Morgunblaðið - 11.10.1980, Page 12

Morgunblaðið - 11.10.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Haustsýning Félags íslenzkra myndlistarmanna að Kjarvals- stöðum keyrir nú fyrir fullu er þetta birtist, raunar er nokkuð liðið á sýningartímann því að henni lýkur á sunnudagskvöld. Sýningin hefur hlotið uppörvandi viðtökur gagnrýnenda sem gesta, enda er hún með taisvert öðruvísi sniði en tíðkast hefur hingað til, sem gerir hana í senn áhugaverð- ari og ásjálegri. Sá er hér ritar vill hvetja sem flesta til að skoða þessa sýningu því að hún markar mjög sennilega tímamót, eftir að haustsýningar félagsins hafa ver- ið í öldudal um nokkurt skeið. Lítt skiljanlegum öldudal. Sýningarnefnd markaði sér í ár þá réttu stefnu, að í stað þess að taka sem flesta með, jafnvel marga með aðeins eitt verk, er meirihluti sýnenda með þrjú verk og fleiri. Þá hefur sú nýjung verið ' tekin upp að bjóða nokkrum fé- lagsmönnum að taka þátt í sýn- ingunni sem sérstökum gestum og er það rétt þróun, en þó er sá agnúi á að þessu sinni, að þeir eru of margir (5), þar sem einungis er sýnt í hálfu húsinu. Þetta tak- markar mjög rými aðsendra verka og sýningin fær nokkurn svip af samsýningu nokkurra einstakl- inga, sem ekki á að eiga sér stað. Að sjálfsögðu eru heiðursgestirnir alls góðs maklegir enda setja þeir sterkan svip á sýninguna, bera hana uppi ef svo má að orði komast, en það hefði verið nóg að hafa þá þrjá og þá einkum þá sem standa á tímamótum í lífi sínu, en þau Ásgerður Búadóttir, Guð- mundur Benediktsson og Valtýr Pétursson eru öll komin á sjötug- asta áratuginn hve ótrúlegt sem það hljómar. Raunar eru viðkom- andi ári á eftir áætlun um að heiðra Valtý. Hér er, þó í smáu sniði sé, endurvakin gömul og góð hefð félagsins, sem legið hefur niðri um árabil en hún fólst í því að heiðra félagsmenn með sérsýn- ingum á verkum þeirra er þeir komust á miðjan aldur. — Það er mjög snyrtilegur og þokkafullur svipur yfir sýning- unni í heild og hún er t.d. algjör andstæða sýningarinnar í fyrra er minnti helst á flóamarkað. Um framlag einstakra er það að segja, (svo maður byrji fyrst á gestun- um) að Ásgerður Búadóttir á einstaklega fallega veggteppasam- stæðu, sem undirstrikar sterkan persónuleika og þá sérstöðu er hún hefur markað sér með verkum sínum á Norðurlöndum, Guð- mundur Benediktsswn heldur áfram með að þróa á markvissan hátt hinar þokkafullu eirmyndir sínar, Leifur Breiðfjörð fer á kostum þar sem hann hefur sprengt af sér fjötra hins hefð- bundna sviðs glerlistar og blandar hér saman á áhrifaríkan hátt hinu fagra og dýra gleri og ódýrari og almennari efnum t.d. vikurhellum. Hér kemur fram skemmtileg þörf * Höggmynd eftir Hallstein Sigurðsson. í bakgrunni sér i myndir eftir Guðmund Björgvinsson og Sigurð Örlygsson. Haustsýning FÍM 1980 til að víkka út svið glerlistar, hún er að vísu síður en svo ný af nálinni í heiminum en það er hressilegt að sjá hér að Leifur ætlar ekki að láta sér nægja alfarið hefðbundna sviðið þótt verkefnin séu yfrið nóg. Valtýr Pétursson er í senn litríkur sem hressilegur í myndröð sinni og stórum kraftmeiri en t.d. á Sept- em-sýningunni. Ég hef tekið eftir því, að þessi myndstíll Valtýs nýtur meiri skilnings listfróðra í útlandinu en hérlendis og mætti hér vísa til nokkurra listdóma m.a. frá Rostock og V-Þýskalandi. Þórður Hall er mjög menningar- legur í myndgerð sinni, næstum um of á köflum, framlag hans er mjög hrifmikið, máski einum of fallegt og snurfusað, hann mætti að ósekju taka meiri áhættu í myndgerð sinni. — Það vekur athygli á sýning- unni hve veglegan sess Valgerður Briem skipar með myndaröð sinni, verðskuldaðan sess að mínu mati, því að myndir hennar eru mjög magnaðar og sérkennilegar. Þetta er röð andlita þar sem megináherslan er lögð á að þrengja fram hugsýnum um innri gerð persónuleika fólks. Þetta kunna í senn að vera ákveðnar persónur eða hugsýnir listakon- unnar. Fyrir þessar myndir hefði ég kosið mettaðari bakgrunn því að þá hefðu myndirnar komist betur til skila. Of langt mál væri að telja alla upp sem eiga myndir á sýningunni Myndir eftir Valgerði Briem.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.