Morgunblaðið - 22.11.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
11
Lára Bjarnadóttir
Ólafevík 85 ára í dag
í DAG á 85 ára afmæli einn
elzti starfandi kaupmaður
landsins. frú Lára Bjarnadótt-
ir í Ólafsvík. Hún starfrækir
Verzlun Jóns Gíslasonar, sem
hún stofnaði i ólafsvik fyrir
52 árum ásamt manni sínum
Jóni Gislasyni póstmeistara.
Jón lézt árið 1952 og síðan
hefur Lára starfrækt verzlun-
ina og hafði auk þess um langt
árabil afgreiðslu fyrir Eimskip
og Ríkisskip, auk umboðs-
mennsku fyrir Morgunblaðið og
Happdrætti Háskólans, sem
hún hefur enn umboð fyrir.
Síðustu ár hefur Lára notið
aðstoðar tengdadætra sinna við
verzlunarreksturinn, en starfar
samt sjálf við afgreiðslu og fer
á kaupstefnur. Örfá ár eru
síðan Lára lét af störfum í
stjórn Kvenfélags Ólafsvíkur,
en þó lætur hún sig ekki vanta
á fundi og mannamót.
Ólsarar eru stoltir af þessum
samborgara sínum og senda
Láru beztu afmæliskveðjur, en
hún mun verða að heiman í
dag.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRETI • - SlMAR: 17152-17355
Heilsurækt og
mannamein
Lára Bjarnadóttir.
BLAÐINU hefur borist eftirfar-
andi frá stjórn Félags ísl.
sjúkraþjálfara:
„Viljirðu svívirða saklausan mann.
sevfóu ekki ákveðnar skammir um hann.
en láttu það svona i veðrinu vaka.
að þú vitir hann hafi unnið til saka.“
Vegna aðdróttana í garð Fé-
lags ísl. sjúkraþjálfara í frétt
um Heilsuræktina, sem birtist í
Mbl. 19/11 sl., vill stjórn félags-
ins taka eftirfarandi fram:
Bein afskipti Félags ísl.
sjúkraþjálfara af málefnum
Heilsuræktarinnar hafa engin
verið. Hins vegar telur félagið
það skyldu sína að aðstoða
stéttarfélaga í baráttunni um
brauðið. Erlent fólk, sem hingað
kemur til starfa, á að sjálfsögðu
erfitt með að standa á rétti
sínum sem skyldi, þegar slær í
brýnu vegna samningsbrota.
Varð raunin sú, að þeir tveir
erlendu sjúkraþjálfarar, sem frú
Jóhanna Tryggvadóttir fékk í
sína þjónustu til Heilsuræktar-
Ljóðakver eft-
ir Jóhann M.
Kristjánsson
SÁL mín hlustar nefnist ljóða-
kver, sem hókaútgáfan Skjald-
borg á Akureyri hefur sent frá
sér, og er eftir Jóhann M.
Kristjánsson. Á bókarkápu seg-
ir m.a. að sér til hugarhægðar
hafi höfundur lagt stund á
ljóðlist, samið allmikið af lög-
um, m.a. við mörg ljóð sín og
auk þess hafi hann um árabil
lagt stund á málaralist og selt
fjölda málverka.
Þá segir einnig á bókarkáp-
unni: „Höfundur þessa ljóða-
kvers er Norður-Þingeyingur, Jó-
hann M. Kristjánsson frá Skoru-
vík á Langanesi. Hann hóf sig
upp úr heilsuleysi með þrotlausri
líkamsrækt um árabil á unga
aldri og varð efldur að líkams-
burðum. Síðar lagði hann rækt
við hin andlegu svið. Hvernig
sem það hljómar var Jóhann
merkilegur atvinnurekandi og er
dulspekingur, sem erlendar
stofnanir hafa heiðrað. Hér á
landi er hann kunnastur af
skeleggum greinum um fjölda
mála, allt frá rjúpnaveiðum til
hafréttarmála við Jan Mayen,
svo vitnað sé í nýjar greinar."
í gerðaðventukmnsa
og jólaskreytinga
innar, leituðu á náðir Félags ísl.
sjúkraþjálfara, til að ná fram
umsömdum kjörum. Þykir stétt-
arfélagi það ekki nema sjálfsögð
kurteisi að sinna slíkri málaleit-
an, og varla hægt að kalla það
„óskiljanlega óvild“ eða „óeðlileg
vinnubrögð", eins og frú Jó-
hanna vill láta í veðri vaka. Það
skal tekið fram, að Félag ísl.
sjúkraþjálfara hefur ekki þurft
að hafa afskipti af slíkum leið-
indamálum hjá öðrum aðilum.
Með þökk fyrir birtinguna.
Stjórn Félags ísl.
sjúkraþjálfara.
Aðventan nálgast. Fyrsti sunnudagur í
aðventu ereftirviku.
Frá klukkan 2-6 í dag, laugardag og á
morgun, sunnudag sýnum við gerð
aðventukransa og jólaskreytinga.
Fleimsækið Græna torgið um helgina og
sjáið handbragð skreytingameistara
okkar. Eigum allt efni til aðventu- og
jólaskreytinga.
Komiðogsjáiðhinar
nýstárlegu
aðventuskreytingar
okkar úr þurrkuðum
blómum.
Blómstrandi jólastjörnur í góðu úrvali.
ífallegum litum rauðarog hvítar.
blómoud S&a
Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340