Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
Frá kristniboðsstarfi í Kenya:
Kristniboðarnir frá hinum ýmsu stöðum í landinu þurfa að hittast öðru hverju og ræða ýmis
sameiginleg mál sin. Skúli Svavarsson er fyrir miðju.
dveljast því í langflestum tilfell-
um fjarri foreldrum sínum
meirihluta ársins, jafnvel í öðru
landi og má því telja að bæði
börn og foreldrar verði að fórna
eðlilegu fjölskyldulífi þegar
starf sem þetta er annars vegar.
En börnin töldu vist sína við
skólann ágæta. Enda er skólinn í
flestu rekinn eins og venjulegur
norskur grunnskóli. Reynt er að
bjóða upp á ýmsa tilbreytingu og
þegar blm. var á ferð stóð
einmitt yfir skólaferð. Var þá
farið til vikudvalar í Mombasa, í
eins konar náms- og skemmti-
ferð eða vettvangsfræðslu eins
og það heitir sjálfsagt á fagmáli.
Kjellrun og Skúli voru fengin til
að vera með, en að öðr'u leyti sjá
kennarar skólans um ferðir
þessar.
En hversu marga kristniboða
skyldi Norska lútherska kristni-
boðssambandið alls hafa á sín-
um snærum ? Því svarar Birger
Breivik framkvæmdastjóri
NLM:
— Við höfum alls um 500
kristniboða starfandi i þeim niu
löndum, sem við rekum kristni-
Áhersla lögð á heilbrigðis-og
skólastarf ank kristniboðsins
NORÐMENN hófu kristniboðsstarf í Kenya fyrir 10 árum
og fór það aðallega fram í suðurhluta landsins, nálægt
ströndinni, í Voi-héraði. Fyrir 3—4 árum, þegar ástand
gerðist ótryggt í Eþíópíu, ákváðu Norðmenn að kristni-
boðar, sem þar höfðu verið við störf, skyidu flytjast um
set. Fjölgaði þá kristniboðum í Kenya verulega, en áfram
hefur þó verið unnið að kristniboðsstarfi í Eþíópiu.
Núna eru um 50 kristniboðar
Norðmanna að störfum víðs veg-
ar í Kenya. Reka Norðmenn
skóla í Nairobi fyrir börn
kristniboðanna svo og börn ann-
arra Norðmanna, sem þarna
vinna, t.d. við þróunarhjálp,
sendiráðið o.fl. Oddmund Grav-
dal er staðsettur í Nairobi og er
hlutverk hans eins konar um-
sjónarstarf og útréttingar fyrir
kristniboðana.
Útgáfustörf og
útvarpsþættir
— Ég sé um hvers kyns
samskipti kristniboðsins við yf-
irvöld hér, en þau eru margvís-
leg, útvega þarf leyfi fyrir ýmsu
má nefna það, að nú hafa
kristniboðar verið beðnir um að
sjá um viku eða hálfsmánaðar-
legan þátt í útvarpið í Kenya,
þar sem boðskapur Biblíunnar
yrði kynntur og sagt frá kristni-
boðsstarfi.
50 kristniboðar í Kenya
Flestir kristniboðanna, sem
hér eru, voru áður við störf í
Eþíópíu og komu þeir fyrstu
þaðan árið 1977. Starfstímabil
þeirra er því senn á enda, en það
er nú yfirleitt fjögur ár í einu.
Fá þeir þá ársfrí heima og koma
síðan aftur, en kristniboðarnir
eru yfirleitt tvö til þrjú tímabil
við störf ytra. En nýir kristni-
Islensku börnin, sem nú stunda nám i norska skólanum í Nairobi.
Frá vinstri: Edda Björk, Egill, Kristín og Inga Margrét, börn
Kjellrunar og Skúla Svavarssonar. Margrét og Sverrir, börn
Áslaugar Johnsen og Jóhannesar Ólafssonar. Á myndina vantar
einn son Kjellrunar og Skúla, Arnar.
Kristniboðarnir fara út í þorp-
in og spjalla við fólkið og ef
einhver í fjölskyldunni er læs
eru oft skilin eftir smárit þeim
til frekari fróðleiks.
— í Noregi eru fjölmargir,
sem vilja styðja og styrkja
kristniboðsstarf, enda er NLM
ekki eina félagið hér sem rekur
kristniboð. Þessir kristniboðs-
vinir, eins og við nefnum þá oft,
standa að langmestu leyti undir
öllu starfi okkar með gjöfum
sínum. Þetta er fólk sem hefur
köllun til að gefa fjármuni til
kristniboðs og það er uppörvandi
fyrir okkur að finna þenna mikla
áhuga og styrkir okkur í því að
halda þessu starfi áfram. Þar að
auki fáum við nokkurn styrk frá
norsku þróunarhjálpinni,
NORAD, til einstakra uppbygg-
ingarverkefna, t.d. byggingar
sjúkraskýla o.fl.
Kynningarstarfið
mikiivægt
— Við leggjum líka mikla
áherslu á að kynna allt kristni-
boðsstarf okkar heima fyrir.
Fulltrúar okkar ferðast um
landið og segja frá starfinu, við
gefum út 3 tímarit, eitt fyrir
börn, eitt fyrir unglinga og eitt
fyrir fullorðna og flytja þessi
tímarit fréttir og frásagnir af
kristniboði og hvetja fólk til að
styðja það. Þá rekum við barna-
heimili, framhaldsskóla, lýð-
háskóla og biblíuskóla, sem m.a.
hefur það hlutverk að mennta
kristniboða til starfa. Allt þetta
starf miðar að því að kristniboð-
ið verði áfram borið uppi af því
fólki, sem vill hrinda í fram-
kvæmd þeim boðskap Biblíunn-
Áhersla er lögð á kennslustarfið, enda er mikill áhugi fyrir
skólanum hjá nemendum og aliir vilja fá að svara þegar kennarinn
spyr.
er snertir kristniboðs- og skóla-
starfið, héðan þarf iðulega að
senda byggingarefni og ýmsan
annan varning út til kristni-
boðsstöðvanna og svo mætti
lengi telja. í minn hlut koma
einnig nokkuð samskipti við
kristniboða í Eþíópíu og Tanz-
aníu, en kristniboðar í þeim
löndum eiga t.d. börn í norska
skólanum hér, segir Gravdal í
spjalli við Mbl. — Fyrst eftir að
ég kom til Kenya var ég við
kennslustörf í nágrenni Voi,
kenndi þar kristinfræði, en á því
svæði, þar sem fyrstu kristni-
boðarnir hófu störf, hefur mikið
verið unnið að hvers kyns út-
gáfustarfi og bókadreifingu og
höfum við náð til margra með
boðskapinn á þann hátt. Einnig
boðar eru líka á leiðinni og býst
ég við að næstu árin verði að
jafnaði 50 manns við störf hér og
sinna þeir þá hvers kyns störf-
um, boðunarstarfi, kennslu og
hjúkrunarstörfum, segir Odd-
mund að lokum og þurfti einmitt
að halda út á Jomo Kenyatta
flugvöll til að taka á móti einum
kristniboða, er var að koma frá
Noregi úr leyfi til starfa á ný.
Sem fyrr segir reka Norðmenn
skóla, grunnskóla í Nairobi fyrir
börn kristniboðanna. Eru þar nú
yfir 50 nemendur. Foreldrar
flestra eru starfandi í Kenya, en
nokkur eiga foreldra í Eþíópíu
og Tanzaníu. Er þetta heimavist-
arskóli og fara börnin að heiman
í byrjun skólaárs í ágúst og fá
síðan mánaðarleyfi um jól og
Frá kennslustund yngri barnanna.
annað um páska. Síðan er að
sjálfsögðu frí yfir hásumarið.
Sjö Islendingar stunda nú nám í
norska skólanum, fimm börn
Kjellrunar og Skúla Svavarsson-
ar og tvö börn Áslaugar Johnsen
og Jóhannesar Ólafssonar, en
þau starfa í Eþíópíu. Tvö önnur
börn þeirra eru við nám í
framhaldsskóla rétt utan við
Nairobi. Börn kristniboðanna
boð í, og þar að auki eru
starfsmenn hér heima í Noregi
um 200. Á síðasta ári kostaði
starf okkar um 52 milljónir
norskra króna og gerum við ekki
ráð fyrir að hækka það mjög
milli ára nú. Um það bil 60%
fjármagnsins fer til starfsins
erlendis og 40% í heimastarfið.
Og hvernig aflar NLM alls
þessa fjármagns?
ar, að kristin kirkja eigi að boða
fagnaðarerindið öllum þjóðum.
Kristniboð er að kynna boð-
skap Biblíunnar og uppfræða
fólk og um leið viljum við koma
til hjálpar þar sem það er
nauðsynlegt, t.d. við heilsugæslu
og kennslustörf, en kristniboðið
lætur sér jafn annt um líkamleg-
ar og andlegar þarfir m jt.
sagði Breivik að lokum.