Morgunblaðið - 22.11.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
17
3. g
kennari spurði einhvers voru jafn-
an margar hendur á lofti.
Þegar börn eru þrettán ára
lýkur skólaskyldunni. Að vísu
kemur til greina að komast í
sérstakar starfsþjálfunarstöðvar
og ekki er óhugsandi að fá styrki á
vegum UNRWA. Foreldrar leggja
í auknum mæli að sér til að börn
þeirra geti hlotið menntun. Marg-
ir foreldrar hafast áfram við í
búðunum og vinna utan þeirra, til
þess að geta stutt við bakið á
börnum sínum í námi.
Josephine Qui’ban segir að flest
þetta fólk ali með sér óraunsæja
drauma um að snúa aftur heim.
Að vísu hafi margt flóttamann-
anna samlagast Jórdönum, en það
sé þó líklega í minnihluta. Hún
ítrekar þá skoðun sem áður hefur
komið fram í viðtali mínu við
Peter Salah, aðstoðarupplýs-
ingamálaráðherra, að það sé í
reynd undir Israelum komið hvort
fólkið fær að eignast aftur sitt
land og Palestínumenn muni ekki
verða ógnun við ísrael þótt þeir
fengju að koma á laggirnar ríki á
Vesturbakkanum. Hún segir líka
að enda þótt hver einasti Palest-
ínumaður í Jórdaníu styðji PLO
séu þó allir mjög trúaðir þegnar
Husseins konungs, enda hafi hann
reynzt flóttafólkinu vel og sú
gjörð hans að reka skæruliða PLO
af höndum sér 1970, þegar þeir
voru teknir að ógna öryggi kóngs-
dæmis hans, hafi verið hárrétt.
— Ég hef veitt því athygli upp á
síðkastið að svo virðist sem augu
fólks víða um heim séu að opnast
meira og það sér að á þessu máli
er ekki bara ein hlið — sú sem
Israel vill að snúi að heiminum.
Sannleikurinn er líka Palestínu-
mönnum í hag, svo að það er þeim
ávinningur ef hann berst víðar.
Það er óhætt að segja að það var
Palestínumönnum þungt áfall,
hvernig Bretar brugðust þeim að
heimsstyrjöldinni síðari lokinni.
Palestínumenn höfðu stutt þá
dyggilega og síðan sneru Bretar
við þeim bakinu og létu sig engu
skipta hvað um þá yrði. Það er
ekki í eðli Palestínumanna að þola
slíkt. Palestínumaður er orðheld-
inn og traustur, en hann bregst
sár við svikum. — Israelar halda
því fram að þeir hafi grætt upp
landið og unnið þrekvirki, heldur
hún áfram. — Én þeir komu að
landi sem var í uppgræðslu og
þurftu bara að halda starfinu
áfram.
Mér finnst furðulegt, hvað áróð-
ur ísraela gengur í fólk. Og okkur
þykir afstaða Bandaríkjamanna
alveg fráleit og ekki í takt við
tímann; þeir vingast við Israela og
hrinda frá sér 100 milljónum
Araba. Ég fullyrði að hvergi 1
heimi hefur þjóð verið beitt jafn
miklu óréttlæti og Palestínu-
texti:
Jóhanna Kristjónsdóttir
Úr kennslustund i ensku
Á auglýsingahátíöinni
1980 þann 29.11 kl. 18.15
stundvíslega í Átthagasal
Hótel Sögu, verða ekki ^
neinar verðlaunaaf-
hendinar, engar ræður,
engin heimatilbúin gaman- t
mál, ekki gamanvísur,
engin tízkusýning. T
Baldvin kynnir ekki. Guð-
bergur syngur ekki. Jón Þór
og Oli Stef. spila ekki, -
og barinn lokar ekki
fyrr en á síðustu stundu.
Apéritif Kir.