Morgunblaðið - 11.10.1980, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980
• ÞaA er mikil harka i atvinnuknattspyrnu og leikmenn þurfa að leika gifurlegan fjölda leikja. Meiðsii
eru þvi ekki óalgeng. Hér fær Pétur samstuð er hann sækir að markverði. Tilburðirnir minna á karate.
Pétur verður frá knatt-
spyrnukeppni í 3-4 mánuði
EINS OG SKÝRT hefur verið frá þurfti Pétur Pétursson,
knattspyrnumaðurinn snjalli hjá Feyenoord, að gangast undir
uppskurð á hné. Mb.I ræddi við Pétur i gærdag 0g innti hann eftir
heilsunni. Það var gott hljóð í Pétri sem hefur verið rúmliggjandi
heima i 12 daga.
„Mér líður alveg þokkaiega, að
visu hef ég haft mikinn krampa í
fætinum og hann hefur gert mér
lífið leitt. Eg er ekkert farinn að
fara fram úr rúminu ennþá. Að-
gerðin tókst vel að sögn þeirra
lækna sem skáru mig upp en það
er alveg ljóst að ég verð frá
knattspyrnukeppni í 3 til 4 mán-
uði. Það voru liðbönd og brjósk í
hnénu sem voru illa sködduð, mun
verr en gert var ráð fyrir. Ég var
ekki settur í gifsumbúðir, ein-
göngu vafinn um fótinn. Fóturinn
hefur rýrnað verulega við aðgerð-
ina og af því að liggja svona kyrr
dag eftir dag. Það er rétt núna
sem ég er að byrja að gera æfingar
í rúminu, lyfta fætinum upp og
niður. Ég má ekki stíga í fótinn
fyrr en 5. nóvember.
Ég er að vonast til þess að geta
leikið aftur í janúar. Þetta tekur
allt sinn tíma. Það verður erfitt að
koma sér aftur í góða æfingu en ég
er alveg ákveðinn í því að komast í
liðið aftur og byrja að skora mörk.
Þetta stappar í mann stálinu. Það
hefur verið háif nöturlegt að þurfa
að liggja í rúminu og horfa á
félaga sína í sjónvarpinu. Feye-
noord hefur ekki gengið of vel að
undanförnu í leikjum sínum. Jan
Peters hefur verið meiddur í 3
mánuði og framlínunni hefur
gengið illa að skora mörk. Ég hef
lesið það í hollensku blöðunum að
Feyenoord ætli að fá Kees Kist,
markakónginn frá í fyrra, lánað-
ann. Hann hefur verið á vara-
mannabekknum hjá liði sínu, AZ.
Liðinu hefur gengið ótrúlega vel,
unnið alla leiki sína og skorað að
meðaltali fjögur mörk í leik. Kist
var meiddur og hefur ekki verið
settur inn í liðið. Feyenoord hefur
unnið á útivelli en gengið illa
heima.“
Að lokum sagðist Pétur vera
mjög feginn því að uppskurðurinn
væri búinn og að hann væri á
batavegi. Meiðslin voru búin að
hrjá hann síðan í unglingalands-
leiknum gegn Norðmönnum hér á
Laugardalsvellinum í sumar. Pét-
ur hefur í hyggju að koma heim í
10 daga frí á næstunni.
- Þr.
Enginn áhorfandi fékk aðgang að Upton Park.
íslandsmótið í handknattleik:
Sigra Þróttarar
í 3. leik sínum?
TVEIR leikir fara fram i ís-
landsmótinu í handknattleik um
helgina. í dag kl. 14.00 leika FH
og Fylkir i Laugardalshöll og á
morgun leika Fram og Þróttur
kl. 20.00. Báðir þessir leikir ættu
að bjóða upp á mikla spennu. Að
vísu er FH-liðið sigurstranglegra
gegn Fylki en Fylkisliðið kom
mjög á óvart er það sigraði Fram
og gæti vel gert FH-ingum lifið
leitt.
Leikur Fram og Þróttar verður
tvísýnn. Fram hefur tapað báðum
leikjum sínum í mótinu til þessa,
en Þróttur sigrað í sínum tveim.
Það er því ekki nokkur vafi á
hörkuleik milli liðanna þar sem
gífurlega mikið er í húfi fyrir bæði
liðin. Þróttur getur komið sér á
toppinn í 1. deild með sigri. En
tapi Fram eru þeir í neðsta sæti
áfram og þeir eru örugglega ekki
hrifnir af því hlutskipti sínu.
Handknattielkur
V.....................V
Landsieikir i körfu:
Fá Kínver jar
nú fyrir ferðina?
ÍSLENDINGAR og Kínverjar og lauk leiknum með naumum
leika tvo landsleiki i körfuknatt-
leik um helgina og á mánudags-
kvöldið mætir kínverska liðið
úrvalsliði úr úrvalsdeildinni.
skipuðu bæði innlendum og
bandarískum leikmönnum.
Eins og frá var skýrt í Morgun-
blaðinu í gær, léku Islendingar og
Kínverjar landsleik í fyrra kvöld
| KðrluKnattiemur
sigri Kínverja, 90—89. Var leikur-
inn fjörugur og oft vel leikinn af
beggja hálfu og má því vænta hins
sama í næstu leikjum.
Liðin eigast við í Borgarnesi í
dag og hefst leikurinn klukkan
20.00. A morgun verður síðan
leikið í Njarðvík og hefst leikurinn
klukkan 15.00. Síðasti leikurinn,
leikur Kínverjanna og úrvalsliðs-
ins, fer fram í Laugardalshöllinni
og hefst hann klukkan 20.00.
• Félagarnir Pétur og Jan Peters hafa báðir verið meiddir og ekki
getað leikið með Feyenoord að undanförnu. Þeir voru mestu
markaskorarar liðsins i fyrra.
Kyrróin réði ríkjum
á Upton Park
ÞEGAR Lundúnaliðið Wcst Ham
tapaði 3—1 fyrir spánska ðinu
Castilla i siðastliðnum ánuði
létu áhangendur liðsins Ilum
illum látum. Þeir gerðu s< litið
fyrir og sprændu á sp nska
áhorfendur, hentu bjórdós i inn
á leikvanginn og börðu við
lögregluna. Þetta er ekki í rsta
skipti sem enskir áhor adur
valda skemmdum og upp' ti á
knattspyrnuleikjum i óp>
keppninni i knattspyrnu.
FIFA, alþjóðaknattspyr am
bandið, dæmdi mjög sti <t .
málinu í ljósi þess að kum
atburðum virðist fjölga ári
hverju. West Ham var dæi sekt
og fékk ekki að selja nei að-
göngumiða að síðari leik inna
sem fram fór á Upton Pf ser
tekur 40.000 áhorfendur. Þá var
þeim bannað að selja sjónvarps-
réttinn af leiknum. Félagið varð
því fyrir mjög tilfinnanlegu fjár-
hagslegu tjóni, sem skipti þúsund-
um sterlingspunda.
Þegar síðari leikur liðanna fór
fram fengu aðeins 200 manns
aðgang og stór hluti hópsins voru
fréttamenn. „Þetta var einkenni-
leg reynsla," sagði David Cross,
framherji West Ham, eftir leik-
inn. í hvert skipti sem ég skoraði
varð ég að líta á dómarann.
Yfirleitt nægir að heyra í hinum
fjölmörgu áhorfendum þegar
fagnaðarhrópin fara eins og
bylgja um völlinn þegar mark er
skorað. West Ham sigraði í leikn-
um, 5—1, eftir framlengdan leik.
Staðan var 3—1 þegar venjulegum
leiktíma var lokið.