Morgunblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
45
M W /-S .
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
• Betur varið
til vopnakaupa
Síðar í greininni gerir „Hús-
móðir" að umræðuefni þá peninga
sem fluttir voru frá Bandaríkjun-
um til Murmansk. Eg hef aldrei
heyrt það áður að peningar hafi
verið fluttir til Sovétríkjanna á
þessum árum. Það voru aðallega
hergögn sem voru flutt þangað
vegna þess að hergagnaiðnaður
Sovétmanna fullnægði ekki þörf-
um þeirra á þessu sviði. Stalín
lagði hins vegar mesta áherslu á
að útrýma öllum menntuðum
mönnum á sviði iðnaðar, og al-
múganum. Ég tel að andvirði
þessara hergagna hafi verið betur
varið í að kaupa vopn til austur-
vígstöðvanna en til að greiða
ferðakostnað íslenskra kommún-
ista. Þeir sem hún nefnir eru svo
einstrengingslegir og þeir breyt-
ast ekki við eins mánaðar dvöl í
Sovét.
• Kennsluhæfileik-
ar fara ekki eftir
pólitískum
skoðunum
„Húsmóðir" segir að sagn-
fræðingar sem eru sósíalistar séu
óhæfir sögukennarar. Ég sé ekki
betur en þessi fullyrðing sé gjör-
samlega úr lausu lofti gripin. Einn
viðmælendanna í umræðuþættin-
um er sögukennari og hefur kennt
mér sögu. Ég get sagt „Húsmóður“
það í trúnaði, að hann hefur komið
fram með sína hlið á sagnfræð-
inni.
Hann hefur einnig haldið því
fram að ekki sé hægt að flokka
pólitískar skoðanir undir áróður
nema sagnfræðingurinn haldi
fram sínum áróðri sem sögulegum
staðreyndum.
Óhætt er að fullyrða að
kennsluhæfileikar fara ekki eftir
pólitískum skoðunum."
Þessir hringdu . . .
MSZ jNsV
j ^ lc'w/Á/l ^\ooy \
• Óþarfa dekur?
Sigurlaug Karlsdóttir
hringdi vegna ummæla hér í
dálknum um óþarfa dekur við
viðskiptavini á bensínstöðvum
(Mbl. 6. okt.). Þeir byggja nú svo
flott hérna að þeir geta ekki verið
þekktir fyrir að skera þjónustuna
við nögl. Viðmælandi þinn segist
þekkja það frá Noregi að þar sé nú
ekki stjanað við menn á bensín-
stöðvum. Það er vafalaust rétt hjá
honum, en þarf þó ekki að vera til
fyrirmyndar. Ég þekki hins vegar
hvernig þessari þjónustu er háttað
í Bandaríkjunum. Þar getur mað-
ur valið milli þjónustu og
þjónustuleysis, og þar borgar
maður minna fyrir bensín ef engin
þjónusta fylgir. Kjósi maður að
láta starfsmenn bensínstöðvanna
fylla á tankinn, þá þykir það
sjálfsagt þar að þurrkað sé af
framrúðu bílsins á meðan staldrað
er við.
Ég minnist þess að ég kom eitt
sinn inn á stöð Skeljungs við
Þóroddsstaði og tók bensín. Ég
rétti afgreiðslumanninum pen-
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Rómaborg í sumar, kom þessi
staða upp í skák þeirra Tatai,
Ttalíu, sem hafði hvítt og átti leik
gegn 0. Rodriguez, stórmeistara
frá Perú.
30. — Hxgfi+! og svartur gafst
upp, því hann verður mát. T.d. 30.
- Kh8, 31. Hg8+, eða 30. - Bg7,
31. Hxg7+ — Kxg7, 32. Dxh7+ —
Kf6, 33. Dh6+ o.s.frv. Grikkinn
Makropoulos sigraði óvænt á
mótinu, hann hlaut 6% vinning af
9 mögulegum. Næstur kom júgó-
slavneski stórmeistarinn Parma
með 6 vinninga.
ingana út um bílgluggann en hann
þvertók fyrir að taka við þeim. Ég
hef aldrei verslað þar síðan. Ég fæ
afbragðsgóða þjónustu hjá lipru
afgreiðslufólki Skeljungs hér í
Garðabænum og kann að meta
það.
Viðmælandi þinn nefnir að af-
greiðslumennirnir séu stundum
við aldur og eigi annríkt, ekki sé á
störf þeirra bætandi. Mér finnst
þeir alls góðs maklegir, en bendi á
að við borgum þessa þjónustu í
rokdýru bensíni. Leyfi mér að
síðan að benda á gamla menn sem
við gætum létt á ef við værum öll
samtaka um að ganga vel um borg
og bæ. Það eru þeir sem hirða upp
eftir okkur ruslið sem við hendum
frá okkur í hugsunarleysi.
HÖGNI HREKKVÍSI
»>AR FO(2 „9ex.SOSAIAJ 't OL'iu" . !"
Ódýrt
Bragakaffi 1.059 pr. pk.
HAGKAUP
Tilboð óskast
í eftirtalin tæki:
1. MERCEDES BENZ D 309, 22ja sæta fólksflutn-
ingabifreið með dieselvél, árgerð 1972.
2. Flutningavagn meö 12 tonna burðargetu, lengd
30 fet á einum öxli.
3. Dráttarvél (SCHRAMM 125) meö loftpressu.
Tækin verða til sýnis að Grensásvegi 9, þriöjudag-
inn 14. október milli kl. 12—15.
Tilboöin verða opnuð sama dag kl. 16.10.
Sala Varnarlíöseigna
, Nýtt
simanumer
frá 12. október:
26011
skiptiborð — innanlandsflug
26622
farpantanir — innanlands og upplýs-
ingar
FLUGLEIDIR
Trésmiðir —
Húsbyggjendur
Spónaplöturnar og krossviðinn, sem þið kaupiö hjá
okkur getið þið sagaö niður í plötusöginni okkar og
það er ókeypis þjónusta.
BJÖRNINN;
Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavik