Morgunblaðið - 22.11.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
44 flugmenn Flug-
leiða vilja kaupa
hlut í Arnarflugi
Svíar kref jast mikill-
ar verðlækkunar á síld
Sala í Danmörku teflir í tvísýnu fyrirframsamninKum á næsta ári, segir SÚN
KAUPENDUR á verkaðri síld í Danmörku, Sviþjóð og Vestur-Þýzka-
landi hafa kvartað og gert athugasemdir við sigíingar íslenzkra skipa
með síid til Danmerkur. Hefur hið lága verð, sem fengizt hefur fyrir
siidina i Danmörku, skapað ótta við undirhoð hjá þeim kaupendum.
sem í vertiðarbyrjun gerðu bindandi fyrirframsamninga um kaup á
saltaðri síld frá Islandi. Ilafa Svíar m.a. krafizt 20% lækkunar á
söluverði allrar þeirrar síldar, sem samið var um við þá í haust.
Vilja kaupa hlut
Flugleiða á mark-
aðsverði
44 FLUGMENN i Félagi is-
lenzkra atvinnufiugmanna sem
allir eru starfsmenn Flugleiða og
fyrrverandi starfsmenn Flugfé-
lags íslands samþykktu einróma
á fundi í fyrrakvöld að leita eftir
kaupum á hlut Flugleiða í Arnar-
flugi ef sá hlutur verður seldur. í
samtali við talsmenn flugmanna í
gærkvöldi sögðust þeir telja um-
ra-ddan hlut mjög álitlega fjár-
festingu sem slíka ef selja ætti á
nafnverði, en þeir kváðust tilbún-
ir til þess að fara hærra en
nafnverð hljóðar upp á. Sögðust
þeir telja eðlilegast að Flugleiðir
gætu selt sinn hlut á markaðs-
verði ef hluturinn verður seldur.
en Flugleiðir eiga um 57% í
Ny myndasaga
í víkingastíl
CONAN villimaður heitir ný
myndasaga sem hefur göngu
sína í biaðinu í dag (sjá mynda-
sögusíðu). Hún kemur í staðinn
fyrir X-9, sem rann skeið sitt á
enda í síðastliðinni viku. Conan
villimaður er ævintýrasaga í
víkingastíl. Þar eigast við ofur-
hugar og ófreskjur, knáir kapp-
ar og örgustu fúlmenni.
Arnarflugi að nafnverði um 65
millj. kr. Ilafa flugmennirnir
sent Flugleiðum bréf þar sem
þess er farið á leit við stjórn
Flugleiða að þeim vcrði seld
hlutabréfin verði þau seld.
A fundi blaðamanns Mbl. með
flugmönnum kom það fram að þeir
telja slík skilyrði sem sett eru af
Alþingi stangast algjörlega á við
almenna viðskiptahætti ef einum
aðila er gefinn kostur á því að
kaupa eigur annars á ákveðnu
verði sem ekki er háð markaðs-
verði.
Einn af talsmönnum flugmanna,
Kjartan Norðdahl, sagði að þetta
væri eins og að koma tii banka-
stjóra sem segðist skyldu veita þér
lán ef þú seldir kunningja hans
bílinn þinn fyrir lítið.
Flugmenn sögðu hugmynd sína
tvíþætta í þessu sambandi. Hér
væri um ágæta fjárfestingu að
ræða og kváðust þeir telja að ýmsir
fleiri vildu ganga í lið með þeim,
aðilar úti á landi, hugsanlega
Loftleiðaflugmenn og fleiri ef
Flugleiðir vildu selja og hins vegar
hlyti það að vera til hagsbóta fyrir
Flugleiðir ef fyrirtækið fengi topp-
verð fyrir eign sína.
„Það er fáránlegt ef ráðherra
leggur stein í götu fjárvana fyrir-
tækis ef það getur selt á toppverði,"
sagði einn af talsmönnum flug-
manna. Þá sögðust þeir hugsa sér
að Flugleiðir yrðu samstarfsaðili ef
til kæmi, en þeir kváðust vilja
vekja athygli á því að þessi kaup ef
úr yrði leystu engan veginn þeirra
atvinnuvandamál.
„Því hefur verið haidið fram
óformlega að starfsmenn Arnar-
flugs eigi einir að fá að kaupa
þennan hlut Flugleiða, en við
viljum láta á það reyna hvort við
erum gjaldgengir og jafnir fyrir
lögum landsins til þess að falast
eftir ákveðnu vöruframboði," sögðu
talsmenn flugmanna og þeir kváð-
ust gjarnan vilja fá fleiri starfs-
menn Flugleiða til liðs við sig.
„Við trúum því ekki að sú
viðskiptaspilling verði tekin upp að
stjórnvöld taki einn hóp manna
fram yfir annan í slíkum vinnu-
brögðum sem skilyrðin bjóða upp
á.“
Fyrstir til að kvarta yfir sigl-
ingunum voru danskir kaupendur,
sem Síldarútvegsnefnd stóð í
samningaumleitunum við. Síðan
bárust alvarlegar athugasemdir
frá v-þýzkum kaupendum, sem
gert höfðu fyrirframsamninga við
Islendinga, og 17. þessa mánaðar
barst Síldarútvegsnefnd svo
skeyti frá samtökum sænskra
síldarkaupenda.
Segja Svíarnir þar m.a. að
nokkur dönsk fyrirtæki séu þegar
byrjuð kryddsöltun síldar og mörg
fyrirtæki muni bætast við ef
landanir haldi áfram. Á boðstól-
um verði því verkuð íslenzk síld
næstum 20% ódýrari en sú síld,
sem Svíarnir sömdu um kaup á í
samningum við Síldarútvegs-
nefnd. I skeyti sínu segja Svíarnir
síðan: „Verði áframhald á þessum
síldarlöndunum í Danmörku, á því
verði sem fengizt hefur hingað til,
krefjumst við 20% lækkunar á
söluverði allrar þeirrar síldar,
sem samið hefur verið um við
yður.“
Ennfremur kemur fram í skeyt-
inu, að það sem gerzt hafi muni
draga úr því trausti, sem Síldar-
útvegsnefnd hafi áunnið sér sem
seljandi í gegnum árin. „Þess
vegna efumst við stórlega um, að
samningar um fast verð náist í
samningaviðræðum, sem fram
kunna að fara á komandi ári,“
segja Svíarnir. í gær barst svo
annað skeyti frá þeim, þess efnis
að málið sé nú orðið enn alvar-
legra en áður, þar sem tvö íslenzk
skip hafi selt síid í Danmörku
þann dag fyrir enn lægra verð en
áður. Svíarnir ítreka verðlækkun-
arkröfur sínar og segja, að munur-
inn á söluverði Síldarútvegsnefnd-
ar og því verði, sem unnt sé að fá
fyrir síldina saltaða í Danmörku,
sé orðinn enn meiri en þau 20%,
sem fyrr eru nefnd.
í upplýsingabréfi frá Síldarút-
vegsnefnd er tekið fram, að allir
samningar við Svíana séu í fullu
gildi og segir þar, að Svíunum beri
skilyrðislaust að greiða síldina á
fullu samningsverði. Segir í bréf-
inu, að siglingar til Danmerkur
með síldina sem hráefni geti þó
skaðað markaðsstöðu íslenzkrar
saltsíldar erlendis, ef brúttósölu-
verð verði undir 5,50 krónum
dönskum á kíló, sem í raun þýði 5
krónur danskar þar sem vitað sé,
að um 10% yfirvigt sé að jafnaði í
kössunum. „Það óverulega magn,
sem ráðgert er að sigla með þann
stutta tíma, sem eftir er af þessari
vertíð, getur þó varla haft nokkur
teljandi áhrif á sölumöguleikana í
ár, þar sem gengið hefir verið frá
öllum þeim sölum á saltaðri síld,
sem útlit var fyrir að næðust á
viðunandi verði. Aftur á móti
getur þetta teflt í tvísýnu gerð
fyrirframsamninga á næsta ári,“
segir í upplýsingabréfi Síldarút-
vegsnefndar.
Síldarsölur bann-
aðar, en bannið síð-
an afturkallað
Viðskiptaráðuneytið tilkynnti
LIU um hádegi í gær að leyfi til að
selja síld í Danmörku yrðu ekki
veitt nema til þeirra skipa, sem
þegar eru lögð af stað með aflann.
Var þegar haft samhand við kaup-
endur ytra, útgerðarmenn hér á
landi og jafnvel skipstjóra úti á sjó
og þeim tilkynnt um ákvörðun
ráðuneytisins á banni við frekari
sölum á síld í Danmörku.
Síðdegis í gær kom síðan önnur
tilkynning frá viðskiptaráðuneýt-
inu þar-sem sagt var að hætt hefði
verið við bann á siglingum með síld.
Mun það hafa verið að frumkvæði
Steingríms Hermannssonar, sem
fyrri tilkynningin var send út, en
þegar málið var nánar skoðað í
viðskiptaráðuneytinu var ákveðið
að afturkalla bannið og hófst þá ný
„hringferð" hjá starfsfólki LÍU.
Stefán Gunniaugsson í viðskipta-
ráðuneytinu sagði í samtali við Mbl.
í gær, að þetta mál væri ekki
afgreitt. Það væri enn til umfjöll-
unar í ráðuneytinu.
Tíminn snýst gegn Gunn-
ari vegna ASÍ-þings
— segir Ólaf Ragnar genginn í lið
með stjórnarandstæðingum
TÍMINN, málgagn Frams<>kn-
arflokksins snerist í gær í
forystugrein gegn þeirri stefnu
Gunnars Thoroddsens. forsætis-
ráðherra. að leggja tillögur
ríkisstjórnarinnar í efnahagsm-
álum ekki fyrir þing ASÍ. sem
hefst nk. mánudag. Sagði Tim-
inn í forystugrein í gær, að ekki
væri annað hetra tækifæri en
ASÍ-þing til þess að gera ra*ki-
lega grein fyrir tillögum ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmál-
um.
Eins og kunnugt er sagði
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
Gunnar Thoroddsen i svari viö fyrirspurn:
„Ekki hægt að leggja
ráöstafanirnar fyrir
A CT M— Karvel ber ekki ábyrgð
á tillögum Alþýðuflokksins
Gunnar Thoroddsen Jorsœtisrá<)herra!\
'Fullt samráO verðuí
haft við ASI
ráðhprra, í ræðu á Alþingi í
fyfradag, að tillögur um efna-
hagsaðgerðir yrðu ekki lagðar
fyrir ASÍ-þing, þar sem þær
væru ekki tilbúnar.
Ritstjórar Tímans segja hins
vegar orðrétt í forystugrein
blaðsins í gær: „Á næstu dögum
kemur þing Alþýðusambands
íslands saman. Satt að segja
verður ekki séð að hentara eða
eðlilegra tækifæri gefist um
hríð til þess einmitt að gera
rækilega og skilvislega grein
fyrir einstökum framkvæmda-
atriðum þeirra efnahagsað-
gerða, sem boðaðar hafa verið,
bæði með yfirlýsingum ráð-
herra og reyndar í sjálfum
samstarfssáttmála ríkisstjórn-
arinnar.“
Þá vakti það einnig athygli í
gær, að tvö helztu málgögn
ríkisstjórnarinnar, Tímann og
Þjóðviljann, greindi á um það,
hvernig skilja bæri ummæli for-
sætisráðherra á Alþingi í fyrra-
dag. Tíminn lagði áherzlu á þau
orð Gunnars Thoroddsens, að
ekki væri hægt að leggja ráð-
stafanir fyrir ASÍ-þing en Þjóð-
viljinn lagði áherzlu á þau orð
ráðherrans að fullt samráð yrði
haft við ASl!
Ennfremur vakti athygli í
gær, að Tíminn taldi í fyrirsögn
á frétt, að Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður þingflokks
Aiþýðubandalags hefði gengið í
lið með stjórnarandstöðunni og
sagði í frétt Tímans, að Ólafur
Ragnar hefði „ráðizt nokkuð
óvægið á Tómas Árnason".
Ólafur Ragnar gekk í lið
með stjórnarandstöðunni