgosa. Vestur spilaði aftur laufi, tía og kóngur. Sagnhafi tók þá tvo slagi á tromp áður en hann spilaði aftur tigli frá blindum. Austur tók á ásinn, vestur fékk næsta slag á laufgosa og eftir þetta gat vörnin beðið róleg eftir slagi á spaða. Einn niður. Á hinu borðinu var Knud Aage Boesgaard sagnhafi en hann spil- aði hér á Norðurlandamótinu 1977. Hann tók útspilið heima með kóng. Og eftir að hafa tekið næst á tvo hæstu í trompinu spilaði hann tvisvar spaða. Austur fékk slaginn og hann kom ekki auga á vörnina að skipta í lágan tígul. Spilaði heldur laufi á blindan. Suður trompaði þá þriðja spaða blinds en næsta slag fékk austur á lauftíuna. Þá loks spilaði hann lágum tígli en Daninn vissi þá nóg um spilin, lét kónginn, fékk slag- inn og vann sitt spil. Þegar spaðakóngurinn kom vissi suður um 8 punkta hjá vestri og með tigulásinn að auki hefði hann eflaust opnað. Brldge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Bridgefélag Hafnarfjarðar Önnur umferð í aðaltvímenn- ingskeppni BH var spiluð 6. okt. Spilað er í tveimur 14 para riðlum. Efstu pör urðu: A-riðill: Albert — Sigurður - 198 Björn — Kristófer 185 Björn M. — Ólafur V. 180 Bjarni — Magnús 171 B-riðill: Guðbrandur — Jón 210 Ólafur — Sverrir 171 Friðþjófur — Halldór 170 Ásgeir — Ægir 169 Meðalskor 156 Staðan að ioknum tveimur umferðum er þá þannig: Guðbrandur — Jón 407 Albert — Sigurður 404 Björn — Kristófer 356 Bjarni — Magnús 345 Ólafur — Sigurður 334 Friðþjófur — Halldór 333 Dröfn — Einar 331 Jón — Þorsteinn 331 Meðalskor 312 Næstkomandi mánudag 13. okt. hefst þriðja umferð. Spilað er í Gaflinum við Reykjanes- braut og hefst spilamennskan stundvislega klukkan hálfátta. Hinn frábæri keppnisstjóri Vilhjálmur Sigurðsson mun mæta á mánudaginn, svo og aðra mánudaga i vetur og býður Bridgefélag HafnarfjariV ar hann hjartanlega velkominn. Bridgefélag Akureyrar Fyrstu umferðinni af þremur í Thule-tvímenningskeppninni er lokið. Spilað er í þremur 12 para riðium sem er ágæt þátttaka. Staða efstu para: Stefán Sveinbjörnsson — Sigurður Búason 148 Gunnar Sólnes — Ragnar Steinbergsson 145 Ólafur Ágústsson — Grettir Frímannsson 144 Júlíus Thorarensen — Sveinn Sigurgeirsson 141 Arnald Reykdal — Gylfi Pálsson 134 Stefán Vilhjálmsson — Guðmundur V. Gunnlaugsson 131 Meðalskor 110 Spilað er á þriðjudögum í Félagsborg. Keppnisstjóri er hinn sami og undanfarin ár, Albert Sigurðsson. Þess má geta að lokum að ákveðið hefir verið að í lokaum- ferðinni spili 12 efstu pörin til úrslita í keppninni. Bridgefélagið Ásarnir Kópavogi Tvo undanfarna mánudaga hafa aðeins 6 pör mætt til leiks hjá félaginu og virðist stjórninni ekki vera grundvöllur fyrir eins kvölds keppnum yfir vetrarmán- uðina. Hefur hún því ákveðið að hefja þriggja kvölda sveita- keppni með nýju Monrad-kerfi, sem notað var með góðum ár- angri í móti í Júgóslavíu í sumar. Fjórir ungir Islendingar kepptu þar og létu mjög vel af þessu keppnisformi. Félagar og aðrir eru eindregið hvattir til að mæta næsta mánu- dag og bjarga félaginu. Keppni hefst kl. 19.30, en skráningu lýkur kl. 19.25. Keppnisstjóri verður Jón Bald- ursson. Spilað er í Félagsheimili Kópavogs (aðkeyrsla að austan). Stjórn Ásanna Bridgefélag kvenna Þriggja kvölda einmennings- keppni hjá Bridgefélagi kvenna er nú lokið. Staða efstu kvenna er sem hér segir: Kolbrún Indriðadóttir 307 Kristín Þórðardóttir 306 Anna Lúðvíksdóttir 306 Nanna Ágústsdóttir 305 Petrína Færseth 305 Dóra Friðleifsdóttir 303 Charlotta Steinþórsd. 300 Sigríður Ottósdóttir 298 Rósa Þorsteinsdóttir 396 Sigríður Jónsdóttir 296 Næsta keppni félagsins er tvímenningskeppni með baró- meter fyrirkomulagi. Þeir sem yildu taka þátt í keppninni en hafa ekki tilkynnt um þátttöku, hafi samband við formann fé- lagsins, Ingunni Hoffmann í síma 17987. Bridgeklúbbur hjóna Hafinn er aðaltvímenningur félagsins. Spilað er í tveimur riðlum og er staða efstu para þessi eftir eina umferð af þrem- ur: A-riðiil: Guðjón — Dóra 255 Jóhann — Sigríður 231 Þorleifur — Guðrún 226 Gunnar — Erla 224 B-riðill: Björn — Valgerður 255 Júlíus — Gróa 240 Ragnar — Guðrún 235 Hálfdán - Erla 235 Meðalskor 210 Munið að mæta stundvislega kl. 19.45. Spilað er i húsi Rafveitunnar v/Elliðaár á þriðjudaginn kemur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.