Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 Tréð lyftir veggnum með rótunum Þegar ljóst er að sænska akademían hefur veitt Czeslaw Milosz Nóbclsverðlaun verður ekki komist hjá að rifja upp ýmislegt sem varðar pólskar bókmenntir. Höfuðskáld pólskra nútíma- bókmennta, Witold Combrowicz, lést 1969 í Frakklandi. Hann hlaut ekki Nóbelsverðlaun. Samt hafði hann átt sinn þátt í að breyta hugmyndum manna um leikhús, m.a. með verkum eins og Yvonne Búrgúndarprinsessu og Óperettu. Auk þess skrifaði Combrowicz dagbækur sem komið hafa út í mörgum bindum og eru vitnisburður um óþol mikils anda. Sænska akademían mundi ekki eftir Cambrowicz, eða lét sem hann væri ekki til. Það er aðeins akademíunni til hneisu en skaðar ekki minningu skáldsins. Þegar akademían vill heiðra pólskar bókmenntir árið 1980 gerir hún það með því að beina augum heimsins að manni sem á erfiðum tímum var í þjónustu pólskra valdhafa, leppa Sovét- ríkjanna, en sneri sér svo að því að gagnrýna stalínisma þegar slík gagnrýni var orðin sjálf- sagður hlutur. Menn hafa gert sér vonir um að sænska akademían myndi með fjölmiðlaáhrifum sínum gera fólki ljóst að í Póllandi eru merk skáld sem hafa þorað að gagnrýna samfélagið og um leið haldið menningarlegri reisn sinni. Milosz hefur mælt varnað- arorð sín í skjóli franskrar intelligensíu og síðar undir verndarvæng áhrifamanna í Bandaríkjunum. Hefði sænska akademían raunverulega viljað sýna pólsk- um bókmenntum virðingu sína hefði hún geta valið milli tveggja höfunda eða verðlaunað þá í sameiningu. Þessir höfundar eru Tadeusz Rózewicz (f. 1921) og Zbigniew Herbert (f. 1924). Rózewicz hefur ort um stríðs- kynslóðina sem átti enga raunverulega æsku og þau einu fjöll sem fátæklingarnir gátu dáðst að: landslag mánans, gull- in fjöll. Skorinorð ljóðlist hans er til marks um endurreisn pólskrar ljóðlistar á sjötta ára- tugnum. Herbert orti ljóðið Bróðir minn um manninn sem stríðið hefur svipt viti og segir undarlegar sögur með blindum fingrum táranna. Hann yrkir eins og Rózewicz um þá sem eiga sér enga æsku, t.d. í prósaljóðinu Veggurinn sem kannski rúmar dálitla von: „Við stöndum undir vegg. Sviptir æsku okkar eins og hinir dauðadæmdu skyrtun- um. Bíðum. Aður en fitug kúlan festist í hálsinum líða tíu, tuttugu ár. Veggurinn er hár og stöðugur. Bak við Bðkmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON vegginn er tré og stjarna. Tréð reynir að lyfta veggnum með rótunum. Stjarnan nagar steininn eins og rotta. Eftir hundrað, tvö hundruð ár mun þegar vera sjáanlegur lítill Kluggi." Þannig orti Herbert urn Pól- land og sósíalismann. Hann hef- ur líka samið leikrit sem í absúrdu miskunnarleysi sínu minna á leikrit Gombrowicz. Nú skyldi enginn efast um það að Czeslaw Milosz er gott skáld. Sjálfur Gombrowicz eyðir í hann töluverðu púðri í dagbókum sín- um. Hann hrífst af skrifum hans um andstæður austur- og vestur evrópskrar menningar og mik- ilvægi þess að vilja lýsa raun- veruleikanum. Það er staðreynd að Milosz er einn þeirra rit- gerðahöfunda sem gera ritgerð- ina að list. Ætli sænska aka- demían hafi ekki fyrst og fremst verðlaunað menningarmanninn Milosz? Jafningjar hans í skáld- sagnagerð eru margir og fleiri en einn geta ort eins vel og hann þótt ljóðlistin hafi verið honum mikið metnaðarmál alla tíð. Milosz er snjall gagnrýnandi. Bækur hans (m.a. The Captive Mind) og greinar sem við rek- umst svo oft á í virtum tímarit- um og blöðum, sýna okkur hvers skynsemin er megnug, einkum ef hún mótast af innsæi skáldsins eins og hjá Milosz. Þessi pólski rithöfundur, fæddur í Litháen, er dæmigerður fyrir hina mörgu austur-evrópsku útlagahöfunda. Það er í rauninni skömm að við skulum ekki þekkja betur en raun ber vitni helstu bækur hans og ritgerðir. Eftir að Milosz hafði runnið sitt skeið sem virtur Pólverji í franska menningarheiminum, opinber fulltrúi Póllands í París, tóku Bandaríkin við honum. Þar gerðist hann háskólakennari og Szeslaw Milosz sneri sér að fræðum skáldskapar meðan félagar hans háðu sína baráttu heima fyrir. Milosz getur varla talist full- trúi pólskra andófsmanna sem nú reyna að siðbæta land sitt. Það hefur dugað skáldum vel til frama að vera landflótta frá kommúnistalöndunum. En spurningin er sú hvort þeir eru af því meiri skáld. Czeslaw Milosz er fæddur 30. júní 1911. Hann kennir nú slavn- eskar bókmenntir og tungumál við háskólann í Berkeley í Kali- forníu. Meðal verðlauna sem hann hefur fengið eru viður- kenning pólska Rithöfundasam- bandsins 1934 (athugið ártalið) og Evrópsku bókmenntaverð- launin 1953 (veitt í Genf). Al- þjóðlegu Neustadt verðlaunin hlaut hann 1978. Þekktasta skáldsaga hans er Trzy Zimy (þrír vetur) 1936. Hann leggur sjálfur mesta áherslu á ljóða- gerð sína, en ritgerðasöfn hans hafa einkum vakið á honum athygli. Fylgist fólk með banda- rískum bókmenntatímaritum- og blöðum verður þeim varla flett án þess að rekast á nafn skáldsins. Það er ómaksins vert að lesa ritgerðir hans, einkum með það í huga að skilja land- flótta skáld austur evrópskrar menningarhefðar sem hefur löngum reynst hafa alþjóðlegar tilhneigingar. í Ocalenie (frelsun 1945) yrkir Milosz um píslarvotta úr röðum Pólverja og gyðinga. Grimmd stríðsins setur svip sinn á Frels- un og skáldið lofar hið hvers- dagslega líf mannsins á einföldu ljóðmáli. Höfuðverk Milosz í ljóðlist er talið Swiatlo dzienne (Dagsbirta 1953). Sænska akademían hefur að þessu sinni viljað vekja athygli á landflótta skáldum frá Austur- Evrópu. Þess gerist varla þörf eins fyrirferðarmikil og þau eru í allri bókmenntaumræðu og ekki síst pólitískum bollalegg- ingum manna á Vesturlöndum. Menn eins og Czeslaw Milosz skrifa eins og heimsstyrjöldinni sé ekki lokið og þriðja heims- styrjöldin bíði þeirra í fallandi haustlaufi fyrir utan glugga skáldgyðjunnar. Bandalag kvenna með ráð- stefnu um neytendamál BANDALAG kvenna í Reykjavík efnir til ráðstefnu um neytenda- mál fyrir aðildarfélög sin á Hótel Loftleiðum næstkomandi laugar- dag. Hefst hún klukkan 9 að morgni og lýkur um kl. 4 síðdeg- is. Mörg erindi verða flutt, fyrir- spurnum svarað og umræður í hópum. Vigdís Jónsdóttir skóla- stjóri flytur erindið: Heimilis- störfin fyrr og nú, Sigríður Krist- jánsdóttir, ráðunautur KÍ: Leið- beiningastöð húsmæðra, Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna: Verzlun- in fyrr og nú, Ólafur Davíðsson, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofn- un: Vægi helstu nauðsynjavara í innflutningi, Ólafur Ottósson, framkvæmdastjóri hjá Álafossi: Verðmyndunarferill ullarvöru, Sigríður Haraldsdóttir, deildar- stjóri: Ending heimilistækja á íslandi. Kl. 14.15 skila umræðu- hópar áliti, sem síðan verða rædd. Umræðuefni hópanna er: 1. Hvers virði eru heimilisstörfin og áhrif þeirra á afkomu heimila og þjóðarbús. 2. Hvaða þættir hafa áhrif á neysluvenjur fólks? 3. Hvaða áhrif hefur verslunin á afkomu heimila og þjóðarbús. 4. Hvaða áhrif hefur neyslan á afkomu heimila og þjóðarbús. 5. Hvaða hlutverkum gegnir fram- leiðsla okkar á innlendum mark- aði? Forgjafarskákmót- unum haldið áfram NÆSTKOMANDI mánudags- kvöld kl. 20 verður í Félagsstofn- un stúdenta haldið áfram með forgjafarskákmótin. Fyrsta forgjafarskákmótið, sem var haldið síðastliðið mánudags- kvöld, tókst vel. 36 keppendur mættu til leiks og deildu fimm keppendur með sér fyrsta sætinu með fimm vinninga af sex mögu- legum og skiptu á milli sín verðlaununum sem voru 50.000 kr. Þetta voru þeir Jónas P. Erlings- son, Jóhannes G. Jónsson, Róbert Harðarson, Dan Hansson og Birg- ir Guðmundsson. Sá síðastnefndi hefur 1365 stig, en hinir hafa 800—900 fleiri skákstig. Birgir naut þeirra forréttinda, vegna lágra stiga, að fá forgjöf á tíma. Gegn þeim stigahæstu hafði hann 28 mín. til umhugsunar þegar þeir höfðu aðeins 2 mín. Þetta fyrir- komulag gerir það að verkum, að allir eiga möguleika á að vinna mótið og hirða verðlaunaféð, ekki einungis þeir bestu. Skákáhugamenn eru hvattir til að mæta næstkomandi mánudags- kvöld á sama stað og sama tíma og hafa meðferðis tafl og klukku. Mót þetta verður með sama sniði næstu mánudagskvöld, en sú breyting verður á stigaútreikn- ingi, að tekin verða upp sérstök hraðskákstig, þar sem frammi- staða keppenda í forgjafarskák- mótunum verða tekin til stigaút- reiknings. Þeir, sem engin stig hafa, reiknast með 1500 stig í byrjun. Skákmenn, munið forgjafar- skákmótin á mánudagskvöldum í Félagsstofnun stúdenta. Þátttöku- gjald kr. 1500 - fyrir þá sem koma með tafl og klukku, annars kr. 2.000.-. (Fréttatilkynning) Stjórn og fjáröflunarnefnd Kiwanisklúbbsins Bása þegar tækið var afhent. Ljósm.: Úlfar Áifústsson Kiwanisklúbburinn Básar Isafirði: Afhenti fullkomið hjartatæki að verð- mæti 4,2 millj. kr. ísafirði, 8. október. KIWANISKLÚBBURINN Básar afhenti siðastliðinn sunnudag hjartarafloststæki, hjartarita og hjartaskjá. Samstæðan er vel meðfærileg fyrir einn mann og er með innbyggðum rafhhjðum, þannig að fíytja má tækið úr stað þegar um alvarleg hjartatilfeili er að ræða. Sturla Halldórsson hafnsögumaður afhenti tækin fyrir hönd Kiwanisklúbbsins, við athöfn á Hótel Mánakaffi. Bjarney Ólafsdóttir, formaður ísafjarðardeildar Rauða kross ís- lands, veitti tækjunum móttöku, en þau verða notuð í sjúkrabifreið staðarins. Hann afhenti síðan tækið áfram til Guðmundar Ing- ólfssonar, forseta bæjarstjórnar, þar sem bæjarstjórn hefur nú tekið við rekstri sjúkrabifreiðar- innar. Guðmundur Ingólfsson þakkaði Kiwanismönnum höfð- inglega gjöf, en tækin kosta um 4,2 milljónir króna. Hann ræddi einnig lítillega um þau vandræði, sem hafa skapast við sjúkraflutn- inga, þar sem lögreglan hefur ákveðið að hætta þeim störfum, meðal annars vegna ónógrar þekk- ingar á meðferð sjúkra og slas- aðra. Jens Kjartansson læknir kvaddi sér hljóðs og lýsti ánægju sinni með tilkomu tækisins, sem hann taldi mjög fullkomið á sínu sviði, en gat þess, að það væri aðeins á færi lækna að nota það. Þá gat hann þess, að læknar hér hafa oft farið fram á, að hér verði komið upp kallkerfi við sjúkrahús- ið, svo ná megi til lækna beint, hvar sem þeir eru staddir innan bæjarmarkanna. En aðeins með því að unnt væri að senda lækni með tækinu á neyðarstað, væri unnt að gera viðeigandi ráðstafan- ir til bjargar sjúklingum í alvar- legustu tilfellum. - Úlfar Frönsk ljóð- list kynnt hjá Alliance Francaise FRANSKI listamaðurinn Michel de Maulne kynnir franska ljóðlist á vegum Alli- ance Francaisc, sunnudaginn 12. október, kl. 14.00 í franska bókasafninu, Laufás- vegi 12. Michel de Maulne mun með upplestri og söng kynna verk franskra ljóð- skálda allt frá skáldinu Vill- on sem uppi var á 15. öld til samtímaskáldsins Michaux. De Maulne hefur um árabil unnið við leikhús víðsvegar um Frakkland, bæði að svið- setningu og leik. Hann hefur m.a. leikið í verkum eftir Cocteau, Moliere, Marivaux, Lorca o.fl. Á síðari árum hefur hann sérhæft sig í túlkun ljóðlistar með upplestri og söng. Kynningin fer fram á frönsku og eru allir velkomnir. (Frá Alliance Francaise.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.